Dagur - 22.12.1998, Side 5
ÞRIÐJUDAGVR 22. DESEMBER 1998 - S
FRÉTTIR
Fjárlðg afgreidd með
2,5 mmjarða afgangi
Tveggja og hálfs
milljarðs króna af-
gangur á að vera af
rekstri ríkisins á
næsta ári samkvæmt
fjárlögum sem Al-
þingi samþykkti áður
en jólahlé þess hófst.
Jólahlé Alþingis hófst um helgina
eftir að þingmenn höfðu afgreitt
tugi laga og þingsályktana á nærri
sólarhringslöngum fundi, þar á
meðal fjárlög næsta árs.
Rekstrarafgangur ríkissjóðs á
að vera 2,5 milljarðar króna á
næsta ári, en þegar fjárlagafrum-
varpið var lagt fram í haust var af-
gangurinn áætlaður tæplega 2
milljarðar. Þetta er þó ekki þvf að
þakka að útgjöld hafi verið skorin
niður í meðförum þingsins, þvert
á móti jukust þau um 3,1 milljarð
frá því sem fjárlagafrumvarpið
gerði ráð fyrir. Aætlaðar tekjur
jukust hins vegar mun meira eða
um 3,7 milljarða eftir að meiri-
hluti fjárlaganefndar hafði farið
yfir tekjuforsendur frumvarpsins.
Sala eigna á m.a. að skila 1300
milljónum króna meira en áður
hafði verið áætlað og skatttekj-
urnar eiga að verða rúmum 1800
milljónum meiri en áður var
reiknað með.
Fjármálaráðherra sagði í
lokaumræðu um fjárlögin að það
hefði ekki áður gerst að afgangur-
inn á ríkissjóði hefði aukist í
meðförum þingsins en minni-
hlutinn benti einnig á í sfnu
nefndaráliti að útgjöldin hefðu
heldur aldrei aukist jafnmikið við
meðhöndlun meirihlutans í fjár-
Iaganefnd og nú væri raunin.
Byggðaframlag
Einna þyngst vegur þar 300 millj-
óna króna framlag til Byggða-
stofnunar sem hefur hafið undir-
búning að stofnun eignarhaldsfé-
laga á landsbyggðinni sem ætlað
er að styrkja og auka íjölbreytni
atvinnulífs þar. Ugjöld ríkisins til
lífeyristrygginga aukast um 360
milljónir króna, en sem kunnugt
er hefur verið samþykkt að draga
úr tekjutengingu elli- og örorku-
lífeyris. Framlög til málefna fatl-
aðra voru hækkuð um 67 milljón-
ir, niðurgreiðsla á rafhitun hækk-
uð um 100 milljónir og 70 millj-
ónum króna verður varið til bygg-
ingar þjónustuskála við Alþingis-
húsið en alls er áætlað að hann
kosti 400 milljónir króna. Þá var
samþykkt við 3. umræðu fjárlaga
að hækka framlög til utanríkis-
ráðuneytisins um rúmar 70 millj-
ónir króna vegna Schengen sam-
starfsins.
Sala hjá
Adalverk-
tökiun
Alls fjórðungshlutur í íslenskum
aðalverktökum (IAV), eða hluta-
bréf að nafnverði 350 milljónir
króna, verður seldur í næstu
viku í tilboðssölu, sem einkum
beinist að stærri fjárfestum.
Lágmarksgengið er 1.75 og
býðst 358 starfsmönnum fyrir-
tækisins það gengi án tilboðs. I
síðasta mánuði voru 800 millj-
ónir króna af hlutafé IAV
greiddar út til núverandi hlut-
hafa til að draga úr sterkri eigin-
fjárstöðu fyrirtækisins. Islands-
banki og Landsbanki annast
sölu bréfanna í IAV og er tekið
við tilboðum dagana 28.-30.
desember. Af því sem selt verður
á ríkið 15% en Hömlur 10%.
Ekki þýðir að gera tilboð í minna
en 100 þúsund krónur að nafn-
verði og ekki er gert ráð fyrir að
einn tilboðsgjafi geti eignast
meira en 5% hlut. — FÞG
Sakar bæjarstjóra
um lágkúru
Hörð skeyti ganga á milli Snorra Baldurssonar, framkvæmdastjóra CAFF-skrif-
stofunnar, og Kristjáns Þórs Júlíussonar, bæjarstjóra á Akureyrí.
Forstöðumaöiir CAFF-
skrifstofunnar sakar
hæjaryfirvöld um
áhugaleysi og vau-
þekkingu. Hann undr-
ast viðhrögð Kristjáns
Þdrs og vísar því á
hug að persónuleg
mál ylirskyggi fagleg-
an metnað hans.
Snorri Baldursson, fram-
kvæmdastjóri CAFF-skrifstof-
unnar á Akureyri, segir misskiln-
ings og vanþekkingar gæta hjá
bæjaryfirvöldum á Akureyri varð-
andi eðli og starfsemi skrifstof-
unnar. Starfsemin sé fyrst og
fremst stjórnsýslulegs eðlis, ekki
vísindaleg eða fræðileg. Hlutverk
skrifstofunnar sé að framkvæma
og fylgja eftir ákvörðunum
stjórnar CAFF sem samsett sé af
fulltrúum heimskautaþjóðanna
átta en hún hafi sjálf ekki nema
að takmörkuðu leyti frumkvæði
að verkefnum. Bæjarstjórn Akur-
eyrar hefur ályktað gegn bréfi
sem Snorri sendi umhverfisráð-
herra og bæjarstjórinn á Akureyri
var harðorður í garð Snorra í
laugardagsblaði Dags.
Lágkúra bæjarstjóra
Vísar Snorri því þá algjörlega á
bug að hans eigin fjölskylduað-
stæður hafi áhrif á málflutning
hans og afstöðu til starfs skrif-
stofunnar’? „Eg vísa því á bug að
því Ieyti að það væri alveg sama
hvort framkvæmdastjórinn væri
búsettur hér á Akureyri. Skrif-
stofan væri jafn einangruð þótt
hann færi daglega í vinnuna á
hjóli á meðan ég þarf að fljúga.
Mínar persónulegu aðstæður
koma þessu máli ekkert við og
það er lágkúrulegt af bæjarstjóra
Akureyrar að ýja að því að ég eigi
í einhverri persónulegri baráttu
vegna málsins.“
Hefur hugleitt að hætta
Snorri hefur ekki fengið viðbrögð
við bréfi sínu til ráðherra þar
sem hann óskar eftir breytingum
á aðstæðum á Akureyri eða flutn-
ingi skrifstofunnar suður. Hve
mikið leggur hann undir ef engin
viðbrögð verða við óskum hans?
„Mér finnst afar ódrengilegt af
Kristjáni Þór bæjarstjóra að segja
að ég eigi frekar að hugsa um að
hætta þessu starfi, en að rústa
því. Það felst í þeim orðum hans
að bærinn hafi sjálfur unnið
þetta ágæta starf eins og hann
kallar það. Menn ættu kannski
að hugsa um í hverju uppbygging
starfsins hérna felst. Eg ætla ekki
að taka mér allan heiðurinn, en
skrifstofa af þessu tagi er auðvit-
að ekki veggir heldur fólk og ég
hef lagt mig fram um að sinna
þessu starfi vel. Eg hef vissulega
um nokkurt skeið hugleitt að
hætta, en þá færi það uppbyggin-
arstarf sem ég hef unnið á byij-
unarreit." — BÞ
Vilja virkja í Bjamarfiagi
Verkalýðsfélag Húsavíkur hefur
sent iðnaðarráðherra ályktun
stjórnar félagsins þess efnis að
félagið taki heilshugar undir
ályktun sveitarstjórar Skútu-
staðahrepps um hagkvæmni þess
að virkja í Bjarnarflagi. Er í álykt-
uninni skorað á iðnaðarráðherra
að beita sér fyrir því að Alþingi
samþykki heimild til virkjunar í
Bjarnarflagi.
Sjö sveitir hækka útsvarsprósentima
Átta sveitarfélög hafa tilkynnt um breytingar á útsvarsprósentu sinni
fyrir árið 1999, samkvæmt yfirliti frá Sambandi sveitarfélaga. Sjö
þeirra hækka álagningarprósentuna og þrjú þeirra, Borgarfjörður,
Bolungarvík og Húsavík, innheimta hámarksprósentu (12.04%) á
næsta ári. Út lágmarksálagningu (11.24%) og upp undir hámarkið
fara Reykjavíkurborg (í 11.99%) og Vestmannaeyjar (11.94%), en
Skaftárhreppur fer mun hóflegar í sakirnar sem og
Kolbeinsstaðahreppur. Skagahreppur lækkar hins vegar útsvars-
prósentu sína örlítið.
Af 124 sveitarfélögum í landinu er nú 71 komið í leyfilega
hámarksálagningu en einungis fimm eru eftir með útsvar í lágmarki:
Seltjarnarnes, Garðabær, Skilmannahreppur, Skorradalshreppur og
Ásahreppur. Þeir þrír síðastnefndu eiga „gullegg", þ.e. hafa miklar
tekjur af stóriðju, virkjunum og/eða sumarbústöðum. Rúmur tugur
sveitarfélaga verður ennþá með álagningarprósentu Iægri en 11.75%.
Styrkja Krabbameinsfélag
Frá afhendingu fjárins í gær.
Stjórn Hafnasamlags Norðurlands hefur ákveðið að styrkja
Krabbameinsfélag Akureyrar um 30 þúsund krónur í stað þess að
senda viðskiptavinum sínum jólakort. Þetta er gert í minningu
Guðmundar Sigurbjörnssonar fyrrverandi hafnarstjóra sem lést sl.
sumar langt um aldur fram.