Dagur - 21.03.1998, Qupperneq 12
12 -LAUGARDAGUR 21.MARS 1998
Ull
Framsóknarflokkurinn
Vestlendingar
Almennur fundur um nýliðun í landbúnaði og lánasjóð landbú-
naðarins verður haldinn í matsal Bændaskólans á Hvanneyri
þriðjudaginn 24. mars n.k. kl. 20.30.
Framsögumenn verða: Guðni Ágústsson, alþingismaður og
Þórólfur Sveinsson bóndi. Fundurinn er opinn öllum.
FUF í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
Reykjavíkurbor^
Borgarverkfrœðingur
Lóðaúthlutun í Reykjavík.
Til úthlutunar eru neðangreindar lóðir í Staðahverfi:
- Lóðir fyrir einbýiishús: 36 lóðir við Bakkastaði.
- Lóðir fyrir raðhús: 9 lóðir (29 íbúðir) við Bakkastaði.
Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði byggingarhæfar í ágúst og sept-
ember 1998.
Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu borgarverkfræðings,
Skúlatúni 2, 3. hæð, sími 563 2300. Þar fást einnig afhent um-
sóknareyðublöð, skipulagsskilmálar og uppdrættir.
Tekið verður við umsóknum um lóðirnar frá og með föstudeginum
27. mars nk. kl. 8.20 á skrifstofu borgarverkfræðings.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
Reylgavíkurborg
Atvinbu- & ferðamálastofa
ÞRÓUN ATVINNULÍFS í REYKJAVÍK
- STYRKVEITINGAR -
Atvinnu- og ferðamálanefnd Reykjavíkur veitir á hverju ári styrki til
þróunar atvinnulífs í Reykjavík. Hér með er auglýst eftir umsóknum
um slíka styrki, en að þessu sinni eru til ráðstöfunar 5 milljónir
króna. Styrkirnir eru ætlaðir til rannsókna, vöruþróunar og markaðs-
setningar á vörum/þjónustu, einkum innan ferðaþjónustu, sem leiða
til atvinnusköpunar í Reykjavík.
Styrkir til einstakra verkefna geta numið allt að 50% af áætluðum
kostnaði við framkvæmd hvers verkefnis. Hámarks styrkupphæð er
kr. 500 þúsund og greiðist styrkurinn út í samræmi við framgang
verkefnis. Atvinnu- og ferðamálastofa Reykjavíkurborgar hefur eftir-
lit með framvindu verkefnis og útborgun styrksins.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
Atvinnu- og ferðamálastofu Reykjavíkurborgar
Aðalstræti 6, 2. hæð
101 Reykjavík.
Sími 563 2250 - Fax 563 2249.
Umsóknarfrestur er til 3. apríl 1998.
WHATYCX
LAS
“I Know What You Did Last Summer" er hin fræga
tryllihrollvekja sem geröi allt vitlaust í Bandaríkjunum
i oktober í fyrra. Myndin fjailar um fjögur ungmenni
sem verða að taka afleiðingunum þegar þau henda
manni útbyrðis sem er enn með lifsmarki eftir að hafp'
verið keyrður niður. Ári síðar fá ungmennin umslög dg-
inni í þeim er að finna eftirtalin skilaboð: “Ég veit hvað
þið gerðuð í fyrrasumar“
: [ rmArbíc ] □XLD il'ÍI I ]
DIGITAL SOUND SYSTEM
ÍÞRÓTTIR
Jóhann G Jóhannsson, fyrirlidi KA-manna, með bikarinn góða.
Með bikarmn
heint!
KA-menn tryggðu sér annan
deildarmeistaratitil sinn á þrem-
ur árum í fyrrakvöld og sæti á
Norðurlandameistaramóti fé-
lagsliða sem fram fer 25.-27.
næsta mánaðar. Á myndinni sést
fyrirliði þeirra, Jóhann Gunnar
Jóhannsson, koma með bikarinn
til Akureyrar. Norðanmenn hafa
ekki tækifæri á að fagna lengi því
úrslitakeppni Islandsmótsins
hefst á þriðjudaginn. Nánar er
fjallað um afrek KA-manna á bls.
18. MYND:-GG
Einvígi Keflavíkur
og KR um titilinn
Úrslitarimma Keflavíkurstelpn-
anna og KR um Islandsmeistara-
titilinn í körfuknattleik kvenna
hefst á laugardaginn kl. 15. Þá
taka deildar- og bikarmeistarar
Keflvíkinga á móti KR í Keflavík.
Það er deginum ljósara að viður-
eignir þessara liða verða góðar.
Þau hafa haft yfirburði f deild-
inni í vetur og það var nánast
formsatriði fyrir þessi lið að
tryggja sér sæti í úrslitaviður-
eigninni. Sigurganga Keflvfkinga
hefur verið með ólíkindum á
undanförnum árum. Liðið hefur
hampað meistaratitlinum sjö
sinnum frá árinu 1988. Stúdínur
sigruðu árið 1991 og Breiðablik
og Grindavík komu öllum á óvart
árin 1995 og 1997 hjuggu skörð
í sigurgöngu Keflvíkinga. Nú er
spurningin aðeins sú hvort KR
tekst að stækka skarðið sem
Grindvíkingar gerðu f fyrra,- GÞÖ
Á skjánum í vikimiii
Laugardagur 21. mars
RÚV:
kl. 13.05 Heimssiglingin Whit-
bread
kl. 14.20 Þýska knattspyrnan
B. Munchen-M. Gladbach
kl. 16.20 Innanhússmeistaramót
Islands í sundi
STÖÐ 2:
kl. 14.50 Úrslitakeppnin f
körfuknattleik. Sýnt verður frá
tveimur stöðum, Akranesi og
Keflavík.
ÍA-GRINDAVÍK í karlaflokki
Keflavík-KR í kvennaflokki
Sunnudaeur 22. mars.
RÚV:
kl. 16.20 Islandsmót í hand-
knattleik kvenna
Víkingur-FH
8-liða úrslit
STÖÐ 2:
kl. 14.00 Italski boltinn
PARMA-JUVENTUS
SÝN:
kl. 16.00 Snókerbrellur með
Steve Davis (1/4)
kl. 19.25 ítalski boltinn
AC MILAN-INTER
kl. 21.45 19. holan (golfþáttur)
Við sögu koma m.a. Pete Colem-
an, Jumbo Ozaki og Mickey Wal-
ker.
Mánudagur 23. mars
SÝN:
kl. 19.55 Snóker með Steve Dav-
is
Þriðjudagur 24. mars
SÝN:
kl. 22.35 Enski boltinn
Rifjuð verða upp eftirminnileg
atvik úr Ieikjum enska landsliðs-
ins.
Miðvikudagur 25. mars
SÝN:
kl. 19.25 Vináttulandsleikur í
knattspyrnu
ÞÝSKALAND-BRASILÍA.
-D^ur
Þrír á förum
fráKA
Ljóst er að þrír að leikmönnum
nýkrýndra deildarmeistara KA,
munu ekki leika með liðinu á
næsta keppnistímabili. Sigtrygg-
ur Albertsson, sem varið hefur
mark KA-manna af stakri prýði,
hyggst Ieggja skóna á hilluna og
snúa sér að sjómennsku, en
hann er með stýrimannsréttindi.
Björgvin Björgvinsson, mun nær
örugglega fara til Þýskalands,
þar sem nokkur þarlend lið hafa
sýnt honum mikinn áhuga og
Hvít-Rússinn Vladimir Goldin,
sem er nýbyrjaður að leika með
norðanmönnum eftir nokkurt
hlé, mun taka upp þráðinn sem
hermaður í heimalandi sínu.
KA-menn gera sér vonir um að
halda öðrum leikmönnum, auk
þess, sem til stendur að fylla
skörð þeirra sem fara.
Um helgina
HANDBOLTI
1. deild kvenna
8-Iiða úrslitakeppni
Laugardagur
Fram-Stjarnan
Valur-Grótta/KR
Sunnudagur
ÍBV-Haukar
Víkingur-FH
2. deild karla:
Laugardagur
Hörður-Fylkir
Sunnudagur
Ármann-HM
KARFA
8-liða úrslitakeppni karla
Laugardagur
ÍA-Grindavík kl. 15:00
Tindastóll-KR kl. 16:00
Sunnudagur
KFÍ-UMFN kl. 20:00
Keflavík-Haukar kl. 20:00
Mánudagur
Oddaleikir ef með þarf
Grindavík-ÍA kl. 20:00
KR-Tindastóll kl. 20:00
1. deild kvenna:
Laugardagur
Keflavík-KR kl. 15:00
1. deild karla - Úrsltitakeppni
Sunnudagur
Þór Þorl.-Snæfell kl. 15:00
KNATTSPYRNA
Deildarbikarkeppni karla
Laugardagur
Ásvellir Hafnarfirði
B Víðir-Sindri kl. 13
D Stjarnan-KA kl. 15
B ÍBV-Þróttur N. kl. 17
Sandgrasvöllur, Kópavogi
C Leiftur-Fjölnir kl. 13
E Reynir-Völsungur kl. 15
F Tindast.-Ægir kl. 17
CLeikn. ÍR-Þór kl. 15
E Þróttur R-Dalvík kl. 17
Sunnudagur
Ásvellir, Hafnarfirði
B Sindri-Fylkir kl. 11
C Njarðvík-Leiftur kl. 13
E ÍA-Dalvík kl. 15
F Tindast.-Víkingur R. kl. 17
F Fram-Haukar kl. 19
Sandgrasvöllur, Kópavogi
C HK-Þór kl. 11
E Völsungur-Breiðablik kl. 13
Leiknisvöllur Breiðholti
D KS-Leiknir R kl. 11
D KR-KA kl. 13
B Valur-Þróttur kl. 15
FIMLEIKAR
Bikarmót íslenska fimleikastigans
verður haldið í íþróttahúsinu við
Kaplakrika í dag. Mótið er liða-
keppni og keppt er í 1.-4. þrepi
stúlkna en 3. og 4. þrepi pilta.
Keppni hefst kl. 10.45 en mótslok
áætluð kl. 18.
Meistaramót íslenska fimleikastig-
ans fer fram í Kaplakrika á sunnu-
daginn og hefst keppni kl. 13.15
en mótslok eru áætluð kl. 15.50.
kl. 16.30
kl. 16.30
kl. 20:00
kl. 16:00
kl. 14:00
kl. 20.30