Dagur - 12.09.1998, Blaðsíða 8
8- LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998
FRÉTTASKÝRING
rD^ir
BJÖR^í
ÞORLAKS-
SON
SKRIFAR
Muimlegt samkomu-
lag látið nægja um
framtíð Keikós. Mikill
léttir vegna heilsu
hans. Vísindastarf
eflist í Eyjum.
Lífið í Vestmannaeyjum var í gær
farið að ganga sinn vanagang eft-
ir Keikóævintýrið á fimmtudag.
Þó var nokkur fjöldi erlendra
fréttamanna enn á sveimi og upp-
lýsir verkefnisstjóri Keikókom-
unnar á Islandi, að verr hafi
gengið að loka fréttamannamið-
stöðinni en ráð hafði verið fyrir
gert vegna ásóknar fjölmiðla-
manna. Einhver áhrif hefur það
einnig að flugumferð hefur engin
verið frá Eyjum.
Margir höfðu efasemdir
Stóra spurningin núna er hvað
framtíðin Ieiðir í ljós? Vest-
mannaeyjar hafa fengið tekju-
mikla hlutdeild í ævintýrinu en
útgjöldin eru vissulega fyrir hendi
einnig. Bæjarstjórinn í Vest-
mannaeyjum, Guðjón Hjörleifs-
son, sagði í gær að honum væri
mikið létt eftir að í ljós kom að
Keikó var við góða heilsu. „Fyrir
utan lendinguna sem mistókst
gekk þetta allt alveg stórkostlega
vel. Margir höfðu efasemdir um
að þessi flutningur væri fram-
kvæmanlegur en sjálfur var ég
aldrei hræddur eftir að hafa talað
við þjálfara Keikós og lækna. Það
er eins með Keikó og páfann að
þeim fylgja báðum líflæknar."
4% af framkvæmdafé
Guðjón sagði að skipulagning
hefði öll verið til fyrirmyndar í
Eyjum og getur Dagur tekið und-
ir það eftir að hafa verið að störf-
um sfðustu daga í Eyjum. En hve
miklum peningum hefur bærinn
varið í ævintýrið? „Við vörðum 4
milljónum króna frá höfninni til
dýpkunar í Klettsvíkinni. Síðan
settum við 5 milljónir í Keik sem
sá um ferðina fyrir hönd bæjar-
ins. Svo fóru um 300 þúsund í
skemmdir á flugbrautinni vegna
æfingarinnar en annað er það
ekki. Mér sýnist að þessi upphæð
sé um 4% af framkvæmdafé en
Vestmannaeyingar eru Iíka búnir
að fá ótrúlega mikla vinnu í
kringum Keikó í sumar.“
Fær frið
Guðjón telur peningunum hafa
verið vel varið en blaðið bað hann
að spá í framtíðina. „Það er ljóst
að hér verður ekki sama nálgun
við Keikó og var í Newport. Nú
verður net sett yfir kvína og Keikó
fær frið. Þetta er hluti af þeirri
stefnu að veita Keikó tækifæri til
að sleppa aftur út í frjálsa nátt-
úru. Þetta var ekki bein afhend-
ing í gær heldur eru Keikósam-
tökin ábyrg fyrir framhaldinu."
Óljós staða
Getur sú staða komið upp að
Keikósamtökin segi: Nú höfum
við ekki lengur áhuga á að eyða
peningum í þennan hval. Þið
Vestmannaeyingar verðið að taka
við honum?
„Eg hef ekki trú á því. Þetta eru
þannig aðilar.“
Liggur eitthvað samningsbund-
ið fyrir um þetta?
„Nei, en það var gert munnlegt
samkomulag um að ábyrgð og
rekstur væri á þeirra könnu. Bær-
inn kemur að þessu í byrjun en
síðan er hann alveg laus.“
Hvað verður um orðspor Eyja
Mikill léttir var hjá viðstöddum þegar Keikó fór að hieyfa sig. myndir bg og bþ.
V- K jfi mj'M 1
Þessi unga stúlka sat dolfallin í þúfunum í grennd við Vestmannaeyjaflugvöll og beið eftir Keikó. 77/ að stytta sér
stundir hafði hún lítinn Keikó meðferðis og sleppti honum ekki eitt andartak.
og ímynd landsins ef hvalurinn
drepst? Snýst allt upp í and-
hverfu? „Nei, nei en maður hefur
enga ástæðu til að veita því fyrir
sér. Keikó á eftir að lifa ein 20 ár
a.m.k. og ég hef ekkert hugsað út
í þetta. Það voru margir skeptísk-
ir á að Keikó myndi lifa flutning-
inn af en við sjáum hvað hefur
gerst."
Á Guðjón von á fleiri hvölum
flugleiðis til Eyja? „Það er þá á
þeirra vegum. Það verður bara að
koma í ljós,“ sagði bæjarstjórinn í
gær og hló.
Fjörugt félagslíf
Bjarki Brynjarsson, verkefnis-
stjóri Keikós í Eyjum, fram-
kvæmdastjóri Keikósjóðsins á Is-
Fréttamannagerið var með ólíkindum og skiptu sjón v. rpsmyndavélar frá öll-
um heimshornum tugum. Á köflum var barist um besta sjónarhornið en
flestir sýndu þó fyllstu kurteisi og sani' iarfsvilja.