Dagur - 28.11.1998, Qupperneq 21
HWi H.-hflM&yAtt/. • gjf’v 3fe
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998- 37
miiiiiSiilllHIÉÍÍIiftsiiöiBi R i \ Ð A l I I 3 I L Ý S I I N G / l R
Viðkertaljós
að kvöldi dags
Bókmenntavaka með tónlistarívafi í Freyvangi
1. desember kl. 21.00
Aö kvöldi fullveldisdagsins stýrir Erlingur Sigurðar-
son bókmenntavöku þar sem lesið verður úr
gömlum sem nýjum verkum eyfirskra skálda og
rithöfunda.
Hulda Björk Garðarsdóttir flytur Ijóðatónlist og
syngur dúetta með Buríði Baldursdóttur fyrrum
kennara sínum.
Píanóleik annast Daníel Porsteinsson.
Enginn aðgangseyrir - kaffi við vægu verði.
Allir velkomnir.
Menningarmálanefnd Eyjafjarðarsveitar
- meöfagurt mannlíf í fyrirrúmi -
CUf. bu/lÁúl
Trésmlðjon fllfo ehf. • Óseyrl 1o • 603 flkureyri
Síml 461 2977 • fox 461 2978 • forsíml 85 30908
iKvmvsu
KENNI A SUBARU LEGACY.
TÍMAR EFTIR SAMKOMULAGI. ÚTVEGA NÁMSGÖGN.
HJÁLPA TIL VIÐ ENDURNÝJUNARPRÓF.
Ingvar Björnsson
ökukennari frá KHÍ Akurgerði 11b, Akureyri
Sími 899 9800 Heimasími 462 5692
Menntamálaráðuneytið
Styrkir til háskóla-
náms í Danmörku
Stjórnvöld í Danmörku bjóða fram fjóra styrki til handa
(slendingum til háskólanáms í Danmörku skólaárið
1999-2000. Styrkirnir eru ætlaðir þeim sem komnir
eru nokkuð áleiðis í háskólanámi og eru miðaðir við
9 mánaða námsdvöl en til greina kemur að skipta
þeim ef henta þykir. Styrkfjárhæðin er 4.450.- d.kr.
á mánuði.
Umsóknir um styrkina, ásamt staðfestum afritum próf-
skírteina og meðmælum, skulu sendar til menntamála-
ráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 4.
janúar nk., á sérstökum umsóknareyðublöðum sem
þar fást.
Menntamálaráðuneytið, 27. nóvember 1998.
www.mrn.stjr.is
www visir,
FYRSTUR MED FRÉTTIRNAR
íbúð óskast
Óska eftir að taka á leigu sem fyrst 3ja - 4ra
herbergja íbúð í neðra þorpi á Akureyri.
Reglusemi, góð umgengni og skilvísar greiðslur.
Upplýsingar í síma 461 1242.
Aðalskipulag
Borgarfjörður - sameinað sveitarfélag Andakíls-
hrepps, Lundarreykjadalshrepps, Reykholtsdals-
hrepps og Hálsahrepps - hefur ákveðið að hefja gerð
aðalskipulags fyrir sveitarfélagið. Fyrir liggur nýgert
svæðisskipulag sem einnig nær yfir Skorradalshrepp.
Borgarfjörður er aðili að verkefninu Staðardagskrá
21, sem verður samþætt aðalskipulaginu.
Skipulagsfræðingum, arkitektum og öðrum þeim, sem
til þess hafa rétt og vilja koma til greina við val á ráð-
gjafa, er gefinn kostur á því að senda sveitarfélaginu
upplýsingar um sig og fyrri störf sem tengjast
skipulagsvinnu.
Þess er jafnframt óskað að þeir, sem hafa áhuga á
verkefninu, geri grein fyrir hugmyndum sínum um
aðalskipulag og hvernig best sé að nálgast slíkt verk-
efni. Þessar upplýsingar þurfa að berast fyrir 18. des-
ember næstkomandi.
Eintök af svæðisskipulagsáætluninni er til sölu hjá
Skipulagsstofnun og á skrifstofu sveitarfélagsins, sem
einnig veitir frekari upplýsingar.
Borgarfjörður - sveitarfélag
pósthólf 60, 320 Reykholti,
sími 435 1140.
Svæðisskipulag
miðhálendis íslands
2015
Samvinnunefnd um svæðisskipulag miðhálendis Is-
lands hefur samþykkt Svæðisskipulag Miðhálendis
íslands 2015. Tillagan var auglýst skv. 17. og 18. gr.
skipulagslaga nr. 19/1964 frá 6. júní til 10. desember
1997 og lá hún frammi til kynningar á 16 stöðum víðs
vegar um landið. Frestur til að skila athugasemdum
rann út 10. desember 1997 og bárust 95 umsagnir
eða athugasemdir frá einstaklingum, félagasamtökum,
sveitarfólögum, stofnunum og ráðuneytum.
Samvinnunefndin fjallaði um innsendar athugasemdir
og lagði í ágúst 1998 fram sérstaka umsögn sem
einkum nær til þeirra athugasemda sem áttu við sjálfa
tillögugerðina. Þó að mikið tillit hafi verið tekið til at-
hugasemda við lokafrágang skipulagsins hafa þær
ekki breytt meginhugmynd auglýstrar tillögu að mati
nefndarinnar. Meginbreytingar sem gerðar hafa verið
lúta að nánari útfærslu skilgreininga á landnotkunar-
flokkum og að skil milli nýtingar og verndunar hafa
verið skerpt nokkuð. Auk þessa hefur nokkrum skýr-
ingarkortum verið bætt inn í inngangskafla til að
styrkja niðurstöður nefndarinnar.
Skipulagstillagan ásamt umsögnum samvinnunefndar
um athugasemdirnar var send sveitarfélögunum 38
sem stjórnsýslu hafa á svæðinu skv. 3. mgr. 13. gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og gerðu
þau ekki athugasemdir og teljast því hafa samþykkt til-
löguna. Samþykkt svæðisskipulag hefur verið sent
Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til umhverfisráð-
herra um lokaafgreiðslu.
Þeir sem óska eftir nánari upplýsingum um tillöguna
eða niðurstöður samvinnunefndar geta snúið sér til rit-
ara samvinnunefndarinnar hjá Skipulagsstofnun
Laugavegi 166 í Reykjavík.
Samvinnunefnd um svæðisskipulag miðhálendis
íslands
UTBOÐ
UTBOÐ
F. h. Sjúkrahúss Reykjavfkur er óskað eftir tilboðum
í bindi, teigjuhólka, grisjur, sáraplötur, plástra
o.fl.
Útboðsgögn fást afhent endurgjaldslaust á skrifstofu
okkar frá þriðjudeginum 1. desember 1998.
Opnun tilboða: fimmtudaginn 28. janúar 1999 kl.
11:00 á sama stað.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
SHR 120/8
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavfk er óskað eftir
tilboðum í eftirfarandi verk: „Þróttarsvæði, gatna-
gerð og lagnir".
Helstu magntölur eru þessar:
Gröftur u.þ.b. 8.000 m3
Fyllingaru.þ.b. 8.500 m3
Malbik u.þ.b. 2.100 m2
Holræsalagnir u.þ.b. 500 m
Skiladagur verksins er 1. júlí 1999.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu okkar frá þriðju-
deginum 1. desember n.k. gegn 10.000 kr skilatrygg-
ingu.
Opnun tilboða: miðvikudaginn 16. desember 1998
kl. 11:00 á sama stað.
gat 121/8
F.h. Vatnsveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
verkið: Vatnsgeymir á Litlu-Hlfð, utanhúsviðgerðir
á lokahúsi.
Helstu magntölur:
Múrhúðun: 130 m2
Vírhögg: 1.200 stk.
Háþrýstiþvottur: 191 nT
Sílanböðun og málun veggja: 165 m2
Þakdúkur: 110m2
Jarðvinna, gröftur og fylling: 250 m3
Verklok: 15. júní 1999.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu okkar gegn
5.000 kr skilatryggingu.
Opnun tilboða: þriðjudaginn 8. desember 1998
kl. 14:00 á sama stað.
wr 122/8
INNKAUPASTOFNUN
REYKJA VIKURBORGA R
Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavík - Sími 552 5800
Bréfsími 562 2616/561 1120 - Netfang:isr@rhus.rvk.is
Veffang:www.reykjavik.is/innkaupastofnun
F U N D I R
rFELAG
FLDltf
“S BOBGARA
Almennur félagsfundur
Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni verður
haldinn í félagsheimili félagsins í Ásgarði, Glæsibæ,
laugardaginn 28. nóv. 1998 kl. 13.30.
Gestur fundarins: Geir H. Haarde, fjármála-
ráðherra.
Dagskrá:
1. Ávarp formanns FEB, Páls Gíslasonar.
2. Almannatryggingar. Margrét H. Sigurðar-
dóttir, varaform. FEB.
3. Fjármálaráðherra, Geir H. Haarde, fer
yfir þá málaflokka í frumvarpi til fjár-
laga, sem snerta hagsmuni aidraðra.
4. Kaffihlé. ( kaffihléi verða kynnt lög af geisla-
diskinum „Maður lifandi" sem kom út fyrir
skömmu til styrktar þroskaheftum. Þeir söngv-
arar sem koma fram eru: André Backmann,
Guðrún Gunnarsdóttir og Sævar Sverris-
son. Kynnir: Þorgeir Ástvaldsson
útvarpsmaður.
5. Umræður um erindi fjármálaráðherra og
fyrirspurnir.
6. Félagsstarfið, nútíð - framtíð.
7. Um kl. 17.00 koma þau Ómar Ragnarsson
og Sigrún Hjálmtýsdóttir og syngja dúett
af geisladiskinum „Maður lifandi“.
8. Önnur mál.
Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Framkvæmdastjórn FEB.