Dagur - 13.03.1998, Side 5

Dagur - 13.03.1998, Side 5
Tkyptr. FRÉTTIR 9 > V ' 1. > s V. I i ' r ÍS > l FÖSTUDAGUR 1 3.MARS 19 9 8 - S MiMð starf er eftir til að koma meðferðar- málum bama og img- linga í viðunaiidi horf hér á landi. Fagfólk á að hleypa foreldrum meira iim í meðferð- ina. Sigrún Magnúsdóttir, félagsráð- gjafi hjá Vímulausri æsku, telur að sundrung ríki í forvarna- og meðferðarmálum barna og ung- linga hér á Iandi, eflaust vegna fjársveltis. Hún segir að það hafi verið slys í kerfinu þegar með- ferðarheimilinu Tindum var lok- að fyrir nokkrum árum og líkleg- ast hafi þar vegið þyngst pólitísk ósamstaða. Vegna þessarar lok- unar þurfi nú nauðsynlega nýtt meðferðarúrræði á suðvestur- horni landsins. Þetta kom fram á ráðstefnu um vímuefnamál, sem foreldra- hópur Vímulausrar æsku stóð fyrir í Reykjavík í gær. að taka unglinginn inn á með- ferðarstofnun,“ sagði Sigrún meðal annars í erindi sínu á ráð- stefnunni. Leita beint til stofnana A ráðstefnunni kom fram skýr ósk um að foreldrar geti leitað beint til meðferðarstofnana í stað þess að þurfa að fara gegn- um langan og tímafrekan feril, meðal annars gegnum barna- verndarnefnd, áður en barnið kemst í meðferð. Sigrún var á sama máli. Ekki þyrfti barna- verndarnefnd eða félagsráðgjafa til að taka ákvörðun um að barn þyrfti að komast í meðferð. For- eldrar væru fullkomlega færir um það. „Það þarf ekki svona mikið kerfi kringum unglinginn," sagði hún og bætti við að það væri „úr- elt að leita til barnaverndar- nefndar eftir aðstoð." Foreldrar vilji vera virkir og ábyrgir. Þeir eigi að geta heimsótt meðferðar- heimilin, skoðað þau og sótt beint um að komast að á því heimili, sem þeim líst á. - GHS Sjfl einnig bls. 8. Hestaferðum aflýst „Þetta er rosalegt. Og þótt mað- ur verði af peningum vegna þessa þá eru áhyggjur mínar fyrst og fremst bundnar við hestana sem veikjast í hrönn- um,“ sagði Einar BoIIason, eig- andi Ishesta, sem hefur orðið að aflýsa fyrirhuguðum hestaferð- um vegna hrossaveikinnar sem nú geisar. Einar segir að vel á fimmta hundrað manns eigi bókað í þær ferðir sem útlit sé fyrir að þurfi að aflýsa. „Við Iokum okkar hesthúsum alveg fram til 27. mars en þá vonumst við til að þeir hestar sem hafa veikst verði búnir að ná sér. Við höfum verið í samvinnu \dð hestaleigu hér á höfuðborgarsvæðinu. Þar veikt- ust hross fyrr en hjá okkur og þess vegna er ég að vona að við getum tekið hross þaðan í gagn- ið 22. mars. Það er hins vegar Ijóst að megnið af okkar starf- semi verður Iömuð út þennan mánuð og bara nú um helgina þurfti að aflýsa ferðum fyrir 140 manns,“ sagði Einar Bollason. Á ráðstefnu Vímulausrar æsku í gær kom fram að foreldrar þurfi og vilji vera virkari i meðferðarúrræðum og ættu að hafa val um á hvaða meðferðarheimili þeir og börnin fara. mynd: hilmar þór Skipta skopiun Sigrún telur að foreldrar hafi ekki fengið að taka nógu virkan þátt í meðferðarstarfi unglinga undanfarin ár. Foreldrar séu að- alþolendur í vímuefnaneyslu unglinga, þeir fari illa andlega og líkamlega og því þurfi að hjálpa þeim að aðstoða hvert annað. Það hafi einnig sýnt sig og sann- að að samstarf við foreldra geti skipt sköpum í meðferð ung- lingsins. Það sé því mikilvægt að hafa foreldra með í ráðum og taka ekki völdin af þeim í með- ferðarmálum. Unglingurinn komi alltaf aftur til foreldranna. „Það er til heilmikið af foreldr- um sem geta veitt unglingnum sínum þá aðstoð sem hann þarf. Ef þetta fólk þarf aðstoð til þess þá þarf að leggja aðstoð og vinnu í að hjálpa þeim að aðstoða ung- linginn. Foreldrarnir eru fjár- sjóður. Það er ódýrara að hjálpa foreldrum að hjálpa unglingi en Nærri 3% verðbólga Hækkun vísitölu neysluverðs síðustu þrjá mánuðina mælir verðbólg- una á 2,9% hraða. I febrúar hækkaði vísitalan um 0,4%, mest vegna hækkana á fatnaði og markaðsverði húsnæðis. Athygli vekur að ísland er ekki lengur með hvað lægstu verðbólg- una í EES ríkjunum. Þar var hún að meðaltali 1,3% ffá janúar 1997 til janúar 1998 og 1,4% í helstu viðskiptalöndum Islands, en hér á landi var verðbólgan 2,2% á sama tíma, samkvæmt fréttatilkynningu Hagstofunnar. Aðeins Grikkland var með meiri verðbólgu. - FÞG Lækjargata 6 skal rifín Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt tillögu bæjarverk- fræðings um að rífa húsið að Lækjargötu 6. Einnig ít- rekaði ráðið fyrri ákvörðun um að rífa Hafnarstræti 103. Bæjarráð telur að forsendur gildandi skipulags, sem gerir ráð fyrir að framangreindar eignir verði rifnar, hafi ekki breyst í grundvallaratriðum og því sé ekki ástæða til þess að endurskoða það mál. Sem kunnugt er skemmdist Lækjargata 6 í eldsvoða 17. janúar sl. en til stóð að rífa húsið. Hús- friðunarnefnd ríkisins vill að húsið fái að standa vegna menningar- sögulegs gildis þess. Forstöðumaður Minjasafnsins, Guðrún Kristinsdóttir, hefur sagt að verði húsið rifið sé það byggingasögulegt slys. Gísli Bragi Hjartarson, formaður framkvæmdanefndar, sagði nýverið á bæjarstjórnarfundi að það væri ekki á verksviði forstöðumannsins að tjá sig um deiliskipu- lagið. — GG ísafold gat prentað bækling Bjöms Fullyrðingar frá menntamálaráðuneytinu um að ein- ungis prentsmiðja Morgunblaðsins hafi getað prentað skólastefnubækling ráðuneytisins, eru rangar að mati forstjóra Isafoldarprentsmiðju. Þegar Dagur innti Kristþór Gunnarsson, forstjóra ísafoldar, eftir því hvort Isafold hafi getað prentað bæklinginn var svarið að það hefði prentsmiðjan vissulega getað gert. „Við hefðum getað þetta án nokk- urra vandkvæða,“ sagði Kristþór. Menntamálaráðuneytið lét prentsmiðju Morgunblaðsins fá verk- efnið án útboðs, en samkvæmt upplýsingum aðstoðarmanns ráðherra var leitað upplýsinga hjá öðrum prentsmiðjum. „Það leitaði enginn frá ráðuneytinu til okkar með þetta verkefni," segir Kristþór. - FÞG Björn Bjarnason. Beðið eftír ROdsend- urskoðun Sverrir Hermannsson á tali við Davíð Oddsson á aðalfundi Landsbankans. Kaupum bankans á laxveiðileyfum af fjölskyldufyrirtæki Sverris er lokið. Bankaráð Landsbank- ans varð við ósk Sverris Hermannsson- ar iim að fresta laxa- málinu. Bankaráðs- formaður viU upplýs- ingar iim hvort at- hugasemdir hafi verið gerðar við veiðileyfa- kaupin af endurskoð- anda bankans. Engin niðurstaða varð um Iax- veiðileyfakaupamál Sverris Her- mannssonar á bankaráðsfundi Landsbankans í gær. Sverrir var spurður um málið á fundinum, en óskaði eftir að málinu yrði frestað þar til niðurstaða Ríkis- endurskoðunar lægi fyrir og varð bankaráðið við þeirri ósk. I samtali við Dag sagði Helgi S. Guðmundsson bankaráðsfor- maður að á fundinum hefði lax- veiðimálið verið tekið upp og Sverrir Hermannsson spurður um málið. „Sverrir var inntur eft- ir þessu, en hann óskaði eftir að fá að svara bankaráðinu þegar skýrsla Ríkisendurskoðunar lægi fyrir. Bankaráð féllst á það, enda örugglega stutt í þá skýrslu. En bankaráðið óskaði formlega eftir því við endurskoðanda bankans, Árna Tómasson, að fá upplýsing- ar um keypt veiðileyfi á vegum bankans og dótturfyrirtækja hans,“ sagði Helgi. Hann sagðist ekki hafa neinar upplýsingar um hvort dótturfélögin hefðu keypt slík Ieyfi, en tók fram að kaup veiðileyfa af fjölskyldufyrirtæki Sverris hefðu verið stöðvuð á síðasta ári. „Bankastjóramir ráða þessu“ Samkvæmt heimildum Dags hef- ur endurskoðandi bankans gert athugasemdir við laxveiðikaupin af fjöiskyldufyrirtæki Sverris. Ekki náðist í endurskoðandann til að fá þetta staðfest og Helgi sagði að sér væri ókunnugt um þetta. „Eg verð að fá frekari upp- lýsingar um þetta atriði sem þú nefnir, en ég get sagt þér að þessu er lokið. Það var formlega gengið frá því á síðasta ári. Hvort það hafi komið út úr endurskoð- un veit ég ekki en ég er að fá þau gögn. Þetta er eitt af því sem ég bið um,“ sagði Helgi. Jakob Bjarnason, fram- kvæmdastjóri þriggja dótturfyrir- tækja Landsbankans, vildi ekkert segja um veiðileyfakaup dóttur- fyrirtækjanna. „Spurðu banka- stjórana. Formaður stjórnar er Sverrir Hermannsson," sagði hann. „Þú verður að tala við bankastjórana, þeir ráða þessum félögum, ekki ég. Það eru engar upplýsingar veittar um dótturfé- lögin hérna. Það hefur aldrei verið gert og engar breytingar á því fyrirhugaðar. Þetta eru rekstrarfélög með ákveðinn til- gang og punktur,11 sagði Jakob. - FÞG

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.