Dagur - 28.11.1998, Síða 20
36- LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
RAÐAUGLÝSINGAR
ATVINNA
Skólaskrifstofan á Hornarfirði augiýsir
vegna forfalla er laus staða
sérkennara
í Heppuskóla
frá janúarbyrjun 1999 til skólaloka.
Upplýsingar gefur skólastjóri í símum 478 1348
og 478 1321 og aðstoðarskólastjóri í símum
478 1348 og 478 1084.
Frá
Bændaskólanum
á Hvanneyri
Bændadeild skólans býður fjölbreytta starfs-
menntun í landbúnaði með áherslu á naut-
griparækt og sauðfjárrækt.
Inntökuskilyrði eru 36 einingar úr framhaldsskóla,
18 ára lágmarksaldur auk starfsþjálfunar við land-
búnaðarstörf. Námstími eru fjórar annir, þrjár á
Hvanneyri og ein í verknámi undir handleiðslu
bónda. Stúdentar geta lokið námi á einu ári. Nám-
ið er lánshæft samkvæmt lánareglum LÍN:
•Búfræðinámið er lifandi starfsnám í nánum
tengslum við atvinnuvegina og rannsókna- og
leiðbeiningarþjónustu hans.
•Búfræðinámið er traustur undirbúningur þeim
sem hyggja á búskap.
•Búfræðinámið er nauðsynlegur undirbúningur að
háskólanámi í búvísindum.
•Búfræðingar hafa að námi loknu fjölþætta at-
vinnumöguleika í landbúnaði.
Innritun á vorönn 1999 stendur yfir til og með
10. desember nk. á skrifstofu skólans sem
veitir allar nánari upplýsingar í s. 437 0000.
Skólastjóri
Deildarstjóri óskast
við leikskólann Álfastein!!
Hver vill prófa að vera deildarstjóri í litlum, fallegum
leikskóla við Akureyri? Okkur á Álfasteini í
Glæsibæjarhreppi vantar leikskólakennara til að leysa af
í barnsburðarleyfi í eitt ár, frá u.þ.b. 15. febrúar 1999.
I leikskólanum eru 23 börn á aldrinum 1 -6 ára og
áhugasamt og jákvætt starfsfólk. Við á Álfasteini
leggjum áherslu á umhverfið okkar, sjálfshjálp, skapandi
starf og persónuleg samskipti.
Umsóknarfrestur er til 1. janúar 1999. Upplýsingar
veitir leikskólastjóri í síma 461 2624.
KISILIÐJAN VIÐ MYVATN
NÝTING NATTÚRUAUÐLINDAlÞAGU ÞJÓÐAR
Vélvirkí
Kísiliðjan við Mývatn óskar að ráða vélvirkja á véla-
verkstæði. Starfið felst í almennu viðhaldi á tækja-
búnaði fyrirtækisins.
Húsnæði í eigu fyrirtækisins er til reiðu gegn tiltölu-
lega vægu gjaldi.
Umsóknum skal skilað merktum:
Kísiliðjan hf.,
660 Reykjahlíð
c/o ívar Arason
Nánari upplýsingar gefur ívar Arason í vinnusíma 464
4190, 464 4195 + (innval 111) og heimasíma 464
4140.
4)
Kjötiðnaðarmen n
- kjötvinnsla, Hvolsvelli
Sláturfélag Suðurlands óskar eftir að ráða kjötiðn-
aðarmenn eða aðila, vana kjötskurði, til starfa í
kjötvinnslu félagsins á Hvolsvelli.
Um er að ræða framtíðarstörf í einni fullkomnustu
og stærstu kjötvinnslu hérlendis. Unnið er eftir
afkastahvetjandi ábatakerfi.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
félagsins á Fosshálsi 1, Reykjavík, og í starfs-
stöðvum félagsins á Hvolsvelli og Selfossi.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma
575-6000 og verksmiðjustjóri á Hvolsvelli í síma
487-8392.
Heilbrigðisstofnunin
Sauóárkróki
Slmi: 4554000-Símbréf: 455 4010- póst hó\f: 20
Yfirlæknir
Laus er til umsóknar staða yfirlæknis við sjúkrasvið
stofnunarinnar, um er að ræða 100% stöðu. Æskileg
sérgrein er almennar skurðlækningar, kvensjúkdóma-
lækningar eða önnur sambærileg sérgrein.
Stofnunin skiptist í tvö svið, sjúkrasvið og heilsugæslu-
svið. Sjúkrasvið starfar samkvæmt lögum sem almennt
sjúkrahús og veitir sérfræðiþjónustu á sviði handlækn-
inga og lyflækninga ásamt farandþjónustu á ýmsum
sérsviðum læknisfræðinnar. Undir sjúkrasviðið heyrir
einnig rekstur hjúkrunar- og dvalarheimilis.
Sex læknar starfa við stofnunina.
Hér er um að ræða fjölbreytt og krefjandi starf og er
vinnuaðstaða og tækjakostur á stofnuninni mjög góð-
ur. Á sjúkrasviðinu er 71 rúm og skiptast í 15 rúm á
almennri sjúkra- og fæðingardeild og 56 rúm á
hjúkrunardeildum. Þar fyrir utan er 10 rúma þjónustu-
deild rekin í tengslum við stofnunina.
Stofnunin hefur á að skipa góðu og samstilltu starfs-
fólki sem leggur metnað sinn í að gera góða stofnun
betri. Þetta er kjörið tækifæri fyrir framtakssama og
metnaðarfulla einstaklinga.
Stöðunni fylgir embættisbústaður.
Umsóknir skulu sendast til Birgis Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra, á eyðublöðum sem fást hjá
Landlæknisembættinu.
Umsóknarfrestur er til 1. janúar nk. en staðan veitist
eftir nánara samkomulagi.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 455 4000.
I Skagafirði búa tæplega 5.000 manns, þ.a. búa 2.700 manns á
Sauðárkróki. Sauðárkrókur byggir á öflugu og fjölbreyttu
atvinnulífi og fjölbreytni í þjónustu við íbúa héraðsins.
íþrótta- og félagslíf er hér f miklum blóma. I héraðinu eru tveir
framhaldsskólar, á Sauðárkróki er Fjölbrautaskóli Norðurlands
vestra með tæplega 500 nemendur og á Hólum í Hjaltadal er
rekinn Bændaskóli. Sauðárkrókur liggur vel við samgöngum og eru
þærgóðar, bæði i lofti og á landi. Skagafjörður er rómaður fyrir nátt-
úrufegurð og má segja að þar séu merktir staðir og
atburðir úr Islandssögunni við hvert fótmál.
- Reyklaus vinnustaður -
YMISLEGT
EITT SIMTHL
til að kynnastfæðubótarefni og
snyrtivörum
Fæðubótarefnin grenna, laga t.d. vefjagigt, sinadrátt o.fl.
o.fl., auk þess að fá meiri orku og láta sér líða vel.
Snyrtivörurnar eru í hágæðaflokki. Ráðgjöf og stuðningur.
Upplýsingar gefur Sæunn í sima 487 1429.
Auglýsing
um nafn á sveitarfélagi því sem til varð við sameiningu
Borgarhafnarhrepps, Bæjarhrepps, Hofshrepps og
Hornafjarðarbæjar.
1. gr. Nafn hins nýja sveitarfélags, sem til varð á
grundvelli auglýsingar nr. 234/1998 skal vera
Sveitarfélagið Hornarfjörður.
2. gr. Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytið, 25. nóvember 1998.
Auglýsing
um nafn á sveitarfélagi því sem til varð við sameiningu
Fljótahrepps, Hofshrepps, Hólahrepps, Lýtingsstaða-
hrepps, Rípurhrepps, Sauðárkrókskaupsstaðar, Seylu-
hrepps, Skarðshrepps, Skefilsstaðahrepps, Staðar-
hrepps og Viðvíkurhrepps.
1. gr. Nafn hins nýja sveitarfélags, sem til varð á grund-
velli auglýsingar nr. 229/1998, skal vera Sveitarfélagið
Skagafjörður.
2. gr. Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytið, 25. nóvember 1998.
MAKE UP FOR EVERi
P D O F < 8 S I O N A U
Innritun
Innritun stendur yfir
vorönn 1999
Förðunarskóli íslands
Á vorönn 1999 verður kennt:
Ljósmynda- og tískuförðun, þrír mánuðir samtals
325 tímar og hefst 12. janúar.
Kvikmyndaförðun þrír mánuðir samtals 270 tímar
hefst 19. janúar.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í símum 588
7575 og 551 1080.
Förðunarskóli íslands
Grensásvegi 13, Reykjavík
Tannverndarráð
ráðleggur foreldrum að gefa börnum
sínum
jóladagatöl
án sælgætis
Hörðudalsá til leigu.
Laus er til útleigu Hörðudalsá í Dalasýslu, tilboð óskast
send til undirritaðs, póstlögð fyrir 20. desember 1998
Nánari uppl. í síma 434 1331 eftir kl. 20.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
F.h. veiðifélags Hörðudalsár,
Hörður Hjartarson
Vífilsdal
371 Búðardal
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR