Dagur - 04.07.1998, Page 2

Dagur - 04.07.1998, Page 2
18-LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1998 LÍFIÐ í LÁNDINU Nýja DV-blaðið, Fókus, vek- ur athygli unga fólksins þessa dagana og þykjast menn þar sjá Kkindi við er- lend blöð af sama tagi enda upplag og útlit allt hið sama. Á forsíðu er andlit imgrar stúlku, sem enginn þekkir, en þegar nánar er að gáð inni í blaðinu kemur í ljós að þar er á ferðinni snótin Díanna Dúa sem margnr telur vera norðlenska kynskiptingmn sem Dagur hefur birt nokk- ur viðtöl við. Það er þó ekki rétt. Díanna Dúa er allt önnur manneskja en Díanna Ómel þó að báðar séu þær í skyldum bransa, lyrirsætu- og dansbransanum. Pollamót Þórs er nú haldið á Akureyri. Einu þátttökuskilyrðin eru þau að þú sért kom- inn yfir þrítugt. Liðin eru rúmlega 60 í ár og bera ýmis nöfn eins og Verjurnar, Bjórbræð- ur og Skósólar auk þess sem þekktari nöfn eins KR og Valur eru einnig meðal þátttak- enda. Um 700 kcppendur af öllum stærðum og gerðmn spila á mótinu og reynsla síðustu ára segir okkur að mörg kunn andlit mimu leynast í hópnum. Sjálfur Ásgeir Sigurvinsson er á staðn- um að þvi er fullyrt er og fær mótið þar með heimsklassabrag. Líklegt þykir aö aldursforseti síðustu ára, Ellert B. Schram, láti sig ekki vanta. Minni spámenn, a.m.k. fótboltalega séð, eru einnig á staðnum. Þannig skráði Ingvar B. Viktorsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, sig til leiks með öðrum FH-ingum. Ekki er vitað um knatt- spymuhæfileika Ingvars en gott er að gamli ungmennafé- lagsandinn skuli eim við lýði. Bara að vera með... Fulltrúar bandaríska tímaritsins „Details“ eru nú hér á landi að taka Ijósmyndir í tískuþátt með islenskum fyrirsæt- um í Vík í Mýrdal og eru þeir Detail inenn mjög hrifnir að landinu. Það eru forsvarsmenn Saga fihn sem hafa veg og vanda af skipulagningunni hér á landi og hefur fyrirtækið aö undanfömu verið í mikilli samvinnu við erlenda kvik- myndagerðamenn og aðra í auglýsingabransanum og eru greinilega búnir að koma íslandi á kortið í bransanum. Útvarpsstöðin FM er nú að stækka hlustunarsvæði sitt og kom norður yfir heiðar um helgina. Með í för er hljómsveit- in SkítamóraU og byrjaði reisan á Ráðhúskaffi Akureyri á fimmtudagskvöld. Á föstudagskvöld var svo lítil útihátíð í Miðgarði í Skagafirði og ball á Eskifirði í kvöld. Reisan neöi- ist einu nafni Andrés 98 og er stefht á að hafa flciri svipaðar hátíðir á næstu árum. Þess má einnig geta aó Jóhann Bac- mann, liðsmaður Skítamórals, er nýbakaður faðir; til ham ingjumeð það! Hálandaleikarnir áAkureyri eru þeir fimmtu í röðinni í sumar. Tekist á í pilsum Kraftakarlar munu taka á því í skotapils- um ídag. „Góð loft- ræsting ípilsunum, “ segirHjalti Úrsus og spáirharðri keppni. „Þetta hefur gengið alveg svaka- lega vel og við höfum fengið mikið af fólki til okkar,“ segir Hjalti „Úrsus“ Árnason afl- raunakappi og mótshaldari. I dag verða Hálandaleikarnir haldnir á Akureyri. Kraftakarlar í pilsiun Hálandaleikarnir eru ævaforn hefð í Skotlandi og eru gríðar- lega vinsælir þar. I dag eru þeir haldnir um heim allan. Þetta eru fimmtu Hálandaleikarnir sem haldnir eru í sumar en þeir verða alls tíu og eru nú haldnir vítt og breitt um landið, þriðja árið í röð. Margir af helstu kraftakörlum landsins eru saman komnir og munu reyna með sér f alls kyns þrautum eins og steinkasti, sleggjukasti og staurakasti. „Það verða einnig tveir erlendir kepp- endur frá Skotlandi. Annar þeirra, Francis Brebmer, er heimsmeistari í Hálandaleikum og honum verður stillt upp gagnvart Sæmundi Sæmunds- syni, sem er búinn að vinna allar keppnirnar í sumar." Hjalti segir keppnirnar hingað til hafa verið mjög jafnar. „Það er stundum ekki nema hálft stig sem skilur að fyrstu þrjá menn.“ Keppend- ur eru allir í Skotapilsum á með- an á keppni stendur og segir Hjalti pilsið vera þægilegt. „Það er góð loftræsting í pilsunum," segir hann og hlær. „Það eykur skemmtanagildið að sjá krafta- karla djöflast í pilsum." Fram úr fjárlögiutum Fjölbreytt dagskrá er í boði sam- fara sjálfri keppninni. Leikarnir byrja á reiðhjólakeppni fyrir yngstu kynslóðina og einnig verður Tívolí á svæðinu ásamt ýmsum Ieiktækjum. „Við erum að reyna að fá fjölskyldu- stemmningu inn í þetta sem okkur finnst oft hafa vantað." Áhorfendur mega einnig spreyta sig í aflraunum. „Það er mikil kraftadella í íslendingum. Hérna áður fyrr glímdu menn og reyndu við stóra steina áður en fótboltinn kom til sögunnar. Það komast yfirleitt færri að en vilja til að reyna sig.“ Karlmenn mega reyna að Iyfta 110 kg. steini upp á tunnu en þessi þyngd er byrj- unarþyngdin í venjulegum afl- raunamótum. Konur geta reynt við 70 kg. þungan stein. „Mjög sterkur og harður náungi getur Iyft þessum steini. Það hefur nú engin kona tekið 70 kg. steininn svo við erum að hugsa um að létta hann svolítið,“ segir Hjalti. Kristján Þór Júlíusson setur Ieikana með ræðu og fyrsta kasti í steinakastinu. Iveppendur kasta 8 kg. steini og íslandsmet- ið er 9,26 metrar. Hjalti þorir ekki að giska á hve langt Krist- ján muni kasta. „Bæjarstjórarnir sleppa með 6 kg. stein og fá að fara fram úr kastgeiranum alveg eins og þeir fá að fara fram úr fjárlögunum alltaf. Þeir eru svo vanir að fara fram úr öllu og því fá þeir rýmri reglur en við.“ Keppnin byrjar kl. 15 á flöt- inni fyrir neðan Samkomuhúsið og er aðgangur ókeypis. Kynnir á keppninni er sjálfur Hjalti „Úrsus." -jv Helgi H. Jónsson , frétta- stjóri Sjónvarpsins, hefur breyst allnokkuð síðustu tuttugu árin eða svo þó að ætla mætti af blaði gærdag- ins að svo sé ekki. Vcgna mistaka í myndvinnslu föstudagblaðsins vantaði í þættinum „Þá og nú“ nýni myndina af Helga H. Jónssyni. Aðeins birtist eldri myndin sem sýndi hann ungan og myndarlcgan, þá fréttamann á Út- varpinu. En hér koma báðar myndirnar og má sjá að Helgi er jafn unglegur og myndarlegur og áður þó að aldursárunum hafi fjölgað. V Maöur vikunnar er Allaballi Maður vikunnar er Alloballi. Eftir mtkla sálarangist og innri íhugun rennur upp landsfundur þar sem mikil örlög kunna að ráðast. Hvað her að gera? Söguleg spurn- ing gengur aftur með þunga þessa helgi - og 500 Alla- hallar þurfa að svara. Enginn stendur frammi fyrir jafn erfiðu vali þessa hugljúfu sumarviku og hinn fundar- sitjandi Allahalli: maðurinn sem kýs á landsfundi Al- þýðuhandalagsins er maður vikunnar.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.