Dagur - 30.04.1998, Síða 1
Sparigrís er nýjasta
heimilisdýr íslend-
inga. Enþað erekki á
allrafæri að temja
skepnuna.
Sumir þola hana ekki og svo eru
hinir sem vilja vingast við hana
en kunna ekki að fóðra hana.
Sparigrís er viðkvæm skepna sem
þarf að umgangast með gát, en
verðlaunar þá sem kunna á hana.
Lífið í landinu er helgað íjár-
málum heimilanna og hinum
ýmsu sparnaðarleiðum sem hafa
verið að ryðja sér til rúms að und-
anförnu. Ekkert svar er einhlítt í
Ijármálum - og við reynum ekki
að veita það hér. En það má
reyna. Unga fólkið sem við hitt-
um segist Iíta á íbúðarkaup sem
fjárfestingu til framtíðar. Slíkt
tekur í og kostar yfirlögð ráð.
Hinir eru svo ófáir sem hafa upp-
götvað að þeir kunna vel að hafa
ráð á að leggja meira til hliðar en
þeir gera einmitt nú, kannski 10
þúsund á mánuði, ef til vill meira
eða örlítið minna. Og hvað gerir
maður þá? Verðbréfafyrirtækin
hafa tekið við af gömlu góðu
bankabókinni hjá flestum. Ný
stétt manna hefur komið fram:
fjármálaráðgjafar. Hvað segja
þeir fólki? I þeim viðræðum tog-
ast á tvennt: öryggi og ábati.
Hefur þú efni á að tapa?
Hreinskilinn fjármálaráðgjafi
hlýtur að spyrja lítinn Ijárfesti
sem tekist hefur að nurla saman
nokkrum heimiliskrónum: „hefur
þú efni á að tapa þessu?" Ef ekki,
þá eru til örugg bréf. En af því að
heimurinn er ekki jafn fullkom-
inn og hann mætti vera eru slík
bréf ekki jafn ábatasöm og hin -
hin sem fela í sér áhættu. Hversu
mikla áhættu vill maður taka?
Hún er mikil ef maður kaupir
bréf í hugsanlegu stórgróðafyrir-
tæki sem engin reynsla er komin
á. Stórgróðinn gæti snúist í tap.
Ahættan er minni ef maður
kaupir einn lítinn hlut í stórum
dreifðum sjóði þar sem allt er
vegið og metið i útreiknuðum
hlutföllum. En... þá græðir mað-
ur minna.
Hefur þú efni á að spara?
Kannski er það fyrsta spurningin.
Svarið við henni fæst ekki nema
farið sé í saumana á útgjöldum
og tekjum og nauðsynjar vegnar
og metnar á vogarskálum með
hinu sem ekki skiptir öllu. Komi
í ljós mánaðarlegur smáskammt-
ur sem má leggja fyrir eru til ráð,
komi í ljós dulítil upphæð sem
nemur einu sjónvarpstæki eða
hugsanlega jafnvel andvirði einn-
ar bíldruslu - þá eru möguleik-
arnir margir. Sá á kvölina sem á
RÁÐGJÖF SÉRFRÆÐINGA UM
GARÐA- OG GRÓÐURRÆKT
fiarftu a> ey> a illgresi? Eru pöddur í gar> inum flínum?
Veistu ekki hvernig á a> breg> ast vi> ? Leyf> u okkur a> a> sto> a flig.
(II í RáSgjöf sérfræSinga um garö- og gróðurrækt , ^ ,
\W/M * •• Munið
wGROÐURVORUR Fagmennska
í fyrirrúmi!
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
Smiðjuvegi 5 • 200 Kópavogi • Sími: 554 321 1 • Fax: 554 2100