Dagur - 13.03.1998, Qupperneq 7

Dagur - 13.03.1998, Qupperneq 7
 FÖSTVDAGVR 13. MARS 1998 - 7 ÞJÓÐMÁL Hugmyndimar um Búnaðarháskóla GUÐMUND UR BJARNA- SON LANDBÚNAÐARKÁÐ- HERRA SKRIFAR Þegar rætt er um rekstrarum- hverfi landbúnaðarins þá vill það oft verða svo að mesta athygli fá búvörusamningarnir sem gerðir eru við sauðfjár- og mjólkur- bændur. Vissulega vega þeir þyngst af þeim þáttum sem hafa áhrif á bæði afkomu og þróun greinarinnar en fleira kemur til sem ekki má gleymast og hefur bein eða óbein áhrif á rekstraraf- komu fólks til sveita. Eg hef nýlega í þessu blaði far- ið nokkrum orðum um nýjan bú- vörusamning í mjólk, sauðfjár- samninginn frá 1995 og frum- varp til búnaðarlaga sem nú er til umfjöllunar á Alþingi. Vil ég nú fara nokkrum orðum um aðr- ar þær breytingar sem ég hef fengið afgreiddar eða er að vinna að í landbúnaðarráðuneytinu og ég tel hafa mikla þýðingu fyrir framtíð íslensks Iandbúnaðar. Sjóðagjöldin Heildarendurskoðun á inn- heimtu sjóðagjalda í landbúnaði lauk á síðasta ári. Þessi endur- skoðun var gerð með það að markmiði að einfalda innheimt- una og gera hana öruggari og ódýrari. Nú greiða bændur eitt gjald, búnaðargjald, þar sem gjaldstofn er einungis einn í stað tveggja. Gjaldið sem er 2,65%, er lagt á veltu búvöru og tengdrar þjónustu hjá búvöruframleið- endum. Hér er ekki um nýja skattheimtu að ræða heldur er verið að einfalda það innheimtu- fyrirkomulag sem var og færa innheimtuna alfarið yfir á fram- leiðendastigið. Samhliða þessum breytingum voru heildarsjóðagjöld lækkuð um þriðjung og þar með dregið úr þeim millifærslum sem verið hafa í Iandbúnaðarkerfinu. Lánasjóður landbimaðarins A síðasta ári voru samþykkt ný lög um Lánasjóð landbúnaðarins í stað Iaga um Stofnlánadeild landbúnaðarins. Var þetta liður í þeirri vinnu sem ríkisstjórnin setti af stað um endurskoðun fjárfestingalánasjóðanna. Mark- mið breytinganna er að ná lág- marks rekstrarkostnaði og sterkri eiginljárstöðu að teknu tilliti til sérþarfa landbúnaðarins. Lána- sjóðurinn með nýrri stjórn tók formlega til starfa nú um áramót en stjórnarinnar bíða ærin verk- efni við endurskoðun Iánareglna auk þess að endurskoða rekstur- inn við breyttar rekstraraðstæð- ur. Átak í landgræðslu og skógrækt A síðasta hausti var mikil um- ræða á Alþingi, í fjölmiðlum og Frá Hvanneyri. Ráðherra fól starfshópi aö vinna við nefndaráiit sem fjaiiar um „Búnaðarháskóla". Hann gerir ráð fyrir að bráðlega skili starfshópurinn afsér útfærðum hug- myndum um fyrstu skref í þessu máli. meðal fólks um Kyoto fundinn og undirbúning nýs sáttmála Sameinuðu þjóðanna um loft- Iagsbreytingar. Um einn þátt í niðurstöðum þess fundar hefur lítið verið rætt, en hann mun skipta okkur Islendinga miklu máli í framtíðinni. En þá á ég við að samþykkt var að taka mið af bindingu koltvísýrings í líf- massa þegar heildar útstreymi gróðurhúsalofttegunda er reikn- að fyrir hveija þjóð. Þetta auð- veldar okkur að verða aðilar að samningnum þegar að því kem- ur, en útheimtir í staðinn mikla aukningu í skógrækt og land- græðslu. í þessu sambandi er rétt að minna á að á síðasta ári hófst sérstakt átak í landgræðslu og skógrækt á vegum Iandbúnaðar- ráðuneytisins sem gerir ráð fyrir því að staðið verði við þann hluta framkvæmdaáætlunar Islands sem samþykkt var í kjölfar Riófundarins 1992. Hlutur land- búnaðarráðuneytisins i þeirri framkvæmdaáætlun er að sjá til þess að árið 2000 verði árleg binding koltvísýrings í gróðri 100.000 tonnum meiri en hún var árið 1990. Þetta markmið og það að gera átak í landgræðslu með stöðvun hraðfara gróður- eyðingar og jarðvegsrofs og að gera átak í skógrækt meðal ann- ars á Suðurlandi varð til þess að ákveðið var að setja viðbótarfjár- muni, 450 milljónir, til verkefn- anna fram til aldamóta. Með þessu átaki verða framlög hins opinbera til beinna fram- kvæmda í landgræðslu og skóg- rækt árið 2000, 60% hærri en þau voru árið 1996. Sérstök lög um Suðurlandsskóga sem lands- hlutaverkefni voru síðan sam- þykkt í maí og er þá hafið sams- konar átak á Suðurlandi og verið hefur á Austurlandi með Hér- aðsskógum frá 1991. Ennfremur var samþykkt á síðasta þingi að hefja vinnu við heildstæða skóg- ræktaráætlun fyrir Iandið allt sem verður að teljast eðlilegt framhald þeirrar þróunar sem verið hefur í skógrækt á Islandi og þess áhuga á skógrækt sem nú gætir um allt Iand. Veiðimál Á síðasta þingi voru gerðar tölu- verðar breytingar á starfsum- hverfi Veiðimálastofnunar og veiðimálastjóra, breytt var lögum um Iax- og silungsveiði þannig að stjórnsýsla samkvæmt lax- og silungsveiðilögum er nú aðskilin frá framkvæmda- og rannsókna- verkefnum sem Veiðimálastofn- un hefur á hendi. Veiðimála- stjóri er því ekki lengur forstjóri Veiðimálastofnunar heldur er þar sérstakur framkvæmdastjóri. Þessar breytingar má rekja m.a. til þess að hann gat þurft að taka afstöðu til mála sem hann hafði til meðferðar sem stjórnvald á fyrri stigum. Ennfremur var mikilvægt fyrir Veiðimálastofnun að geta sýnt fram á að hún stundaði óvilhall- ar og hlutlausar rannsóknir. Að rannsóknastofnun taki þátt í að rannsaka hugsanlegar afleiðing- ar leyfisveitinga sem forstöðu- maður hefur átt aðild að gat ekki samrýmst kröfunni um hlutleysi í vinnubrögðum. Því voru þess- ar breytingar bæði eðlilegar og nauðsynlegar og tókst um þær samkomulag, bæði gagnvart hlutaðeigandi aðilum svo og hjá Alþingi. Raimsóknir, leiðbemmgar og fræðsla Hinn 10. júnf 1997 skipaði ég starfshóp sem fékk það hlutverk að „móta tillögur um samþætt- ingu rannsókna, leiðbeininga og fræðslu í landbúnaði með það að markmiði að bæta afkomu í greininni," eins og segir í skipun- arbréfinu. Aðdragandinn að skipun þessa starfshóps hófst f raun með starfi og niðurstöðum nefndar um stefnumótun um framtíðarverkefni Bændaskólans á Hvanneyri og könnun á því hvernig skólinn geti komið at- vinnugreininni að sem mestu gagni. I því nefndaráliti var lagt til að stofnuð verði sérstök end- urmenntunardeild við skólann, að tengsl við annað nám á fram- haldsskólastigi verði aukið, haf- inn verði undirbúningur að stofnun landbúnaðarháskóla og tengsl við rannsóknir og annað nám á háskólastigi verði aukið. Tengsl við rannsóknir verði síðan tryggð með einni stjórn yfir Bændaskólann á Hvanneyri, Rannsóknarstofnun landbúnað- arins og Hagþjónustu landbún- aðarins. Þessar hugmyndir fengu síðan frekara brautargengi í starfshópi sem ég skipaði í byrj- un sumars 1997. Starfshópur- inn skilaði áliti í desember byrj- un, en þar er Iagt til að komið verði á einni stofnun sem verði miðstöð rannsókna, fræðslu og leiðbeininga, sem eru á ábyrgð landbúnaðarráðuneytisins. Stofnunin verði landbúnaðarhá- skóli sem hafi fjórþætt hlutverk: Hagnýtar rannsóknir, starfs- menntun, leiðbeiningar og há- skólamenntun. Einnig var horft til leiðbeiningastarfsemi Bænda- samtakanna, en í frumvarpi til búnaðarlaga sem áður er getið, er gert ráð fyrir sveigjanlegra og opnara fyrirkomulagi með enn meiri samvinnu leiðbeininga, rannsókna og fræðslu. Þannig er lagt til að landbúnaðarháskól- anum verði heimilt að annast og veita aðstöðu fyrir leiðbeininga- starfsemi sem Bændasamtökin bera faglega og fjárhagslega ábyrgð á. Almennt virðast mér þessar hugmyndir fá góðar viðtökur og fólk sé sammála um nauðsyn breytinga eða uppstokkunar í þessu mikilvæga stoðkerfi land- búnaðarins. Vissulega eru skipt- ar skoðanir um nálgunina eða aðferðafræðina. Nefndarálitið hefur verið kynnt nokkuð í þeim stofnunum sem hlut eiga að máli, en mikil vinna við úr- vinnslu og samræmingu sjónar- miða er framundan á næstu vik- um. Með bréfi dags. 4. desember síðastliðinn fól ég starfshópnum að vinna áfram við þann hluta nefndarálitsins sem Ijallar um „Búnaðarháskóla". Ég geri ráð fyrir því að bráðlega skili starfs- hópurinn af sér útfærðum hug- myndum um fyrstu skref í þessu máli sem ég hef lagt mikla áher- slu á að unnið sé fljótt og vel. Vissulega þarf þó að gefa verldnu þann tíma sem nauðsynlegur er til að ná sem bestri sátt um mál- ið og ekki er víst að öll sú sam- þætting sem stefnt er að með há- skólahugmyndinni verði tekin í einu skrefi en takist að vinna endanlegri útfærslu fylgi er ég sannfærður um að hér er á ferð- inni gríðarlega mikilvægt hags- munamál fyrir fslenskan land- búnað.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.