Dagur - 12.09.1998, Síða 2
2 - LAUGARDAGVR 12. SEPTEMBER 1998
Tkgpr
FRÉTTIR
Réttir verða á nokkrum stöðum um helgina og víða er spáð leiðinda veðri.
Olviðri í Þeista-
reykj agöngiim
Bændur úr uppsveitnm
Ámessýslu smala í þurr-
viðri en hins vegar víða í
sandfoki.
„Hér er vitlaust veður og vonskufæri og
það dregur í stöðugt stærri skafla og því
gengur mjög illa og er að verða ófært
fyrir farartæki. Við gengum á fimmtu-
dag vesturhlutann og voru svo að klára
þar suður úr. Við förum trúlega ekkert
austur fyrir fjöll núna því það eru ekki
líkur á að veðrið Iagist," sagði Agnar
Kristjánsson í Norðurhlíð í Aðaldal,
gangnastjóri á Þeistareykjum.
Agnar telur að í gær hafi þeir verið
búnir að ná megninu af fénu og því
muni þeir halda tii byggða í dag. Ætl-
unin er að rétta í Hraunsrétt í Aðaldal
á sunnudag og telur Agnar að það muni
takast. Agnar segist álíta að liðlega
2.000 íjár verði í Hraunsrétt.
Auðkúluheiði var smöluð £ gær af
Húnvetningum í roki, kulda og bleytu
og verður réttað í Auðkúlurétt í dag.
Þeir sem gengu Grímstungu- og
Haukagilsheiðar hrepptu svipað hret og
var réttað í Undirfellsrétt. Ekki hafði þó
snjóað á þessum slóðum. Gangnamenn
úr Biskupstungum fá þurrviðri en þó
nokkuð stífa norðanátt og hætt er við að
víða á Suðurlandi þurfi gangnamenn að
glíma við sandbylji sem gæti eitthvað
tafið rekstur til byggða. Réttað verður í
Tungnarétt í dag, og búist við fjölda
manna og málleysingja þangað um
helgina eins og ætíð.
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðing-
ur á Veðurstofu Islands, segir að áfram
verði úrkoma á Norðurlandi í dag, en
úr henni dragi á sunnudag en ekkert
bendi til þess að það hlýni í veðri. Hita-
stig á Austurlandi mun hins vegar fara
eitthvað hækkandi.
„Ég veit um bændur í Vopnafirði sem
hafa haft áhyggjur af sínu fé á Sandvík-
urheiði en þeir geta eitthvað andar létt-
ar. En á Norðurlandi eystra verður hríð
eða slydda og hvasst á heiðum, allt að
10 vindstigum, og vestantil á Norður-
landi verður slydda og hríðarhraglandi
alveg fram á sunnudag. Það gætu því
verið slæptir gangnamenn sem koma til
byggða um helgina. Það verður hins
vegar áfram þurrt á gangnamönnum á
Suðurlandi, til dæmis þeim sem ganga
úr Biskupstungum en vindbelgingur og
kuldi. Bændur þar gætu hins vegar
þurft að glíma við ryk og sandfok," seg-
ir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðing-
ur. - GG
í pottinum heyrist nú af tals-
verðum kurr í læknasamfélag-
inu vegna ráðningar Kristjáns
Erlendssonar, deilarstjóra í heil-
brigðisráðuncytinu, til íslenskr-
ar erfðagreiningar. Segja menn
að möimum hafi fundist nóg
um þau tengsl sem voru milii
Kára Stefánssonar og ráðuneyt-
isins í tengslum við frumvarpsgerðma, en með
því að sá aðili sem ráðuneytið treysti og bað tnn
að kynna málið íyrir skeptískri læknastétt skuli
síðan flytja sig yfir á launaskrá hjá Kára, hafi
skrefið verið stigið frá „óviöeigandi" yfir í hrein-
an „dónaskap" og „lítilsvirðmgu“ svo gripið sé til
orðalags sem pottverjar hafa heyrt lækna nota...
Kristján
Erlendsson.
En það er fleira sem menn hneykslast á þessa dag-
ana. Ráðning G. Péturs Matthíassonar sem inn-
heimtustjóra hjá RtJV vekur mikla athygli í ljósi
þess hve skýrt það er í útvarpslögum að inn-
heimtustjóri skuli uppfyUa dómaraskilyrði. Inn-
an Rfldsútvarpsins velta menn líka fyrir sér hvers
vegna kosið sé að brjóta lög með þessum hætti og
eru þær skýringar helst gefiiar að ákvæðin um
innheimtustjóra tengjast afnotagjaldakerfi stofn-
unarinnar og þeir sem ráði ferðinni séu hug-
myndafræðilega á móti því forskoti sem það gefi á
aðra fjölmiðla. Því vilji þeir láta reyna á hversu
styrktþað séí sessi...
í pottinum á Akureyri var verið
að segja frá því að sést hafi til
Stefáns Baldurssonar þjóðleik-
hússtjóra á veitingastaðnum
Bing Dao, en sá staður varð fæg-
ur vegna ritdeilna um þjónust-
una sem snerust mest um hrís-
grjónaskál sem kom eða kom
ekki. Stefán mun þó ekki hafa
verið að leita að hrísgijónaskálinni heldur skoða
aðstæður á Bing Dao-Renniverkstæðinu enda ný-
búinn að gera samning um uppfærslu á sýn-
ingu þar...
Stefán
Baldursson.
VEÐUR OG FÆRÐ
Línuritin sýna
fjögurra daga
veðurhorfur á
hverjum stað.
Línan sýnir
hitastig, súlu-
ritið 12 tíma
úrkomu en
vindáttir og vind-
stig eru tilgreind
fyrir neðan.
Dregur heldur úr
norðanáttinni,
einkum vestan til.
Styttir upp á
Vestfjörðum og
víða vestan til á
Norðurlandi, en
áfram verður rign-
ing norðaustan- og
austanlands.
Snjókoma til fjalla.
Um landið sunn-
an- og suðvest-
anvert, verður
úrkomulaust, og
bjart með köflum.
Afram fremur kalt
í veðri, þó heldur
dragi úr mesta
kuldanum.
Færð á vegum
í gærkvöld, föstudagskvöld, var krap og hálka á Vatnsskarði en að öðru leyti er greið-
fært milli Akureyrar og Reykjavíkur. Þungfært er um Lágheiði. Krap og hálka er í Vík-
urskarði, Fljótsheiði og Kísilvegi. Þungfært og óveður er á Möðrudalsöræfum. Krap og
snjókoma er á Hólsandi og Öxafjarðarheiði. Krap er á Vopnafjarðarheiði.