Dagur - 22.12.1998, Síða 1
Verð ílausasölu 150 kr.
81. og 82. árgangur - 242. tölublað
Ey ðum millj ar ði
meira en í fyrra
Gdðærisjól hjá mörg-
um kaupmöimiim.
Misgott gengi á
Laugaveginum. Helm-
ingsaukniug hjá Elko
í Smáranum. Svipað
eða hetra en í fyrra á
Akureyri.
„Svona fljótt á litið held ég að
smásöluverslunin í desember-
mánuði geti numið allt að 16
milljörðum króna. Þar af eru trú-
lega um 6 milljarðar vegna jól-
anna á móti 4,5-5 milljörðum á
sama tíma í fyrra," segir Sigurð-
ur Jónsson, framkvæmdastjóri
Kaupmannasamtaka Islands.
Góðærisjól
Svo virðist sem nokkurs konar
góðærisjól séu hjá kaupmönnum
víðast hvar þrátt fyrir mikil bíla-
og hlutabréfakaup og þeirra þús-
unda sem streymt hafa í inn-
kaupaferðir til útlanda í vetur. I
það minnsta barmar sér enginn
opinberlega, þótt margir hafi Iagt
mikið undir og séu því á tánum
að allt gangi upp. Ef eitthvað er
þá eru það helst kaupmenn sem
veðja á skíði og aðrar vetrarvörur
sem eiga erfitt um vik vegna
duttlunga náttúrunnar. Þá er
alltaf ein og ein búð sem verður
undir í samkeppninni eins og
leikfangabúðin í
Glæsibæ sem
hættir um ára-
mótin.
Hebningi
meira
„Það er helmingi
meira að gera en
við reiknuðum
með í upphafi," Nú tala menn
segir Einar Long, ---------
verslunarstjóri
hjá Elko í Smáranum í Kópavogi.
Hann segir skýringuna felast
einkum f verðlækkunum og
miklu vöruframboði. Af þeim
sökum m.a. hefur verið „alveg
vitlaust að gera“ flesta daga,
nema þegar veðrið er vitlaust,
eins og í fyrradag.
Þriggja prósenta aukning
„Frá 1. desember og fram til 15.
desember hefur allavega orðið
3% aukning í aðkomu fólks í
Kringluna," segir Sigurþór
Gunnlaugsson, markaðsstjóri
Kringlunnar. Til marks um fjöld-
ann sem sækir Kringluna lætur
nærri að hver einasti Islendingur
komi þangað tvisvar á ári. Sigur-
þór segir kaup-
menn bera sig
almennt vel,
enda sé salan
svipuð og í
fyrra. Salan þá
þótti mjög góð
og mun betri en
fyrirjólin 1996.
um góðærisjól. Misgott á
----------Laugavegi
Róbert Róberts-
son, formaður Miðbæjarsamtak-
ana, segir að á Laugaveginum sé
misgott hljóð f kaupmönnum.
Hann segir að sumir beri sig vel
á meðan aðrir barma sér yfir
minni sölu. Aftur á móti sé því
ekki að leyna að jólaverslunin í
miðbænum hefur farið hægar af
stað en oft áður, auk þess sem
samkeppnin hefur aukist. Hins
vegar sé því ekki að leyna að síð-
ustu dagarnir gera oft gæfumun-
inn.
Betra en í fyrra
Ragnar Sverrisson hjá Herrafata-
verslun JMJ á Akureyri segir að
jólaverslunin hafi gengið hjá
kaupmönnum. Hann segir að í
fataversluninni sé samkeppnin
ekki aðeins við höfuðborgar-
svæðið heldur einnig við verslan-
ir í öðrum Evrópulöndum. I
þeim samanburði standa menn
sig vel og uppskera eftir því.
Ragnar segist ekki hafa heyrt
annað frá kaupmönnum en að
verslunin sé svipuð og jafnvel
eitthvað betri en í fyrra.
Hægt af stað
Vilhjálmur Jónsson hjá Kaupfé-
lagi Héraðsbúa á Seyðisfirði er
einnig bjartsýnn á jólaverslunina
fyrir austan þótt hún hafi farið
ívíð rólegra af stað en fyrr. Hins
vegar búast menn við að verslun-
in taki kipp á síðustu dögunum,
enda hægt að versla einum degi
lengur í þeirri viku en fyrir síð-
ustu jól. — GRH
Gosaska fer
víða
Eftir breytingar á vindátt um
helgina fór gosaska úr Gríms-
vötnum að falla á Norðurlandi,
en hún hefur ekki valdið skaða
eftir því sem næst verður komist.
Osku varð vart frá Skagafirði og
að Bárðardal í gær og mæltist
Halldór Runólfsson yfirdýralækn-
ir til að bændur myndu hýsa fén-
að sinn. Almannavarnir sendu í
gær frá sér tilkynningu þar sem
bent var á að töluverð úrkoma í
kjölfar öskufallsins væri hagstæð
fyrir jörðina. Eigi að síður er full
ástæða til að fara varlega og er
bændum bent á að brynna búfén-
aði með fersku vatni ef grunur
Ieikur á að hann hafi komist í
ösku. A myndinni til hliðar hugar
Iögreglumaður á Akureyri að
öskufalli.
Eldgosið í Grímsvötnum var
enn í nokkrum gangi í gærkvöld
en aðeins í einum gíg. — Bt>
Þorsteinn á leið út úr pólitík.
Þorsteinn
til London?
Samkvæmt heimildum innan
Sjálfstæðisflokksins sem Dagur
telur traustar er ríkisstjórnin að
undirbúa skipan Þorsteins Páls-
sonar, dóms- og sjávarútvegsráð-
herra, í stöðu sendiherra Islands
í London að kjörtímabilinu
loknu. Þetta vilja þó hvorki Þor-
steinn sjálfur né Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra stað-
festa.
Þegar Dagur spurði Þorsteinn
hvort rétt væri að búið væri eða
verið væri að ganga frá því að
hann taki við sem sendiherra í
London svaraði Þorsteinn: „Eg
er margsinnis búinn að svara
spurningum af þessu tagi, meðal
annars f Degi, og svarið er hið
sama."
Aðspurður um hið sama sagði
Halldór: „Nei, það er ekki búið
að ganga frá því. Það er ekkert
meira um það að segja.“
Svo sem sjá má er hvorugt
svarið útilokandi. Hvað svör Þor-
steins í Degi áður varðar þá
sagði hann í viðtali á dögunum:
„Það hefur ekkert verið endan-
lega í gadda slegið og fyrr er ekki
tímabært að íjalla um það. Það
er alveg sama hvaða uppástung-
ur þú kemur með eða hvað þú
óskar mér velfarnaðar í mörgum
störfum, ég hef ekkert annað um
málið að segja en þetta.“ - fþg
2 dagar
tiljóla
Afgreiddir samdægurs
Venjulegirog
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI • SÍMI 462 3524