Dagur - 22.12.1998, Side 4
% - i.Qxbi, 5ba&uvs,st-.*.a, . s-a-
4 -ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998
60 lunferðaróhöpp
Um helgina var tilkynnt um rúmlega 60 umferðaróhöpp til lögreglu í
Reykjavík. I nokkrum þeirra urðu slys á fólki en ekki alvarleg. Sfðdeg-
is á sunnudag gerði talsverða hálku í höfuðborginni og urðu þá all-
margir árekstrar á skömmu tíma. Þá varð lögreglan að veita mörgum
ökumönnum aðstoð á Kringlumýrarbraut við Bústaðabrú síðdegis á
sunnudag vegna hálkunnar. Greinilegt var að ekki höfðu allir öku-
menn gert sér grein fyrir því að vænta mátti vetrarfærðar.
Ekið á hjólreiðameim
Ekið var á mann á reiðhjóli á Laugavegi að morgni föstudags. Maður-
inn var á leið yfir götuna á gangbraut. Hann var fluttur á slysadeild
með áverka á höfði og handlegg.
Síðdegis á föstudag var einnig ekið á mann á reiðhjóli á Listabraut.
Maðurinn var fluttur á slysadeild en hann kenndi til eymsla í öxl.
Bifreið var ekið á ljósastaur á Stekkjarbakka um miðjan sunnudag.
Ökumaður var fluttur á slysadeild.
Þá var ekið á gangandi vegfaranda í Lækjargötu síðdegis á sunnu-
dag. Hinn gangandi var fluttur á slysadeild en hann kenndi til í öxl.
Ökumaður bifreiðar sem ekið var á Ijósastaur á Kringlumýrarbraut á
sunnudag var einnig fluttur á slysdeild.
Hraöakstur undir HvaHirði
Ökumaður var stöðvaður í Hvalíjarðargöngum eftir að hafa mælst aka
bifreið sinni á 107 km hraða.
Rúmlega fjögur að morgni sunnudags óskuðu lögreglumenn í Kópa-
vogi eftir aðstoð vegna bifreiðar sem ekki sinnti stöðvunarmerkjum
þeirra. Voru sex bifreiðar frá Iögreglu í eftirförinni þegar mest var þar
af eitt frá Kópavogi. Eftirförin var um Breiðholtshverfi og síðan Suður-
landsveg. Lögreglubifreiðar höfðu þá slökkt á forgangsljósum en héldu
í humátt á eftir bifreiðinni sem ekið var á vítaverðan hátt. Það náðist
síðan að stöðva akstur bifreiðarinnar í Lögbergsbrekku er tveimur lög-
reglubifreiðum var ekið á bifreiðina. Aður hafði tekist að lækka öku-
hraða hennar verulega en Ijóst þótti að ekki myndi takast að stöðva
aksturinn endanlega nema á þennan hátt. Enginn slasaðist við eftir-
förina en skemmdir urðu á tveimur bifreiðum lögreglu auk skemmda
á bifreiðinni sem veitt var eftirför. Ökumaðurinn var handtekinn og
hann fluttur á lögreglustöð. Hann er 17 ára og hefur ekki ökuréttindi.
Hann hafði tekið bifreið fjölskyldunnar án heimildar. Ökumaðurinn
var undir áhrifum áfengis við aksturinn.
600 hílar stöðvaðir
Aðgerðir lögreglunnar í Reykjavík
gegn ölvunarakstri héldu áfram þessa
helgi. Samkvæmt skráningum voru
rúmlega 600 ökumenn stöðvaðir og
kannað ástand þeirra. Því miður eru
það alltaf noldtrir ökumenn sem nauð-
synlegt reynist að kæra vegna ölvun-
araksturs. Um helgina voru þeir 18.
Veist að lögreglu
Karlmaður var handtekinn eftir að hafa gengið berserksgang í veislu-
sal að kvöldi laugadags.
Karlmaður var handtekinn eftir átök á veitingastað í miðborginni að
morgni sunnudags. Hann var fluttur í fangahús.
Lögreglu var tilkynnt um átök £ Austurstræti um klukkan 4:30 að
morgni sunnudags. Þegar lögreglumenn voru að vinna að lausn máls-
ins veittust nokkrir vegfarendur að lögreglu svo kalla varð til fleiri
lögrelgumenn til aðstoðar. Lögreglumenn beittu varnarúða á tvo
þeirra atkvæðamestu. Tveir voru fluttir í fangamóttöku vegna málsins.
Stálu hljóðfærum
Lögreglu var tilkynnt um 12 innbrot um helgina. Rúða var brotin á
hljóðfæraverslun í miðborginni að morgni sunnudags og þaðan stolið
hljóðfærum. Ekki er vitað hveijir stóðu að þjófnaðinum.
Brotist var inní Ijórar bifreiðar í bílskýli í Breiðholtshverfi aðfaranótt
sunnudags.
Karlmaður var handtekinn þar sem hann var að bijótast inní íbúð í
miðborginni að morgni mánudags. Hann var fluttur í fangahúsið við
Hverfisgötu.
Eldur á Spítalastíg
Vinnuslys varð við byggingu við Egilsgötu síðdegis á föstudag. Karl-
maður fékk stálbita í höfuðið og var fluttur á slysadeild til aðhlynning-
ar. Meiðsl eru ekki talin alvarleg.
Eldur kviknaði í rafmagnstöflu í húsi á Spítalastíg að morgni mánu-
dags. Talsverður reykur fór um allt húsið en skemmdir ekki miklar.
Samkvæmt skráningum voru
rúmlega 600 ökumenn stöðvaðir
og kannað ástand þeirra.
Leiðréttmg
Samtök verslunnarinnar hafa
ekki kært fyrirtækin Lyfju og
Hagkaup til Samkeppnisstofn-
unar eins og sagði í fyrirsögn í
Degi heldur hafa samtökin að
beiðni Islenskra eðalvara beint
því til stofnunarinnar að rann-
saka sölu, auglýsingar og kynn-
ingar Lyfju og Hagkaups á vör-
unni „rautt ginseng" frá Gintec
og grípa sem fyrst til aðgerða til
að koma í veg fyrir viðskiptahætti
þess, eins og sagði efnislega í
bréfi Samtaka verslunarinnar.
Leiðréttist þetta hér með.
FRÉTTIR
rD^ir
Verð á jólatrján er nú um allt land svipað því sem það var í fyrra. Myndin er afjólatréssölu í Kjarnaskógi á Akureyri.
mynd: brink
Norðmannsþmur
enn vinsælastur
Nokkur verðmimur á
jólatrjám milli sölu-
aðila, en mestur er
verðmunurinn á Norð-
mannsþini.
Jólatréssalan hófst fyrr í ár en
áður á Akureyri, eða um miðjan
nóvembermánuð. Venjulega fer
jólatréssalan ekki af stað fyrr en
viku af desember en vegna mark-
aðssetningar Akureyrarbæjar
sem jólabæjar, er fólk fyrr á ferð-
inni. Verð á jólatrjám er um allt
land svipað í ár og það var í fyrra,
einstaka tegundir hækka lítið eitt
en aðrar Iækka að sama skapi. A
Akureyri er samkeppni í
jólatrjáasölunni milli Gróðrar-
stöðvarinnar í Kjarnaskógi og
Friðfinns Magnússonar og telja
söluaðilar að salan sé meiri nú
en í fyrra og þakka það auknum
fjárráðum almennings. Nú sé
fólk að kaupa tré sem segist hafa
notast við gervitré síðustu ár.
Friðfinnur selur m.a. furu og
rauðgreni úr Vaglaskógi og er
auk þess með Norðmannsþin.
Norðmannsþmur og rauð-
greni
Vinsælustu trén eru Normanns-
þinur og rauðgreni og algengast
að fólk kaupi tré af stærðinni
1.50-1.75. Hjá Gróðrastöðinni
kostar Norðmannsþinur af þeirri
stærð 3.900 krónur en rauðgren-
ið 2.500 krónur. Verðmunur ligg-
ur fyrst og fremst í því að Norð-
mannsþinur er mun barrheldn-
ari. Hjá Friðfinni kostar Norð-
mannsþinur af stærðinni 1.75
réttar 3.800 krónur en 3.000
krónur af stærðinni 1.50.
Svipað og í fyrra
Kristinn Skæringsson hjá Land-
græðslusjóði í Reykjavík segir
söluna í ár svipaða og í fyrra en
fólk reyni að draga söluna eins
nærri jólum og mögulegt sé til
þess að komast hjá geymslu á
trénu og þvf verði síðustu dag-
arnir stærstu söludagarnir. Krist-
inn segir að jólatréssala Land-
græðslusjóðs eigi ákaflega trygg-
an hóp viðskiptavina sem koma
ár eftir ár og nú sé hann farinn
að sjá þriðja ættliðinn koma,
enda hafi hann starfað að þessu í
Iiðlega 40 ár. Hjá Landgræðslu-
sjóði kostar stafafura af stærð-
inni 1.50-1.75 metrar 3.770
krónur, en Kristinn segir stafa-
furu einstaklega barrheldna, en
mörgum finnst hún heldur gróf.
Vinsælust er hún hjá þeim sem
dvalið hafa erlendis. Mest er selt
af Norðmannsþini sem kostar
4.700 krónur. Rauðgreni kostar
2.360 krónur en verðmismunur
Norðmannsþins og rauðgrenis er
að minnka vegna meiri fram-
Ieiðslu í Danmörku en þegar
mismunurinn var mestur var
hann fjórfaldur. — GG
Staðgreiðslu-tekjur
hækkað um 14% nulli ára
Góðærið heldur áfram
á fljúgandi ferð 1999,
með hærri tekjum,
mikilli einkaneyslu
og 30 milljarða við-
skiptahalla.
I ljósi 14% hækkunar stað-
greiðsluskyldra tekna Iands-
manna fyrstu tíu mánuði ársins
og enn meiri einkaneyslu en ætl-
að var gerir endurskoðuð þjóð-
hagsáætlun, ráð fyrir 10% kaup-
máttaraukningu á mann á þessu
ári, í stað 8% í fyrri spá og svo 5%
til viðbótar á næsta ári. Aukning
einkaneyslu er talin 12% í ár og
síðan 6% á næsta ári. Saman-
burður aukinna tekna og eyðslu
bendir til að sparnaður heimil-
anna hafi minnkað. Skuldir þeir-
ra við lánastofnanir hafa aukist
um 12% á einu ári. Við blasir 35
milljarða viðskiptahalli í ár og 30
milljarðar til viðbótar á nýja ár-
inu. Verðbólguspá næsta árs er
2,5%.
Hagvöxturmn 25% á 4 ánun
Þjóðhagsstofnun spáir um og yfir
5% hagvexti á þessu ári og líka
1999, sem þá verður fjórða árið í
röð. Fara þarf tvo áratugi aftur í
tímann, eftir útfærslu fiskveiði-
lögsögunnar, til að finna þvílíkt
hagvaxtartímabil. Ilagvöxtur ár-
anna 1995-1999 er næstum
25%.
Vöruinnflutningur stefnir í
25% aukningu að magni á árinu,
eða 160 milljarða króna. Talið er
að hann haldi áfram á svipuðu
róli næsta ár, nema að meira
verði þá flutt inn af neysluvörum
en minna til ljárfestinga. Innflutt
þjónusta eykst líka um 20% í 67
milljarða.
Verðbólgan spök
Áætlað er að útflutningstekjur af
sjávarafurðum aukist um 3,5
milljarða þrátt fyrir 4% samdrátt
í magni. Tekjur af öðrum vöruút-
flutningi minnka um 1,5 millj-
arða, einkum vegna verðlækkun-
ar áls. Ákvörðun Flugleiða um að
flýta sölu flugvélar til þessa árs
eykur útflutningstekjurnar
óvænt svo alls verða þær 4 millj-
örðum meiri en í fyrra.
Atvinnuleysi hefur minnkað
hraðar í ár en áætlað var og talið
er að það minnki enn, í 2,5% af
mannafla, árið 1999. Þrátt fyrir
umtalsvert launaskrið, vaxandi
eftirspurn, lækkandi gengi og
minnkandi atvinnuleysi verður
verðbólga aðeins um 1,7% á
þessu ári. Að mati Þjóðhags-
stofnunar þokast hún aðeins upp
á við á nýja árinu, í 2,5%. — hei