Alþýðublaðið - 01.02.1967, Blaðsíða 10
I-
HÚN er 169 em. á hæð, kringlu-
leit með ljósbrún augu. Og hún
hefur alltaf nóg að gera, ýmist
við kvikmyndaleik eða á bað-
ströndum eða skíðastöðum. Hún
á að leika í kvikmyndinni: „Ég
drap Rasputin", sem Robert Hos-
sein er um þessar mundir að
hefja töku á. Og um hverja er
svo verið a'ð tala? Iru prinsessu
frá Furstenberg, en hennar
draumur hefur alltaf verið blaða-
efni, fyrst þegar hún fimmtán ára
giftist ítalska prinsinum Alfonso.
Hann var prins, en fátækur. —
Næsta ár eignuðust þau son, sem
var skírður Christophe og tveim-
ur árum seinna fæddist Robert.
En þá var hjónabandið þegar far-
ið út um þúfur. Og nú heimsækir
Ira börn sín tvisvar sinnum á
ári í tvær vikur.
í kvikmyndinni leikur Ira
prinsessu, Youssopof prinsessu.
Ira segist vilja vera kvikmynda
leikkona, ekki prinsessa; hún seg-
ir að starfið sé vel launað og hún
hafi gaman af 'að leika gaman-
hlutverk. Robert Rossein skamm-
ar mig, segir hún, ef ég mæti
ekki á réttum tíma til upptök-
unnar. Og ég hef gott af því.
Hann er leikstjórinn og ég gæti
vel orðið ástfangin af honum, ef
ég væri ekki þegar ástfangin í
öðrum. Og sá er Francois d’Alan
markgreifi, sem er erfingi að
Piper Champagne auðæfunum.
Hann er svo góður við börnin
mín, segir hún. Ég er víst slæm
leikkona, segir Ira. Ég vildi svo
gjarnan vera góð leikkona eins
og Anouk Aimée. Grönn og tauga
styrk. En ég er bara lítil og feit.
Mér finnst samt afskaplega gam-
an að láta mynda mig og ég horfi
tímunum saman á myndir af mér
í blöðunum. Vaby var ástarævin-
týri lífs míns, segir hún, og á
þar við brazilíska kvennagullið
Baby Pignatari, sem hún átti
ástarævintýri með í Mexícó.
Börnin mín eru prinsar og ég
reyni að ala þá vel upp þennan
stutta tíma, sem ég er með þeim.
Uppáhaldshöfundurinn minn er
Karen Blixen. Ira hefur íbúð í
París á Place Vendome. En hvað
á ég að gera við hana, segir hún.
Ég get ekki matreitt og börnin
mín fá ekki að koma þangað. —
Faðir þeirra viil að ég hitti þau
á sumardvalarstað. — Og það er
kannski líka það bezta.
Þarna er prinsessan á skautum,
vonast til að fá mörg hlutverk
í kvikmyndum í framtíðinni, því
að hún vill gjarnan öðlast frægð
sem kvikmyndaleikkona, — ekki
bara sem prinsessa.
Markgreifi Francois d’Aulan er núverandi vinur Iru,
S-V-;:; ''i
Ira með sonum sínum tveimur, sem hún sér tvisvar á ári,
Ira á baðströndinni
1 10 1 febrúar 1967
ALÞYÐUBLAÐIÐ