Dagur - 14.10.1998, Blaðsíða 12
.X^ur
12- MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998
BcrGArbic 13
& 462 3500
Magnaður grínhasar sem fór beint ó toppinn i Bandarikjunum i vor.
Með Mark Wahlberg úr Boogie Nights. Fróbært grín, fróbær hasar,
fróbær óhættuotriði og fróbær tónlist, í besta tóni í heimi.
Miðvikud. kl. 2100.
D I G I T A L
SEM STRAKUR HAFÐIJOHN DOLITTLE ALLTAF MIKINN AHUGA A
DÝRUM. ÞRJÁTÍU ÁRUM SEINNA HEFUR ÞAÐ SNÚIST VIÐ OG NÚ
LEITA DÝRIN TIL HANS EFTIR AÐSTOÐ. EDDIE MURPHY HREINLEGA
„BRILLERAR"!
Miðvikud. kl. 21.00 & 23.00.
D I G I T A L
Myndin fjallar um unga móður í leit að voninni sem hún hefur týnt eftir
hamfarir sem hafa orðið í lífi hennar. Hún snýr heim til útthaganna í Texas
og reynir að lappa upp ó sambandið við móður sína, sem reynist nokkuð
erfitt. Á sama tíma þarf hún að sinna dóttur sinni sem saknar föður sins
óbærilega og hugleiða hvort hún hafi fundið óstina ó ný. Sérlega vel leikin
og leikstýrð mynd um það sem allir reyna að halda í, vonina.
Miðvikud. kl. 23.00.
□□[dölbyJ
D I G I T A L
WRONCFULLV ACCUSED
ÍSLANDSFRUMSVNING FÖSTUD.
ÍÞRÓTTIR
Norska liðið Lyn á
barmi gjaldþrots
Himdrað og fjörutíu
miUjónir í vaskinu
hjá Lyn. Leikmenn
þurfa að taka á sig
verulegar launalækk-
anir, eða hætta.
Styrktaraðilamir
kippa að sér hönd-
unum.
Norska fyrstudeildar liðið Lyn,
rambar nú á barmi gjaldþrots.
Forráðamenn félagsins hafa
orðið að segja upp leikmanna-
samningum og eru þessa dagana
að reyna að semja við aðra leik-
menn um lægri laun og er launa-
lækkunin allt að 65%.
Félagið spennti bogann hátt
fyrir keppnistímabilið og mark-
miðið var sett á sæti í úrvals-
deildinni á næstu leiktíð. Til
þess fékk félagið 140 milljónir
króna, en allt kom fyrir ekki.
Aðalstyrktarmaður liðsins, Tom
Beringsnes, hefur sett yfir 25
milljónir norskra króna í rekst-
urinn á síðustu 3 árum, en sú
fjárfesting hefur ekki skilað sér.
Nú hafa styrktaraðilarnir kippt
að sér höndunum og Ijóst er að
félagið verður að draga saman
seglin svo um munar. Fjárhags-
áætlun næsta árs er aðeins upp á
40 milljónir. Hundrað milljóna
króna niðurskurður er staðreynd
sem stjórnendurnir verða að
kyngja.
Nú er hún Snorrabúð
stekkur
Sú var tíðin að Lyn var í hópi
sterkustu liða Noregs og ávallt í
toppbaráttunni. Liðið varð
meistari árin 1964 og 1968 og
hefur hampað sigri í bikarkepp-
ninni átta sinnum. Nokkrir
Einar Örn Birgis, fyrrverandi ieik-
maður Þróttar, er í hópi þeirra
leikmanna sem Lyn reynir nú að
semja við um 65% launalækkun.
íslendingar hafa komið við sögu
hjá liðinu og þar ber hæst
bræðurna Teit Þórðarson sem
þjálfaði liðið með góðum árangri
í byijun níunda áratugarins og
Olaf sem lék með liðinu á sama
tíma. Enn í dag eru þeir mjög
virtir hjá félaginu og stuðn-
ingsmönnum þess, sem segja að
Teitur sé eini kóngurinn sem
ráðið hefur yfir Lyn.
A síðasta leiktímabili féll Lyn í
fyrstu deildina en stefnan var
strax sett á að vinna sæti meðal
þeirra bestu. Til að styrkja liðið
voru keyptir leikmenn, m.a.
Þróttarinn Einar Örn Birgis.
Eftir góða byijun meiddist hann
og hefur lítið leikið með liðinu
seinni hluta tímabilsins. Hann
er í hópi þeirra Ieikmanna sem
liðið reynir nú að semja við um
65% launalækkun. — GÞÖ
Meiðsli hjá Rússum
Þjálfari rússneska
landsliðsins í
knattspymu miiii eiga
í mesta hasli með að
koma saman heil-
steyptu liði fyrir
landsleikinn við
íslendinga í dag.
Rússar eru mættir hingað með
stóran hóp leikmanna, en sam-
kvæmt fréttum erlendra dag-
blaða verða þeir án átta sterkra
Ieikmanna. Rússar Iéku gegn
Frökkum án sóknarmannanna
Andrei Kancelskis, Sergei
Kiryankov, Igor Kolyvanov og
Ilya Tsimbalar, sem allir eru
ennþá meiddir og munar um
minna.
Það þýðir að Rússar eiga
aðeins einn virkilega sterkan
framheija í landsliðshópnum, en
það er Vladimir Beschastnykh,
sem leikur með Santander á
Spáni. Hann hefur einnig átt við
minniháttar meiðsli að stríða og
þurfti að yfirgefa völlinn í seinni
hálfleik gegn Frökkum á laug-
ardaginn.
Sergei Ovchinnikov markvörð-
ur er meiddur á baki og þeir
Sergei Semak og Dmitri
Khlestov, sem báðir voru með
gegn Frökkum, eru líka meiddir.
Að lokum varð framheijinn Oleg
Teryokhin eftir heima þar sem
kona hans liggur veik á sjúkra-
húsi.
Líklegt byrjunarlið Rússa er
skipað eftirtöldum leikmönnum:
Markmaður: Dmitri Kharin,
Chelsea. Aðrir leikmenn: Viktor
Onopko, Real Oviedo, Iouri
Nikiforov, PSV Eindhoven, Igor
Yanovski, Paris SG, Evgueni
Varlamov, CSKA Moscow, Alex-
andre Mostovoi, Celta de Vigo,
Valeri Karpin, Celta de Vigo,
Dmitri Alenitchev, AS Roma,
Egor Titov, Spartak Moscow,
Andrei Tikhonov, Spartak Mos-
cow, Vladimir Beschastnykh,
Santander.
EURO-2000
Staðan í 4. riðli
Úkraína 2 2 0 0 5-2 6
Armenía 2 1 1 0 3 - 1 4
Frakkland 2 1 1 0 4-3 4
Island 2 0 2 0 1 - 1 2
Rússland ;2 0 0 2 4-6 0
Andorra 2 0 0 2 I - 5 0
Úrslit leikja
Armenía - Andorra 3 - 1
Island - Frakkland 1 - 1
Úkraína - Rússland 3 - 2
Armenía - Island 0-0
Andorra - Úkraína 0-2
Rússland - Frakkland 2 - 3
Michael Owen.
Hoddle.
ENSKI BOLTINN
Michael Owen styðiu'
Hoddle
Það vekur óneit-
anleg mikla at-
hygli að í þeirri
orrahnð og skít-
kasti sem enski
landsliðsþjálfar-
inn, Glenn
Hoddle, má
sætta sig við ___
þessa dagana er
það aðeins landsliðsmaðurinn
ungi Michael Owen, sem lýst
hefur stuðningi við þjálfarann.
„Eg veit að áhorfendur púuðu
á okkur í leiknum við Búlgaríu.
Við áttum það líka skilið því við
lékum illa. En það er ekki Glenn
Hoddle að kenna. Hann getur
ekkert gert eftir að við erum
komnir inn á völlinn. Hoddle er
besti maðurinn til þess að stjórna
landsliðinu. Það er komið að
okkur Ieikmönnunum að gera
það sem við eigum að gera, að
vinna leiki," sagði Michael Owen
á mánudaginn.
Pressan eykst á Glenn
Hoddle
Þrátt fyrir góð
orð og fyrir-
bænir unglings-
ins frá Liverpool
eykst pressan á
Hoddle um að
segja af sér dag
frá degi. Ensku
blöðin eru óspör
á skammirnar.
Express on Sun-
day segir að ef Hoddle fái ekki
sparkið strax geti knattspyrnu-
sambandið alveg éins lagt niður
landsliðið. The People spyr
hvenær Hoddle missi starfið. The
Sunday Times kallar ástandið
„Hoddle - krísu" og segir að
Iandsliðsþjálfarinn sé kominn
með hálsinn á höggstokkinn. The
News of the World er ekkert að
skafa utan af hlutunum frekar en
fyrri daginn og segir að enska
liðið hafi orðið sér til skammar.
The Sunday Telegraph vorkennir
ensku þjóðinni og segir að nú
hafi liðið misst af lestinni og það
sé engin leið til baka.
Þetta er það sem blasir við
Glenn Hoddle þegar hann opnar
blöðin með morgunteinu. Skyldi
hann hlakka til þess að vakna á
morgnana?
Man. City keypti sjálft
sig frá samnmgi
Sá óvenjulegi atburður átti sér
stað í síðustu viku að fyrrum stór-
lið Manchester City keypti sig frá
samningi við leikmanninn Nigel
Clough. Clough, sem um tíma
var í enska landsliðinu, kom til
City frá Liverpool fyrir eina
milljón punda. Þetta þótti ekki
stór upphæð fyrir leikmann. City
tók sjensinn á að Nigel næði sér
aftur á strik og borgaði honum
góð laun. Svo góð voru launin að
forráðamenn liðsins töldu þau
orðin fáránleg miðað við frammi-
stöðu hans. A þeim 34 mánuðum
sem Clough var á mála hjá City
lék hann aðeins 38 leiki. Launin
voru því fimm milljónir á leik.
Hingað og ekki Iengra, sagði
klósettpappírsframleiðandinn og
eigandi City, Francis Lee, og
keypti samninginn af sjálfum sér
og losaði sig þannig við Nigel
Clough. — GÞÖ