Dagur - 13.03.1998, Síða 12
12- FÖSTUDAGUR 13.MARS 1998
ÍÞRÓTTIR
X^tr
KR-ingar í
öðru sæti
KR-ingar fram úr Hauk
iim á endasprettmiun.
ísfírðingar mörðu Vals-
inenii á ísafírði og ÍR
kvaddi deildina með 28
stiga tapi.
KR-ingar mörðu sigur á baráttu-
glöðum Skallagrímsmönnum í
Iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi í
framlengdum leik með 96 stigum
gegn 95.1 upphafi virtust KR-ing-
ar ætla að stinga af því þegar tvær
mínútur voru liðnar var staðan
orðin 12-4. Þá sneru Skallarnir
dæminu við og með mikilli bar-
áttu komust þeir inn í leikinn á ný
og í öllum æsingnum fór leikur-
inn í framlengingu sem KR-ingar
unnu á síðustu sekúndunum.
Haukarnir sáu aldrei til sólar á
móti frískum deildarmeisturun-
um úr Grindavík. Grindjánarnir
tóku leikinn strax í sínar hendur
og juku jafnt og þétt við forskotið
allan leikinn og sigruðu með 29
stigum, 74-103.
Skagamenn mættu grimmir til
leiks í Keflavík og höfðu yfir í
hálfleik, 30-37. Eftir guðsorð og
góðar bænir Sigurðar Ingimund-
arsonar, þjálfara Keflvíkinga, í
leikhléi, mættu heimamenn
grimmir og náðu að jafna leikinn
sem var í járnum fram á síðustu
mínútu en Keflvíkingar sigruðu á
lokasprettinum, 63-60.
KFI fláði ekki feitan gölt á
heimavelli sínum gegn Val í gær-
kvöld. Valsmenn mættu afslapp-
aðir og sprækir í Ieikinn. Þeir
höfðu engu að tapa og ekkert að
vinna og voru aðeins mættir til
þess að hafa gaman af því að spila
körfubolta. Þeir stóðu í Isfirðing-
um allan tímann og heimamenn
máttu þakka fyrir 5 stiga sigur,
76-71.
Þórsarar héldu í víking til Sauð-
árkróks þar sem Tindastóll tók á
móti þeim. Það væri synd og
skömm að halda því fram að Þórs-
urum hafi verið sýnd gestrisni á
Króknum í þetta sinn því heima-
menn léku þá grátt og sigruðu,
92-71.
IR-ingar voru engin hindrun
fyrir Njarðvík þegar þeir mættu í
Seljaskólann í gærkvöld. Suður-
nesjamennirnir unnu auðveldan
sigur, 82-110. - GÞÖ
Fer Klinsmann frá Spurs?
Svo gæti farið að Jurgen Klinsmann yfirgefi herbúðir enska úrvals-
deildarliðsins Tottenham, fyrir Iok þessa keppnistímabils. Þjóðverj-
inn er með klásúlu í samningi sínum, að hann geti farið frá féiaginu
ef hann verður ekki í byrjunarliði þess og eins og samskiptum hans
og þjálfarans, Christian Gross, er háttað,
Meiðsl hjá toppliðiumm
Nicky Butt bættist á sjúkralistann hjá Manchester
United í fyrrakvöld, þegar hann haltraði af velli,
meiddur á ökkla, gegn West Ham og tvísýnt er að
hann geti leikið með liði sínu gegn Arsenal í toppslag
ensku úrvalsdeildarinnar á laugardaginn. Butt bætist
í hóp þeirra Gary Pallister, Roy Keane, Ryan Giggs og
Jordi Cruyff sem allir eiga við meiðsl að stríða. Ovíst
er hvort austurríski markvörðurinn, Alex Manninger,
sem staðið hefur á milli stanganna í forföllum David Seaman hjá
Arsenal, leiki með, en hann meiddist á höfði í leiknum gegn
Wimbledon. Ef Manninger verður ekki búinn að ná sér í tæka tíð fyr-
ir laugardaginn, þá mun það koma í hlut hins 37 ára gamla John
Lukic að standa í markinu.
Nicky Butt.
Gullitt á óskalistanuin
Ruud Gullitt, fyrrum framkvæmdastjóri og leikmaður Chelsea, er á
óskalistanum hjá Joe Kinnear, framkvæmdastjóra Wimbledon. Kinn-
ear mun væntanlega ræða við umboðsmann Gullitt í dag.
Margas til West Ham
Javier Margas, landsliðsmaður Chile, er líklega á leiðinni til West
Ham fyrir tvær milljónir punda. Margas er 28 ára gamall og forráða-
menn West Ham vonast til þess að ekki komi upp nein vandamál
með atvinnuleyfi í Bretlandi. Neil Ruddock, varnarmaður Liverpool,
hefur einnig verið orðaður við Lundúnaliðið. Harry Redknapp, stjóri
West Ham, er hins vegar ekki tilbúinn til að greiða þá eina og hálfa
milljón punda, sem Liverpool vill fá fyrir Ieikmanninn.
Fær sér hyssu eftir morðhótun
Karl Malone, kraftframherji Utah Jazz, hefur ákveðið að ferðast með
skammbyssu í útileiki félagsins á næstunni. Eftir leik Iiðsins í New
Jersey fyrir stuttu fékk kappinn morðhótun sem fór svona illa í hann.
Malone er með byssuleyfi í Utah íylki en þetta gæti reynst honum
erfitt þar sem lögin um handvopn eru mjög mismunandi eftir fylkj-
um í Bandaríkjunum og hann ferðast nokkuð mikið með liðinu.
Einnig er misjafnt eftir flugfélögum hvort má vera með byssur um
borð. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Malone fær hótun af þessu tagi.
Arið 1992 lenti Malone og Isiah Thomas, leikmanni Pistons, saman
sem endaði með því að sauma þurfti nokkuð mörg spor í andlitið á
Thomas. „Það er ekki nógu góð öryggisgæsla í kringum Ieikmenn
deildarinnar og þetta endar bara með því að einhver Iendir illa í því.
Eg ætla ekki að vera þessi einhver," sagði Malone.
Arsenál með til-
hoð í Wembley
Enska úrvalsdeildarfélagið
Arsenal hefur sett fram kauptil-
boð í þjóðarleikvang Englend-
inga, Wembley, sem margir telja
að sé vagga knattspyrnunnar í
Bretlandi. Ekki kom fram hvað
Arsenal hefði boðið í leikvang-
inn, en hann hefur verið metinn
á 90 til 120 milljónir sterl-
ingspunda (um það bil 10-13
milljarðar ísl. kr.) og búist er við
því að tilboði enska félagsins
verði svarað fyrir lok mánaðarins.
Ef hlutafélag það sem á
Wembleyleikvanginn gengur að
tilboði Arsenal, er það talið veikja
vonir Englendinga um að fá að
halda heimsmeistarakeppnina
árið 2006. Ýmsar aðrar ráðagerð-
ir hafa verið uppi um Wembley,
meðal annars að rífa leikvanginn
og byggja nýjan á sama stað, en
talið er að slíkar framkvæmdir
munu kosta um 200 milljónir
sterlingspunda. Leikvangurinn
er 7 5 ára gamall og fyrir utan að
hafa verið vettvangur úrslitaleiks
í heimsmeistarakeppni árið
1966, hafa úrslit Evrópumóta
ráðist á honum í fimm skipti, auk
þess sem keppt var á honum á
Olympíuleikunum 1948.
Arsenal hefur sem kunnugt er
leikið á Higbury í Norður-Lund-
únum á síðustu áratugum, en
hann rúmar aðeins 38 þúsund
áhorfendur. AUar tilraunir for-
ráðamanna Arsenal til að stækka
leikvanginn, hafa mætt harðri
mótstöðu frá þeim sem búa í
næsta nágrenni við völlinn og
talið er ólíklegt að félagið fái
heimild til að stækka við sig.
Breski íþróttamálaráðherrann
Tony Banks, sagðist í gær telja
líklegt að tilboði Arsenal yrði
hafnað, en það Jþyrfti að hafa
hraðar hendur. „Ég hef rætt við
menn bæði hjá Arsenal og hjá
Wembley-félaginu og næsta skref
er að ganga frá málinu, helst í
þessum mánuði," sagði Banks.
.,Rikiirniiílið“ þmgfest
hjá Dómstóli HSÍ
Handknattleiksdeild Fram hefur
áfrýjað úrskurði Dómstóls Hand-
knattleiksráðs Reykjavíkur um
framkvæmd bikarúrslitaleiksins í
karlaflokki, en ráðið úrskurðaði
sem kunnugt er að úrslit skyldu
standa í úrslitaleik liðanna og að
Valsmenn væru því réttrkrýndir
bikarmeistarar. Málið var þing-
fest hjá Dómstóli HSI í annað
sinn í gær og nú er beðið eftir því
að félögin skili inn greinargerð-
um. Handknattleiksdeild Fram
hefur frest til að skila greinar-
gerð sinni inn til dagsins í dag,
en Valsmenn hafa fengið frest til
morguns.
Búast má við því að Dómstóll
HSl, sem í seinni meðferð þessa
máls er áfrýjunardómstóll, muni
dæma í málinu um helgina eða í
byrjun næstu viku. I ljósi þess að
þrfr af ijórum dómendum Dóm-
stóls HSI komu að málinu í fyrri
meðferð þess, má gera ráð fyrir
því að efnisleg niðurstaða dóms-
ins, verði sú sama og í fyrra
skiptið, þegar dæmt var að leikur
Vals og Fram skyldi háður að
nýju. Ljóst er að Valsmenn geta
ekki áfrýjað efnislegri niðurstöðu
dómsins, þar sem Dómstóll ISI,
sem er æðsti dómstóll íþrótta-
mála á landinu, hefur þegar úr-
skurðað að hann sé ekki bær að
fjalla um málið, sökum þess að
það hafi ekki almennt gildi fyrir
íþróttahreyfinguna.
Málið er orðið ennþá flóknara,
því Handknattleiksdeild Vals hef-
ur farið fram á að Dómstóll HSÍ
verði endurskipaður, vegna þess
að dómendur hans hafi þegar
fjallað um málið efnislega. An
þess að nokkuð sé fullyrt um
það, má búast við því að dóm-
endur Dómstóls HSI komist að
þeirri niðurstöðu að þeir séu
sjálfir hæfir til að dæma í mál-
inu, á grundvelli þess að fyrri
málatilbúnaður var dæmdur
ómerkur. Urræði Valsmanna
verða því sem fyrr, væntanlega sú
að leita til Dómstóls ÍSÍ til að
skera úr um það, hvort rétt sé að
dómendur HSI-dómstólsins fjalli
um málið að nýju. Eins og stað-
an er í dag, er nýr bikarúrslita-
leikur ekki í augsýn í bráð, hvað
sem síðar verður.