Dagur - 12.09.1998, Blaðsíða 1
BLAÐ
Verð í lausasölu 200 kr.
81. og 82. árgangur - 171. tölublað
Skemmti-
ferðaskip í
nepjimni
Það var heldur hryssingslegt
veðrið sem mætti farþegum
skemmtiferðaskipsins Vision of
the Seas á Akureyri í gær, enda
gránuðu fjöll þar eins og víðar á
landinu og snjóbylur var á heið-
um á norðaustanverðu landinu.
Einnig sást snjór á kolli Esjunnar
í fyrsta sinn í haust í gær.
Farþegaskipið Vision of the
Seas kom til Akureyrar í gær frá
Færeyjum og hélt þaðan til
Reykjavíkur og síðar Kanada.
Þetta er síðasta skemmtiferða-
skipið sem kemur á þessu vota
sumri fyrir norðan, og jafnframt
það stærsta en það er 74 þúsund
tonn að stærð og 280 metra langt
með 677 manna áhöfn. Til sam-
anburðar má geta þess að fræg-
asta skip allra tíma, Titanic, var
„aðeins“ 46 þúsund tonn og 268
metra langt. Farþegarnir eru
1907 talsins, aðallega bandarísk-
ir. Skipið er gert út frá Miami,
skráð í Liberíu en í norskri eigu.
Farþegar á skemmtiferðaskipinu Vision of the Seas norpa í kuldanepjunni á Akureyri í gær en í baksýn er far-
kosturinn sem er stærsta skipið sem komið hefur til Akureyrar. gg/mynd:brink
íslandsflug ætlar að
höfða mál vegna
tekjutaps sem orðið
hefur vegna C-17
vélarinnar sem lokar
flugvellinum í Eyjum.
Hvern á að lögsækja?
Islandsflug undirbjó í gær mál-
sókn þar sem flugfélagið hefur
orðið fyrir miklu tekjutapi vegna
Iendingar C-17 flugvélarinnar.
Vestmannaeyjaflugvöllur hefur
verið tepptur frá því að vélin
stöðvaðist á miðri flugbraut á
fimmtudag en óljóst er hvern á
að lögsækja. Flugmálastjórn,
Keikó-samtökin, Boeing verk-
smiðjurnar og Bandaríkjaher eru
meðal þeirra sem gætu verið
bótaskyldir en staðan er mjög
snúin vegna óvenjulegra kring-
umstæðna.
Stærri vélar hafa ekkert flogið
til eða ífá Vestmannaeyjum síðan
C-17 vélinni hlekktist á. Dorni-
ervél Islandsflugs varð innlyksa í
Eyjum í fyrradag og segir Sigfús
Sigfússon, markaðsstjóri Islands-
flugs, að tjón fyrirtækisins nemi
á aðra milljón króna á fimmtu-
dag, samanlagt í leigu- og áætl-
unarflugi. Um hálfrar milljónar
króna tjón hafi bæst við í gær.
„Lögfræðingar okkar eru að und-
irbúa málsókn en við munum
ekki sjá það fyrr en á mánudag
hvern við munum lögsækja," seg-
ir Sigfús.
Góð ráð dýr
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri
segir að Flugmálastjórn sé vissu-
lega ábyrg fyrir rekstri flugvallar-
ins en gerð sé sú krafa til aðila að
þeir fjarlægi sínar vélar af flug-
völlum. „Við erum búin að vera í
miklu sambandi við yfirmenn
Varnarliðsins og eins beint við
Flugvöllurinn í Eyjum hefur verið
lokaður síðan á fimmtudag.
ameríska herinn en það eru góð
ráð dýr.“
Þorgeir sagðist þó ekki geta
fullyrt hvort Bandaríkjaher bæri
að borga brúsann vegna röskun-
arinnar. Það væri alkunna að
flugvellir gætu Iokast vegna
óhappa. „Eg hef lagt áherslu á að
öllum tiltækum ráðum verði beitt
til að fjarlægja vélina eins fljótt
og auðið er. Fg geri mér vonir um
að þetta verði leyst á morgun en
þetta er allt mjög snúið og vegna
hinna sérkennilegu kringum-
stæðna.“
FerlíM
Vestmannaeyjaflugvöllur er ekki
byggður fyrir flugvél af þeirri
stærð sem C-17 vélin er. Farkost-
urinn er fullhlaðinn 265 tonn en
án lestar er vélin 126 tonn. Þor-
geir segir ekki tímabært að tjá sig
um lendinguna sem slíka fyrr en
nánar hefur verið unnið úr
skýrslum. Fullyrt var í frétt frá
Varnarliðinu { gær að ekkert
hefði verið athugavert við lend-
inguna.
Guðjón Hjörleifsson, bæjar-
stjóri í Vestmannaeyjum, segist
ekki vita hver sé ábyrgur fyrir
röskuninni. Hann telur hins veg-
ar óhugsandi að bærinn sé bóta-
skyldur. Bt>
Sjá nánar um Eyjar og Keikó
bls. 8-9.
Lögsókn vegna
C-17 vélarínnar
Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra: „Ég sé ekkert
sem bendir til þess að um ein-
hverjar meiriháttar breytingar verði
að ræða."
Frumvarpið
að mestu
óhreytt
Aðstoðarmaður heilbrigðisráð-
herra á ekki von á meiriháttar
breytingum á gagnagrunnsfrum-
varpinu, þrátt fyrir alla þá gagn-
rýni sem fram hefur komið.
„Þá yfirlýsingu okkar, að það
sé ekkert í þessum umsögnum
sem ekki hafi verið rætt um í
undirbúningnum, ber ekki að
túlka á neinn annan hátt en að
þessi álitaefni hafi öll verið uppi
á borðinu hingað til. I framhaldi
af umsögnunum verður farið í
gegnum frumvarpið á mjög
gagnrýninn hátt og ég held að
það liggi alveg fyrir að frumvarp-
inu verður breytt í einhverjum
atriðum áður en það verður lagt
frarn," segir Þórir Haraldsson,
aðstoðarmaður heilbrigðisráð-
herra.
Á Þórir von á að einhverju
verði breytt hvað grundvallarat-
riði varðar, eins og um miðlæg-
an gagnagrunn, persónuvernd
og einkaleyfið?
„Eg sé ekkert sem bendir til
þess að um einhverjar meirihátt-
ar breytingar verði að ræða - en
auðvitað er matsatriði hvað telst
meiriháttar. Við erum til dæmis
að fara enn betur yfir það hvort
skýra þurfi orðalagið um per-
sónuverndina og fleiri grund-
vallarhugtök og bæta greinar-
gerðina mjög mikið hvað svona
atriði varðar," segir Þórir.
Vinnuhópur heilbrigðisráðu-
neytisins hefur farið yfir á Ijórða
tug umsagna um breytt frum-
varp, tekið saman svör við 15
grundvallarspurningum Lækna-
félagsins og kynnt sér ítarlega
alþjóðalög og umræður um
gagnagrunnsmál. Umsagnirnar
eru yfirleitt mjög gagnrýnar á
frumvarpið, misgagnrýnar þó og
margir fagna hreytingum frá
frumvarpinu í vor. - FÞG
■■■■
Með Baldri yfir Breiðafjörð
Ferðir alla daga: Alltaf viðkoma í Flatey
i Frá Stykkishólmi kl. 09:00 og 16:00
fk Frá Brjánslæk kl. 12:30 og 19:30
Fiateyjarpakkinn á góða verðinu.
« '- m. Dagstund í Flatey með útsýnissiglingu
ipfe. Ferjan Baldur 438 1120 og 456 2020
wmwwtœ express
Ein NÚMER AÐ MUNA
5351100