Alþýðublaðið - 01.02.1967, Blaðsíða 15
TÆKNiSKÓLA ÍSLANDS
vantar FIMM HUNDRUÐ FERMETRA HÚS-
NÆÐI fyrir bóklega kennslu frá og með næsta
skólaári.
Þeir sem vilja selja eða leigja til nokkurra ára
gjöri svo vel að hringja fyrir 10. febrúar nk.,
símar 19665 og 51916.
TILBOÐ
óskast í eftirfarandi:
1 stk strætisvagn Volvo ‘51, 1 stk yfirbyggð
vörubifreið Ford ‘42, 3 stk. Loftþjöppur Sulli
van 210 cfm., 1 stk þriggja-tromlu götuvaltari
Buffalo 14 tonna, 1 stk miðstöðvarketill ca. 15
ferm. Enr.fremur 2 stk. hjólbarðar 2100x24“.
Ofangreint verður til sýnis í porti Vélamið-
stöðvar Reykjavíkurborgar, Skúlatúni 1,
fimmtudaginn 2. og föstudaginn 3. febrúar nk.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri, Vonar
stræti 8, föstudaginn 3. febrúar nk. kl. 16.00.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
ásiííiftasími Aiþýðublaðsins er 14900
ífirmaður...
Framhald af 3. slöu
sér útbreiðslu kynsjúkdóma
bér, en þeir bafa færzt mjög í
vöxt í Evrópulöndum og í
Bandaríkjunum undanfarin ár.
Mikið dró -úr þessum sjúkdóm
um um miðjan síðasta ára-
tug en aukmngin hefur að sama
skapi verið mikil síöan um
1960, en nokkuð mismunandi
eftir löndum. Ekki er vitað
með vissu hvað veldur en sú
tilgáta hefur komið fram að sí
aukin ferðalög landa á milli
eigi sinn þátt í þessari ugg
vænlegu þróun.
Alþjóða heilbrigðismálastofn
unin hefur nú starfað í 18 ár
og hefur árangur af samstarfi
margra þjóða að heilbrigðis-
málum verið undraverður á
mörgum sviðum. Stærstu verk
efni stofnunarinnar til þessa
er útrýming malaríu og bólu-
sóttar. Malaría er mjög út
breiddur sjúkdómur en á að
eins 10 árum hefur tekizt að
útrýma honum af helmingi
þeii-ra landssvæða sem hann
herjaði áður. Á þessum svæð
um búa alls um 400 milljónir
manna. Þar sem malaría herjar
enn er aðallega í frumskógum
og öðrum illa aðgengilegum
landssvæðum, þar sem erfiðara
verður að fást við veikina en
þar sem henni hefur verið út
rýmt þegar. Þó standa vonir til
að á næstu 10 árum verði mögu
legt að útrýma henni þar einn
ig og hefur þá verið sigrast
á einum skæðasta sjúkdómi
sem hrjáð hefur mannkynið.
Dr. Watt sagði að þótt kostnað
ur við aðgerðh- sem þessar væri
»-mikill væri enn dýrara fyrir
þjóðir heimsis að hafast ekki
að og láta sjúkdóma afskipta
lausa sem annars er hægt að út
rýma.
Dr. Watt er Bandaríkjamað
ur og aðalfulltrúi lands síns hjá
Alþjóða heálbrigðismálastofn.-<
uninni og varalandlæknir
Bandaríkjanna. Kona hans er
barnalæknir og mun hún kynna
sér barnasjúkdóma hér á með
an á dvöl þeirra stendur.
Eldsvoði
Framhald «f 3. siðu.
þar sem þrír geimfarar biðu
bana. .
Flugmennirnir voru við
venjuleg eftirlitsstörf í
þrýstiloftsklefa stofnunar er
fjallar um læknisfræðileg
vandamál í sambandi við
geimferðir, þeigar eldurinn
kom upp. 1 þrýstiloftsklef-
anum, þar sem tilraunir
voru gerðar með kanínur,
var andrúmsloftið hreint
súrefni. Bruninn á Kenne-
dyhöfða varð einnig í hreinu
súrefnis-andrúmslofti.
Geimfarárnir þrír, sem
fórust á Kennedyhöfða, Vir-
gil Grissom, Edward White
og Roger Chaffee, voru jarð-
settir í dag.
Tilkynning
til allra þeirra, sem nota gas- og súrhylki. At-
hygli er vakin á 120. gr. brunaanálasamþykktar
fyrir Reykjavík.
„Á vinnustöðum skal eigi hafa fleiri gas- eða
súrhylki en til daglegra nota, og skal þeim kom
ið fyrir á sérstökum vögnum, svo að auðvelt
sé að flytja þau úr stað. Þar skulu festar upp
áskoranir á áberandi stöðum um, að menn komi
hylkjunum strax á öruggan stað, ef eldsvoða
ber að höndum.
Þegar vinnu er lokið, skal öllum gas- og súr-
hylkjum komið fyrir á einum stað nálægt út-
göngudyrum, og skal staðurinn og dyrnar að
utan auðkenndar þannig, að slökkviliðið geti
fundið hylkin tafarlaust“.
Gerð hafa verið skilti, sem verða til sölu hjá
ísaga hf., og er öllum, sem nota gas- og súrhylki
skylt að kaupa slík skilti og setja þau upp
samkvæmt fyrirmælum eftirlitsmanns eld-
varnaeftirlitsins.
Reykjavík, 30. janúar 1967.
Slökkviliðsstjóri.
Trésmiðafélag Hafnarfjarðar.
Abalfundur
Trésmiðafélags Hafnarfjarðar verður haldinn
mánudaginn 6. febrúar kl. 8.30 í félagsheimil-
inu.
Fundarefni:
1. Aðalfundarstörf.
2. Kosning á iðnþing.
3. Gæðamatsnefnd.
4. önnur mál.
Félagar fjölmennið.
STJÓRNIN.
1. febrúar 1967 -• ALÞÝÐUBLAÐIÐ J5