Dagur - 29.10.1998, Blaðsíða 8

Dagur - 29.10.1998, Blaðsíða 8
f 8 - FIMMTVDAGVR 29. O K T Ó B F. R 1998 FRÉTTASKÝRING T>j&pr- GUÐMUNDUR RÚNAR HEBDARSSON SKRIFAR Farmenn berjast gegn undirboðum í kjörum. Baráttan harðnar. Ars- störfum fækkað inn 56% frá 1990. Fæst kaupskip sigla undir íslenskum fána. Sam- keppnisstaðan ræður. „Við erum að skipta okkur af þessu vegna þess að við höfum samningsréttinn. Við kærum okk- ur ekki um að það sé verið að koma hér með lágiaunaáhafnir til þess að ýta okkar mönnum út af markaðnum með því að undir- bjóða okkur í launum," segir Jónas Garðarsson, formaður Sjó- mannafélags Reykjavíkur. Hann segir átökin í Straumsvík alveg hliðstæð þeirri baráttu sem Raf- iðnaðarsamband Islands stóð í gegn rússneska fyrirtækinu sem unnið hefur við Iagningu Búr- fellslínu fyrir Landsvirkjun. AlJjjóðleg skípaskráning Hann segir að félagið hafi ekki áhuga á því að hérlendis verði innleidd alþjóðleg skipaskráning kaupskipa, eins og hvatt var til á ráðstefnu sem haldin var hér ekki alls fyrir Iöngu. Rökin gegn því eru í stuttu máli þau að alþjóðleg skipaskrá hefur það markmið gagnvart áhöfnum kaupskipa að geta ráðið til sín fólk á þeim kjör- um sem henta útgerðinni. Það þýðir að mati Sjómannafélagsins að þótt skipin sigldu undir ís- lenskum fána mundu útgerðirnar deila og drottna um kjör far- manna með skírskotun til alþjóð- Iegrar samkeppni. Bara smjörþefurmu „Við höfum átt aukið samstarf við stéttarfélög í heiminum. Það er vegna þeirrar tilhneigingar út- gerða að vera með útflögguð skip,“ segir Jónas. Hann segir að málið í Straums- vík sé dálftið magnað. Sérstaklega þegar haft er í huga að félagið fær á sig lögbann af kröfu Eimskipa- félagsins og álversins á sama tíma og það á f deilum við þýska út- gerð. Jónas telur því ekki fráleitt að ætla að sýslumannsembættinu í Hafnarfirði hafi hreinlega verið fjarstýrt úr höfuðstöðvum VSI í Garðastrætinu. Hann telur alveg einsýnt að félagið muni ráðast í frekari aðgerðir gegn Ieiguskipum Eimskipafélagsins áður en langt um líður. „Þetta er svona lyktin af réttun- um,“ segir Jónas. Hann segir að Eimskipafélagið sé með þijú er- lend leiguskip í áætlunarsigling- um til landsins að viðbættum tveimur ffystiskipum sem hafa viðkomu á Islandi og eitt í mjöl- flutningum. Þessi skip hafa meira eða minna reglulega viðkomu hérlendis og eru að mestu mönn- uð útlendingum. Engiim kjarasamningur Hann segir að Sjómannafélagið hafi staðið í bréfaskriftum við nokkrar útgerðir þessara skipa sem hafa tfða viðkomu í íslensk- um höfnum vegna kjaramála áhafna. Laun áhafna á mörgum þessum skipum eru allt að þrefalt minni en samkvæmt íslenskum kjarasamningum. Jónas áréttar að þýska leiguskipið í Straumsvík hafi t.d. ekki verið með gildandi kjarasamning Alþjóða flutninga- verkamannasambandsins, ITF, fyrir fastar áætlunarsiglingar. Þýska stéttarfélagið hafi sagt upp samningnum í sumar sem leið og áréttað við útgerðina að ganga frá samningum við Sjómannafélagið. I júní hefði félagið sent útgerð sldpsins kröfu um gerð samnings og í síðari hluta sl. september- mánaðar hefði Eimskipafélaginu verið send krafa um undirritun kjarasamnings. í stuttu máli hefði engum bréfum Sjómanna- félagsins verið svarað. Af þeim sökum verður enginn stundíegur friður um þetta skip fyrr en út- gerðin gengur frá kjarasamning- um við Sjómannafélagið. Baráttan harðnar „Þeir geta sótt okkur í löggubílum og allt það. Það er ekkert vanda- mál. Við eigum nóg af fólki til að slást við þá. Næst þegar við mæt- um þurfa þeir að koma með fjöl- mennara lögreglulið. Fyrir okkur er ekkert annað en að duga eða drepast," segir formaður Sjó- mannafélags Reykjavíkur. Eilífur slagur Barátta Sjómannafélagsins við út- gerð þýska skipsins í Straumsvík í vikunni Ieiðir hugann að þeirri þróun sem orðið hefur í íslenskri farmannastétt á þessum áratug. Þetta er jafnframt ekki í fyrsta immnRta Kenni á Subaru Legacy. TÍMAR EFTIR SAMKOMULAGI. ÚTVEGA NÁMS- GÖGN. HJÁLPA TIL VIÐ ENDURNÝJUNARPRÓF. ingvar ujornsson ökukennari frá KHÍ Akurgerði 11 b, Akureyri Sími 899 9800 Heimasími 462 5692 skipti og trúlega ekki það síðasta þar sem kastast í kekki á milli stéttarfélaga og kaupskipaútgerða vegna kjarasamninga útlendinga um borð í kaupskipum. Meðal annars lenti Sjómannafélagið í átökum við Eimskipafélagið sl. vor vegna Iauna áhafnar um borð í erlendu kaupskipi. Sömuleiðis hefur Vélstjórafélagið þurft að hafa afskipti af málum er snerta réttindi og mönnun erlendra vél- stjóra um borð í erlendum Ieigu- skipum íslenskra útgerða. íslenskiun fannönnum fækkar Samkvæmt upplýsingum frá Skipstjóra- og stýrimannafélagi Islands hefur stöðugildum ís- lenskra farmanna á skipum, í rekstri hjá útgerðum innan Sam- bands íslenskra kaupskipaútgerða á þessum áratug, fækkað úr 375 í 165, eða um 210 stöðugildi. Það jafngildir því að ársstörfum fs- lenskra farmanna hafi fækkað um 315, eða 56%. Þá bendir fátt til annars en áframhald verði á þess- ari þróun verði ekkert að gert. A sama tíma hefur stöðugildum út- lendinga fjölgað um borð í ís- lenskum kaupskipum. Um mitt þetta ár voru þau um 43,30%. Það hefur hins vegar vakið at- hygli að Samskip eru með ís- lenskar áhafnir um borð í þeim skipum sínum sem stunda áætl- unarsiglingar til og frá landinu. Þessu er öðruvísi farið hjá Eim- skipafélaginu. Sjómenn fullyrða að á undanförnum árum hafi steininn tekið úr í þessum efnum hjá félaginu þar sem útlending- um í áhöfn áætlunarskipa hafi fjölgað verulega á kostnað ís- lenskra farmanna. A aðalfundum hagsmunafélaga farmanna á þessum áratug hafa verið samþykktar fjöldi ályktana þar sem þessi þróun hefur verið harðlega gagnrýnd. Sem dæmi þá Þeir geta sótt okkur í löggubílum og allt það. Við eigum nóg af fólki til að slást við þá. Næst þegar við mætum þurfa þeir að koma með fjölmenn- ara lögreglulið. Fyrir okkur er ekkert annað en að duga eða drep- ast,“ segir formaður Sjómannafélags Reykjavíkur. sendi Skipstjóra- og stýrimanna- félag íslands frá sér harðorða ályktun sl. vor þar sem því er mótmælt að skip með útlendum áhöfnum skuli árum saman Þá hafi náðst verulegur áfanga- sigur á Alþingi þegar þingið sam- þykkti Iög sem tóku af allan vafa um rétt íslenskra farmanna, sem stunda störf á íslenskum skipum sem sigla undir erlendum fánum. Lögin tryggja að þessir íslensku sjómenn eiga rétt til greiðslna samkvæmt lögum um almanna- Lauii ábafna á mörg- um leiguskipum eru allt að þrefalt lægri en samkvæmt íslenskum kjarasamningum. Ars- störfum íslenskra far- manna hefur fækkað um 315, eða 56%. tryggingar á jafnréttisgrundvelli \ið annað launafólk sem stendur skil á öllum sköttum og skyldum til ríkisins. Þetta var hins vegar óljóst samkvæmt eldri lögum og skapaði óvissu um þessa réttar- stöðu farmanna í almannatrygg- ingakerfinu. Samkeppnin ræður „Það er sjálfsagt samkeppnisstað- an sem gerir það,“ segir Ólafur Briem, framkvæmdastjóri Sam- taka íslenskra kaupskipaútgerða, aðspurður af hverju flest kaupskip íslenskra útgerða sigla undir er- lendum fánum. Hann segir að innflytjendur geri þá kröfu að fragtin sé flutt inn með sem minnstum tilkostnaði. Auk þess séu erlend samkeppnis- fyrirtæki íslenskra kaupskipaút- gerða sífellt að taka stærri og stærri bita af þeim. Hann segir ástæðuna íyTÍr fækkun í röðum ís- lenskra farmanna stafa af fækkun kaupskipa. I staðinn hafa komið skip sem íslensku útgerðirnar hafa leigt af erlendum útgerðum. Til- gangurinn með því sé að nota þau í tímabundin verkefni. Leigusali ræður áhöfn Ólafur bendir einnig á að leigu- samningar þessara skipa séu með þeim hætti að þau séu skráð er- lendis, auk þess sem íslensku út- gerðirnar ráða almennt ekki hvernig þau eru mönnuð. Það sé í verkahring hinna erlendu eigenda viðkomandi skips að ráða áhöfn og semja um kaup og kjör. I lang- tímaleigusamningum geta þó ís- lensku útgerðirnar ávallt séð til þess einhver hluti áhafnarinnar sé íslenskur. Það gera útgerðirnar m.a. með tilliti til hagsmuna sinna og einnig vegna þess að þær vilja leggja sitt af mörkum til þess að viðhalda hérna ákveðinni stétt. „Það má ekki skilja og túlka þetta svo eins og mér hefur fund- ist að menn séu í rauninni að koma í veg fyrir að þessi skip séu mönnuð Islendingum,“ segir Ólafur Briem. Baráttan á kajanum snýst um störf um borð - og laun. stunda áætlunarsiglingar til og frá Islandi á vegum íslenskra skipafélaga. Jafnframt bendir fé- lagið á að áætlunarsiglingar til og frá Islandi séu ekki enn háðar er- lendri samkeppni. Af þeim sökum sé það í fyllsta máta óeðlilegt að þeim sé ekki sinnt af íslenskum farmönnum á íslenskum skipum. Niöurgreitt vinnuafl Til að snúa þessari þróun við hafa félög sjómanna Iengi barist fyrir því að stjórnvöld grípi til ráðstaf- ana til að útgerðir íslenskra kaup- skipa verði samkeppnisfærar á al- þjóðlegum flutningamarkaði. I því sambandi hefur einna helst verið horft til þess sem Norður- landaþjóðirnar hafa gert í þessum efnum. Þær hafa allar að undan- skildum Islendingum beitt skattalegum aðgerðum til að tryggja sínum farmönnum störf til frambúðar. Sem dæmi hafa Danir niðurgreitt vinnuafl sinna farmanna. Afleiðingin af þvi er m.a. að þarlendar kaupskipaút- gerðir fóru aftur með skip sín undir danskan fána og eru að stærstum hluta mannaðar dönsk- um farmönnum. íslenski fáninn sjaldscður Guðmundur Hallvarðsson al- þingismaður tekur undir þessa skoðun að áætlunarsiglingar til og frá Iandinu séu ekki háðar er- lendri samkeppni. Hann segir að erlend samkeppni sé einkum í mjöli og lýsi en ekki með hefð- bundna fragt. Þar sé Eimskipafé- lagið með 70% markaðarins og Samskip 30%. Hann vekur jafn- framt athygli á því að aðeins 3 kaupskip íslenska flotans eru undir íslenskum fána af um 26 skipum. Þingmaðurinn telur þessa þróun ekki af hinu góða hjá þjóð sem á allt sitt undir sigling- um til og frá landinu. í því sam- bandi minnir hann á að einn hel- sti grundvöllur að sjálfstæði Is- lendinga hefur ávallt verið fólginn í flutningi nauðsynja til og frá Iandinu með atbeina íslenslvra farskipa og farmanna. A sínum tíma hefði skipaskortur í landinu m.a. leitt til þess að landsmenn játuðust undir stjórn Noregskon- ungs sem lofaði að tryggja þeim ákveðinn fjölda skipsferða til og frá landinu með innfluttar nauð- synjar. Afnám stimpilgjalds Þingmaðurinn bindur hins vegar vonir við að þessi þróun muni snúast við að einhverju leyti þeg- ar búið verður að samþykkja frumvarp Ijármálaráðherra um af- nám stimpilgjalda á nýjum kaup- skipum. Þetta gjald hefur kostað skipafélögin töluverða fjármuni á sama tíma og það hefur ekki átt við skráningu nýrra flugvéla. Þetta hefur m.a. leitt til þess að skipafélögin hafa séð Qárhagsleg- an ávinning að því að skrá skipin undir erlendum hentifánum. FIMMTVDAGVR 29. OKTÓBER 1998 ■■ ■■■ , : ' ' V ■■■ : : ' ■ 1 . : . Forstöðumaður starfsmanna þjónustu Reykjavíkurborgar Reykjavíkurborg óskar eftir að ráða forstöðumann starfsman- naþjónustu Reykjavíkurborgar. Helstu verkefni starfsmannaþjónustu: • Þróun starfsmanna- og launastefnu og undirbúningur stefnumótunar í mikilvægum starfsmannamálum • Undirbúningur kjarasamninga, framkvæmd og eftirfylgni • Túlkun kjarasamninga og ráðgjöf til starfsmanna og stofnana • Yfirumsjón með starfsmannamálum hjá stofnunum og fyrirtækjum borgarinnar • Samræming og eftirlit með að heildarhagsmunir ráði ákvörðunum um málefni starfsmanna • Yfirumsjón með vinnuumhverfi, vinnuvernd og öryggis- málum • Umsjón með launabókhaldi (launakerfum) og eftirlit með launavinnslu Kröfur gerðar til umsækjanda: • Háskólamenntun • Þekking á íslenskum vinnumarkaði • Tungumálakunnátta og hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti • Reynsla af og áhugi á stjórnun • Leiðtogahæfileikar og sjálfstæði í vinnubrögðum • Sveigjanleiki og frumkvæði í starfi í umsókn þarf að gera grein fyrir hversu vel umsækjandi upp- fyllir ofangreindar kröfur. Skrifleg umsókn ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist borgarritara, Ráðhúsi Reykjavíkur, 101 Reykjavík, fyrir 17. nóvember nk. Nánari upplýsingar veita Helga Jónsdóttir, borgarritari og Halldóra Gunnarsdóttir, verkefnastjóri í síma 563 2000. Rétt er að vekja athygli á því að það er stefna borgaryfirvalda að auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum á vegum borgarinnar, stofnana hennar og fyrirtækja. Borgarstjórinn í Reykjavík 20. október 1998 assfðC Forstöðumaður skjalasafns Ráðhúss Reykjavíkur í Ráðhúsi Reykjavíkur er verið að taka upp GoPro skjalastjór- nunar- og verkferlakerfi. Auglýst er eftir starfsmanni til að vinna við skjalastjórnun og taka þátt í áframhaldandi þróu- narstarfi á því sviði. Helstu verkefni: • Umsjón með rekstri skjalasafns • Umsjón með GoPro skjalastjórnunar- og verkferlakerfi • Umsjón mfeð vistun bóka og tímarita • Umsjón með skjalaáætlun Ráðhússins • Leiðbeiningar við notkun skjalalykils og endurnýjun hans • Samvinna, ráðgjöf og leiðbeiningar um skjalamál sviða og deilda Ráðhússins Kröfur gerðar til umsækjanda: • Háskólamenntun á sviði bókasafns- og upplýsingafræði eða skjalastjórnunar og / eða reynsla á þessu sviði • Sveigjanleiki og hæfni til að vinna í hópi • Skipulagshæfileikar • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi í umsókn þarf að gera grein fyrir hversu vel umsækjandi upp- fyllir ofangreindar kröfur. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Skrifleg umsókn ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist borgarritara, Ráðhúsi Reykjavíkur, 101 Reykjavík, fyrir 6. nóvember nk. Nánari upplýsingar veitir Halldóra Gunnarsdóttir, verkef- nastjóri í síma 563 2000. Rétt er að vekja athygli á því að það er stefna borgaryfirvalda að auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum á vegum borgarinnar, stofnana hennar og fyrirtækja. Borgarstjórinn í Reykjavík 20. október 1998

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.