Dagur - 29.10.1998, Síða 3

Dagur - 29.10.1998, Síða 3
t Ty^tr. FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 29. OKTÚBER 1998 - 3 Líf saiiifylMngar hangir á bláþræði Tvær gjörólíkar til- lögur eru konmar fram um hvemig eigi að standa að fram- boðslista Aflokkaima og Kvennalistans í höfuðborginni. Full- yrt var í gærkvöld að líf samfylkingarinnar héngi á bláþræði vegna þessa alvarlega ágreinings. Viðmælendur Dags, sem þekkja vel til þeirra erfiðleika sem sam- fylking A-lista og Kvennalista er komin í vegna ágreinings um hvaða aðferð skuli nota til að stilla upp lista í höfuðborginni, fullyrtu í gær að líf samfylkingar- innar héngi á bláþræði. Tvær andstæðar tillögur voru Iagðar fram á furfdi um sameiginlega framboðið í gærkvöld. Deilt er um hvort nefnd eigi að sjá um uppstillinguna á listann eða hvort halda skuli einhvers konar prófkjör. A fundi níu manna nefndar- innar í gærkvöld sögðust kratar ætla að leggja fram tillögu um prófkjör í Reykjavík með því sem Margrét Frímannsdóttir. þeir kalla sanngirnisreglu. Tillag- an gerir ráð fyrir því að kosið verði um 8 efstu sætin á listan- um. Reglan verði sú að enginn flokkanna þriggja, sem að sam- fylkingunni standa, fái tvo full- trúa á listann fyrr en allir hafa fengið einn. Þetta þýðir að Kvennalistanum er tryggt eitt af þremur efstu sætunum. Einnig að enginn geti fengið þrjá menn á listann fyrr enn allir hafa feng- ið tvo. Þetta tryggir Kvennalist- anum 2 fulltrúa af 6 efstu. Tillaga um uppstillingu Á þessum sama fundi ælluðu í það minnsta tveir af þremur full- trúum Alþýðubandalagsins í nefndinni að Ieggja fram tillögu um að prófkjör fari ekki fram. Þess í stað verði stillt upp á iist- ann. Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðubandalagsins, er þessu hlynnt, sem og Svavar Gestsson, þingmaður flokksins í ReykjaMk. Þá er Kvennalistinn þessu samþykkur en Alþýðu- flokkurinn algerlega á móti. Það var alveg sama við hvern var rætt um þetta í gær - allir sögðust óttast um líf samfylking- arinnar, en enginn vildi koma fram undir nafni og ræða málið. Fundinum var ekki lokið þegar Dagur fór í prentun. Ekki lá fyr- ir hver yrði frekari meðferð þess- ara tillagna. Á Reykjanesi hefur svipaður vandræðagangur verið í uppstill- ingarmálunum af sömu ástæð- um og í Reykjavík. Nú hefur ver- ið ákveðið að fresta öllum fund- um og öðru sem snertir fram- boðsmálin þar í \áku, eða fram yfir landsfund Kvennalistans og aðalfund miðstjórnar Alþýðu- bandalagsins. D dagux Kvennalista Landsfundur Kvennalistans verður haldinn í Reykholti í Borgarfirði um helgina. Gert er ráð fyrir að ákvörðun um hvort hreyfingin heldur áfram þátttöku í samfylkingunni eða ekki verði tekin síðdegis á laugardaginn. Eins hvaða kröfur verða ófrávíkj- anlegar ef þátttöku verður haldið áfram. Það má því segja að um D dag sé að ræða á laugardaginn hvað Kvennalistann varðar í samfylkingunni. Þessa sömu helgi heldur Al- þýðubandalagið aðalfund mið- stjórnar. Þar átti að bera upp til samþykktar niðurstöður starfs- nefndanna, sem unnið hafa að undirbúningi framboðs síðustu vikurnar. Ólíklegt er talið að þær verði tilbúnar í tæka tíð. - S.DÓR ^"k/íípi1, Hópur fólks hef- œ ur pað afar skítt Kristján Þór Júlíusson, bæj- arstjóri á Akur- eyri, segist ekki draga í efa að áætlun Hús- næðisnefndar Akureyrar um að þörf sé fyrir stórfellda fjölg- un leiguíbúða eigi við rök að styðjast. Hann bendir hins vegar á að sérstaða Akureyrar sé nokkur. Eftir- spurnin eftir leiguhúsnæði sé meiri á Akureyri en í flestum öðrum sveitarfélögum. Má í því samhengi benda á menntunar- hlutverk bæjarins en Akureyri kallast oft skólabær og streyma hundruð nemenda á hverju hausti til bæjarins sem hefur mikil áhrif á framboð húsnæðis. „Spurningin er hvað bærinn ræður við að gera í þessum mál- um. I fljótu bragði sé ég ekki hvernig \ið snörum upp ein- hverjum tugum Ieiguíbúða," segir Kristján Þór. Breytingar á húsnæðislögum, þar sem félags- Iega íbúðarkerfið er lagt niður í fyrri mynd, valda þessari stór- auknu eftirspurn eftir leiguhús- næði. Á Akureyri hefur húsnæð- isnefnd áætlað að allt að 50 Ieiguíbúðir vanti til að sinna þörfum tekjulægsta hópsins. - BÞ I ii ii a ii Verkamaima- sambandsms hefur verið í gangi mikil vinna hvað varðar starfsmenntamál og er staða þess mála- flokks til umræðu og endurskoðunar á Ak- ureyri þessa dagana. Formannaráðstefna Verka- mannasambands Islands hófst á Akureyri í gær og stendur einnig í dag að undangengnum fram- kvæmdastjórnarfundi. Fundinn sækja um fimm tugir þungavigt- armanna úr verkalýðshreyfing- unni. Björn Grétar Sveinsson, formaður VMSI, segir að um- ræðan muni snúast að mestu um undirbúning nýrra kjarasamn- inga, en núverandi samningar gilda til 15. febrúar árið 2000. Innan Verkamannasambands- ins hefur verið í gangi mikil vinna hvað varðar starfsmennta- mál og verður staða þess mála- flokks til umræðu og endurskoð- unar. Björn Grétar segir að á ráð- stefnunni verði mótuð stefna í ýmsum málum enda nauðsynlegt fyrir formennina að tala saman og bera saman sínar bækur í stað þess að tala út og suður. - Rannsóknir sýna að 10. hver Islendingur er undir fátækra- mörkum. Eru þetta allt ykkar skjólstæðingar? „Sjálfsagt allflestir en við höf- um einnig tekið til okkar þá sem fá greidd laun sín úr tiyggingum. Pólitískir aðiiar hafa svolítið stig- ið á okkur að undanförnu, sér- staklega stjórnvöld, því við telj- um að tryggingaþegar eigi lfka að njóta samninga og fá bætur sem eru ekki lægri en þau lágmarks- Iaun sem Verkamannasamband- inu hefur tekist á síðustu þrem- ur árum að hækka um alit að 50%. Stjórnvöld hafa því miður rifið lágmarkslaunin úr sam- bandi við lágmarkslaun trygg- ingaþega. Við vitum að í þeim vestrænu þjóðfélögum sem við þekkjum til og byggja á svipuð- um kerfum þá er alltaf ákveðinn hópur fólks sem hefur það „skítt1'. Kannski er þetta ekki nógu stórt hlutfall kjósenda til þess að stjórnmálamenn sýni þeim nægjanlega athygli. — GG Kristján Þór Júlíusson. Iimhcimtiilög Frumvarp til innheimtulaga hef- ur verið lagt fram á Alþingi. Frum\'arp sama eðlis var lagt fram á síðasta þingi en vegna fjölmargra athugasemda sem bárust \áð framvarpið var það afturkallað og því breytt nokkuð í viðskiptaráðuneytinu. Mark- miðið með lögunum er að setja meginreglur um innheimtu til hagsbóta fyrir neytendur. Einkahlutafélög Þingmennirnir Lúðvík Berg- vinsson, Ágúst Einarsson, Einar K. Guð- finnsson og Kristinn H. Gunnarsson hafa lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um einkahlutafélög. Breytingarnar eru að hluthafar, sem ráða yfir minnst 1/10 hlutafjár geti krafist dóms fyrir því að félagi skuli slit- ið hafi hluthafar af ásetningi misnotað aðstöðu sína í félag- inu. Sömuleiðis að auka rétt tjónþola gagnvart þeim er ráða félaginu ef sérstök ástæða þykir til. Vandi grásleppukaxla Gísli S. Einarsson hefur lagt fram fyrirspurn til sjávarútvegs- ráðherra um hvað hann hyggist gera til aðstoðar grásleppukörl- um vegna gífurlegs tekjumissis þeirra. Sömuleiðis spyr Gísli ráðherra um aðstoð við smábáta- útgerðina, hvort grípa eigi til styrkja eða Ieyfa þeim að veiða. Dagsektiun ekki beitt I svari Þorsteins Pálssonar dómsmálaráðherra við fyrir- spurn Össurar Skarphéðinsson- ar um dagsektir vegna umgengn- isbrota samkvæmt barnalögum, kemur fram að frá gildistöku barnalaganna 1992 hefur Qór- um sinnum verið úrskurðað um dagsektir á grundvelli 38. gr. lag- anna, Ijármálaheimild ákvæðis- ins hefur verið beitt þrisvar sinn- um en engin innheimta dag- sekta vegna umgengnislagabrota hefur skilað sér í ríkissjóð. Breytiiig á siglingarlög- um Komið er fram frumvarp til breytinga á siglingalögunum. Snýr það fyrst og fremst að björgun skipa, björgunarlaunum og öðru sem því tengist. Strætó í Eyjafirði Árni Steinar Jóhannsson, Kristinn H. Gunnarsson og Margrét Frí- mannsdóttir leggja fram þingsályktunar- tillögu um að Arni Steinar forsætisráð- Jóhannsson. herra verði falið að láta Byggða- stofnun gera tilraunir um rekst- ur almenningssamgöngukerfis í Eyjafirði í samstarfi \ið sveitar- félög á svæðinu. Verði þarna um tilraunaverkefni til fimm ára að ræða. — S.DÓR

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.