Dagur - 22.12.1998, Page 2
2 - ÞRIDJUDAGUR 22. DESEMBER 1998
rD^ir
FRÉTTIR
Mikið fjölmenni tók þátt í lokaátakinu í pakkasöfnun Norðurpólsins á sunnudagskvöld. Á innfelldu myndinni má sjá Sigrúnu
Arngrímsdóttur messósópransöngkonu sem leiddi fjöldasöng í lok hátíðahaldanna. - myndir: brink
N orðurpólsþorpið
komið til að vera
Þúsimdir fólks komu sam-
an þegar jólapakkasöfnim
lauk á Akureyri. Pakkarn-
ir inunn hins vegar ekki
berast viðtakeudum fyrr
eu á nýju ári.
Starfsemi jólaþorpsins Norðurpólsins
á Akureyri lýkur á morgun og eru að-
standendur sammála um að ágætlega
hafi tekist til. Veðurguðirnir voru
reyndar ekki starfseminni hliðhollir
framan af, en aðsókn jókst hægt og bít-
andi og eru aðilar sammála um að
Norðurpóllinn sé kominn til að vera.
I fyrrakvöld fór fram söng- og friðar-
athöfn og varð mikið fjölmenni. „Þarna
sungu um 700 börn í kórnum og heilt
yfir skipti Qöldi gesta einhverjum þús-
undum. Við erum himinlifandi með
aðsóknina," segir Tómas Guðmunds-
son, forstöðumaður Ferðamálamið-
stöðvar Eyjafjarðar. Jólapakkasöfnun
Norðurpólsins er þar með lokið og tel-
ur Tómas að um 10.000 pakkar hafi
safnast sem rata muni til jafnmargra
barna í Bosníu. Pakkarnir munu
reyndar ekki berast til viðtakenda fyrr
en eftir jól, en Tómas segir ákveðna
kosti fylgja því. Þrenns konar trúar-
brögð séu hjá viðtakendum og því hafi
Hjálparstarf kirkjunnar og æskulýðs-
samtök ákveðið að afhenda ekki pakk-
ana fyrr en börnin mæti aftur í skóla
eftir jólin.
Snjóleysið kostaði sitt
Opnunartími Norðurpólsins er meðal
þess sem verður endurskoðað fyrir
næstu jól. Fjárhagsleg afkoma Iiggur
ekki fyrir, en Tómas bendir á að snjó-
Ieysið framan af hafi orðið til þess að
kostnaður svæðisins jókst frá áætlun-
um. Margvísleg sölustarfsemi fór fram
í þorpinu, en Tómas segir að ósk kaup-
manna í miðbænum um að söluvörur
pólsins yrðu ekki í beinni samkeppni
við vörurnar í miðbænum, hafi komið
niður á veltu. „Eg þykist vita að salan
hafi gengið upp og ofan,“ segir Tómas.
Bjartsýni er burðaratriði
Sölufólkið þáði engin laun heldur var
mest megnis um að ræða handverks-
fólk sem var að kynna eigin afurðir.
Fjöldi fólks hefur hins vegar verið á
Iaunaskrá að undanförnu, s.s. jóla-
sveinar, þeir sem tengdust pakkasöfn-
uninni, brúðuleikhúsi og fleira. „Norð-
urpóllinn skapaði 12-15 manns fulla
atvinnu á þessum tíma, frá 20. nóvem-
ber og fram að jólurn," segir Tómas.
En hve margir verða gestir pólsins í ár?
„Eg er alveg tilbúinn að viðurkenna að
við vorum dálítið bjartsýnir þegar við
lýstum því yfir að við byggjumst við
60.000-80.000 manns. E.t.v. má deila
í þá tölu með tveimur, en það er ekkert
hægt að fara út í svona dæmi nema
vera dálftið bjartsýnn," segir Tómas.
- BI)
í heita pottinum velta mcnn
vöngum yfir hrókeringum ráðu-
ncytisstjóra og lesa úr þehn vís-
bendingar um hrókeringar ráðu-
neyta milli stjómarflokkanna
eftir kosningar. Flest þykir
henda tii þess að sama stjórnar-
mynstur bíði þjóðarinnar að
kosningum loknum og pottverj-
ar telja líklegt að Framsóknarflokkurinn láti ut-
anríkisráðuneytið af hendi og taki í staðinn við
tjármálaráðuneytinu. Ámi Kolbeinsson, ráðu-
neytisstjóri sjávarútvegsráðuneytis, flyst þang-
að um áramót en hami og Halldór Ásgrímsson
imnu lengi og náið saman á árum áður......
Árni
Kolbeinsson.
Þorstein Geirsson ráðuneytis-
stjóri í dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu færir sig yfir í sjávarút-
vegsráðuneytið og í heita pottin-
um þykir ekki ólíklegt að Finnur
Þorsteinn Ingólfsson iðnaðar- og viðskipta-
Geirsson. ráðherra elti hann þangað 1
vor....
Geir Jón
Þórisson.
Líklegt þykir að hinn hávaxni
Geir Jón Þórisson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn í Reykjavík, muni
hreppa stöðu yfirlögregluþjóns í
Kópavogi, en nöfn umsækjenda
vom hirt í vikumii. Geir J ón hefur
átt skjótan framan innan lögregl-
unnar í Reykjavík eftir að haim
flutti frá Vestmannaeyjum íyrir
nokkrum ármn. Þykir einsýnt að Geir Jón sé í
talsverðum metum hjá yfirmönnum lögreglu og
dómsmála, þar á meðal Þorsteini Pálssyni dóms-
málaráðherra og segja menn ólíklegt að á því
verði iiokkur brcyting á síðustu vikum ráöhcrr-
ans í einbætti....
FRÉTTAVIÐTALIÐ
Egill Jónsson
alþingismaðurog stjómar-
formaðnrByggðastofnunar.
Útibúi Byggðastofnumr á
Akureyrí á að loka og lána-
þáttur starfseminmrað
flytja alfariðsuður.
Ekki eitt einasta handtak
hefur verið flutt suður
„Það er nú reyndar ekki rétt. Við erum að
leggja niður opinbera umsýslu í byggðamál-
um, að þessu leyti, og færa þetta starf yfir til
fólksins sem vinnur að sömu verkefnum
hringinn í kringum Iandið. Þetta er sams
konar gjörningur á Akureyri og við gerðum
gagnvart hinum útibúunum; þ.e. á Isafirði
og Egilsstöðum. Þar gerðum við síðan
samninga um það að atvinnuráðgjafarnir
tækju við þessari þjónustu. Við erum sem
sagt að færa þessi þróunarmál í byggðum
Iandsins, úr stofnanaforræði og yfir í hér-
aðaforræði, eins og ég kalla það.“
- Starfsemin er þá ekkiflutt suður?
„Það hefur ekki eitt einasta handtak verið
flutt suður.“
- Ekkert fjölgað í Sigtúninu?
„Þvert á móti - það hefur fækkað þar.“
- Þannig að hagræðingin felst í þvt að
menn á ársbiðlaun á Akureyri?
„Við erum bara að færa heimamönnum
sjálfum þetta starf í hendur, til að vinna og
ráðskast með. Það er ekki neitt sérstaklega
verið að spara. Rekstur útibúanna fjögurra:
á ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri og Egils-
stöðum, kostaði 35 milljónir. Og þetta Qár-
magn fer til atvinnuþróunarfélaganna. Við
erum núna að gera samninga við þetta nýja
atvinnuþróunarfélag á Akureyri og atvinnu-
þróunarfélagið á Húsavík. Áð því ég best
veit, þá verður sá þáttur þróunarvinnunnar
sem snýr að byggðamálunum, unninn í
samstarfi þessara félaga. Eg held að á hin-
um stöðunum þrem sé ekki nokkur maður
sem sér eftir þessari breytingu og það hefur
alltaf Iegið Ijóst fyrir að þessi breyting yrði
einnig gerð á Akureyri."
- Færast þá störf þeirra sem nú fara á
'M,-
sesia upp starfsfólki og fá aðra til að ann- biðlaun yfir til þróunarstofanna á hverj-
^m^mm^jórfmfá ri xmm&va ihiðtöBfitíH
„Það voru þrír starfsmenn á Akureyri, fyr-
ir utan stúlkur sem hafa verið þarna. Einn
þeirra flutti til Sauðárkróks. En störfin
heimafyrir þurfa ekkert endilega að vera
þau sömu og þau voru áður. Það fer bara
eftir þeirri forystu sem valin er á hverjum
stað og hvað menn telja að komi best að
gagni í þeim efnum. Það forræði er í hönd-
um þeirra sem stjórna þessum þróunarstof-
um heima í héraði.
- En lánastarfsemiti, flytur hún ekki?
„Lánastarfsemin er fyrir sunnan, eins og
hún hefur verið. Útibúin gáfu áður umsagn-
ir í þessum efnum. En það var bara tví-
verknaður, að vera að fara yfir lánasýsluna á
tveim stöðum. Við höfum gert sérstakt sam-
komulag við atvinnuþróunarfélögin um að
þau þjónusti Byggðastofnun ef að hún þarf
að leita einhverra ráðlegginga sem tengjast
starfsemi í héraði. Ég álít þetta mjög gott
I kátM IdlfiÖtí Lc Htj m '6\é: ihltíH