Dagur - 29.10.1998, Side 12
12-FIMMTUDAGUR 29.0KTÓBER 1998
EorGArbié
S 462 3500
Tom Hanks
Saving private ryan
edward burns matt damon tom sizemore
Björgun óbreytts Rynns er stórmynd sem lætur engan ósnortinn. Nýjasta
kvikmynd meistarans Steven Spielberg.
Fimmtud. kl. 21.00. m mm.
Stranglega b.i. 16 óra
D I G I T A L
Stórgóð „fíl-gúdd" gamanmynd með Monica Potter, Rufus Sewell, Tom
Hollander og Joseph Fiennes.
Fimmtud. kl. 21.00.
nniDQLBvi
D I G I T A L
Sólfræðilegt meistarastykki Duvals, um sjólfsréttlætinguna. Vönduð
kvikmynd með stórleikurum í hverju rúmi. Myndin fékk tilnefningu til
Óskarsverðlauna með „Besta leikara i karlhlutverk".
Aðalhlutverk: Robert Duval og Farrah Fawcett.
Fimmtud. kl. 23.00. <50 m.n
D I G I T A L
PRIMARV COLOURS
FÖSTUOaC KL. 21.00
J Jj JJ Q IJt Jt JJJ
L
ro^ir
Njörður Árnason og félagar í Fram unnu góðan sigur á Aftureldingu í gærkvöld og eru þar með komnir á topp Nissandeildinnar.
- MYND: BG
Framarar á toppniun
Framarar eru nú einir
efstir á toppi
Nissandeildarinnar í
handknattleik, eftir
þriggja marka sigur á
Aftureldmgu 26:29.
Framarar mættu ákveðnir til
leiks í Mosfellsbæinn og höfðu
þriggja marka forystu í hálfleik
gegn Aftureldingu,12:15. Þar
með eru Framarar komnir með
tveggja stiga forystu á toppi
Nissandeildarinnar, tveimur
stigum á undan Haukum sem
komust í annað sætið, eftir jafn-
tefli gegn Gróttu/KR á Nesinu
31:31. Grótta/KR byijaði betur í
leiknum og voru með þriggja
marka forystu í hálfleik 18:15,
en Haukar sóttu í sig veðrið í
seinni hálfleik og tókst að ná
jafntefli.
Tveir aðrir Ieikir enduðu með
jafntefli í gærkvöld, en Stjarnan
og HK gerðu 24:24 jafntefli í
Garðabænum og hafði HK
tveggja marka forystu í hálfleik
11:13. Selfyssingar og ÍBV
gerðu einnig jafntefli á Selfossi
25:25, þar sem Eyjamenn voru
fjórum mörkum yfir í hálfleik
10:14. Selfyssingar mættu
ákveðnir til leiks í seinni hálfleik
og tókst að jafna leikinn með
mikilli baráttu.
FH-ingar töpuðu nú enn ein-
um leiknum í deildinni og nú
voru það KA-mennn sem burst-
uðu þá í Kaplakrika með sex
marka mun 18:24.
Valsmenn áttu heldur ekki í
vandræðum með sína andstæð-
inga á Hlíðarenda, en þar unnu
þeir IR-inga með tíu marka mun
29:19.
Ensku liðin ekki hátt
skrífuð á Evrópulistauuui
Nýlega var birtur listi
yfir tuttugu sterkustu
knattspymulið Evr-
ópu, þar sem fram
kemur að ítalir eiga
flest lið á listauum.
Þjóðverjar eiga hius
vegar toppliðið sem er
Bayem Miinchen og
lika liðið í þriðja sæti
sem er 1860 Miinchen.
Samkvæmt því er
Miinchen mesta knatt-
spymuborg í Evrópu.
Englendingar stæra sig gjarnan af
því að eiga erfiðustu knattspyrnu-
deild í heiminum, ensku úrvals-
deildina. Víst er að Englendingar
eiga mörg góð knattspyrnulið en
ekkert er þó meðal fimm sterk-
ustu liða álfunnar, samkvæmt
Iista sem fréttastofan Reuter birti
24. október. Reyndar eru aðeins
tvö ensk Iið á meðal 20 sterkustu
liða Evrópu, Manchester United
og Aston Villla. Þar sitja þeir við
sama borð og Rúmenía
ítalir sterkastir
Ef styrkur deildanna felst f Ijölda
liðanna á listanum eru það Italir
sem geta grobbað sig af erfiðustu
deildinni. AUa vega eiga þeir flest
sterkustu liðin. Evrópukeppnirn-
ar staðfesta stöðu ítalska boltans.
Itölsku liðin hafa verið í fremstu
röð í öllum keppnunum undan-
farin ár. Þar hafa Englendingar
ekki riðið feitum hesti frá gullald-
artíma Liverpool sem vann alla
Evróputitlana á sínum tíma.
Meistaradeildin hefur verið Eng-
lendingum óþægur ljár í þúfu.
Engu ensku liði hefur tekist að
fagna sigri í þeirri deild. Arsenal
hefur nú tækifæri til að gera bet-
ur en Manchester United sem
verið hefur á eyðimerkurgöngu í
Evrópu síðustu árin.
Þýski risiun á toppnum
Bayern Múnchen hefur í áratugi
borið ægishjálm yfir önnur lið í
Þýskalandi. Nú er svo komið að
litla Iiðið í Múnchen, 1860, er
farið að anda f hálsmálið hjá ris-
anum og komið í hóp sterkustu
liðanna. Og Múnchen státar af
tveimur af þremur bestu Iiðun-
um.
Ekkert Iið frá Norðurlöndunum
kemst á listann. Norðmenn verða
að kyngja því að enn er Rosen-
borg ekki talið til risanna í Evr-
ópu. Svíar verða líka að Iáta sér
nægja að lesa um sterkustu liðin
eða sjá þau í sjónvarpi. - GÞÖ
Evrópulistinn
Nr. Félag Land Stig
1. Bayern Múnchen Þýskaland 103.75
2. Fiorentina Italía 92.53
3. 1860 Múnchen Þýskaland 88.57
4. Bordeaux Frakkland 88.54
5. Marseille Frakkland 85.75
6. AS Roma Ítalía 85.15
7. Lazio Ítalía 84.65
8. Parma Ítalía 82.49
9. Inter Milan Ítalía 80.34
10. Manchester United England 79.96
11. Real Madrid Spánn 79.74
12. Juventus Ítalía 79.34
13. Rapid Búkarest Rúmenía 79.22
14. Shakhtar Donetsk Úkraína 79.15
15. Dinamo Búkarest Rúmenía 78.50
16. Real Mallorca Spánn 78.26
17. Real Zaraeoza Spánn 77.82
18. Aston ViIIa England 77.73
19. AC Milan Italía 77.26
20. Udinese Ítalía 77.26