Dagur - 31.07.1998, Síða 10
10 -FÖSTUDAGUR 31. JÚI.Í 1998
FRÉTTIR
Loðnuskipin liggja hveret utan á öðru við Torfunefsbryggjuna á Akureyri. - mynd brink
Ríki s en d u r sko ðu n
óskar eftir að ráða starfsmenn í eftirtalin störf.
Fjárhagsendurskoðun
Viðfangsefni fjárhagsendurskoðunar felast m.a. í því að votta fjárhagsupplýsingar, láta í ljós álit á
verklagi og heimildum til ráðstöfunar á opinberu skattfé. Áherslur í endurskoðunarstörfum hjá hinu
opinbera eru breytilegar frá einum tíma til annars. Þar kemur einkum til sögu stöðug þróun í
upplýsingatækni og upplýsingamiðlun, ný verkefni og breytt rekstrarumhverfi.
Hœjhiskröjur
Leitað er eftir einstaklingi með próf frá viðskiptadeild Háskóla íslands sem hefur metnað til að takast
á við fjölbreytileg viðfangsefni.
Stjórnsýsluendurskoðun
Viðfangsefni stjórnsýsluendurskoðunar er m.a. að kanna meðferð og nýtingu ríkisfjár og hvort hag-
kvæmni og skilvirkni sé gætt í rekstri stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins.
Hæfniskröfur
Leitað er eftir einstaklingi með verkfræðimenntun og hefur metnað til að takast á við fjölbreytileg
verkefni sem tengjast stjórnsýsluúttektum m.a. hjá tækni- og framkvæmdastofnunum hins opinbera.
Umhverfiseudurskoðun
Lög um Ríkisendurskoðun gera ráð fyrir að hún geti kannað og gert grein fyrir hvemig stjórnvöld
framfylgja áætlunum, lagafyrirmælum og skuldbindingum á sviði umhverfismála. Hér er um nýtt
verkefnasvið að ræða sem m.a. kallar á erlend samskipti.
Hæfniskröfur
Leitað er eftir háskólamenntuðum einstaklingi með sérþekkingu á sviði umhverfismála.
Próf til löggiltrar endurskoöunar/endurmermtun
Ríkisendurskoðun býður þeim starfsmönnum sem áhuga hafa á að taka þátt í kennslu og þjálfun til
undirbúnings fyrir löggildingarpróf i endurskoðun. Á haustmánuðum n.k. mun hefjast 2ja ára
kerfisbundið nám til undirbúnings löggildingar í umsjón kennara við Háskóla íslands.
Þá býður Ríkisendurskoðun starfsmönnum stöðuga endurmenntun til að tryggja faglega þekkingu
þeirra á hinum fjölbreytilegu viðfangsefnum sem stofnunin fjallar um. Framkvæmd endurmenntunar
felst m.a. í því að boðið er upp á þjálfun og námskeið sem haldin eru innan og utan
Ríkisendurskoðunar. Ríkisendurskoðun er fullgildur meðlimur í alþjóðasamtökum ríkisendur-
skoðana INTOSAI, Evrópusamtökum ríkisendurskoðana EUROSAI og samstarfi norrænna rikis-
endurskoðenda.
Starfsmenn
Fjöldi starfsmanna í föstum stöðugildum eru 42 talsins sem skiptist þannig:
Löggiltir endurskoðendur 4, viðskipta- og hagfræðingar 22, lögfræðingar 4, aðrir 12.
Launakerfi
Launakerfi Ríkisendurskoðunar veitir svigrúm til að meta frammistöðu og árangur starfsmanna.
Starfs- og frammistöðumat ásamt viðmiðun við launakjör á almennum vinnumarkaði er ráðandi við
ákvörðun launakjara.
Annaö
Ríkisendurskoðun starfar á vegum Alþingis. Hlutverk hennar felst einkum í því að gefa upplýsingar
og láta í ljós álit á ýmsum atriðum er tengjast fjárreiðum ríkisins. Þá skal Ríkisendurskoðun gera
kannanir á því hvort þeim fjármunum sem skattgreiðendur láta af hendi sé ráðstafað á skilvirkan og
hagkvæman hát't.
IJmsóknum skal skila til Rikisendurskoðunar,
Skúlagötu 57, Pósthólf 5350, 125 Reykjavik,
fyrir 15. ágúst.
Reyklaus virmustaður.
Ahafnir á
útihátíðir
Vinnudagur hefst
klukkan flnnn hjá ÚA
til að bjarga verðmæt-
iun fyrir verslunar-
maunahelgiua.
Togarinn Árbakur landaði 145
tonnum á Akureyri í vikunni og
er verið að vinna aflann í land-
vinnslu UA áður en verslunar-
mannahelgin hellist yfir lands-
menn. Afli Árbaks er blandaður,
þorskur og karfi. Á fimmtudag
var langur vinnudagur í land-
vinnslunni og í morgun hófst
vinnudagurinn klukkan fimm en
seinnipartsvaktin mun vinna
eins mikið með fyrripartsvakt-
inni og nokkur kostur er. Sae-
mundur Friðriksson, útgerðar-
stjóri UA, segir að eitthvað verði
eftir af karfa til að hefja vinnslu
á þriðjudeginum eftir verslunar-
mannahelgina. Kaldbakur land-
ar á þriðjudag og er reiknað með
svipaðri aflasamsetningu þar og
á Arbaki.
Frystitogarinn Sléttbakur er á
veiðum fyrir vestan en mikið er
af þorski þar og því verið jafn-
framt að leita að öðrum tegund-
um en þorski. Harðbakur fór á
veiðar á miðvikudag og kemur til
löndunar á föstudag í næstu
viku. Svalbakur er í leigu hjá
þýska útgerðarfyrirtækinu MHF
og verður þar fram til 15. októ-
ber. Það er því ekkert útihátíðar-
frí hjá sjómönnunum.
Tveir bátar Síldarvinnslunnar
á Neskaupstað, Börkur og Beitir,
eru á loðnuveiðum, og kemur
Börkur til Neskaupstaðar í dag
til löndunar og Beitir á morgun
en um sólarhringssigling er aust-
ur af miðunum fyrir norðan.
Freysteinn Bjarnason, útgerðar-
stjóri Síldarvinnslunnar, segir
mjög fáa báta á miðunum. Það
sé bæði vegna þess að verið sé að
gefa sjómönnum frí til þess að
taka þátt í útihátíðum víða um
land og eins eru veiðarnar ekki
að verða að neinu. Mjög lítið
hefur fundist af loðnu síðustu
sólarhringa, svolítið nudd, en
þeir bátar sem enn eru að halda
sig austan við Kolbeinsey.
Veiðibann á loðnu skellur á
15. ágúst og þá fara sumir þeirra
báta sem eru með flottroll á
kolmunnaveiðar. — GG
Ábæjarmessa
uni helgina
Árleg messa í Ábæjarkirkju í
Austurdal verður nk. sunnudag
2. ágúst kl 14.00. Prestur er sr.
Ólafur Þ. Hallgrímsson en sr.
Árni Sigurðsson fyrrum sóknar-
prestur á Blönduósi predikar.
Organisti verður Sólveig Einars-
dóttir. Kirkjukaffi verður að
Merkigili að lokinni athöfn. Það
eru systkini Helga heitins Jóns-
sonar á Merkigili sem sjá um
kaffið, en Helgi lést sem kunn-
ugt er af slysförum fyrir hálfu
öðru ári. I kirkjukaffið eru allir
velkomnir.
Að sögn Ólafs Hallgrímssonar
sóknarprests er vegurinn þokka-
Iegur þarna frameftir og hægt að
komast á bíl alla leið að Abæj-
ará. Þaðan er aðeins stutt labb
yfir brúna og að kirkjunni.
„Menn þurfa þó að ætla sér góð-
an tíma því vegurinn er vissulega
seinfarinn og veitir ekkert af
klukkutíma frá brúnni á Jökulsá
eystri," sagði Ólafur. Oft hefur
verið mikið fjölmenni í Ábæjar-
messum undanfarin ár og segir
Ólafur að aðsóknin sé sífellt að
aukast. í fyrra voru um 440
manns í messunni, en meirihlut-
inn þurfti að vera úti því aðeins
um 40 manns komast inn í kirkj-
una. Það kemur þó ekki að sök
þar sem hátalarakerfi er á staðn-
um og allir messugestir eru virk-
ir í söng. Aðspurður um ástæður
vinsælda Ábæjarmessa sagði
Ábæjarmessur hafa verið fjöisóttar á
seinni árum, enda segir Ólafur Þ. Hall-
grímsson þær mjög sérstakar og óiíkar
því sem menn eigi að venjast.
Ólafur vafalaust ýmislegt spila
þar inní. „Þetta er sérstakur
staður og öðruvísi en menn eiga
að venjast. Það er óvenjulegt að
sækja guðsþjónustu svona inn í
eyðidal og í þessa kirkju. Auk
þess er þarna mjög fallegt og fyr-
ir marga er þetta orðin eins kon-
ar pílagrímsferð. Það má heldur
ekki gleyma kirkjukaffinu og
mikilli umfjöllun þannig að allt
hjálpast þetta að. Það hefur Iík-
lega verið kirkja þarna frá upp-
hafi vega og er viss helgiblær yfir
staðnum og menn finna að
þarna er mikil saga,“ sagði Ólaf-
ur Hallgrímsson sóknarprestur á
Mælifelli.
Leiörétting
Missagt var í Degi í gær að Guð- upp á spítalanum. Svo er ekki og
rún Eggertsdóttir, yfirljósmóðir á er beðist velvirðingar á þessum
Landspítalanum væri í hópi mistökum.
þeirra ljósmæðra sem sagt hafa