Dagur - 13.03.1998, Qupperneq 4
4- FÖSTUDAGUR 13. MARS 1998
FRÉTTIR
rD^tr
INNLENT
Högni í efsta sæti
Högni Oskarsson læknir skipar
efsta sætið á lista Bæjarmálafélags
Seltjarnarness, sem býður nú fram
Neslistann í þriðja sinn. I 2. sætinu
er Sunneva Hafsteinsdóttir hönn-
uður, í 3. sæti Arnþór Helgason
deildarsérfræðingur, í 4. sæti
Katrín Pálsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur og Sigrún Benediktsdóttir
lögfræðingur í því 5.
Högni Óskarsson.
Skipstjóriim í forystu
Magni Kristjánsson skipstjóri skipar fyrsta sæti á lista sjálfstæðis-
manna í nafnlausa sveitarfélaginu Neskaupstaður-Eskifjörður-Reyð-
arfjörður. Andrés Elíasson rafiðnaðarfræðingur er í 2. sæti og Jó-
hanna Hallgrímsdóttir leikskólastjóri í því 3.
Félag um framboð
I Hveragerði boðuðu A-flokkarnir og óháðir fund í gærkveldi þar sem
stofna átti félag um framboð Hveragerðislista. Kynna átti drög að
samþykktum fyrir félagið og kjósa því stjórn. Þá átti að sjálfsögðu líka
að ræða framboðsmálin. — s.DÓR
Félagshyggjumeun á Héraði
sameiuast
Stofnuð hafa verið samtök félagshyggjufólks í hinu nýja sveitarfélagi,
Héraði, sem verður til með sameiningu Hjaltastaða-, Eiða-, Valla- og
Skriðdalshreppa, auk Egilsstaðabæjar. Samtökin hyggjast bjóða fram
til sveitarstjórnarkosninga í sameinuðu sveitarfélagi £ vor, en Alþýðu-
bandalagið hefur ákveðið að bjóða ekki fram á vegum samtakanna í
þetta sinn.
„Fjölmargir alþýðubandalagsmenn munu hinsvegar styðja og starfa
með hinum nýstofnuðu samtökum, sem þó eru í raun óháð öllum
stjórnmálaflokkum,'1 segir í tilkynningu. Þar segir að á stofnfundi
samtakanna síðastliðinn laugardag hafi verið stofnaðir málefnahópar
til undirbúnings að stefnuskrárvinnu og sömuleiðis hafi þar verið við-
hafðar leynilegar ábendingar um væntanlega frambjóðendur. For-
maður samtakanna er Skúli Björnsson. — SBS
Nýtt jþróttahús rís í SnæfeHsbæ___________________
ÍÞRÓTTAHÚS SNÆFELLSBÆJAR
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar stóð sl. haust fyrir forvali að hönnun nýs
íþróttahúss og tilkynntu 32 arkitektastofur þátttöku og af þeim voru
þijár valdar af forvalsnefnd í nóvembermánuði sl. til að keppa um
hönnunina. Það voru Arkþing, Batteríið og Gláma/Kím. Tillögurnar
áttu ennfremur að innihalda deiliskipulag fyrir byggingareitinn í
Ólafsvík þar sem grunnskólinn, íþróttavöllurinn og Ólafsvíkurkirkja
standa.
Gengið hefur verið til samninga við Glámu/Kím um hönnun húss-
ins en tillaga frá þeim fékk fyrstu verðlaun. Iþróttahúsið á að verða
tilbúið til notkunar fyrir I. september 1999. Tilkoma þess verður
mikil Iyftistöng fyrir æskulýðs-, íþrótta- og menningarlíf í Snæfells-
bæ. I vinningstillögunni er leitað samhengis við Iandslagið og byggð-
ina umhverfis lóðina og frumatriði byggingarlistar, hlutföll og rými,
höfð í fyrirrúmi. I Ólafsvík er eitt glæsilegasta og fullkomnasta félags-
heimili landsins, þ.e. félagsheimilið'að Klifi. — GG
Byggðastofnun tH Selfoss
Sunmenskir sveitarstjórnarmenn vilja að aðalstöðvar Byggðastofnun-
ar verði fluttar til Selfoss. Þetta var samþykkt á fundi stjórnar At-
vinnuþróunarsjóðs Suðurlands og Samtaka sunnlenskra sveitarfé-
Iaga. I samþykktinni segir að slíkur flutningur stofnunarinnar sé í
fullu samræmi við þá stefnu sem stjórn Byggðastofnunar hafi mark-
að. Ef flutningur ríkisstofnana út á land sé yfirleitt talinn æskilegur
þá hljóti Byggðastofnun að koma þar hvað helst til álita vegna eðlis
starfseminnar.
Neitar að neita
Jóhannes Guimarsson
neitar ekki framboði í
formanninn eftir
nokkurt hlé. Segist
enn hafa mikinn
áhuga á neytendamál-
um.
Jóhannes Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtak-
anna, neitar því ekki að hann hafi
boðið sig fram í formannsstól
samtakanna. Nafn Jóns Magnús-
sonar, lögmanns og varafor-
manns Neytendasamtakanna,
hefur einnig verið nefnt eftir að
Drífa Sigfúsdóttir lýsti því yfir að
hún myndi hætta.
Jóhannes Gunnarsson: neitar aö neita
að hann ætli í framboð.
„Ég svara engu um það hvort
ég hafi skilað framboði. Niður-
staða kjörstjórnar verður tilkynnt
á laugardag og síðan verður
stjórnarfundur. Það verður til-
kynnt þá hvaða fólk við erum að
tala um,“ sagði Jóhannes í sam-
tali við Dag í gær.
-En ef þit hefðir engan áhuga á
stólnum, væri ekki einfalt að lýsa
því yfir núna?
„Ég svara því til að ég hef haft
mjög mikinn áhuga á neytenda-
málum þau 20 ár sem liðin eru
frá því að ég kynntist þeim fyrst.“
Framboðsfrestur er útrunninn
og eru reglur Neytendasamtak-
anna þannig að annars vegar
starfar uppstillingarnefnd, en
hins vegar geta einstaklingar boð-
ið sig fram bréflega. Allir félags-
menn í Neytendasamtökunum
hafa framboðsrétt. „Við erum
með lýðræðisleg lög,“ segir Jó-
hannes.
Dagur náði ekki sambandi við
Jón Magnússon. — BÞ
Frá þingmannafundi í Grafarvogi á dögunum, Ögmundur Jónasson, Guðmundur Hallvarðsson, Svavar Gestsson og formaður
íbúasamtakanna, Friðrik Hansen Guðmundsson. Fyrsti fundur allra þingmanna með borgarbúum?
Reykjavík tvö eða
prju kjordæmi?
Margt mælir með að
skipta borginni upp í
fleiri en eitt kjördæmi,
segir Svavar Gestsson
sem á sæti í kjördæma-
nefnd Alþingis.
„Það er ekki hægt að svara því
hvort Reykjavík verður skipt upp í
tvö eða þrjú kjördæmi. Það er
ekki hægt að svara einstökum at-
riðum fyrr en allt er búið. Hitt er
staðreynd að innan nefndarinnar
er talað um að skipta Reykjavík
og oftast eru það tvö kjördæmi
sem talað er um. Þá er rætt um
að það yrðu bara tveir helmingar
jafn fjölmennir og línan gæti
breyst fyrir hverjar kosningar efir
manníjölda,“ sagði Svavar Gests-
son, formaður þingflokks Alþýðu-
bandalagsins og fulltrúi flokksins
í kjördæmanefnd Alþingis.
Allt opið
„Það er margt sem mælir með því
að skipta borginni upp í fleiri en
eitt kjördæmi. Sem dæmi má
nefna að fyrir kjósendur er mjög
erfitt að ná til okkar þingmanna
Reykjavíkur og fyrir okkur að ná
til kjósenda. A fundinum í Graf-
arvogi var það í fyrsta sinn í þau
20 ár sem ég hef verið þingmað-
ur, sem allir þingmenn Reykjavík-
ur eru boðaðir á fund í hverfi."
Verkefni kjördæmanefndarinn-
ar er að koma með tillögur um
breytingar á kjördæmaskipaninni
og er reiknað með að hún ljúki
störfum og leggi tillögur sínar
fram á haustþinginu í ár.
Innan nefndarinnar hafa allir
möguleikar á breytingum verið
ræddir, allt frá því að landið verði
eitt kjördæmi, að því verði skipt
upp í einmenningskjördæmi, að
stækka núverandi kjördæmi eða
að minnka þau. Eða eins og Svav-
ar orðaði það: „Það er allt undir í
þessum efnum.“ — S.DÓR
Kvótakæra og meira svindl
Framkvæmdastjóri út-
gerðar Guðhjargariim-
ar og þrír starfsmeim
Reilmistofu fískmark-
aða ákærðir fyrir hrot
á kvótaskiptalögum og
hókhaldslögum.
Ríkislögreglustjórinn hefur gefið
út ákæru á hendur fjórum ein-
staklingum fyrir brot á bókhalds-
lögum og lögum um skiptaverð-
mæti og greiðslumiðlun innan
sjávarútvegsins og fyrir fjársvik á
árinu 1996.
Þremur fyrirsvarsmönnum
Reiknistofu fiskmarkaða hf. er
gefið að sök að hafa í viðskiptum
við útgerðarfélagið Hlera hf. fjár-
magnað 10 tonna aflamark
slægðs þorsks fyrir útgerðarfélag-
ið, flutt þetta með tilkynningu til
Fiskistofu á skip útgerðarfélags-
ins, Guðbjörgu HK-517, og látið
undir höfuð leggjast að færa bók-
haldsatriði viðskiptanna í bók-
haldi reiknistofunnar. Þeim er
einnig gefið að sök að hafa gefið
út og bókfært hjá reiknistofunni
þrjá ranga afreikninga til Hlera,
þar sem verðmæti aflamarks er
dregið frá raunverulegu söluverði.
Þeir eru einnig ákærðir fyTÍr að
hafa liðsinnt framkvæmdastjóra
Hlera í fjársvikabroti hans.
Framkvæmdastjóri Hlera er
ákærður fyrir að hafa ekki fært
umrædd viðskipti í bókhaldi út-
gerðarfélagsins. Honum er einnig
gefið að sök að hafa notað hina
röngu afreikninga við uppgjör á
greiðslum gjalds í greiðslumiðlun-
arsjóð til Fiskveiðasjóðs, afla-
gjalds til Sandgerðishafnar og
aflahlutar til tveggja skipveija og
um leið leynt raunverulegu heild-
arverðmæti afla Guðbjargar.
Munaði mestu urn 190 þúsund
króna mismun sem renna átti til
skipverjanna, en í heild hljóðar
mismunurinn upp á 228 þúsund
krónur. — FÞG