Dagur - 22.12.1998, Blaðsíða 3
PRIÐJUDAGUK 22. DESEMBER 199 8 - 3
FRÉTTIR
Nokkrír hættír við að
flytja upp á Skaga
Starfsmenn Landmælinga ríkisins funduðu í gær með forystumönnum stéttarfélaga sinna og Ragnari H. Hall hæsta-
réttarlögmanni um stöðu mála eftir dóm Hæstaréttar og lagasetningar Alþingis í framhaldi afþví. - mynd: þúk
Réttarstaða og samu-
ingar í lögfræðilegri
skoðun. Reiðir starfs-
menn. Ekki hugað að
lögmæti flutuiuga
annarra ríkisstofnaua.
„Mér heyrist að nokkrir einstak-
lingar sem áður hafa ætlað að
flytja til Akraness séu komnir á þá
skoðun að gera það ekki,“ segir
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB.
Réttarstaða og samningar
Starfsmenn Landmælinga ríkis-
ins funduðu í gær með forystu-
mönnum stéttarfélaga sinna og
Ragnari H. Hall hæstaréttarlög-
manni um stöðu mála eftir dóm
Hæstaréttar og Iagasetningar Al-
þingis í framhaldi af því. Á fund-
inum var ákveðið að fela Ragnari
H. Hall að skoða málið á lög-
fræðilegum nótum, eins og það er
orðað. Flestir starfsmenn Land-
mælinga eru í Félagi íslenskra
náttúrufræðinga sem er aðildar-
félag að BHM og Starfsmannafé-
lagi ríkisstofnana sem er í BSRB.
Bæði BSRB og BHM stóðu að
baki málshöfðuninni gegn ríkinu
vegna Landmælinga í Hæstarétti.
Aður hafði ríkið unnið málið fyr-
ir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Ögmundur segir að það sem
einkum sé verið að skoða sé rétt-
arstaða starfsmanna og samninga
í framhaldi af dómi Hæstaréttar.
Hann segir það mat sumra að
samningar þeirra séu í uppnámi
og þá sérstaklega vegna þess að
þeir séu byggðir á ólögmætri að-
gerð. Hins vegar hafi ekki komið
til umræðu á þessu stigi að skoða
lögmæti flutninga hjá öðrum rík-
isstofnunum sem fluttar hafa ver-
ið eða stendur til að flytja frá
Reykjavík og út á land. Þarna er
um að ræða t.d. embætti Veiði-
stjóra til Akureyrar, Siglingastofn-
un til Kópavogs, Skógrækt ríkis-
ins austur á land, Lánasjóð land-
búnaðarins og hluta af starfsemi
íbúalánasjóðs svo dæmi séu
nefnd.
Starfsmeim reiðir
Formaður BSRB segir að starfs-
menn séu mjög reiðir yfir því að
starfsemi Landmælinga skuli
aldrei hafa fengið eðlilega um-
Ijöllun á Alþingi. Það litla sem
fjallað hefur verið um málið á
þingi hafi verið í „skötulíki" og
einvörðungu af hálfu stjórnar-
andstöðu. Sem dæmi nefnir hann
að þegar lög séu sett um það í
flýti að starfsemin eigi að flytjast
á Akranes, þá sé ekkert rætt um
kosti þess og galla. Hann segir að
í þessu tiltekna máli séu menn
einkum að horfa fram á veginn.
Hann segir að niðurstaða Hæsta-
réttar sé því ákveðin kenning fyr-
ir stjórnvöld. — GRH
Búnaðarbakinn er eftirsóttur á
markaði.
Gengi
bankans
nær 2.80
Búnaðarbankabréf hafa verið
skráð á Verðbréfaþingi Islands
frá því á fimmtudag í siðustu
viku og síðdegis í gær höfðu bréf
upp á um 20 milljónir króna að
markaðsvirði skipt um hendur.
Gengi bréfanna hefur verið á
bilinu 2,70 til 2,78, en meðan á
áskrift bankans stóð var hæst
boðið 2,56 í kennitölur al-
mennra áskrifenda, sem fá bréf-
in á genginu 2,15.
Almennir áskrifendur fá bréf í
bankanum að nafnverði 3.760
krónur og eiga að greiða 8.084
krónur fyrir þau. Miðað við
gengið 2,76 á Verðbréfaþinginu
er hægt að fá 10.378 krónur fyr-
ir „kennitöluna" og verður
„gróðinn" þá 2.294 krónur á
mann, en þá er ekki tekið tillit
til hugsanlegrar þóknunar og
skattlagningar. Miðað við
áskriftarverðið var virði bankans
um 5 milljarðar króna, en hefur
hækkað um 1.440 milljónir
króna eða 28%. — FÞG
Erfðagreining og HA
Frá undirritun samstarfssamnings íslenskrar erfðagreiningar og Háskólans
á Akureyri í gær.
í gær var undirritaður samstarfssamningur milli Háskólans á Akureyri
annars vegar og Islenskrar erfðagreiningar hins vegar. Samningurinn
miðar að því að efla samvinnu Háskólans og Islenskrar erfðagreining-
ar á sviði rannsókna, kennslu og annarrar starfsemi sem hagkvæmt
þykir og æskilegt að eiga samstarf um - einkum á sviði heilbrigðisvís-
inda.
Islensk erfðagreining veitir árlega, næstu fimm árin, styrki til rann-
sóknarverkefna við háskólann samkvæmt nánara samkomulagi. Sam-
hiiða þessu munu Háskólinn og Islensk erfðagreining hafa með sér
samstarf um endurmenntun og námskeiðahald fyrir heilbrigðisstéttir,
með áherslu á starfsfólk í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.
RÚV hættir að auglýsa
Ríkisútvarpið hefur ákveðið að nætta að birta auglýsingar sem talist
geta áfengisauglýsingar í kjölfar þess að dómsmálaráðuneytið sendi út
fyrir helgi áréttingu um að bann við auglýsingum á áfengi væri í fullu
gildi. íslenska útvarpsfélagið hyggst áfram auglýsa bjór og áfengi eins
og geft hefpf vprifl frá því að dqmur gekk í Héraðsdómj Reykjavjkur.
Alfreö Þorsteinsson
í prófkjörsslaginn
Stuöiiingsmeim A1
freðs vilja hann á þing
sem öflugau talsmanu
Reykvíhinga.
Á fjölmennum stuðningsmanna-
fundi Alfreðs Þorsteinssonar,
borgarfulltrúa Framsóknarflokks-
ins, sl. sunnudag var skorað á
hann að gefa kost á sér í væntan-
legt prófkjör Framsóknarflokksins
í Reykjavík fyrir komandi þing-
kosningar. Hann hefur lengi starf-
að í Framsóknarflokknum í
Reykjavík en fram til þessa helgað
sig borgarmálunum eingöngu.
„Eftir þennan fund mun ég
verða við þessum óskum og gefa
kost á mér í prófkjörið," sagði Al-
freð í samtali við Dag í gær.
Hann var þá spurður hvers
vegna hann hefði ekki fyrir Iöngu
gefið kost á sér í prófkjör flokks-
ins fyrir þingkosningar?
„Ástæðan fyrir því er sú að ég
hef ekki átt neitt frumkvæði að
því nú að fara í þetta prófkjör fyr-
ir þingkosningarnar. Ég hef alla
tíð helgað mig borgarmálum. Nú
Alfreð Þorsteinsson.
er fólk í íjölmennum hópum að
skora á mig að gera þetta. Það
fólk telur að mín verk á vegum
borgarmála hafi verið með þeim
hætti að ég eigi fullt erindi á þing
til að reka þar málefni Reykvík-
inga. Mönnum finnst kannski að
það vanti kröftugri þingmenn fyr-
ir kjördæmið," sagði Alfreð.
Hann var spurður hvort hann
ætlaði að keppa gegn Finni Ing-
ólfssyni að 1. sæti listans?
„Ég tel að Finnur Ingólfsson
ætti að vera óumdeildur í 1. sæti
Finnur Ingólfsson.
listans. Hann hefur verið í því
sæti sem þingmaður flokksins,
ráðherra og varaformaður flokks-
ins. Milli okltar Finns hefur alltaf
verið góð samvinna. Því tel ég
eðlilegt að hann haldi því sæti.
Það er því 2. sætið sem ég hef hug
á,“ sagði Alfreð.
Fleiri munu keppa að 2. sætinu
á lista Framsóknarflokksins. Þar
hafa verið nefndar þær Arnþrúður
Karlsdóttir varaþingmaður, Jón-
ína Bjartmars og Vigdís Hauks-
dóttir. - S.DÓR
Eggert Haukdal segir af sér
Eggert Haukdal hefur sagt af sér
sem oddviti Vestur-Landeyja-
hrepps. Að því er sagði í fréttum
Utvarpsins í gærkvöld koma
fram í ársreikningi hreppsins fyr-
jr síjðasta |r atriði sem etpjprr
skoðendur gera alvarlegar at-
hugasemdir við, og eru þau þan-
nig að þau stangast jafnvel á við
bókhaldslög. Er nú unnið að
gerð nýs reiknings sveitarsjóðs.
A fireppsnefndaríundi í gær var
afsögn Eggerts samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum. I
fréttatilkynningu frá hrepps-
nefndinni segir að afsögn Egg-
erts komi til af persónulegum
ástæðpxn haps. - §bs