Dagur - 13.03.1998, Qupperneq 3
Dagtir^
FÖ STUDAGUR 13. MARS 1998 - 3
FRÉTTIR
„Góðborgarar66 á
Reykj avOairlistaim
Reykj avíkurlistiim á
að verða tilbúinn í
kvöld. Pólitískt sam-
komulag um sæti 10-
13, og valdir „góð-
borgarar“ í neðri
sæti: Einar Már Guð-
mundsson, Vanda Sig-
urgeirsdóttir og Mar-
grét Pálmadóttir.
Ljúka átti við niðurröðun á
Reykjavíkurlistann á fundi upp-
stillingarnefndar í gærkvöld en
úrslit lágu ekki fyrir þegar Dagur
fór í prentun. Þó er vitað hvern-
ig 13 efstu sætin verða skipuð og
4 síðustu sætin á listanum, sem
kölluð eru heiðurssætin. Einnig
hefur Dagur traustar heimildir
fyrir því hvaða „góðborgarar"
verða á listanum.
Árni Þór í 10. sætið
Að því er Dagur komst næst í
gær verður Arni Þór Sigurðsson
þorgarfulltrúi, frá Alþýðubanda-
lagi, í 10. sæti, Kristín Blöndal
leikskólakennari, frá Kvenna-
Einar Már Guðmundsson: verðlauna-
skáld á Reykjavíkurlistann.
lista, í því 11., Guðrún Jónsdótt-
ir arkitekt, frá Framsóknarflokki,
í 12. sæti og Pétur Jónsson borg-
arfulltrúi, frá Alþýðuflokki, í því
13. Einnig liggur fyrir samkomu-
lag um hvernig borgarfulltrúar
skipta með sér verkum í borgar-
ráði á kjörtímabilinu nái Iistinn
sigri.
Heiðurssætin eru fjögur. I 27.
sæti verður Guðrún Halldórs-
dóttir skólastjóri, Kristján Bene-
diktsson, fyrrverandi borgarfull-
trúi, í 28. sæti, Adda Bára Sig-
Vanda Sigurgeirsdóttir: Landsliðsþjálf-
ari og félagsmálafrömuður úr röðum
ungra kvenna.
fúsdóttir, fyrrum borgarfulltrúi, í
29. sæti og Gylfi Þ. Gíslason,
fyrrum ráðherra, prófessor og
formaður Alþýðuflokksins, í 30.
sæti.
I sæti á bilinu 14 og 27 eru
nefnd Sigrún Elsa Smáradóttir
og Guðrún Kr. Óladóttir frá Al-
þýðubandalagi, Óskar Bergsson
og Þuríður I. Jónsdóttir frá
Framsóknarflokki, Stefán Jó-
hann Stefánsson og Bryndís
Kristjánsdóttir frá Alþýðuflokki,
Guðríður Erla Geirsdóttir og
Sólveig Jónsdóttir frá Kvenna-
lista. Þetta fólk tók allt þátt í
prófkjörinu.
Síðan bætast við óháðir á
þennan hluta listans. Valdir hafa
verið „góðborgarar" sem taldir
eru hafa góða skírskotun til kjós-
enda. Dagur hefur áreiðanlegar
heimildir fyrir því að þar verði
m.a. Einar Már Guðmundsson
skáld, Margrét Pálmadóttir kór-
stjóri Kvennakórsins til skamms
tíma, og Vanda Sigurgeirsdóttir
landsliðsþjálfari kvenna í knatt-
spyrnu.
Samkvæmt niðurstöðu próf-
kjörsins verða 7 efstu sætin skip-
uð þeim Helga Hjörvar, Sigrúnu
Magnúsdóttur, Hrannari B. Arn-
arssyni, Steinunni V. Óskars-
dóttur, Guðrúnu Agústsdóttur,
Alfreð Þorsteinssyni og Helga
Péturssyni. Þá kemur Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir í 8. sæti og
hún skipaði svo Önnu Geirsdótt-
ur Iækni í 9. sætið í fyrradag.
Síðdegis í dag verður niður-
staða uppstillingarnefndar kynnt
í Samráði Reykjavíkurlistans og
síðan borin upp á fundi í flokk-
unum Ijórum. Þá verður endaleg
niðurröðun í sæti kynnt opinber-
Iega. - S.DÓR
Ekkert
samráð
„Við erum tilbúin til viðræðna
við félagsmálaráðherra um þá
agnúa sem eru á þessu frum-
varpi. Það verður þó ekki gert á
tveimur eða þremur vikum,
þetta er meira mál en svo,“ seg-
ir Ögmundur Jónasson, formað-
urBSRB.
I sameiginlegri ályktun ASI og
BSRB segir m.a að verði frum-
varpið að lögum muni miklu
færri láglaunafjölskyldur geta
eignast eigið húsnæði á viðráð-
anlegum kjörum en áður. Verið
sé að taka á vanda húsnæðis-
kerfisins en ekki á vanda þess
fólks sem það eigi að þjóna.
„Eg tel það afar alvarlegt mál
ef félagsmálaráðherra ætlar að
keyra frumvarpið í gegnum Al-
þingi með þessum hætti í and-
stöðu við verkalýðshreyfinguna í
landinu en ekkert samráð hefur
verið haft við hana við samn-
ingu frumvarpsins,11 sagði Ög-
mundur Jónasson. - S.DÓR
Stnfnfiskiir
selur tll Oiile
Laxeldisfyrtæki frá Chile, Pata-
gonia Salmon Farming SA, hefur
samið um kaup á erfðafræði-
þekkingu, hrognum og þjónustu
af fyrirtækinu Stofnfiski. Skrifað
var undir samninga þar um í
gær.
Annars vegar var samið um
sölu á hrognum fyrir að minnsta
kosti 40-50 milljónir króna á ári
og hins vegar um sölu á erfða-
fræðiþekkingu og þjónustu
Stofnfisks í Chile.
Samningarnir hafa mikla þýð-
ingu fyrir uppbyggingu Stofn-
fisks, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá íyrirtækinu
en það hefur sérhæft sig í kyn-
bótum fyrir fiskeldi, framleiðslu
kynbættra hrogna og ráðgjafa-
þjónustu fyrir fiskeldi. Auk þess
eru samningarnir sagðir koma til
með að bæta samkeppnisstöðu
íslensks fiskeldis, þar sem Stofn-
fiskur geti nú aukið umfang kyn-
bótaverkefna sinna sem muni
skila betri árangri í eldi hér á
landi.
Meiri vidskiptahalli
en færri án atvinnu
Hallinn á viðskiptum íslendinga
við útlönd mun stóraukast á
þessu ári, meðal annars vegna
stórframkvæmda. Þjóðhags-
stofnun gerir ráð fyrir í nýjustu
spá sinni að viðskiptahallinn
verði 16.9 milljarðar króna í ár,
en hann var 8.1 milljarður í fyrra
og 8.9 milljarðar árið 1996.
Önnur helstu atriði í spánni
fyrir árið 1998 eru þessi: Hag-
vöxtur verður góður, en samt
minni en í fyrra eða 4.6% i stað
5%. Kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna heimilanna mun batna um
5.5%, en var 6% árið 1997.
Þjóðarútgjöldin munu aukast
um 6.1% sem er nokkru meira
en á síðasta ári (5.8%). Verðbólg-
an verður meiri en í nágranna-
löndunum, eða 2.7%.
Reiknað er með að tæplega
5000 manns verði án atvinnu á
árinu, sem er minna en 1997.
Hið opinbera - það er ríki og
sveitarfélög - mun hækka tekjur
sínar og útgjöld um 14 milljarða
á þessu ári. Spáð er smávægileg-
um tekjuafgangi hjá ríkissjóði,
en um 2ja milljarða halla hjá
sveitarfélögunum.
A sama tíma mun hagnaður
fyrirtækja verða verulegur;
hreinn hagnaður fyrir tekju- og
eignaskatta er áætlaður 32 millj-
arðar króna - en svokallaður
vergur hagnaður, það er að með-
töldum afskriftum, verður um
80 milljarðar.
Valiir kærir ekki
Stjórn handknattleiksdeildar Vals ákvað á fundi í
gær að kæra ekki úrslit í deildarleik Vals og Fram í
fyrrakvöld þótt ýmislegt hafi verið athugavert við
framkvæmd hans.
I tilkynningu frá stjórninni segir að hún telji ein-
sýnt „sé miðað við sömu sjónarmið og byggt var á í
hinum ógilta dómi Sérdómstóls HSI um bikarúr-
slitaleik Vals og Fram þann 7. febrúar, þá beri að
ógilda úrslit leiksins og endurtaka hann vegna mistaka sem urðu við
tímatöku undir lok leiktíma. Valsmenn virða hins vegar lögmál leiksins
og íþróttarinnar meira en málsskotsrétt fyrir dómstólnum og óska því
Frömurum innilega til hamingju með sigurinn í leiknum," segir tilkynn-
ingin. Stjórnin var þó ekki einhuga í þessari afstöðu því 2 af 5 stjórnar-
mönnum vildu kæra Ieikinn.
Flytja hross þrátt fyrir bann
Reglur um bann við flutningi hesta milli svæða og húsa virðast ekki
hafa verið virtar sem skyldi á Norðurlandi. Lögreglan á Akureyri hefur
haft samband við formenn allra hestamannafélaga í Eyjafirði og beðið
þá að skýra sfnum félagsmönnum frá banni við flutningi, en lögreglan
fylgist einnig með umferð með hestakerrur sem er ólöglegt að flytja þótt
engin séu í þeim hrossin.
Lögreglan hafði afskipti af flutningi á hrossi frá Sólborgarhóli í hest-
húsahverfið ofan Akureyrar og var það snarlega flutt til baka. Við yfir-
heyrslu sagði hesteigandinn að honum væri kunnugt um bannið en þar
sem hrossið væri orðið eitt í húsi hafi hann samt ætlað að flytja það.
Dópgrenið rýmt
Ibúar við Meðalholt og í nærliggjandi húsum efna á morgun til karni-
val-hátíðar til að halda upp á að Húsnæðisnefnd Reykjavíkur hefur lát-
ið „hreinsa út“ dópgrenið í Meðalholti, sem Dagur hefur ítrekað Ijallað
um. lbúunum er stórlétt við að vera „lausir við ófögnuðinn."
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur fékk konuna sem taldist eigandi dóp-
grenisins til að skila inn íbúðinni og flutti hún út fyrir nokkrum dögum.
„Það er að vísu enn að koma fólk og banka upp á hjá henni, en um-
sátrinu er samt aflétt. Hér getur mannlíf farið að blómstra á ný og það
er sérstaklega gott fyrir börnin, sem geta farið út án fylgdar og flutt í
kjallaraherbergi sín aftur. Nú kvíðum við ekki sumrinu heldur hlökkum
til að geta drukkið kaffibolla í görðum okkar. Við getum reyndar ekki
beðið með fögnuðinn og ætlum að efna til karnivalstemmningar á laug-
ardag, með opið hús hjá öllum. Þetta er mikill léttir, en við vonum að
þetta kalli ekki einfaldlega á nýja þolendur í íbúðahverfi,“ segir íbúi í
Meðalholti. — FÞG