Dagur - 21.03.1998, Page 1
Verð í lausasö/u 200 kr.
81. og 82. árgangur - 56. tölublað
RLAÐ
Helgi S. Guðmundsson, formaður
bankaráðs Landsbankans.
Þaká
laxveiðar
„Ég er ekki tilbúinn með tillögu
á þessari stundu, en ég útiloka
slíkt ekki,“ segir Helgi S. Guð-
mundsson, formaður bankaráðs
Landsbankans, þegar Dagur bar
undir hann fullyrðingu heimild-
armanns að Helgi hyggðist flytja
um það tillögu á bankaráðsfundi
að laxveiðum á vegum bankans
verði hætt eða strangar reglur
teknar upp.
Helgi leggur á það áherslu að
hann telji boð bankastjóra til er-
lendra og innlendra einstaklinga
um laxveiði ekki óeðlileg, né að
ákvörðun um slíkt sé hjá banka-
stjórunum. „Ég er ekki bann-
glaður reglugerðarmaður og geri
skýran greinarmun á laxveiði-
málunum almennt og síðan mál-
inu sem er í athugun hjá Ríkis-
endurskoðun og fjallar um kaup
á veiðileyfum í Hrútafjarðará."
A bankaráðsfundi á fimmtu-
dag var lagður fram hluti gagna
sem Jóhann Arsælsson banka-
ráðsmaður hafði beðið um.
Hann er ekki tilbúinn til að tjá
sig um þessi gögn, en tekur und-
ir orð bankaráðsformannsins.
„Þessi kostnaður hefur farið
minnkandi, en það segir samt
ekki að verið sé að eyða öllum
þessum peningum skynsam-
Iega,“ segir Jóhann. -FÞG
Páskaegg
í Norðurá
Tengivagn slitnaði aftan úr
flutningabíl frá Akureyri í gær
við Norðurá, heiðarendann þar
sem lagt er upp á Öxnadals-
heiði. I bílnum var m.a. nokkuð
af páskaeggjum sem að sögn
sjónarvotta flutu tignarlega nið-
ur ána í átt til byggða í Skaga-
firði. Einhverjir munu þó áður
hafa tryggt sér hlut af „strand-
góssinu".
Þríhöfda-fnunvörp
verða lögð fram
Kántrí-
bær
rifinn
„Mér leið ágætlega meðan húsið
var rifið. Ég er búinn að taka út
allar mínar sálarkvalir kringum
þetta. Nú er það bara framtíðin
sem skiptir máli, að vera góður
strákur og reka Kántríbæ," segir
Hallbjörn Hjartarson, húsráð-
andi í Kántríbæ á Skagaströnd.
Sá hluti Kántríbæjar, sem fór
illa í eldsvoða í fyrra, var rifinn í
gær. I næstu vikur hefjast fram-
kvæmdir við byggingu nýs bæjar
við eldri hluta Kántríbæjar sem
enn stendur. Nýi bærinn er 234
fermetra bjálkahús, sem er keypt
frá Finnlandi. I næstu viku hefj-
ast framkvæmdir við grunninn
og í lok mánaðarins verður allt
efni í húsið komið til landsins.
„Það tekur fjórar vikur að reisa
húsið og ég geri mér vonir um að
um miðjan júní verði starfsemin
komin í fullan gang,“ segir
kúrekinn Hallbjörn Hjartarson.
-GHS
Sá hluti Kántríbæjar, sem fór illa i eldsvoða í fyrra, var rifinn í gær. / næstu viku hefjast framkvæmdir við grunninn og um miðjan
júní verður húsið fullbúið.
Eðlilegt að Alþingi
taki málið til sín, seg-
ir Steingrímiir J. Sig-
fusson. Fundað óform-
lega í sjómannadeil-
iin ii i. Nýjar miðlunar-
tillögur ekki útilokað-
ar. Djúpt á lausn.
„Það kemur fullkomlega til
greina að mínum dómi að stjórn-
arandstaðan leggi fram frum-
vörpin, sem sjávarútvegsráðherra
hefur kynnt, og byggja á tillögum
þríhöfðanefndarinnar. Auðvitað
gera menn ekki slíkt að vanhugs-
uðu máli, það þarf að meta
hvaða áhrif hver og einn Ieikur í
þessu tafli getur haft. Hitt ætti
öllum að vera ljóst að það getur
hver sem er tekið frumvörpin
upp, Iagt þau fram og komið
þeim á dagskrá í þinginu," sagði
Steingrímur J. Sigfússon, alþing-
ismaður og formaður sjávarút-
vegsnefndar.
Hann bendir á að sjómenn
hafi tekið frumvörpunum heldur
jákvætt sem lið í því að leysa sjó-
mannadeiluna.
„Þess vegna tel ég að eins og
staðan er sé ekki um annað að
gera en að leggja frumvörpin
fram. Mér finnst eðlilegt að þau
komi fyrir þingið, eins og í pott-
inn er búið. Þau eru staðreynd
sem liggur fyrir, eiga sér ákveð-
inn aðdraganda sem ekki verður
afmáður, það hlýtur því að vera
eðlilegt að löggjafarvaldið taki
þetta mál til sín. Verði það ekki
gert er deilan komin jafnvel aft-
an við byrjunarreit," segir Stein-
grímur.
Hann segir að sér sýnist það
tilgangslaust að deiluaðilar fari
að tala saman ef það er einhverj-
um vafa undirorpið að frumvörp-
in verði lögð fram.
Flotinn er bundinn við bryggju og ekki
sér fyrir enda sjómannadeilunnar.
Nýjar miðlimartillögur?
Ríkissáttasemjari hefur boðað
deiluaðila til óformlegs fundar í
dag, laugardag. Ekki er talið ólík-
legt að hann muni leggja fram
nýjar miðlunartillögur til lausnar
verkfallinu. Það er hinsvegar enn
djúpt á lausn deilunnar þótt
ágreiningsmálin eigi að liggja
ljósar fyrir eftir að útvegsmenn
felldu miðlunartillögur ríkis-
sáttasemjara.
Utvegsmenn eru hinsvegar
gallharðir á því að sjómenn verða
að spila einhverju út ef samning-
ar eiga að takast. Þar vegur
þyngst krafa þeirra um breyting-
ar á skiptakjörum vegna fækk-
unar í áhöfn. Meðal sjómanna
eru skiptar skoðanir til málsins.
Vélstjórar telja að koma verði á
einhvern hátt til móts við þessa
kröfu útvegsmanna en aðrir sjó-
menn telja að allar tillögur í
þessa veru nái aldrei fram að
ganga hjá þeim. Fyrir utan að
vera á móti frumvarpsdrögunum
þremur, telja útvegsmenn að þau
séu orðin að samningsatriði á
milli þeirra og sjómanna úr því
að þeir síðastnefndu hafa ekki
aflýst verkfalli. Sjómenn eru því
ósammála. Þeir standa fastir á
kröfum sínum og eru farnir að
skipuleggja verkfallsvaktir.
-grh/s.dór
mmmmamm
Nvtt símanúmer
4 6 0 2 5 0 0 1
SPARISJÓÐUR NORÐLENDINGA
Skipagata 9 • Pósthólf 220 • 602 Akureyri
—~r
Premium
miólarar
W///A
COMPU.TER I
BIACK&DEGKER
Hondverkfæri
SINDRI ^
-sterkur í verki
BORGARTÚNI 31 • SÍMI 562 7222 • RRÉFASÍMI 562 1024
in