Dagur - 12.09.1998, Qupperneq 6
6 - LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjórar:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Símbréf auglýsingadeildar:
Símar auglýsingadeildar:
Netfang auglýsingadeildar:
Símbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVlK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjon@dagur.is
1.680 KR. Á MÁNUÐI
160 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
460 6161
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRD460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
omar@dagur.is
460 6171(AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Niðurlæging Clintons
I íyrsta lagi
Heimsbyggðin horfir með samblandi af furðu, hlátri og hryllingi
á niðurlægingu Bills Clintons, forseta Bandaríkjanna. Dag eftir
dag beygir hann sig í duftið fyrir andstæðingum sínum, samherj-
um og bandarísku þjóðinni. Minnir sú framganga öll á athafnir
iðrandi syndara á bandarískum heittrúarsamkomum þar sem
þeir játa hástöfum misgjörðir sínar, sýna iðrun og uppskera að
lokum fyrirgefningu syndanna. Enn er óvíst hvort Clinton nær
því markmiði sínu að hljóta slíka fyrirgefningu. Þegar til kast-
anna kemur er það undir afstöðu almennings komið hversu
langt þingmenn þora að ganga til að koma honum frá völdum.
í öðm lagi
Margir bandarískir þingmenn eru að sækjast eftir endurkjöri í
nóvember. Repúblíkanar hyggjast nýta sér ávirðingar forsetans
til hins ítrasta og munu næstu vikur og mánuði eyða gífurlegum
fjármunum í áróðursherferð sem beinist gegn forsetanum og
þeim sem hann styðja. Frambjóðendur demókrata óttast að
lenda mitt í þeirri pólitísku kvörn og eru því mjög á báðum átt-
um um stuðning við Clinton. Hinn endanlegi dómari verður al-
menningsálitið. Ef forsetanum tekst að leika á þær tilfinningar
almennings að þegar sé búið að refsa iðrandi syndaranum nóg
fyrir framhjáhald, og þar með halda stöðu sinni í skoðanakönn-
unum, munu þingmenn repúblíkana fara varlega. Ef honum
mistekst það verk kann að reynast skammt í mannaskipti í Hvíta
húsinu.
í þriðja lagi
Fyrir umheiminn er ömurlegt til þess að vita að enn eitt pólitískt
tunglsýkikast Bandaríkjamanna skuli hafa gert forseta valda-
mesta ríkis jarðarinnar að skotspæni aðhláturs og háðs. Hvern-
ig eiga leiðtogar annarra ríkja að taka mark á forseta sem hefur
niðurlægt sig með þessum hætti? Sú spurning hlýtur að vera of-
arlega í hugum margra hvort orðstír Bills Clintons sé ekki nú
þegar svo illa farinn að honum verði um megn að veita Banda-
ríkjunum nauðsynlega forystu næstu tvö árin, hvað þá heims-
byggðinni. Elías Snæland Jónsson
ro^tr
Horft framhjá
Garri er mikið að spá í að ráða
sig sem heilaskurðlækni á
Landspítalann eða á Sjúkra-
hús Reykavíkur. Kjörin eru að
vísu ekki talin neitt sérstaklega
góð miðað við það sem gengur
og gerist hjá heilaskurðlækn-
um en þá ber þess að gæta að
Garri hefur náttúrulega ekki
tilskyld réttindi til að starfa
sem heila-
skurðlæknir.
Hins vegar
mun sá siður
vera að kom-
ast á hjá hin-
um ýmsu
stofnunum á
vegum ríkis-
ins að þegar
menn eru
ráðnir í af-
markaðan
tima - eru
semsé ekki
æviráðnir
eða fastráðn-
ir - þá skiptir ekki máli hvort
öll tilskilin réttindi eru upp-
fyllt. Það er „litið framhjá því“
eins og sagt er. Þetta er það
sem Garri kallar sveigjanlega
stjórnun og auðveldar verulega
að manna þær stöður sem fólk
vantar í.
„ Skorts-vandinn“
A sjúkrahúsunum og í heil-
brigðiskerfinu er þessi stefna
augljóslega hentug, því í einu
vetfangi losna menn við hin
svokölluðu „skorts-vandamál“.
Skortur á sérfræðingum,
skortur á heilsgæslulæknum á
landsbyggðinni, skortur á
hjúkrunarfræðingum eða
skortur á kennurum eða skort-
ur á bifvélavirkjum. Alla þessa
pósta má nú manna með tíma-
bundnum ráðningum manna
þar sem „litið er framhjá því“
að þeir hafa ekki tilskilin rétt-
V
indi. Þannig gæti það meira að
segja verið liður í átaksverk-
efnum sveitarfélaga að setja
Sigga eða Nonna í stöðu
heilsugæslulæknis tímabundið
og líta framhjá því í eitt ár eða
svo að þeir eru ekki læknis-
menntaðir. Þetta er snilldar-
lausn.
RÚVríðux
á vaðið
Og auðvitað
eru það
snillingarnir
á Ríkisút-
varpinu sem
riðu á vaðið
og fundu
upp þessa
aðferð. í
Degi í gær er
einmitt frétt
um það að
ástsæll
fréttamaður
hafi verið
ráðinn sem innheimtustjóri á
þessum forsendum. Menn litu
framhjá því tímabundið að
hann uppfyllir ekki dómara-
skilyrði þó svo að 28. gr. út-
varpslaga hljóði svo: „Inn-
heimtustjóri skal uppfylla
dómaraskilyrði.“ Þetta mun
hafa verið sett í lög til þess að
innheimtukerfið sem sjálf-
krafa tekur veð í útvarpstækj-
um landsmanna fái yfir höfuð
staðist. En það er auðvitað frá-
leitt að fara eftir lögum ef það
passar ekki í starfsmannamál-
um hjá RUV, stjómendumir
þar eru nú ekki vanir að Iáta
slíkt trufla sig. Og margföld-
unaráhrifin af þessari rögg-
sömu stjórnun eru líka mikil -
þjóðin er nú laus við „skorts-
vandamálin'1!!! — GARRI
Ætlarðu a.ð kynna þér
skýrslu Starrs saksókn-
ara til bandaríska
þingsins um málefni
Clintons Bandaríkjafor-
seta og Monicu Lewin-
sky sem birt verður á
Netinu?
Guðný Guðbjömsdóttir
alþingismaðurKvennalista.
„Ég sá það í
morgun að
það er búið
að gefa upp
slóðina. Eg
hefði haft
mjög gaman
af því að
skoða það
sem þar birtist en ég hef bara svo
mikið að gera um helgina að ég
stórefast um að ég gefi mér tíma
til þess. Ég tók einnig eftir því að
það á að sleppa því að birta það
allra viðkvæmasta úr skýrslunni
á Netinu, og ég er mjög ánægð
með það.“
Svanfríður Jónasdóttir
alþingismaður Jafnaðarmannaflokks.
„Nei, alls
ekki. Ég tel
mínum tíma
miklu betur
varið til
merkilegri
málefna
heldur en að
lesa skýrslu
um það sem við Islendingar höf-
um hingað til talið vera einka-
mál.“
Öm Ámason
leikari.
Að bjóða Keikó
vdkomiim
JÓHANNES
SIGURJÓNS-
SON
skrifar
Einhver minnisstæðasta útsend-
ing í sögu íslenska sjónvarpsins er
beina útsendingin um árið þegar
þjóðin horfði klukkutímum sam-
an á lokaðar dymar á Höfða þeg-
ar leiðtogafundurinn stóð þar yfir
og Ingvi Hrafn lýsti þessum lok-
uðu dyrum með slíkum feiknum
að undrun sætti. Margir frétta-
menn hafa frá þeirri stundu stað-
ið fyrir utan lokaðar dyr og Hallur
Hallsson, núverandi hval-ræðis-
maður íslands, gerði þetta reynd-
ar að sérstakri listgrein og var
ógleymanlegur bendandi á hverjar
lokaðar dymar á fætur annarri og
hvíslandi að þjóð sinni: „Fyrir
innan þessar dyr er hugsanlega
eitthvað að gerast.“
BaJkkabræður?
I fyrradag starði þjóðin í ein-
hveija ldukkutíma á lokaða hlera
mikillar flutningaflugvélar á flug-
vellinum í Vestmannaeyjum. Og
fréttamennirnir Eiríkur og Logi
byggðu upp óbærilega spennu,
því á hverri stundu var von á
hvalnum Keikó út um þessar dyr.
(Skaði að Gísli og Helgi voru ekki
með Eiríki í útsendingunni, þá
hefði þetta verið fullkomnað.)
„Hér kemur Keikó!“ æptu frétta-
mennirir annað veifið. Og út kom
ýmislegt dót og drasl. „Nú er
Keikó að koma!“ hrópuðu þeir
enn og bátur kom siglandi út úr
flugvélinni. En á endanum kom
háhyrningurinn og fréttamenn
vörpuðu öndinni léttar. Og hófu
að lýsa ökuferð með Keikó niður á
kajann og tókst að byggja upp
nokkra spennu þó ljóst væri að
hvorki Hakkinen né Schumacher
voru við stýrið á vörubílnum.
Gleðíkonur græða
Keikó er sem sé kominn heim. Og
sitt sýnist hveijum um þá heim-
komu. En sé grannt skoðað þá
ættu eftirfarandi 14 ástæður að
nægja til að fullvissa menn um að
sjálfsagt er að fagna komu hvals-
ins og bjóða hann velkominn:
1. Keikó er Daviðs elskaður
hvalur sem hann hefur vel-
þóknun á.
2. Islendingar munu græða á
Keikó.
Veikominn Keikó.
3. Vestmannaeyingar munu
græða á Keikó.
4. Hvalaskoðunarútgerðir munu
græða á Keikó.
5. Vísindamenn munu græða á
Keikó.
6. Ferðaþjónustuaðilar munu
græða á Keikó.
7. Gleðikonur munu græða á
Keikó með auknum ferða-
mannastraumi.
8. Hið íslenska reðursafn mun
græða á Keikó.
9. Hlutabréf munu hækka í
verði.
10. Keikó er ekki dóni og munn-
makahvalur þó hann sé sam-
landi Clintons.
11. Keikó er ekki hundur og því
óþarfi að setja hann í sóttkví í
Hrísey.
12. Keikó er ekki, svo vitað sé,
hryðjuverkahvalur.
13. Keikó er ekki, svo vitað sé,
með AIDS.
14. Þar af leiðir að Keikó er ekki
hommi og þorra þjóðarinnar
því óhætt að líta hann hýrum
augum án þess að fá á sig öf-
uguggastimpil.
Því segjum við öll: Vertu vel-
kominn heim Keikó og komdu
fagnandi.
.-Já, og ég
ætla að byija
á því að fletta
henni og
finna dóna-
legu partana.
Þó skilst mér
á CNN-
fréttastof-
unni að þeim verði sleppt svo ég
held að ég bíði bara eftir þýðingu
Dags á skýrslunni. Það verður
gaman því þetta eru um 500 síð-
ur í 35 kössum."
Lúðvtk Bergvinsson
alþingismaður Jafnaðarmannaflokks.
„Það þykir
mér frekar
ólíklegt, í
sannleika
sagt, en ef
tími gefst til
gæti það allt
eins orðið
eins og hvað
annað. En á hinn bóginn, þrátt
fyrir allt ruglið gæti verið fróð-
legt að sjá hvernig þeir fyrir vest-
an vinna svona mál.“