Dagur - 13.03.1998, Blaðsíða 1

Dagur - 13.03.1998, Blaðsíða 1
i Midlunartillaga líkleg iim helgina Náist ekki samkomu- lag í sjómaunadeil- uirni fyrir suuuudag hefst frestað verkfall sjómauua - Dagur hef- ur heimildir fyrir því að ríkissáttasemjari íhugi sterklega að leggja fram miðluuar- tillögu náist sam- komulag ekki fyrir helgi. „Ef sjómannadeilan leysist ekki fyrir sunnudag liggur að mínum dómi fyrir að Þórir Einarsson sáttasemjari leggi fram miðlunar- tillögusagði Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vest- ijarða, í samtali við Dag um stöð- una í þessari langvinnu vinnu- deilu. Takist ekki samningar fyrir sunnudagskvöld hefst boðað verkfall sjómanna á miðnætti. Pétur benti á að bæði sjómenn og útgerðarmenn væru búnir að leggja blessun sína yfir hug- myndir þríhöfðanefndarinnar til lausnar stærstu deilumálunum. Það sem eftir stæði væru ekki sambærileg stórmál. Það auð- veldi sáttasemjara að koma með miðlunartillögu um þau atriði sem eftir er að leysa. Dagur hefur það eftir heimild- um, sem hann telur áreiðanlegar, að sáttasemjari íhugi sterklega að leggja fram miðlunartillögu ef ekki semst og stefnir í verkfall á sunnudagskvöld. Um annað sé hreinlega ekki að ræða eins og komið er í deilunni, sem virðist Ekki þykir ólíklegt að Þórlr Einarsson ríkissáttasemjari leggi fram miðlunartil- lögu í sjómannadellunni um helgina. óleysanleg. Fari svo frestast verkfall sjómanna þar til búið er að greiða atkvæði um tillöguna. Sömu heimildir herma að báð- um deiluaðilum þætti þægilegt að láta sáttasemjara bjarga and- liti þeirra með því að leggja fram miðlunartillögu. Sjómenn benda þó á að síðast þegar ríkissátta- semjari lagði fram miðlunartil- Iögu í sjómannadeilu hafi hún verið felld. Staðan sé hins vegar önnur nú en þá. Enginn samningsvilji „Maður getur auðvitað ekki met- ið það hvort komið sé að því að ríkissáttasemjari komi fram með miðlunartillögu í sjómannadeil- unni. Það er alfarið hans að meta það. Hins vegar er alveg Ijóst að allt stendur eins fast og það get- ur staðið í deilunni, og viðræður því gagnslausar enda samnings- vilji útgerðarmanna enginn," sagði Guðjón A. Kristjánsson, forseti Farmannasambandsins, í samtali við Dag. — s.DÓR Brjáluð sala á Söngvaseið „Það er hreinlega brjáluð sala á Söngvaseið. Þetta er meiri háttar fjör,“ segir Ragna Garðarsdóttir, sem stýrir miðasölu hjá Leikfé- lagi Akureyrar. I gær var nánast uppselt á allar sýningar um helg- ina sem og þá næstu. Hin viðamikla sýning á Söngvaseiði hefur hlotið góðar viðtökur hjá gagnrýnendum sem leikmönnum og þrátt fyrir að hún sé kostnaðarsöm, ríkir bjart- sýni hjá LA um árangurinn. Eins og fram hefur komið eru líkurn- ar á tapi vegna sýningarinnar miklar eftir að sætum var fækkað í Samkomuhúsinu samfara and- litslyftingu þess, en fullkomin sætanýting gæti breytt stöðunni. „Eg er búin að vera hér lengi og mér sýnist miðað við önnur verk LA að þessi sýning verði ör- ugglega í hópi alvinsælustu sýn- inga miðað við fyrstu viðtökur. Þá er ég að tala um sýningar eins og Leðurblökuna, Kysstu mig Kata, Piaf og Ættarmótið," segir Ragna. — BÞ Lykilhótel í Skútu- staðaskóla Jón Ragnarsson, hótelhaldari Lykilhótela, sem reka hótel víða um land, átti hæsta tilboð í Skútustaðaskóla sem opnuð voru í gær. Þrjú tilboð bárust í skólann. Tilboð Jóns var rúmar 24 milljónir, tilboð Péturs Geirs- sonar 16 milljónir og tilboð frá Mývatni ehf., Yngva Ragnari Kristjánssyni, var 8 milljónir. Jón Ragnarsson segist ekki hafa átt von á því að hann yrði svo langt fyrir ofan næsta tilboð. „Mér finnst það næstum því dónaskapur að leggja fram mikið lægra tilboð í þessa húseign," segir Jón og segir að verðið sé sanngjarnt að sínu viti. Hann segir að gistirými vanti á svæð- inu og hann telji hagkvæmt fyrir lykilhótel að reka hótel á þessum stað. Jón hyggst opna Lykilhótel í sumar í Skútustaðaskóla með 37 tveggja manna herbergjum. „Þetta verða herbergi í háum gæðaflokki og öll með baði.“ Hann gerir ráð fyrir því að kostn- aður við nauðsynlegar breytingar vegna nýrrar starfsemi í húsinu muni verða um 40 milljónir króna. Eignar- namið ógilt Hæstiréttur hefur ógilt eignar- nám sem Garðabæjarkaupstaður tók á landi í sunnanverðum Arn- arneshálsi í apríl 1996. Um er að ræða alls um 34 hektara óbyggt land í eigu ellefu einstaldinga. Deilt var um efni lagagreina um eignarnám af skipulagsástæðum og þróunar sveitarfélagsins. Dómararnir féll- ust á að bærinn hefði haft laga- legan rétt til að taka landið eign- arnámi, en öðru máli gegndi um hvort staða hafi verið til þess. Garðabær náði samningum við landeigendur út af tveimur öðr- um spildum á Arnarnesi árið 1990, en ekki náðist samkomu- Iag um verð á þessari spildu. Mikið bar á milli í framburði málsaðila um árangur samninga- viðræðna, en Hæstiréttur taldi að samningaleiðin hefði ekki verið fullreynd og dæmdi því eignarnámið ógilt. — FÞG 1 Nv11 símanúmerl 4 í 6 0 2 5 0 0 SPARISJÓÐUR NORÐLENDINGA Skipagata 9 • Pósthóif 220 • 602 Akureyri ■■■■■■ Hringrásardælur SINDRI -sterkur í verki _____mwwmiuMiitmra + • I

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.