Dagur - 31.07.1998, Page 11
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998 - 11
Tkypr'.
ERLENDAR FRÉTTIR
Bræðslupottur áflram
DAGURÞOR
LEIFSSON
SKRIFAR
Þegar um miðja 18. öld, áður en
bresku nýlendurnar austast í
suðurhluta Norður-Ameríku
breyttu sér í Bandaríkin, var þar
sterk tilhneiging í þá veru að
samfélag þetta yrði „bræðslu-
pottur," þar sem allir töluðu
ensku eingöngu eða fyrst og
fremst og tileinkuðu sér breska
menningu. Innflytjendur, sem
ekki hefðu ensku að móðurmáli,
skyldu sem sé taka hana upp
sem aðalmál og „bráðna“ inn í
hið engilsaxneska norðuramer-
íska samfélag.
Fjöldi þýskumælandi fólks
flutti til Norður-Ameríku og varð
þar svo áhrifamikið, að talsverð-
ur líkur eru taldar hafa verið á
því fram yfir miðja 19. öld að
Bandaríkin tækju upp þýsku sem
opinbert tungumál, auk ensku.
Næsta víst er að Bandaríkin
hefðu orðið nokkuð öðruvísi en
þau urðu, hefði þetta orðið ofan
á, og um áhrif þess á stefnu
Bandaríkjanna síðan - í innan-
og ekki síður utanríkismálum og
þar með á gang veraldarsögunn-
ar - er vitaskuld hægt að láta sér
detta ýmislegt í hug.
61 prósent gegn spænsku
En í Bandaríkjunum urðu sem
sé „bræðslupottskenningin" og
enskan ríkjandi. A 6. áratug
þessarar aldar reis „fjölmenning-
arhyggjan" (“múltikúltúralism-
inn“) hátt á Vesturlöndum, ekki
síst meðal vinstrisinnaðra
menntamanna. I anda þeirrar
kenningar var því haldið fram í
Bandarfkjunum, að auðvelda
ætti innflytjendum að nota
áfram eigin tungumál. Mikilvæg-
ast í því samhengi væri að inn-
flytjendabörn fengju kennslu á
móðurmáli sínu í skólum, þar eð
ætla mætti að þau drægjust aftur
úr í námi ef þeim væri eingöngu
kennt á ensku, máli sem þeim
væri enn framandi. Ekki einung-
is vinstrisinnar beittu sér fýrir
þessu. I Kaliforníu gekkst Ron-
ald Reagan, ríkisstjóri þar 1967-
74, fyrir því að spænska varð þar
kennslumál við hlið ensku.
Golden State (Kalifornía) er
gjarnan talið „múltikúltúral-
ískast" allra fylkja Bandaríkj-
anna, og því kann einhverjum
undarlegt að þykja að einmitt
íbúar þess fylkis virðast hafa tek-
ið forystuna í baráttu gegn fjöl-
menningarhyggjunni. I almennri
atkvæðagreiðslu þar nýverið
greiddi 61 prósent kjósenda,
þeirra er á kjörstað fóru, atkvæði
með því að spænska yrði afnum-
in þar sem kennslumál og enska
yrði framvegis eina kennslumál-
ið. Þetta kann að hafa komið
einhverjum á óvart, því að þar í
fylki er fólk ættað frá Rómönsku
Ameríku fjölmennara hlutfalls-
lega en í flestum fylkjum öðrum
og fjölmargt enn spænskumæl-
andi að miklu eða mestu leyti.
En um 40 prósent kalifornískra
kjósenda af rómanskamerískum
uppruna, sem kusu, greiddu at-
kvæði móti spænskunni.
Ilaldið í spænskuna
Kalifornía hefur meira vægi en
flest önnur fylki Bandaríkjanna.
Fyrir löngu er orðinn vani að
önnur fylki taki hana til fyrir-
George W. Bush (sonur Bush fyrrverandi forsetaj, ríkisstjóri í Texas, og
hispaníkar: þeim fjölgar hratt hlutfallslega og áhrif þeirra á bandarísk
stjórnmál aukast að sama skapi.
myndar. Eftir téða atkvæða-
greiðslu þar er því talið líklegt að
í Bandaríkjunum haldi „bræðslu-
pottskenningin" velli og fjöl-
menningarhyggjan verði að
þoka. Aður var það þýskan, sem
Baksvið
Kaliíoriiíumeiiii
hafna spænsku sem
keiinslimiáli. Líklegt
er talið að sá itr-
skurður hafi mikil
væg áhrif á framtíð
Bandaríkjauna.
þokaði fyrir enskunni; nú aukast
stórum horfur á að það sama
verði hlutskipti spænskunnar.
Margir segja sem svo að úrslit
téðrar atkvæðagreiðslu muni
hafa mikilvæg áhrif á framtíð
Bandaríkjanna.
Ymsar ástæður eru á bak við
gagnsóknina í Bandaríkjunum
gegn spænskunni. Innflytjendur
þar frá Evrópu voru fljótir að
breytast í engilsaxa, þeir sem
ekki voru það fyrir. Austur-Asíu-
menn í Bandaríkjunum hafa og
að sumra sögn margir orðið fljót-
lega enskumælandi fyrst og
fremst. Rómanskir Ameríkanar
þarlendis (oft kallaðir hispanics
eða latinos) halda hins vegar
margir fast við tungu sína, sum-
part af því hve skammt er til ætt-
landa þeirra en kannski öðrum
þræði vegna þess, að þeir sem
einskonar Rómverjar eru tregir
til að skipta á máli sínu og tungu
„barbarískra" engilsaxa.
Spanglish
Með þetta eru margir engilsax-
neskir Bandaríkjamenn ekki
ánægðir og margir blökkumenn
þar Iíklega enn síður. Hispanics
eru nú yfir 25 milljónir og þeim
fjölgar hratt vegna hárrar fæð-
ingatölu og áframhaldandi inn-
flutnings. Talið er að þegar
skömmu eftir aldamót verði
hispanics fleiri þarlendis en
blökkumenn. Ottast samtök
þeirra síðarnefndu að þetta leiði
af sér minnkandi áhrif þeirra í
stjórnmálum.
En margir hispaníkar eru sem
sé einnig á móti fjölmenningar-
hyggjunni - og þar með spænsk-
unni sem kennslumáli. Astæður:
Mikið er um að hispanísk börn,
sem kennt er á spænsku, taki
litlum framförum í ensku.
Hispanískir foreldrar segja þetta
leiða til þess að börn þeirra ein-
angrist frá jafnöldrum sínum og
þetta kvað einnig hafa í för með
sér að hispaníkar safnist saman í
gettó. Arangur tveggja mála kerf-
isins, sem Reagan og vinstrisinn-
aðir óvinir hans sameinuðust um
að koma á fót, er sagður herfileg-
ur. 1,4 milljónir skólanema þar -
um íjórðungur allra skólanema
fylkisins - kann enga ensku
nema „spanglish", blöndu úr
ensku og spænsku. Um 8 pró-
sent hvítra og um 12 prósent
svartra skólanema þar ljúka ekki
grunnskólanámi, en um 46 pró-
sent hispanískra. Allt þetta leiðir
til þess að hispaníkar menntast
síður og verr en aðrir og eiga því
síður völ en aðrir á góðum kost-
um í samfélaginu.
Níu létust og fjðrir slösuðust í
flugslysi á Iudlandi
Flugvél frá Indverska flugfélaginu skall til jarðar skömmu eftir flug-
tak í gær. Slysið átti sér stað í þorginni Cochin syðst í Indlandi. Með-
al hinna látnu var þunguð kona, sem var farþegi í vélinni og starfs-
fólk flugvallarins á jörðu niðri.
Euu horfir ófriðvæulega á
Norður-írlaudi
Lögregla á Norður-Irlandi hefur hvatt búðareigendur til þess að leita
að eldsprengjum í verslunum sínum, en eldur k\'iknaði á þremur
stöðum skömmu eftir að eldsprengja fannst og var gerð óvirk. A sama
tíma gengu hundrað mótmælendur um götur Portadown og kröfðust
þess að meðlimir Oraníureglunnar fengju að ganga um hverfi
kaþólikka.
Neydd til að hætta mðtmælum
Aung San Suu Kyi hefur verið neydd til þess að hætta mótmælum
sínum, en hún hafði dvalið í bfl sínum í sex daga. Herforingjastjórn-
in í Burma hefur neytt Suu Kyi til þess að binda enda á mótmæli sín,
sem staðið hafa í sex daga. Hún mótmælir því að fá ekki að fara frjáls
ferða sinna, en hún var á leið til fundar við samflokksmenn sína þeg-
ar hún var stöðvuð á varðstöð við brú, þar sem bíll hennar hefur ver-
ið síðan.
Blair lofar að læra af mis-
tökuuum
Tony Blair forsætisráðherra Bretlands, lofaði því í
dag að nkisstjórn hans myndi læra af þeim misstök-
um sem hún hefði gert á sínu fyrsta stjórnarári. I
skýrslu um fyrsta ár sitt og liðsmanna sinna við völd,
segist Blair trúa því að þetta hafi bytjað vel en: „Þetta
er aðeins byrjunin. Enn er margt ógert."
Góðar horfur í friðarviðræðum í
Buruudi
Onnur lota í samningaviðræðum, milli fylkinga í borgarastríðinu, þar
er að baki. Sáttasemjarinn Julius Nyerer, fyrrum forseti Tanzaníu,
hefur lýst ánægju sinni með framgang viðræðnanna. Þrátt fyrir við-
ræðurnar hefur 21 látist í skærum á milli ríkishers Burundi, sem
Tutsar stýra, og uppreisnarmanna Hutua. Að minnsta kosti 200.000
hafa látist síðan bardagar milli Tutsa og Hutua hófust árið 1993.
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ÞÓRUNNAR STEINDÓRSDÓTTUR,
Engimýri 9, Akureyri.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks lyflækningadeild-
ar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir frábæra umönnun.
Tryggvi Kristjánsson og fjölskylda.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát
og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa
INGÓLFS MARINÓS PÁLSSONAR
Straumfjarðartungu
Snæfellsnesi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Dvalarheimilis aldraðra í Borg-
arnesi.
Hólmfríður Finnsdóttir,
Valgeir Ingólfsson, Jóhanna Þ. Björnsdóttir
Guðbjörg Ingólfsdóttir, Gunnar Ragnarsson,
Finnur Ingólfsson, Guðríður Ebba Pálsdóttir,
Páll Ingólfsson, Guðmunda Oliversdóttir,
Þórður Ingólfsson,
Haraldur Ingólfsson,
Steinunn Ingólfsdóttir, Helgi Valur Friðriksson,
Baldur Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabarn.