Dagur - 28.11.1998, Blaðsíða 2
18-LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
ro^tr
LJFIÐ I LANDINU
Steinunn Úlína
Þorsteinsdóttir.
Þóra Guðmundsdóttir.
Upptökur á áramótaskaupinu liófust nú í
vikunni en nokkur leynd hvílir þó eim yfir
ýmsu í kringum skaupið. Leikstjóri er Þór-
lialiur Sigurðsson en liöfundar eru nokkrir
og verða nöfn þeirra ekki gefin upp að sinni.
Meðal leikara eru Steinuim Ólina Þorstcins-
dóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Þórhallur Sig-
urðsson (stundum kallaður Laddi), Þröstur
Leó Gunnarsson, Gunnar Helgason og Hall-
dóra Geirharðsdóttir. Þórhailur Sigurðsson
(leikstjóri) vildi ekkert gefa upp um efnistök
og spurður hvort skaupið yrði „heföbmidið" sagði hann: „Það skul-
um við ekkert segja um. Það er ómögulegt að segja en við fylgjum
ákveðnum hefðum.“ En semsagt: Skaupið er i framleiðslu!
Tímaritið Nýtt líf útnefnir konu ársins í
næstu viku. Vettvangurimi er Rex barinn
nýi og er hægt að skemmta sér fram á
þriðjudag við að vclta fýrir sér hver verðs-
kuldi titiliim. í fyrra var það Þóra Guð-
mundsdóttir í Atlanta, þar áður Rannveig
Rist, Björk, Ingibjörg Sólrún, Jóhanna
Sigurðardóttir, Sophia Hansen og fýrst
kvenna til að liljóta viðurkenninguna var
Vigdís Finnbogadóttir. Dagur skýtur á að
nú verðiþað... Ingibjörg Sólrún aftur, fýrst
kvenna til að tvöfalda, eða... nafna hennar
Pálmadóttir fyrir að vera eini kvenráðherrann, eða...?
Tónlistarbransimi hefur mörg andlit. Or því að hljómsveitin Sklta
mórall verður ekki með plötu um jólin þá gefur hún út bók. Um
hvað? Sjálfa sig! Hvað annað?
Dagur íslenskrar tungu er nýliðinn og nú fá stangveiðimenn að
spreyta sig á nýyrðasmíð. Veiðiskapurinn er mikið litaður af er-
lendum slettum, menn veiða á „streamer“, (straumflugur), þeir
„hitsa“ (nota gáruhnút) og sumir veiða úr „bellyboat" sem cr stór
hringlaga velbúimi kútur sem menn setja um sig miðja til að fleyta
sér um vötn. Verslunin Veiðimaðurinn undir stjóm Ólafs Vigfús-
sonar efnir til samkeppni um besta nafnið á þessa kúta og biðm is-
lenskusinnaða stangveiðimenn að gmfla í huga sér. Stangveiðin
berst nefnilega ckki bara út fýrir náttúmvemd, heldur líka mál
vemd.
Það hefur svo sem ekki farið mikið fýrir undirbúningi 21s pilts
viðsvegar af landinu fýrir fegurðarsamkeppni í fjölmiðlunum, fýrir
utan DV sem að sjálfsögðu sinnti keppninni samviskusamlega eins
og þeirra er von og vísa. Hvað um það þá var Herra ísland valinn á
fimmtudagskvöld, og heitir sá er valinn var fegurstur keppenda
Andrés Þór Bjömsson 21s árs Reykvíkingur í Fjölbraut í Breið
holti. En hafi konur haft í hyggju að króa piltinn af við fýrsta tæki-
færi þá skal þess getið að hann á kærastu, sem er m.a.s. eitt af hans
helstu áhugamálum, auk líkamsræktar og fótbolta skv. síðasta helg-
arblaði DV.
Brynja Benediktsdóttir flytur út leiklist
frá Skemmtihúsinu á Laufásveginum í gríði
og erg. Leikrit hennar Ferðir Guðríðarer ný-
komið heim úr leikför til Dyflitmar þar sem
þetta verk um Vínlandsreisu Guðríðar Þor-
bjamardóttur á öndverðri elleftu öld fékk
fínar móttökur. Leikritið er að verða býsna
víðförult og hefur nú farið til Færeyja,
Kanada, Svíþjóðar og írlands og er þegar
búið að skipuleggja leikferð um gervöll
Bandaríkin árið 2000. Bæði enska og ís-
lenska útgáfa verksins verða sýndar í
Skemmtihúsinu á sunnudaginn, sú enska
kl. 14 og íslenska kl. 20, en ef marka má aðsóknina og hrifninguna
í Dublin ættu menn að fá eitthvað fýrir sinn snúð. Ragnhildur Rú-
riksdóttir leikur í íslensku útgáfunni en Tristan Gribbin þeirri
ensku og þótti gagmýnendum í The Irisih Times og Evening Herald
Tristan vera hrífandi í hlutverki sínu og var uppselt á 12. og slð-
ustu sýningunni í Dublin...
Brynja Benediktsdóttir.
Guðmundur
Hrafnkelsson
sýndi stórfína
markvörslu í fyrri
leiknum gegn
Ungverjum, á
morgun verður
hann aftur bak-
hjarlinn í liðinu,
enn einu sinni.
Lífhandboltamannsins erekki bara
dans á rósum. Það erhörkupuð að
standa í eldlínunnifyrirísland.
GuðmundurHrafnkelsson, lands-
liðsmarkvörður, segir okkurfrá lífi
landsliðsmannsins.
Guðmundur Hrafnkelsson hefur varið mark Is-
lands í 289 leikjum. Hann hélt, ásamt félögum
sínum, til Ungveijalands í gær. Þar ætla strákarnir
að reyna að fylgja eftir sigrinum í Laugardalshöll-
inni frá miðvikudeginum og tryggja Islandi sæti í
lokakeppni HM í Egyptalandi.
Spennan minnkar með reynslunni
„Eg get nú ekki sagt að ég sé lengur spenntur þeg-
ar á að fara að velja landsliðið. Eg er farinn að
gera mér grein fyrir því hvað ég get og til hvers er
ætlast af mér. Eg er búinn að vera svo lengi í
þessu að ég held að ég finni þegar að því kemur að
ungu strákarnir fara að banka hraustlega á dyrnar
hjá mér. En sem betur fer eru alltaf að koma upp
ungir strákar sem geta tekið við þegar þar að kem-
ur.“
- Oftast fær Iiðið ekki nema tvær til þijár æfing-
ar fyrir leik. En hvað er það eiginlega sem leik-
menn, í topp formi, gera á landsliðsæfingunum?
„Við förum f gegnum varnar- og sóknarleik. Síð-
an eru fundir þar sem við skoðum myndbönd af
andstæðingunum. Þannig er betur hægt að gera
sér grein fyrir hvemig best er að taka á þeim.
Landsliðsæfingarnar eru mikil vinna en oftast
skemmtileg. Allir keppast við að leggja sig hundrað
prósent fram. Enginn vill vera skilinn eftir þegar
hið eiginlega landslið er svo valið.“
Erfið ferðalög
- Ferðalögin eru stór þáttur í lífi landsliðsmanns-
ins. Ætli þau séu alltaf skemmtileg?
„Nei þau eru mjög mis skemmtileg. Stundum er
okkur kannski sagt að það sé tveggja til þriggja
tíma rútuferð frá flugvellinum að hóteli. Svo þegar
við mætum á staðinn lendum við kannski f 5-6
tíma ferðalagi í misgóðum rútum. Það getur verið
erfitt. En mórallinn er góður í landsliðshópnum og
það skiptir miklu máli. Við styttum okkur stundir
með bröndurum og svo spilum við líka þannig að
okkur Ieiðist ekkert. Svo erum við oft að hittast
aftur eftir langan tíma og þá þarf mikið að spjalla,
mest náttúrulega um handboltann. Við erum alltaf
forvitnir að vita hvernig gengur hjá félögunum."
Leikdaguriiin
- Þegar komið er á leikstað taka æfingamar við á
ný. Landsliðið fær 1-2 æfingar í íþróttahöllinni
sem leikið er í til þess að kynnast húsinu. En
hvernig gengur leikdagurinn fyrir sig?
„Það er nú reynt að hafa hlutina sem eðlileg-
asta. Við erum vaktir á morgnana og borðum sam-
an. Seinna um daginn er haldinn fundur þar sem
þjálfarinn fer yfir leikinn og stappar í okkur stál-
inu. Sálfræðiuppbyggingin skiptir mjög miklu og
hana fáum við áður en við förum inn á völlinn til
að hita upp. Korter fyrir Ieik förum við svo inn í
klefa og þar beijum við leikmennirnir okkur sam-
an og reynum að ná upp baráttuandanum sem er
nauðsynlegur ef vel á að ganga“.
Þjóðsöngurinn
„Þjóðsöngurinn skiptir miklu máli. Þegar maður
hlustar á hann og horfir á fánann fyllist maður
stolti yfir því að vera íslendingur. Það er síðasta
áminningin um að við vorum valdir til þess að
spila fyrir þjóðina. Það verða allir landsliðsmenn
að gera sér grein fyrir því að þeir eru þarna til þess
að spila fyrir Island."
Dagur sendir baráttukveðjur til Ungveijalands:
Áfram Guðmundur! Áfram ísland! -GÞÖ
Maður viknmiar
keypti flokk
Maður vikunnar snaraði út 5.000 kalli til að tryggja sér nafnbót-
ina frjúlslyndur og þjófstartaði stojnun „stjómmálaflokks" í leyni
heima í stofu með kajfinu og nokkrum vinum svo enginn gæti
gengið í hann. Stjórnmálabarátta fær nýja vfdd þegar hún gengur
út á að halda öðrum frá þátttöku og Sverrir Hermannsson hefur
nú sýnt að hann er maður stórhuga á þessu sviði eins og öðrum.
„Fáir útvaldir" var kjörorð hans í bankanum og það lifir í Frjáls-
lynda flokknum. I dag á svo að stofna hálfbróðurinn „Frjálslynda
lýðræðisflokkinn". I hanskahólfinu á fjölskyldubtl
Bárðar Halldórssonar?
Sverrir er maöur vikunnar.