Dagur - 13.03.1998, Side 11
FÖSTUDAGUR 13. MARS 19 9 8 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Stjóm Nyrups
heldur vem
Poul Nyrup Rasmus-
sen, forsætisráðherra
Daua, gekk í gær á
fimd Margrétar Þór-
hildar til að íiíkynna
henni að ríhisstjóm
sín hefði haldið velli í
kosningunnm og að
stjómin gæti varist
vantransti á þinginu.
Stjómin mun því
sitja áfram.
Þessi niðurstaða er mikill sigur
fyrir Nyrup Rasmussen, bæði á
pólitískum andstæðingum og á
öllum skoðanakönnunum und-
anfarna daga, sem höfðu spáð
borgaraflokkunum meirihluta.
Hins vegar er sigur sósíal-
demókrata ekki meiri en svo að
ríkisstjórnin mun ekki hafa skil-
yrðislausan hreinan meirihluta á
þinginu. Borgarablokkin fékk
samtals 89 þingsæti en sósíal-
demókratar og þeirra banda-
menn fengu 90. Af þessum 90
kemur einn þingmaður frá Fær-
eyjum og er sá ekki hrifinn af
Nyrup og Iýsti hann því yfir í gær
að stuðningur hans við sósíal-
demókratíska ríkisstjórn gæti
orðið skilyrtur. Jafnframt lýsti
hann því yfir að hann myndi
verja stjórnina falli - af tvennu
illu vildi hann frekar Nyrup en
borgaraflokkana.
Stj ómarsáttmáli
Poul Nyrup byrjaði strax í gær á
að ræða við samstarfsflokka sós-
íaldemókrata á þingi, Sósíalíska
alþýðuflokkinn og Einingarlist-
ann, en þessir flokkar hafa gert
bandalög við sósíalista um
stuðning á þinginu. Þegar á
kosninganóttina gekk forsætis-
ráðherrann hins vegar frá því við
Marianne Jevland, formann
Radikale Venstre, að stjórnar-
samstarf flokkanna myndi halda
áfram. Flokkarnir munu gera
með sér skriflegan stjórnarsátt-
mála og er ljóst að þar munu
bættur grunnskóli, einföldun á
skattakerfinu og ellilífeyrismál
verða áberandi.
Naiunur meirihluti
Meirihluti ríkisstjórnarinnar er
afar naumur og sagði Poul Nyr-
up í gær að augljóslega yrði um
víðtæka samvinnu að ræða í
þinginu og sósíaldemókratar
yrðu að leita eftir stuðningi hjá
einhverjum borgaraflokkanna í
einstökum málum. Nefndi hann
sérstaklega Miðdemókrata og
minnti á að áður hafi verið sam-
starf milli þessara aðila. Mimi
Jakobssen, formaður Mið-
demókratanna, sagði í gær að
augljóslega hefði ekki tekist að
ná borgaralegum meirihluta og
því væri Miðdemókrataflokkur-
inn í þeirri aðstöðu að reyna að
hafa þau áhrif sem hann gæti
með samningum. Flokkurinn
myndi vitaskuld reyna að semja
við sósíaldemókrata um mál þó
hann stæði utan samstarfsins.
Spenna fram á síðustu
stuudu
Kosningarnar á miðvikudag voru
annars einhverjar þær mest
spennandi í manna minnum.
Höfuðfylkingarnar í stjórnmál-
um skiptust á að vera með for-
ystu fram eftir kosningakvöldinu
og réðu mismunandi forsendurr
fyrir kosningaspám sjónvarps-
stöðvanna miklu um hvernig
staðan Ieit út. Þegar búið var að
telja í Danmörku undir miðnætti
var enn óvíst með niðurstöðu,
því þingsætin í Færeyjum (2) og
Grænlandi (2) gátu ráðið úrslit-
um. A báðum stöðum skildu
blokkirnar jafnar með einn þing-
mann hvor, en í Færeyjum mun-
aði svo litlu - aðeins 160 atkvæð-
um - að óskað var endurtalning-
ar.
Hrun hjá íhaldi
Fyrir utan hinn stóra varnarsigur
Sósíaldemókratanna er þrennt
áberandi í kosningaúrslitunum.
I fyrsta lagi er það skelfileg út-
reið Ihaldsflokksins sem tapaði
11 þingsætum. Per Stig Muller,
formaður flokksins, skýrir þetta
með því að floldkurinn hafi fallið
í skuggann f kosningabandalag-
inu við Venstre og að flokkurinn,
sem samanstandi af hófsömum
hægrimönnum, hafi orðið fyrir
barðinu á hreyfingu fylgis inn á
miðjuna og langt til hægri.
Pólittísk framtíð Per Stig Mull-
ers er nú talin nokkuð óljós.
Stórsigur lengst til hægri
I öðru lagi er stórsigur Danska
alþýðuflokksins, flokksins lengt
til hægri í dönskum stjórnmál-
um, áberandi. Hann fær 13
þingsæti á grundvelli harðari
innflytjendastefnu og gagnrýni á
Evrópubandalagið.
I þriðja lagi er það aukinn
stuðningur við Miðdemókrata
sem virðast bæði ná atkvæðum
frá hægri og vinstri.
Niðurstöður kosning-
anna í Danmörku
Kosn.’94 Kosn.’98
Sósíaldemókratar 34,6 36,0
Radikale venstre 4,6 3,9
Ihaldsflokkurinn 15,0 8,9
Miðdemókratar 2,8 4,3
Sósíalíski alþfl. 7,3 7,4
Danski alþýðufl. — 7,4
Kristilegir 1,9 2,5
Venstre 23,3 24,0
Framfarafl. 6,4 2,4
Einingarlistinn 3,1 2,7
Aðrir 1,0 0,3
Úthlutun þingsæta á danska þinginu
Viiistri flokkar Hægri llokkar
Sósíaldemókratar 63 Venstre 42
Radikale 7 íhalds. 16
Sósíal. alþfl. 13 Miðdemó. 8
Einingarlisti 5 Danski alþfl. 13
Færey.+Grænl. 2 Kristil. 4
Samtals: 90 Færey.+Grænl. Samtals: 2 89
Framsóknarflokkurinn
"Aukum framsókn kvenna"
Málþing í Austrahúsinu, Tjamarbraut 19, Egilsstöðum
föstudaginn 13. mars 1998 kl. 20.00
Dagskrá
20:00 Setning
Ólafur Sigurðsson, formaður KSFA
Ávarp
Jón Kristjánsson, alþingismaður
Konur og stjórnmál
Anna Margrét Jóhannesdóttir, jafnréttisráðgjafi
Framsóknarflokksins
Þátttaka í sveitarstjórn
Vigdís M. Sveinbjömsdóttir, bæjarfulltrúi á Egilsstöðum
Samspil fjölskyldu- og stjórnmálalífs
Ólafía Ingólfsdóttir, varaþingmaður og sveitarstjómarmaður
Pallborðsumræður - Framsögumenn sitja fyrir svörum
Málþingið er öllum opið
Jafnréttisnefnd Framsóknarflokksins
Kjördœmissamband framsóknarmanna á Austurlandi
Aðalfundur
Útgerðarfélags Akureyringa hf.
verður haldinn í matsal félagsins
þriðjudaginn 24. mars nk. kl. 1600.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 12. gr.
samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum
til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Stjórn Útgerðarfélags Akureyringa hf.
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. mars 1998 hefst innlausn á
útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
4. flokki 1992 - 17. útdráttur
4. flokki 1994 - 10. útdráttur
2. flokki 1995 - 8. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
föstudaginn 13. mars.
Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja
frammi hjá Húsnæðisstofnun ríkisins, á
Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
[Mj HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
Lj HÚSBRÉFADEllD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SÍMI 569 6900