Dagur - 13.03.1998, Page 2
.Dafjjur
> ■ V ' i . ■ ’ .
2-FÖSTUDAGUH
1 3
» ■>\ aa'i
. MARS 199 8
FRETTIR
Kom á hvínandi
ferð í fangið á mér
20-30 tonn af ís og möl
hnmdu yfir gröfu sem
Tryggvi Ingólfsson stjóm-
aði. Það varð gröfumanni
til lífs að framrúðan
gekk út.
Tryggvi Ingólfsson, verktaki og gröfu-
maður frá Hvolsvelli, komst í hann
krappann í vikunni þegar hann var að
moka möl á vörubíla ofan við bæinn
Bjalla í Landssveit. Fylla hrundi yfir
gröfu hans og mátti sáralitlu muna að
Tryggvi stórslasaðist.
„Henti mér í glulima“
Tryggvi er annar tveggja sem rekur
verktakafyrirtækið Jón og Tryggvi.
Hann var við vinnu sína sl. þriðjudag
en mikið frost hafði verið síðustu daga
og hrundu klakastykki annað kastið úr
haugnum.
„Við reyndum að ná þeim niður en
FRÉTTAVIÐTALIÐ
svo brotnaði allt í einu mjög stórt
stykki og þá gerðist það sem ég hef
aldrei séð fyrr. Klakastykkið rann niður
stálið og valt svo fram yfir sig og á vél-
ina. Þetta kom allt á hvínandi ferð í
fangið á mér en þegar gröfuhúsið
skekktist við hlassið, sprakk framrúðan
út um leið. Eg sá hvað verða vildi og
henti mér í glufuna sem opnaðist og
það var eins gott því að smákrakki
hefði ekki komist fyrir í sætinu ef ég
hefði haldið kyrru fyrir þar. Þetta var
spurning um sekúndur," segir Tryggvi.
Tókst að smokra hausnum út
Tryggvi beið spenntur eftir því að
skriðan gengi yfir en komst svo af
sjálfsdáðum út úr vélinni þegar allt var
um garð gengið.
En hvað hefði gerst ef rúðan hefði
ekki losnað frá? „Ja, það er ljóst að þá
hefði þetta orðið mjög tvísýnt, ég hefði
a.m.k. ekki sloppið jafn vel og raunin
varð. Ef mér hefði ekki tekist að
smokra efri hluta Iíkamans út, hefði
getað farið illa. Þetta slapp alveg ótrú-
lega vel.“
F.nginn timi til að hræðast
En varð Tryggvi ekki hræddur? „Ég
hafði eiginlega engan tíma til að verða
hræddur, en ég held að þeir hafi orðið
skelkaðir sem voru í kringum mig. Ég
var þó fljótur að sjá eftir á hvað hefði
gerst ef ég hefði setið fastur í sætinu.
Þetta var sekúnduspursmál, en fór
vel.“
Skorinn og marinn
Vélin er stórskemmd eftir slysið og
Tryggvi sjálfur mikið marinn og svolít-
ið skorinn. Hann leitaði sér læknisað-
stoðar eftir slysið og var saumaður.
Tryggvi vísar því á bug að hann hafi
farið óvarlega miðað við kringumstæð-
ur, enda hafi hann verið með vélina
langt frá haugnum og hann hefði
aldrei órað fyrir að svona stór íylla gæti
farið fram yfir sig þau 28 ár sem hann
hefur starfað á gröfu. „Þetta var ekkert
smáræði. Við erum að tala um 20-30
tonn,“ segir Tryggvi. — BÞ
Sjálfstæöismaðurmn í licita
pottinum var áhyggjufullur í
gærmorgun. Hann hafði feng-
ið brcf og boðskort frá D-list-
anum í Reykjavík. Þar sagði
að D-listinn vær lagður í
hann og hæfist förin með bar-
áttuhátíð á Hótal Borg sem Árni Sigfússon.
boðuð var í gærkvöld. Dag-
skrá hátíðarinnar var kynnt
og fyrst á dagskrá að tekið væri á móti fólki og
boðið upp á „kosningatöfradrykkinn Bláa
bomban." Á boðsmiðanum stóð „...smökkum á
Bláu bombunni og hristum okkur saman...“
Þctta þótti sjálfstæðismanninum hið versta
mál. Á sama tíma og verið er að berjast gegn
vímuefnaneyslu ungs fólks væri flokkurinn
hans að boða það á hátíð og hrista það sainan
ineð töfradrykknum Bláu bombunni. Þetta taldi
hann ekki efnilegt upphaf kosningabaráttu.
Nema Bláa bomhan sé vímuefnalaus?
Stundum er því haldið fram að grunnt sé á kyn-
þáttafordómum hjá landanum. Sjaldgæft er
samt að sjá slíkar tilfinningar brjótast út á
prenti mcð þeim hætti sem lesa mátti á íþrótta-
síðu Moggans í gær. „Leikurinn var annars afar
leiðhilegur, varla fyrir svartan mann að horfa
á.“ ??? Ætli „svartir menn“ taki þá við af
„stjömum" í einkunnagjöf Mogga uin íþrótta-
leiki?
í DV könnun í gær er fylgi
Rcykjavíkurlistans talið slefa
hátt upp í 9 borgarfulltrúa.
Glöggir talnamenn sögðu að
eitthvað hefði þeim bragðist
bogalistin, aðeins eitt at-
kvæði vantaði upp á 10
menn inn!
V
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir.
Slæm reynsla af einka-
framkvæmd almannaþj ónustu
Margie Jaffe
frá UNISON, samtökum launa-
fólks í almannaþjónustu í Bret-
landi.
Friðrík Sophussoti fjár-
málaráðherra hefurboðað
upptöku einkafjármögnun-
arleiðarínnar eða einkafram-
kvæmdar almannaþjónustu.
Bretarhafa reynslu afþess-
arí leið ogfékk BSRB Margie
Jaffe frá UNISON til að
flytja fyrirlestur um málið.
- Stjómvöld tala utn að talia upp einka-
fjármögnunarleið eða einkaframkvæmd
almannaþjónustu á íslandi. Hver er
reynsla Breta af þessari leið?
„I síðasta mánuði komu fram upplýsingar
um fangelsin sem voru hönnuð, byggð, fjár-
mögnuð og reMn af einkaaðilum. Fangelsis-
yfirvöld fullyrtu að sparnaðurinn væri 10%,
en þegar nefnd þingsins fór í saumana á
málinu kom í ljós að sparnaðurinn var vegna
þess að fangavörðum var boðið upp á 30-
35% Iægri Iaun en gerist í hefðbundnum
fangelsum. Hins vegar reyndist bygginga-
kostnaðurinn hærri en hann hefði orðið í
gamla kerfinu og fólst sparnaðurinn því í
láglaunastefnu. Þá er búið að byggja fyrstu
fjóra þjóðvegina eftir þessu kerfi og niður-
staða Rfkisendurskoðunar Bretlands er að
sparnaðurinn er 40% minni en spáð var og
að tveir þjóðveganna hefðu orðið ódýrari
samkvæmt gamía kerfinu. Það er fyrst og
fremst fjármögnunarleiðin sem gerir þessa
leið óhagstæða.“
- Kemur þar út kostnaður setn á endan-
urn lendir á skattborgurunum?
„Já. Einkageirinn fær fjármagn að láni og
fær ekki eins góð kjör og hið opinbera.
Stjórnvöld segja að þetta skipti ekki máli þar
sem reksturinn verði hagkvæmari hjá einka-
geiranum. Staðreyndin er sú að þessi einka-
Qármögnunarleið er að reynast dýrari en
hefðbundnar leiðir í opinberum fram-
kvæmdum og rekstri. Þessi leið er dýr, það
er á huldu hversu dýr og ríkið er hundið
samningi sem þarf að uppfylla þótt ýmsar
forsendur breytist."
- Þú nefndir í fyrirlestri þtnum að í til-
felli sjúkrahúsanna hefðu allar áætlanir
um kostnað farið úr böndunum?
„Niðurstöður Heilbrigðisstofnunarinnar á
kostnaði vegna 14 sjúkrahúsa segja sína
sögu. Mismunurinn á upphaflegum áætlun-
um og nýjustu áætlunum reyndist að meðal-
tali 72%, svo mikill var umframkostnaður-
inn orðinn og þó eldd byrjað að byggja
sjúkrahúsin."
- Er þá ekki efnt til útboðs ogfast verð
geirneglt?
„Nei. I þessu kerfi er ekki lögð fram verk-
Iýsing, heldur er einkageiranum Ieyft að
setja saman „pakka" þar sem hugmynda-
fræðin gengur út á að allir græði. Það kem-
ur bara annað í Ijós.“
- íhaldsflokkurinn byrjaði á þessu hjá
ykkur. Hvað hefur Verkamannaflokkur
Blairs gert?
„Hann er fylgjandi þessu og hefur gengið
lengra en áður var gert. Ástæðan er að í
byrjun sparast opinber útgjöld og það dreg-
ur úr opinberri lántöku. Þetta vill Verka-
mannaflokkurinn að gerist. Lántakan flyst
yfir á einkageirann og stjórnvöldum er ekki
umhugað um Iangtíma afleiðingarnar. Um-
framkostnaðinum er velt yfir á kynslóðirnar
á eftir okkur. Það var spurt að því í þinginu
1996 hver yrði lokakostnaður af samþykkt-
um einkafjármögnunarverkefnum, en Fjár-
málaráðuneytið gat ekki svarað því. I skýrslu
þingsins komu fram töluverðar áhyggjur
vegna þessa, enda Ijóst að það er verið að
skuldbinda ríkissjóð töluvert í framtíðinni,
þótt einhver sparnaður kunni að vera í nú-
tíðinni. Sem þó er ekki einu sinni víst.“