Dagur - 22.01.1998, Qupperneq 1

Dagur - 22.01.1998, Qupperneq 1
Stórtjón í inn- fLutningi á bílunt Vatn flæddi í Sunda- höfn með þeim afleið- ingum að fjöldi nýrra bíla skemmdist. Óljóst hvað verður um hílana. Líkur eru á að stórtjón hafí orðið þegar flæddi í porti Eimskips við Sundahöfn í Reykjavík, þar sem 31 bíll stóð. Þetta gerðist aðfara- nótt 30. desember sl. þegar bæði var stórstreymt og mikil rigning. Grunur leikur á að vatnið sem flæddi upp um niðurföll hafí ver- ið sjóblandað en bílarnir voru ný- komnir til landsins á vegum nokkurra bílaumboða og skemmdust mismikið. Krafa a.m.k. eins bílaumboðs er að Eimskip, sem flutti bílana inn, taki alla bílana aftur og þeir verði sérstaklega boðnir upp sem flóðabílar, enda geti umboðin og neytendur skaðast á kaupum þessara bifreiða. Ekki liggur fyrir hver niðurstaðan verður, en mál- ið er greinilega mjög viðkvæmt. Seljum ekki skenunda bila „Þetta var það mikið að vatnið fór inn á gólf a.m.k. noldcurra bíla, en niðurstaða liggur ekki enn fyr- ir. Við munum ekki setja þessa bíla á markað nema ástand þeirra sé fullkannað," segir Finnbogi Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Heklu, í gær. Hann sagðist ekki vita hvort sjór flæddi upp um ræsin eða aðeins rigningarvatn en Hekla krefðist fullra bóta. Þögn hjá Eimskip „Hvert er fréttaefnið í þessu,“ spurði yfirmaður trygginga og innra eftirlits hjá Eimskipi í gær og vísaði á Steinunni Böðvars- dóttur kynningafulltrúa sem sagðist ekkert geta upplýst um málið, enda varðaði það við- skiptavini Eimskips. Hún neitaði að gefa upp hve margir bílar hefðu lent í flóðinu en heimildir blaðsins segja þá 31 talsins. 16 frá Heklu, 6 frá Ingvari Helga- syni, 5 frá Bifreiðum og Iandbún- aðarvélum, 1 frá Ræsi, 1 frá Hondu og 2 Suzuki bílar. „Við viljum fá þessa bíla borgaða út og að Eimskip merki þá sérstaklega sem flóðabíla og selji á uppboði þannig að keypt sé án ábyrgðar," sagði Atli Vilhjálmsson, þjón- ustufulltrúi hjá B&L. „Við höfum ákveðna reynslu af flóðabílum og „Komum alls staöar að luktum dyrum, “ segir Runólfur Úlafsson, framkvæmdastjóri FÍB. viljum ekki taka þátt í þessu. Þetta lendir alltaf á viðskiptavin- inum og bílategundinni," sagði Atli. Ekki liggur fyrir hvort Eim- skip verður við þessari kröfu en skv. upplýsingum blaðsins gæti tjónið numið frá 12-15 milljón- um og upp í fullt innkaupaverð bifreiðanna. FÍB kom að lokuðum dyrum Könnun hf. vinnur fyrir tiy'gg- ingafélögin í þessu máli, en þau eru allmörg, að sögn Þóris H. Konráðssonar, framkvæmda- stjóra. Bæði innlend og útlend. Þórir ságðist bundinn þagnareiði en upplýsti þó að niðurstaða myndi liggja fyrir um miðjan febrúar. Runólfur Olafsson, framkvæmdastjóri FIB, segir að Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefði fengið ábendingu um málið en þegar reynt hefði verið að afla upplýsinga hefði enginn viljað kannast við neitt, menn hefðu komið að lokuðum dyrum. „Við munum beita okkur í framhald- inu og fýlgjast með framgangi málsins. Það er langeðlilegast að bílarnir fari ekki í almenna um- ferð heldur verði boðnir upp. Tölvubúnaður bíla er viðkvæmur og þótt allt virðist í lagi í fyrstu, geta komið fram skemmdir síð- ar,“ segir Runólfur. — BÞ Enntekur storm- sveipur toll Vörubíll sem var að flytja steypu- einingu fyrir Norðurál valt á vegamótum Vesturlandsvegar og Akranesafleggjara á ellefta tím- anum í gærmorgun. Ástæðan var vindsveipur sem lagði bílinn á hliðina og eyðilagði farm hans, auk þess sem bíllinn skemmdist nokkuð. Ökumaður slapp með skrámur. Vesturlandsvegur var nánast lokaður végna atviksins frá kl. 11.30-15.30 í gær en fært var um Akranesveginn. Kranabíl þurfti til að losa bílinn. Að sögn lögreglunnar í Borgar- nesi urðu ekki önnur slys í um- dæminu vegna hvassviðris en þetta er annar dagurinn í röð sem stormsveipir valda slysum. Vegur hallar nokkuð þar sem bíll- inn valt auk þess sem steypuein- ingin er töluvert á hæðina. — BÞ Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra. Vont en það venst „Þetta var Iokuð skemmtun þar sem hvert skemmtiatriðið á fæt- ur öðru var flutt. Eg benti á að Davíð Oddsson hefði fundið upp alveg nýja aðferð til að auka vin- sældir ríkisstjórnarinnar. Hún byggðist á því að beija á puttana á samráðherrunum og jafnvel sjálfum sér líka. Við þetta sýndu skoðanakannanir jafnan auknar vinsældir ríkisstjórnarinnar og fylgið færi upp úr öllu valdi. Eft- ir sætu ráðherrarnir við borðið og syngju „Þetta er vont en það venst.“ Til þess að mýkja þetta allt saman upp hefði ég ákveðið að færa forsætisráðherra hamar með gúmmíhaus og afhenti hon- um hamarinn og síðan afhenti ég samráðherrunum belgvettl- inga til þess að þetta yrði ekki eins sárt og verið hefði," sagði Friðrik Sophusson um hamarinn og vettlingana, sem sagt var frá í Degi í gær, en herlegheitin af- henti Friðrik í fimmtugsafmælis- veislu forsætisráðherra í Perlunni um helgina. Páll Pétursson, félagsmálaráðherra. Þarf enga vettlinga „Ég skilaði Friðrik vettlingun- um,“ segir Páll Pétursson, fé- lagsmálaráðherra. „Ég þarf ekki að nota þá því það verður ekkert barið á puttana á mér. Ég reyni að vanda mig og það hefur ekki verið barið á þá hingað til og ég á ekki von á að það verði gert. En það gæti komið sér betur fyr- ir Friðrik að eiga tvenna," segir félagsmálaráðherra. — S.DÓR . i..S . 9 dagar Hittumst í kvöld á Kaffi Thom- sen, Hafnarstræti 17, kl. 21:00. Fjölbreytt og fjörug dagskrá. í prófkjör Reykjavíkurlistans WILO Perfectao Hringrásardælur SINDRI -sterkur í verki IMI 562 7222 • BRSFASIMI 562 1024

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.