Dagur - 13.03.1998, Blaðsíða 13

Dagur - 13.03.1998, Blaðsíða 13
 FÖSTVDAGUR 13. MARS 19 9 8 - 13 GOLF Birgir Leifur: Vantar enn leikæfingu, en er ánægður. „Get ekki airnað en verið ánægður“ Birgir Leifur Hafþórsson lék Royal d’Agadir völlinn í Marokkó á 74 höggum á fyrsta keppnisdegi Opna Marokkó- mótsins sem er hluti af evrópsku PGA-mótaröðinni og hófst í gær. Birgir Leifur er því tveimur höggum yfir pari, rétt ofan miðju, og á enn góða möguleika á að komast í gegn um niður- skurðinn eftir annan keppnis- dag. Fresta varð mótinu um miðjan dag í gær vegna mikils vinds og margir keppendur þurfa að ljúka fyrsta hring sínum í dag. „Eg get ekki annað en verið ánægður. Það er meiriháttar gaman að fá að taka þátt í móti sem þessu og ég get ekki neitað því að hjartað tók nokkur auka- slög á fyrsta teignum," sagði Birgir Leifur. „Miðað við það, að þetta voru fyrstu kynni mín af vellinum, tel ég mig vera í góð- um málum og mér finnst líklegt að par á morgun (í dag) muni fleyta mér áfram í gegn um nið- urskurðinn," sagði Birgir Leifur, sem hefur leik í hádeginu í dag. Birgir Leifur hóf Ieik á 10. holuna og lék hana á einu höggi yfir pari, en hringurinn í gær var án allra stórslysa. „Eg var ósáttur við áttundu holuna þar sem ég átti tvö misheppnuð vipp inn á flötina og þá misnotaði ég tvö stutt pútt. Eg hefði því hæglega getað komið inn á betra skori, en í heildina er ég mjög sáttur. Það Samvinnuferðir Landsýn geng- ust fyrir móti á Maspalomas vellinum á Kanaríeyjum, fyrr í þessum mánuði. Úrslit urðu eftirfarandi, en leikið var með „sprengjufyrir- komulagi": Karlar: Hilmar Herbertsson, GR 72 Haraldur Sumarliðason, GK 73 Viktor Helgason, GV 74 Þorsteinn Ragnarsson, GHR 75 MÓROCCAN OPEN Merki Opna Marokkómótsins. er greinilegt að mig vantar enn leikæfingu, en ég var mjög ánægður með upphafshöggin hjá mér í dag sem voru bæði bein og Iöng,“ sagði Birgir Leifur, sem tók aldrei „dræverinn" upp úr pokanum. Um 27 stiga hiti var í gær í Marokkó og heiðskírt, en þegar líða tók á daginn fór að hvessa og þá þurfti að fresta keppninni um stund. Vindurinn gæti hæg- lega spillt skori þeirra keppenda sem hófu leik seint í gær og lík- urnar á því að Birgir Leifur kom- ist áfram ættu að vera meiri fyr- ir vikið. Irinn Des Smyth gerði sér lítið fyrir að jafnaði vallarmetið, þeg- ar hann kom inn á 64 höggum, átta höggum undir pari. Fræg- ustu keppendur mótsins voru ekki jafn „heitir"; Spánverjinn Severiano Ballesteros náði að klára 12 holur í gær og hann lék þær á 13 höggum yfir pari og Italinn Constantino Rocca, sem Konur: Sigurður Sigurjónsdóttir, GK 76 Asa Asgrímsdóttir, GR 78 Sigríður Hannesdóttir, GHR 79 Bára Björgvinsdóttir, GR 81 Heldri flokkur - 65 ára og eldri: Guðmundur I. Guðmundss., GV 65 Gísli Jóhannesson, NK 67 Pétur Auðunsson, GK 72 Eiríkur Smith, GK 75 Helgi Eysteinsson, GR 79 einnig náði að ljúka 12 holum í gær, var á 5 höggum yfir pari. Efstu metvn: 64 Des Smyth, Irlandi 67 Matthias Grönberg, Svíþj. 67 Pedro Linhart, Spáni 68 Stephen Leaney, Austurr. 68 Raymond Burns, N-írlandi 68 Alexander Cejka, Þýskal. 69 Diego Borrego, Spáni 69 69 Bob May, Bandaríkjunum 69 José Coceres, Argentínu Aðeins rúmlega helmingur keppenda, um sjötíu talsins, náði að ljúka leik í gærdag og bú- ast má við því að 50-60 efstu keppendurnir vinni sér réttinn til að keppa í þriðju og fjórðu umferð. Skorkort Birgis Leifs Árangur Birgis Leifs varð þessi á fyrsta keppnishring hans á Opna mótinu í Marokkó sem hófst í gærdag. Fremst er að finna númer og lengd viðkomandi holu, par hennar og þá loks höggafjölda Birgis Leifs. Fyrri ntu holur: 3.071 m (par 36) 36 1. 485 m (par 5) 4 2. 191 m (par 3) 4 3. 353 m (par 4) 4 4. 328 m (par 4) 4 5. 483 m (par 5) 4 6. 380 m (par 4) 4 7. 318 m (par 4) 4 8. 179 m (par 3) 5 9. 348 m (par 4) 3 St'ðari ttt'u holur 3.015 m (par 36) 38 10. 445 m (par 5) 6 11. 336 m (par 4) 4 12. 185 m (par 3) 3 13. 360 m (par 4) 4 14. 148 m (par 3) 3 15. 474 m (par 5) 5 16. 182 m (par 3) 3 17. 467 m (par 5) 5 18. 418 m (par 4) 5 Samtals 18 holur: 6.086 m (par 72) 74 Mót á Maspalomas NDUR Knattspyrnufélags Akureyrar fer fram í KA-heimilinu mánudagínn 23. mars nk. kl. 20.30. HB I 1. Venjuleg 2. Ön larstörf. Sýslumaðurinn á Akureyri Hafnarstræti 107, 600 Akureyri Nauðungarsala lausafjármuna. Eftirtalið lausafé úr eigu Óðals ehf. verður boðið upp að Hafnar- stræti 67, Akureyri, föstudaginn 20. mars 1998 kl. 13.30: ísmolavél af gerðinni Philips, strauvél af gerðinni Nýborg, náttborð og 18 olíumálverk eftir Óla G. Jóhannsson. Krafist verður greiðslu við hamarshögg og verða ávísanir ekki teknar gildar nema með samþykki gjaldkera. Uppboðsskilmálar eru til sýnis á skrifstofu embættisins og þar verða einnig veittar frekari upplýsingar ef óskað er. Sýslumaðurinn á Akureyri, 12. mars 1998. Harpa Ævarrsdóttir, fulltrúi. H úsa víku r ka u pstaðu r óskar hér með eftir tilboðum í malarefni. Tilboðið innifelur að flytja til Húsavíkur 5.500 m3 af malarefni. Innifalið er öflun malarinnar, akstur til Húsavíkur og losun. Skiladagur verksins er 15. ágúst 1998. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rekstrardeildar Húsavík- urkaupstaðar, Ketilsbraut 9, Húsavík, frá og með mánudegin- um 16. mars 1998 og kosta kr. 2.000. Opnun tilboða fer fram á sama stað fimmtudaginn 16. apríl kl. 11.00. Bæjarverkfræðingur Húsavíkurkaupstaðar liil Framsóknarflokkurinn Sjávarútvegsráðstefna 27. mars Framsóknarflokkurinn heldur ráðstefnu um sjávarútvegsmál föstudaginn 27. mars nk. á Grand Hotel við Sigtún í Reykjavík og hefst hún kl. 14.00. Dagskrá verður auglýst síðar. Ráðstefna um sveitarstjórnarmál 28. mars Framsóknarflokkurinn heldur ráðstefnu um sveitarstjómarmál lau- gardaginn 28. mars nk. á Grand Hotel við Sigtún í Reykjavík. Ráðstefnan er ætluð forystumönnum og frambjóðendum við sveitarstjómarkosningamar í vor. Dagskrá verður auglýst síðar. Framsóknarflokkurinn

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.