Dagur - 12.09.1998, Blaðsíða 5
FRÉTTIR
LAÚGÁRDAGÚR
Búist við uppgj örí
á þmgflokkslimdl
Hjörleifur Guttormsson sagði sig úr Aiþýðubandaiaginu eftir að auka-
landsfundur þess ákvað að skella sér í sameiginlegt framboð. Búist er við
að hann yfigefi einnig þingflokkinn eftir helgi við þriðja mann. Svavarr
Gestsson ætlar hins vegar að vera um kyrrt og því hefur Margrét Frí-
mannsdóttir, formaður flokksins, fagnað.
Fyrsti þingflokks-
fundur Alþýðubanda-
lagsins eftir klofning-
inn í sumar verður á
mánudag. Búist er við
sogulegum fundi.
Þingflokkur Alþýðubandalagsins
hefur verið kallaður saman til
fundar næstkomandi mánudag.
Það er fyrsti þingflokksfundur-
inn sem haldinn er síðan auka-
landsfundur flokksins var hald-
inn í sumar og margt hefur gerst
síðan. Þeir Hjörleifur Guttorms-
son og Steingrímur J. Sigfússon
hafa háðir sagt sig úr Alþýðu-
bandalaginu en eru enn báðir í
þingflokknum. Þeir ásamt Og-
mundi Jónassyni, sem er í þing-
flokknum sem óháður, vinna nú
af fullum krafti að undirbúningi
vinstra framboðs næsta vor. Fast-
lega er gert ráð fyrir að þar komi
til uppgjörs og þeir þremenning-
ar segi sig úr þingflokknum.
Getux dregið til tíðinda
„Eg veit ekki hvort maður á að
kalla það uppgjör. Hins vegar er
ljóst að á dagskrá þessa fundar
verður einkum og sér í lagi rætt
um samstarfið í þessum þing-
flokki og ég held að allir hljóti að
skilja að dregið getur til tíðinda í
því,“ sagði Steingrímur.
Hann var spurður hvort hann
gæti hugsað sér að starfa í þing-
flokknum í vetur vinnandi að
framboði vinstramegin við Al-
þýðubandalagið næsta vor?
„Helst vil ég losna við að tjá
mig um þetta nú, þar sem fund-
urinn er á mánudaginn. Eg bið
menn að bíða hans og þeirra tíð-
inda sem á honum verða. Menn
geta auðvitað velt þ\'í fyrir sér og
giskað á hvað sé líklegast í þess-
um efnum. Það er auðvitað Ijóst
að þarna er breytt pólitískt
landslag, breyttar pólitískar að-
stæður og allir geta reynt að ráða
í þessar aðstæður. Að öðru leyti
vil ég ekki segja meira á þessu
stigi,“ sagði Steingrímur.
Breytir engu
Svavar Gestsson hefur sem
kunnugt er ákveðið að starfa að
sameiginlegu framboði A-flokk-
anna og Kvennalista en margir
áttu von á því að hann myndi yf-
irgefa Alþýðubandalagið og taka
vinstri beygju með Steingrími J.
og félögum. Steingrímur segir
ákvörðun Svavars engin áhrif
hafa á sín áform um framboð
vinstra megin við Alþýðubanda-
Iagið. Hann og hans félagar
haldi sínu striki.
Kristinn H. Gunnarsson al-
þingismaður segir sína stöðu
óbreytta. Hann ætli að bíða og
sjá hvað útúr málefnavinnunni
og öðru varðandi sameiginlegt
framboð komi. Þegar það liggi
allt fyrir taki hann ákvörðun um
framhaldið hjá sér. Ákvörðun
Svavars breytti engu í þeim efn-
um. - S.DÓR
12. SEPTE MBER 199 8 - S *
Afkoma Landssímans er góð og
hagnaður hans á fyrri árshelmingi
nam rúmum milljarði króna.
Landssím-
inn græðir
mmjarð
Landssíminn hagnaðist um
rúman milljarð íyrstu sex mán-
uði ársins. Þetta er fyrsta starfs-
ár fyrirtækisins eftir að Pósti og
síma var breytt í hlutafélag og
síminn og póstþjónustan gerð að
sjálfstæðum hlutafélögum.
Tekjur Landssímans jukust
um 12 prósent miðað við fyrri
helming síðasta árs en sökum
samrekstrar með póstinum í
fyrra er erfitt að bera kostnaðinn
saman.
Velta Landssímans á fyrri árs-
helmingi var 5,6 milljarðar króna
og rekstrargjöldin tæpir þrír
milljarðar. Fyrirtækið greiddi
rúmar 600 milljónir í skatta og
hagnaður tímabilsins því eins og
áður sagði rúmur milljarður. Eig-
ið fé Landssímans er nærri 12,3
milljarðar króna og skuldir 8,8
milljarðar. Eiginfjárhlutfall fyrir-
tækisins er 57 prósent.
Náttúrustofa vel
sett í fjárlaganefnd
Árni Johnsen, Hjálmar Jónsson, Arnbjörg Sveinsdóttir og ísólfur Gylfi Pálma-
son á fjárlaganefndarfundi. Árni og ísólfur eru einnig í stjórn Náttúrufræði-
stofu Suðurlands en telja enga hættu á hagsmunaárekstrum þess vegna.
Fjárlaganefndarmennirnir Árni
Johnsen og ísólfur Gylfi Pálma-
son sitja báðir í þriggja manna
stjórn Náttúrustofu Suðurlands
(NS). Þeir voru kosnir f stjórnina
í vor.
„ÖIl mál varðandi náttúrustof-
ur og aðrar slíkar stofnanir eru af-
greidd í samhengi við aðrar stof-
ur. Seta okkar Isólfs í stjórninni
hefur því ekkert að segja. Þeir
sem sitja í íjárlaganefnd sinna
ýmsum verkefnum líka,“ segir
Ami Johnsen.
Taka vel á móti sjálfum sér
,Áttu við að Náttúrustofa Suður-
lands fái ef til vill of mikið í sinn
hlut? Eg hafði satt að segja ekki
leitt hugann að þessu, enda ekk-
ert farið að reyna á þetta,“ segir
ísólfur Gylfi.
„Eg er skipaður í stjórnina af
bæjarstjórn Vestmannaeyja og ég
held að það sé annars vegar vegna
þess að þeir vilja tengja starf nátt-
úrustofunnar í Vestmannaeyjum
betur upp í Iand og hins vegar
vegna þess að ég er mikill áhuga-
maður um umhverfismál. En þeir
í Eyjum eru glöggir og það má
fmynda sér að þeir haldi að þeir
fái meiri peninga í gegnum fjár-
Iögin að hafa okkur Árna þarna.
Það hefur ekld reynt á það enn.“
En mun Isólfur Gylfi taka vel á
móti stjórnarmönnum NS þegar
þeir mæta fyrir fjárlaganefnd?
„Eg tek mjög vel á móti öllum
sem koma til fjárlaganefndar,
bæði fulltrúum hennar sem ann-
arra,“ segir hann.
Dr. Armann Höskuldsson, for-
stöðumaður NS, segist ekki eiga
von á því að seta Árna og Isólfs í
stjórninni breyti miklu hvað fjár-
veitingar varðar. „Eg held að þetta
geti þá virkað á báða vegu. Eg er
ekki viss nema að þetta hafi þver-
öfug áhrif á Ijárveitingarnar,“ seg-
ir Ármann. — FÞG
Verðbólgan enn í dvala
Vísitala neysluverds
hækkar bara brot af
því sem fjármálaspek-
iugar höfðu spáð.
Vísitala neysluverðs skaut spá-
mönnum Fjárfestingarbankans
ref fyrir rass, því hún hækkaði að-
eins um 0,1% í september en ekki
5 til 7 sinnum meira eins og FBA
spáði fyrir fáum dögum að sögn
Viðskiptablaðsins. Þær miklu
verðhækkanir á matvælum, fatn-
aði og íbúðaverði sem þar var ráð
fyrir gert komu ekki fram nema
að litlu leyti. Septembervísitalan
er um 0,7% Iægri en fyrir þrem
mánuðum - en nán
ast sú sama og í mars sl. Almennt
verðlag hefur því nær ekkert
hækkað undanfarið hálft ár.
Samkvæmt útreikningum Hag-
stofunnar hækkaði fatnaður um
tæp 2% milli mánaða, en matur
og húsnæðiskostnaður aðeins
0,1% að meðaltali. A móti kom
4% verðlækkun á flugfargjöldum,
3% Iækkun á sjónvörpum og
myndbandstækjum og því um
líku og rúmlega 1% lækkun á hús-
gögnum. — HEI
íslendingar auðugastir af vatni
Nýtilegt vatn á Islandi samsvarar
rúmlega 600.000 rúmmetrum á
hvern Islending - hlutfallslega sex
sinnum meira en í Kanada og Nor-
egi, 66 sinnum meira en í Banda-
ríkjunum og um 200 sinnum meira
vatn á mann heldur en íbúar Evr-
ópusambandsins hafa jafnaðarlega
til ráðstöfunar, aðeins um 3.000
rúmmetra á mann samkvæmt nýrri
þróunarskýrslu frá Sameinuðu þjóð-
unum.
I Israel og Túrkmenistan, tveim af vatnslausustu löndum veraldar,
færu bænir íslendings Iíklega fljótt að snúast um rigningu og aftur rign-
ingu. Israeli hefur jafnaðarlega um 290 rúmmetra af vatni til ráðstöf-
unar á ári, eða aðeins 0,05 prósent af vatnsauði meðal Islendingsins.
- HEI
íslenskt vatn, alltafgott.
Bergur forstöðumaður Snorrastofu
Bergur Þorgeirsson bókmenntafræðingur hefur verið ráðinn forstöðu-
maður Snorrastofu, fræðaseturs í Reykholti. Bergur hefur undanfarin
ár stundað doktorsnám f íslenskum fornbókmenntum við Háskólann í
Gautaborg.
Snorrastofa er sjálfseignarstofnun og er hlutverk hennar að stuðla að
kynningu og rannsóknum á miðaldafræðum og sögu Borgarljarðarhér-
aðs. Menntamálaráðherra hefur skipað nefnd til að koma með tillögur
um hvernig þessari starfsemi verði komið á fót.
Starfræksla Snorrastofu er liður í endurreisn Reykholts sem menn-
ingarseturs í kjölfar þess að skólastarfi var hætt á staðnum.
Fegurðardrottniiig til Japans
Guðbjörg Hermannsdóttir, feguroardrottning Islands, heldur til Tokyo í
Japan á þriðjudaginn þar sem hún mun keppa um titilinn Ungfrú al-
heimiur. Sú keppni hefur verið haldin síðan 1961 og 1964 sigraði Guð-
rún Bjarnadóttir í henni og var það fyrsti sigur íslenskrar stúlku í alþjóð-
legri fegurðarsamkeppni.
Fortirn með fýrirlestnr
Fyrirlestur doktors Micnaels Fortun verður ekki í Háskólanum á þriðju-
daginn eins og sagt var í blaðinu fyrir helgi. Fortun heldur fyrirlestur á
mánudag klukkan 17 í hátíðarsal Háskóla Islands í aðalbyggingu. Fyr-
irlesturinn fjallar um siðfræði, upplýsingar og erfðamengi manna á ólík-
um menningarsvæðum.