Dagur - 04.07.1998, Síða 17
Xfe^ur
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1998 - 33
LÍFIÐ í LANDINU
Athqfnamaðurinn
Sveinn íKálfsskinni er
ekki einhamurí hug-
myndum sínum um
viðreisnferðaþjónustu
við Eyjafjörð. Hann
leggur til dæmis til að
þjóðsögumar verði
sviðsettarog hann tel-
urverðugt verkefni að
setja upp kláfferju í
Hlíðarfjalli, en aðþví
verkefni vinnurhann
nú.
„Nú, ertu kominn, ég sem æti-
aði að vera búinn með hafra-
grautinn áður en þú kæmir.
Sestu niður inni í stofu, ég er að
koma,“ sagði Sveinn í Kálfs-
skinni, þegar ég bankaði þar
uppá einn nýlega. Eg gat þó ekki
stilit mig um að fylgjast með því
þegar hann spændi í sig graut-
inn. Það var af krafti gert; því
verklagi sem honum er tamast.
En hugmyndin var aldrei sú að
tala um hafragraut, heldur
spyrja Svein um hann sjálfan,
hans framandlegu hugmyndir
um ferðaþjónustu á Eyjafjarðar-
svæðinu - og sumt það sem
hann hefur þegar gert að veru-
leika.
Ekki nógu mörg ár eftir
„Eg er 66 ára og kannski á ég
ekki nógu mörg ár eftir til að
koma í framkvæmd öllu sem ég
viidi. Það eru alltaf næg verkefni
til fyrir þá sem vilja taka til
hendi, en ekki þá sem láta sér
Ieiðast," segir Sveinn.
Hann hefur, ásamt eiginkonu
sinni, Asu Marinósdóttur,
stundað búskap á bænum Ytra-
Kálfsskinni á Arskógsströnd frá
1959 en allan þann tíma hefur
hann jafnframt fengist við smíð-
ar víðsvegar um Eyjaljarðar-
svæðið á vegum fyrirtækis síns;
Byggingafélagsins Kötlu. - Nú
hefur Sveinn hinsvegar Ieigt bú-
reksturinn frá sér og sonur
hans, Jón Ingi, er tekinn við
byggingastarfseminni.
Vilja kjafta við karliim
Það var árið 1983 sem Sveinn
og Ása hófu rekstur ferðaþjón-
ustu í Ytri-Vík á Árskógsströnd,
sem er skammt frá Kálfsskinni.
Erla Gerður, dóttir þeirra, sem
þá stundaði nám við Mennta-
skólann á Akureyri, fór út í
þessa starfsemi með þeim
„...svona til þess að gera eitthvað
annað á sumrin en hreinsa
naglaspýtur," einsog Sveinn
kemst að orði. Og ferðaþjónust-
an í Ytri-Vík hefur byggst upp
örugglega á síðustu árum, en
þar eru í dag þrjú sumarhús,
auk gistihúss með sextán rúm-
um. Þar er jafnframt salur sem
tekur um þrjátíu manns í sæti.
„Síðan er alltaf nokkur hópur
ferðamanna sem gistir hér
Sveinn i Kálfsskinni við jeppa merktan fyrirtæki sínu, Sportferöum. Fyrirtækið hefur elfst mikið á síðustu árum, en það býður uppá fjölbreytta afþreyingu fyrir ferðafólk á
Eyjafjarðarsvæðinu. mynd: -sbs.
heima hjá okkur. Sumir beinlís
óska eftir því til þess að geta set-
ið hér og kjaftað við mig.
Einmitt það finnst mér
skemmtilegt; að tala við fólk og
þekkja fólk,“ segir Sveinn. -
Hann segir útlitið með bókanir í
gistingu í Ytri-Vík vera gott í
sumar. Vænst sé Ijölda ferða-
manna frá Sviss og og sömuleið-
is frá Danmörku, en þar í landi
var Sveinn um nokkurra missera
skeið við nám og störf sem ung-
ur maður. Hann hefur haldið við
samböndum sínum við land og
þjóð, sem gagnast með þessum
hætti nú.
Kafað í firði
og gengið um
Tröllaskaga
Sveinn segist
fljótt hafa séð
þegar hann fór
út í ferðaþjón-
usturekstur að
efla þyrfti af-
þreyingar-
möguleika.
Fljótlega var
fyrir hans til-
stilli farið af stað með sjóferðir
frá Hauganesi, þar sem gert var
út á sjóstangveiðar og hvala-
skoðun, sem í dag eru vinsælar
og ganga vel.
Einnig fór Sveinn og hans fólk
af stað með hestaleigu og þetta
varð upphafið að þeirri starfsemi
sem Ijölskyldan á Kálfsskinni
rekur í dag; það er fyrirtældð
Sportferðir hf., en þar eru
Sveinn og synir hans tveir, Jón
Ingi og Marinó, veitingamaður á
Pizza 67 á Akureyri. Starfsemi
Sportferða er í dag orðin býsna
margþætt, boðið er uppá
vélsleðaferðir yfir vetrartímann
og á sumrin til dæmis hálendis-
ferðir, gönguferðir um Trölla-
skaga, siglingar, köfun í Eyjafirði
og fleira mætti telja.
Þjóðsögumar í leikræna út-
færslu
„En síðan finnst mér um að gera
að flétta túrismann saman við
sögu landsins," segir Sveinn.
„Síðustu tvö sumur höfum við
staðið fyrir ferðum sem tengjast
Jónasi Hallgrímssyni, þar sem
gengið er að Hraunsvatni, en
kvöldið áður
höfum við
samkomu þar
sem kvæði eft-
ir hann hafa
verið höfð yfir
og ýmis fróð-
leikur fluttur.
Þá greina
traustar heim-
ildir frá því að
hér rétt utar, á
Hámundar-
staðahálsi, hafi
á söguöld verið
háðir blóðugir bardagar og fund-
ist hafa kuml sem staðfesta
þetta. Það væri náttúrlega rakið
dæmi að setja þetta á svið og
það væri verðugt verkefni fyrir
góða stílista að koma þessu í
búning," segir Sveinn og heldur
áfram:
„Sjáðu þjóðsögurnar, að ég tali
ekki um þegar Jón á Hærings-
stöðum drap tófuna £ hitteð-
fyrra. Það væri bráðsniðugt að
koma því í leikrænan búning." -
Sveinn kveðst raunar vænta þess
eitthvað í þessa veru verði gert í
leikhúsi því sem nokkrir kapp-
samir ungir menn eru að setja
upp í Renniverkstæðinu við
Strandgötu á Akureyri.
Sameinaðir stöndum vér
Sveinn segir að sér þyki leitt í
ferðaþjónustunni hve menn
sundri kröftum sínum. Betra
væri að menn sameinuðust í rík-
ari mæli um hagsmunamál
einsog uppbyggingu afþreyingar-
þjónustu. Reyndar vanti ekki að
menn tali fallega um samstöð-
una þegar mikið liggi við, en á
það skorti stundum þegar til
kastanna kem-
ur.
„Það er mis-
jafnt hverju
menn vilja og
geta offrað fyr-
ir sína eigin
hagsmuni. En
ég tel nauð-
synlegt að
menn samein-
ist um þau
hagsmunamál
sem brýnust
eru hér á Eyja-
fjarðarsvæðinu. Eg hef til dæmis
alltaf verið sameiningarsinni og
vil sjá þetta svæði verða allt að
einu sveitarfélagi. Hreppapólítík
er okkur fjötur um fót og ég sé
fyrir mér að Eyjafjörður verði
eitt sveitarfélag eftir fá ár,“ segir
Sveinn. Hann telur mikilvægt að
hugað verði að frekari atvinnu-
uppbyggingu á svæðinu og segir
að setja verði þrýsting á stóriðju-
mál, annað en álverksmiðju. Til
staðar sé góð lóð undir slíka
starfsemi á Árskógsströnd og vill
Sveinn að menn vinni að því að
þar verði byggð til dæmis vetnis-
verksmiðja, enda sé vetni fram-
tíðarorkugjafi Islendinga einsog
annarra þjóða.
Kl«ifur og veitingahús á Hlíd-
arfjalli
Einsog frá var greint í Degi á
dögunum hefur Sveinn viðrað
hugmyndir um að setja upp kláf
í Hlíðarfjalli, sem yrði frá skíða-
hótelinu og alveg uppá efstu
brún Ijallsins - en sfðan eru
hugmyndir um að setja þar upp
veitingastað. Sú leið sem kláfur-
inn færi er um 2,3 km löng, og
áætlanir segja
til um að hér
sem um að
ræða 300 millj.
kr. dæmi.
„Við eigum
von á því að fá
hingað norður
verkfræðing,
sem ætlar að
líta hér á að-
stæður og þá
möguleika sem
fyrir hendi eru.
Sá sýndi hug-
myndinni áhuga og bauðst að
fyrra bragði að koma norður og
leggja málinu lið. Við þekkjum
erlendis frá kláfferju í fjöllum,
til dæmis í Sviss og Austurríki,
og því ekki að gera þetta þá hér,
það er ef til þessa fæst Ijármagn
og nú erum við að leita þess.
Veitingastaður á Hlíðarfjalli gæfi
lífinu nýja vidd, þá ættum við
ekki síðri Perlu en þeir fyrir
sunnan,“ segir Sveinn og leggur
áherslu á orð sín.
-SBS.
„Á ekki nógu mörg ár
eftirtil aðkomaí
framkvæmd öllu sem
ég vildi. Það em verk-
efni til fyrirþá sem
vilja taka til hendi. “
„Um aðgera aðflétta
túrisma saman við
sögu landsins. Höfum
við staðiðfyrirferðum
sem tengjast Jónasi
Hallgrímssyni. “
Sfó m
ÁPJÍfíÍíiíh