Dagur - 31.07.1998, Page 6
6-FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjórar:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Símbréf augiýsingadeiidar:
Símar augiýsingadeiidar:
Netfang augiýsingadeiidar:
Símbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.680 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
460 6161
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
omar@dagur.is
460 6171 (AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Gleðilega hátíð
í fyrsta lagi
Það er óskandi að verslunarfólk fái að halda hátíðlega versl-
unarmannahelgi eins og þorri landsmanna. Sögulega er þetta
verðskuldaður frídagur fyrir að standa langar vaktir í þjón-
ustu annarra. Síðari tíma þróun hefur kallað yfir verslunrfólk
ómælt erfiði flest alla daga ársins, ekki síst þegar aðrir und-
irbúa hátíðir; skilningur vinnuveitenda hefur verið takmark-
aður á því að spyrna við fótum gegn því sem jaðrar við vinnu-
þrælkun. Því óskum við verslunarfólki þess um hátíðina að
það fái að halda hana með öllum öðrum.
í öðru lagi
Þar sem fríhelgin góða hefur fengið nánast þjóðhátíðarstöðu
í hugum landsmanna væri athugandi að færa hana til. Halda
hana fyrr á sumrinu. Húmið í byijun ágúst er gott, en ekki er
síðri sumarbirta á miðnætti, eins og gerist fegurst nokkrum
vikum fyrr. Slysahætta væri minni á þjóðvegum, því birtu nýt-
ur lengur; hugsanlega yrði hlýrra að öllu jöfnu. Þar að auki
myndi löng fríhelgi fyrr á sumri hjálpa til við að eyða þeirri
tilfinningu sem gerir vart við sig í verslunarmannahelgarlok:
að sumarið sé búið. Það er ekki lítið atriði í landi þar sem
sumar er frekar skilgreining á sálarástandi en spurning um
veður.
í þriðjalagi
Þessi helgi hefur á sér ósómastimpil og ekki að ósekju.
Minningarnar eru ekki allar fagrar. Varnaðarorðin sem strey-
ma fram í aðdraganda benda til að reynslan sé ólygin um
óhöpp og fylgikvilla. Hitt má ekki gleymast að verslunar-
mannahelgin er í hugum margra minningabrunnur um frá-
bærar stundir: ferðir, dans, vináttu, ástir og náttúru í ótal lit-
brigðum. Dagur sendir landsmönnum öllum bestu óskir um
góða skemmtun á góðri helgi.
Stefán Jón Hafstein.
íslenska hjörðin
íslendingar eru hjarðdýr. Að
því leyti svipar þeim meira til
hrossastóðs eða kúahjarðar en
sauðkindarinnar. Kannski er
það einmitt hin djúpstæða að-
dáun fyrir því sem er ólíkt og
andstætt þjóðinni sjálfri sem
veldur aldagamalli dýrkun
sauðkindarinnar á toppi hins
íslenska dýraríkis. Fólk ber oft
óttablandna virðingu fyrir
þeim eiginleikum sem það
hefur ekki sjálft. Eiginleikum
eins og sjálfstæði og einstak-
lingshyggju sem sauðkindin
hefur svo mikið af en
þjóðin svo lítið. Hjarð-
eðli íslendinganna
birtist á mörgum svið-
um þjóðlífsins, bæði í
göfguðum menningar-
Iegum útfærslum og
ekki svo göfguðum og
ekki síður í atvinnu-
háttum og efnahags-
umhverfi.
Öryggi hjaröariimar
Verslunarmannahelgin fer í
hönd. Það er hátíð hjarðeðlis-
ins. Landsmenn renna saman
í stórar hjarðir eða stóð á
nokkrum stöðum á landinu og
njóta þess að vera hluti af
safninu, hjörðinni - njóta þess
að koma til móts við hjarð-
hvötina og kannski einhveijar
aðrar líka. I sjálfu sér er eng-
inn augljós tilgangur með því-
að safnast saman á þennan
hátt annar en sá að fólk finni
fyrir öryggi og þægindunum
sem fylgja því að vera hluti af
hópnum. En fyrir hjarðdýrið er
það auðvitað næg ástæða,
enda talar hann um hátíðir í
þessu samhengi - útihátíðir.
Þeir sem ekki uppfylla hjarð-
þarfir sínar á þennan hátt um
helgina fara einfaldlega út á
vegina og slást þar í hóp stórra
vélhjarða sem bruna fram og
aftur. Hvalljarðargöngin hafa
upp á síðkastið verið vinsæll
vettvangur slíkra hjarða og
ljóst að þar verður mikið fjör
um helgina rétt eins og var
þegar ókeypis var um göngin.
Efnahagshj örðin
Hjarðlífið birtist Iíka í efna-
hagslífinu. Allar þurfa helst
að gera það sama. Þess vegna
er atvinnulífið svona einhæft í
landinu, lengi vel undu sér all-
ir við að vera í sjávarútvegi
með sama hætti og best Ieið
mönnum þegar allir gerðu það
sama. Ekkert vesen og
engar nýjungar
hjörðin var þokkalega
samstæð og samtaka í
einsleikanum. Þó hef-
ur það gerst að einn
og einn hefur hrakist
út í að gera eitthað
nýtt en hjörðin hefur
passað hann og flutt
sig til að gera það sama líka.
Smuguveiðarnar eru dæmi um
þetta, rækjan, ígulkerin o.s.frv.
Og þetta gildir víðar en í sjáv-
arútvegi: fiskeldið, loðdýra-
ræktin, ferðaþjónustan. Allt
eru þetta dæmi um hvernig
hjörðin hreyfist í takt við
„týnda soninn".
Garri fagnaði því þess vegna
sérstaklega að heyra að enn er
komin upp ný atvinnugrein
þar sem hjarðmennskan kem-
ur fram. Þetta eru erfðarann-
sóknir og líftækni. Kári Stef-
ánsson var tarfurinn (stóð-
hesturinn) sem ranglaði frá
hjörðinni og inn á Iendur
erfðafræðinnar og hjörðin
fylgir fast á eftir. Nú stefnir í
að erfðafræði muni verða
næsta Ioðdýraævintýrið á Is-
Iandi. Kannski tekst líka í
leiðinni að skýra og skilja
hreyfiaflið merkilega - hjarð-
eðlið. GARRI.
8DDUR
LAFSSON
SKRIFAR
Lögreglan heldur miklar sýningar
á nýfengnum tækjum og tólum til
að skelfa bílstjóra, sem ekki hafa
stjórn á bensínfætinum og eru illa
að sér í umferðarlögum. Enn og
aftur sýna lögreglumenn landslýð
fínar græjur til að mæla ökuhraða
og fylgja með aðvaranir til
hraðaksturshetjanna um að nú
skuli þeir fara að vara sig, því nú
geti þeir búist við að vera gripnir
hvar sem er og hvenær sem er.
Arangurinn lætur ekki á sér
standa, kærur fyrir hraðakstur
margfaldast og fréttir berast um
að lögreglan sé farin að afla hund-
raða milljóna fyrir umferðarlaga-
brot. Sektir eru hækkaðar sam-
kvæmt skrá frá dómsmálaráðu-
neytinu og peningarnir streyma
inn.
En allt í einu er kominn maðk-
ur í mysuna. Dómstólar ógilda
sektarákvæðin og telja „gjaldskrá"
og reglugerð ráðuneytisins þar
um marldaust plagg og ökufantar
eru sýknaðir. Lögmenn taka í
sama streng og öll eru málin í
Allt í plati
uppnámi þar til í haust, að Hæsti-
réttur tekur til starfa á ný og fer
að athuga hvort reglugerðasmíð
og refsigleði ráðuneytis dómsmála
er lögleysa ein eða ekki.
Klúður
Nýuppkveðnir sýknu-
dómar yfir ökuníðingum
vekja upp spurningar
um hvort kansellí Þor-
steins Pálssonar sé farið
að stjórna með tilskipunum eða
geðþóttaákvörðunum. Ef ráðherr-
ann er farinn að gefa út reglu-
gerðir sem fela í sér að kansellí
hans sé farið að taka að sér dóms-
valdið til að styrkja framkvæmda-
valdið, þá er aðgæslu þörf, svo
ekki sé meira sagt.
Sýkna hraðaglaðs bílstjóra
byggist á klúðri ráðuneytisins, en
ekki því að sönnungargögn skorti
eða að Iögreglumenn hafi ekki
staðið rétt að verki. Það er ekki
nóg láta lögreglunni í té góð tæki
til hraðamælinga og herða refs-
ingar og heimta skjótvirkar inn-
heimtuaðgerðir ef kansellíið kann
ekki fótum sínum forráð og gefur
út tilskipanir sem ekki hafa Iaga-
stoð. Að minnsta kosti leikur vafi
á að svo sé.
Allt um það halda lög-
reglumenn áfram að
mæla og sekta og borga
flestir en þeir sem kæra
eru sýknaðir þar sem
dómstólar taka ekki mark
á ráðherratilskipunum
um umferðarlög og refsiákvæði.
Misbrestur
Okufantar valda geysilegu fjár-
hagstjóni og ómældum hörmung-
um með ólöglegu framferði sínu.
Umferðareftirlit og stjórn á öku-
hraða er því með mikilvægustu
verkefnum framkvæmdavaldsins.
Því miður er mikill misbrestur á
að Iögregla sinni því hlutverki
sem skyldi og ýtir jafnvel undir
Iögbrotin í einstaka tilvikum.
Það er til dæmis skrýtið að
heyra ábyrgan Iögregluþjón lýsa
því yfir opinberlega, að það sé allt
í lagi að aka 10 km yfir löglegum
hraða. Er þá sama hvort lögbrotið
er framið á vegum sem Ieyft er að
aka á 90 km eða í þröngum íbúða-
hverfum, þar sem hraðinn á að
vera mestur 30 km. Enda er
reyndin sú að á vegum er hraðinn
helst ekki minni en 110 og 50-60
í þröngu íbúðagötunum.
En smáyfirsjónir og getuleysi
lögreglunar til að hafa hemil á
umferðarhörmungunum eru lítil-
vægar og raunar eðlilegt ef reglu-
gerðir um umferðarmál eiga sér
ekki lagastoð og eru taldar
marklausar af dómstólum.
Tilskipanir úr kansellíi að hætti
einvalda og tilheyrandi refsigleði
er síst tii þess fallin að draga úr
þeim voða sem ólögleg umferð
veldur. Það er eitt að taka málin
föstum tökum og bæta ástandið
en annað að missa tökin á öllu
saman og neyða dómara til að
sýkna ökufanta vegna þess að
ráðuneyti dómsmála kann ekld
fótum sínum forráð.
svaraið
Ætlarðu á útihátíð um
hélgina?
Valgerður Sverrisdóttir
alþingiskona
„Nei, ég
ætla ekki á
útihátíð.
Það lítur nú
út fyrir að
bændur
verði hér í
heyskap og
kartöflu-
upptekt,
þannig að
þeir fara nú
ekki Iangt.
Það væri samt hugsanlegt að fá
hann með mér eitthvað stutt og
ég stefni á að fara út í Látur
gangandi og hitta þar góðan hóp
sem væri þá kominn yfir Ufsa-
skarðið úr Fjörðum. Þar hafði ég
hugsað mér að vera eina nótt og
ganga svo með þeim niður á
Grenivík. Þetta yrði sólarhrings-
ferð, annars ætla ég bara að
slaka á og vera hér heima í góða
veðrinu.“
Gestur Einar Jónasson
útvarpsmaður og leikari
„Nei, ekkert
skipulagt.
Hins vegar
erum við
hjónin að
fara með
vinafólki í
sumarhús á
Héraði og
það eru nú
einhverjar
útihátíðir
þar í kring,
eins og á Vopnafirði og Neskaup-
stað. Það er aldrei að vita nema
við keyrum þangað og svona
fylgjumst með. Annars ætlum við
að vera þarna í næstu viku og
hafa það huggulegt."
Herra Karl Sigurbjömsson
Biskup íslands
„Nei, ég
ætla ekki á
útihátíð um
helgina. Eg
ætla bara
að eyða
helginni í
rólegheit-
um með
fjölskyld-
unni
heima.“
Martha Emstdóttir
„Nei, en
reyndar
ætla ég
norður. Ég
ætla að
gista á hótel
Eddu á
Stóru-
Tjörnum,
það var allt
fullt á Akur-
eyri. Sjálf-
sagt kíki ég
eitthvað á Halló Akureyri en það
er ekkert skipulagt. Við erum
með ungabarn þannig að við
dúllum okkur bara eitthvað í
sund og svoleiðis. Mér líst vel á
helgina."
hlaupalwna