Dagur - 22.12.1998, Page 6
t> - ÞRIÐJUD AGtiR 22. DESEMBER 199 8
ÞJÓÐMÁL
Útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: STEFÁN JÓN HAFSTEIN
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: í.soo KR. Á mánuði
Lausasöluverð: iso kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Simar auglýsingadeildar: (REYKJAvíK)S63-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRIJ460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is
Sfmbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyri) 551 6270 (reykjavík)
Pólitískur eiturpyttur
í fyrsta lagi
I annað sinn í sögu Bandaríkjanna hefur meirihluti repúblík-
ana í fulltrúadeild þingsins samþykkt ákærur á sitjandi forseta.
Málið er nú komið til öldungadeildarinnar sem við frekari
meðferð málsins fær hlutverk landsréttar. Þar þarf hins vegar
tvo þriðju hluta atkvæða til að reka forsetann úr Hvíta húsinu.
Þar sem repúblíkanar hafa einungis nauman meirihluta í öld-
ungadeildini eru engar líkur á að sú verði niðurstaðan.
í ööru lagi
Repúblíkanar gripu fyrst til slíkra aðferða gegn forseta Banda-
ríkjanna árið 1868. Andrew Johnson, sem tók við embættinu
þegar Abraham Lincoln var myrtur, lagði áherslu á að fylgja
fast fram stefnumálum Lincolns. Hann varð því fljótlega þyrn-
ir í augum ósvífinna leiðtoga repúblíkana sem vildu arðræna
Suðurríkin eftir tap þeirra í borgarastyijöldinni; hatur þeirra,
sem um margt minnir á þann eiturpytt sem stjórnmálin í Was-
hington hafa fallið í síðustu misserin, beindist allt að arftaka
Lincolns. Örfáir þingmenn repúblikana komu hins vegar í veg
fyrir að ákærurnar yrðu samþykktar í öldungadeildinni og
fórnuðu þar með pólitísku lífi sínu. Nöfn þeirra lifa meðal
annars í frægri bók eftir John F. Kennedy um hugrakka banda-
ríska stjórnmálamenn.
í þriðja lagi
Viðbrögð almennings við ákvörðun repúblíkana eru mjög á
einn veg. Skoðanakannanir sýna að vinsældir Clintons forseta
hafa aldrei verið meiri; hann á jafnvel meiri stuðning meðal al-
mennings nú en Ronald Reagan gat státað af á helstu velmekt-
ardögum sínum. Dagblöð vestra hafa líka snúist á sveif með
þjóðarviljanum og krefjast þess að öldungadeildin leysi málið
fljótt og á þann veg að forsetinn geti lokið kjörtímabili sínu.
Það væri farsælasta lausnin ekki aðeins fyrir Clinton heldur
líka fyrir repúblíkana sem uppskera skömm fyrir pólitískt of-
stæki sitt - alveg eins og flokksbræður þeirra fyrir 130 árum.
Elías Snæland Jónsson
Stafkirkja og
Trdjuhestur
Norðmenn ætla að gefa ís-
lendingum norska stafkirkju í
tilefni af aldarafmæli kristn-
innar í landinu. Kirkjuna á að
setja niður í Vestmannaeyjum.
Þetta er nýjasta útspilið í
Smugudeilum Norðmanna og
íslendinga, en það kom ekki í
lós fyrr en síðustu nóttina fyr-
ir jólafrí Alþingis að það mun
kosta íslenska skattborgara 38
milljónir að taka við gjöfinni.
Norðmenn ætla greinilega að
breyta um taktík og í
stað þess að taka skip
og brúka munn, munu
þeir einfaldlega gera
Islendinga gjaldþrota.
Sjálfir eiga Norðmenn
auðvitað sand af seðl-
um og myndi ekkert
muna um að borga
brúsann allan, en trix-
ið er að kenna þessum
íslendingum lexíu og
gera þeim grein fyrir
stöðu sinni í samfélagi þjóð-
anna.
Myudarlegt
framlag
Sérstaka Ijárveitingu þarf
semsé fyrir kirkjunni á fjárlög-
um og er framlagið til gjafa-
móttökunnar fjall myndarlegt
miðað við það sem tíðkast á
því sviði. Undir venjulegum
kringumstæðum hefði beiðni
um svona framlag verið hafn-
að umsvifalaust, en þar sem
þetta er talið til milliríkjasam-
skipta hafa menn ákveðið að
þiggja þennan kaleik fyrir siða-
sakir. Alþingi gerir sér þó enga
grein fyrir eðli málsins eins og
sést best á því að fjárlaga-
nefndarmaðurinn Árni John-
sen hefur gefið út yfirlýsingu
V
um að ekkert sé athugavert við
að setja peninga í þetta mál og
er einsýnt að þingmaðurinn
áttar sig ekki á að Norðmenn
eru að nota hann í Smugu-
stríði sínu við Islendinga.
Og svo koma
göngin
Greinilegt er að Árni lítur
norsku stafkirkjuna sömu aug-
um og hann lítur Keikó. Hún
er fyrirbæri sem mun
auka til mun aðdrátt-
arafl Vestmannaeyja
og ef nógu margt er
gert til að auka að-
dráttaraflið þá er ljóst
að Herjólfur og áætl-
unarflugið mun hvergi
anna eftirspurninni
eftir ferðum út í Eyjar.
Þá munu menn sjá að
neðansjávargöng eru
það eina sem blívur og
þegar sú uppgvötun lýstur
huga landsmanna munu menn
jafnframt lofa Árni Johnsen
fyrir þá framsýni að hafa náð
að knýja fram undibúning að
gerð jarðganga til Eyja. Og
með þjóðhetjuna Árna í broddi
fylkingar munu íslendingar
fylgja færeysku línunni og ráð-
ast í rándýra gangagerð til þess
að allir geti skoðað Keiko og
nýju stafkirkjuna norsku. Svo
fara menn bara á hausinn í ró-
legheitunum. En í baslinu sem
fylgir í kjölfarið munu menn
hætta að kenna börnunum
söguna um Trójuhestinn, en
tala þess í stað um norsku staf-
kirkjuna. GARRl
JÓHANNES
SIGURJÓNS-
SON
skrifar
Bjöme-Banden á Alþingi?
Að mati þeirra sem fylgjast
grannt með samtímabókmennt-
um þá er sennilega ekki til verri
óaldarflokkur og samsafn lög-
brjóta en þeir bræður og frænd-
ur sem skipa Björne-banden og
sagt er frá í blöðunum um Andr-
és Önd. En nú hafa Bjarnar-
bófarnir eignast verðuga keppi-
nauta á vettvangi lögbrota, og þá
er einkum að finna á hinu háa
Alþingi íslendinga. Því ef það er
eitthvað sem öðru fremur hefur
einkennt þetta ár sem senn Iíður
í aldanna skaut, þá eru það ólög-
mætar aðgerðir af ýmsum toga,
lögbrot og sniðganga stjómvalda
við Iög og rétt. Og ýmsir fleiri
hafa fylgt fordæmi leiðtoganna f
þessum efnum. Það þarf ekki
annað en að fletta Degi í sfðustu
viku til að fá staðfestingu á þess-
ari kenningu.
Sómamenn á Sómastöðum
Þar er auðvitað fjallað um dóm
hæstaréttar í kvótamálinu, þar
sem fram kemur að stjórnvöld
hafa verið að framfylgja Iögum
um árabil sem stangast á við
stjórnarskrána. Ennfremur eru
áfram uppi vangaveltur um að
nýsamþykkt lög
um miðlægan
gagnagrunn
standist ' ekki
ýmsar alþjóða-
samþykktir og
mannréttindaá-
kvæði. Og fleira
er að finna í Degi
í síðustu viku,
sem raunar líktist
meira Lögreglutíðindum en
venjulegu dagblaði þessa daga.
Eftirlitsnefnd EFTA hefur
kveðið upp þann úrskurð að
ákvörðun ríkisstjórnarinnar um
útboð á smíði varðskips á Is-
landi, uppfylli ekki kröfur og
skilyrði sem gilda á evrópska
efnahagssvæðinu.
Hæstiréttur felldi og dóm þess
efnis að sú ákvörðun Guðmund-
ar Bjarnasonar að flytja Land-
mælingar upp á Akranes, hefði
verið ólögleg. Sömuleiðis felldi
sami réttur úr gildi ákvörðun
sama ráðherra frá
árinu 1996, að
fella úr gildi synj-
un bygginga-
nefndar Reyðar-
fjarðar um leyfi
til að rífa íbúðar-
hús á jörðinni
Sómastöðum.
Þá kemur og
fram að Öryrkja-
bandalagið hugleiðir málsókn á
hendur ríkinu vegna grófra svika
á gefnum loforðum og brota á
stjórnarskrá og mannréttinda-
sáttmálum.
Glæpamenn í hverju homi?
Og fleiri en ríkið stunduðu lög-
brot á síðum Dags í fyrri viku.
Sjómenn unnu mál gegn útgerð-
um vegna ólöglegrar þátttöku í
kvótakaupum. Meirihluti hæsta-
réttar ógilti ráðningu forstjóra
Kirkjugarða Reykjavíkur vegna
brota á jafnréttislögum. Vanga-
veltur voru um hvort útsvars-
hækkun í Reykjavík væri ólög-
mæt vegna ólöglegra innáskipt-
inga í borgarstjórn. Og sjálf lög-
reglan hefur ekki hreinan skjöld
frekar en aðrir, því hæstiréttur
úrskurðaði að lögreglu hefði ver-
ið óheimilt að svipta ökumann
ökuréttindum vegna meints
hraðaaksturs. Og svo mætti lengi
halda áfram að tína upp glæpa-
málin af sfðum Dags í síðustu
viku.
Er furða þó menn setji hljóða
svona rétt lyrir jólin og hugleið-
ingar vakni um hvert stefni hjá
þessari þjóð í glæpamálunum.
Hverjir verða uppvísir að lög-
brotum næst? Jólasveinarnir?
Jesúbarnið?? Ég???
D^w-
mokm
svairaö
Á Clinton iid segja af
sér?
Jón Ársæll Þórðarson
„Nei, ég sé
ekki að
kvennamál
Bandarfkja-
forseta hafi
neitt með að
gera hæfni
hans til að
stjórna hinu
mikla ríki,
Bandaríkjum Norður-Ameríku.
Þú spyrð um trúverðugleikann,
maðurinn er sjarmör og það fer
ekki fram hjá neinum. Ég vildi til
dæmis vera með hárið hans
Clintons og geta spilað á saxa-
fóninn.“
Rósa Ingólfsdóttir
auglýsingateiknari.
„Clinton á
að halda
ótrauður
áfram og
halda sínu
striki. Láta
sem ekkert
sé. Hann er
ekta fress,
karlmaður
frá toppi til táar og verður að fá
að halda því þó allt sé í heimin-
um hverfult. Okkur konum veit-
ir ekkert af mönnum einsog
Clinton, sem hanast um og
sperra sig í stél á hornum."
Gunnlaugur Sigmundsson
alþingisntaður.
„Alls ekki. í
embættistíð
sinni í Hvíta-
húsinu hefur
Bill Clinton
látið margt
gott af sér
leiða, hefur
til dæmis
brotið á bak
aftur þá gegndarlausu íhalds-
hyggju sem var orðin áberandi í
þjóðlífi vestanhafs. Nú er miklu
fremur starfað í anda félags-
hyggju vestra, til dæmis í skóla-
málum. Á þeim árum sem Clint-
on hefur setið á forsetastóli hef-
ur verið sótt að honum úr ýms-
um áttum, m.a. vegna kvenna-
og peningamála, en þau spjóta-
lög hefur hann staðið af sér.
Kvennamálin sýna kannski fyrst
og fremst að þetta er lifandi
maður.“
Margrét Frímannsdóttir
fonnaðurAlþýðubandalagsins.
„Á öllum
stigum hefur
verið farið
offari í um-
ræðunni um
Clinton og
mál hans, en
engu að síð-
ur hlýtur að
vera mjög
erfitt fyrir hann að starfa áfram
og njóta þeirrar virðingar og
trausts sem hann þarf í þetta
starf. En hann verður hinsvegar
að eiga það alveg við sjálfan sig
og bandaríska þingið hvort hann
situr áfram eða hættir, það er
ekki mitt aðliafa skoðun á því.“
fréttamaðurá Stöð 2.