Dagur - 22.12.1998, Blaðsíða 8
8 -ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 199 8
FRÉTTASKÝRING
Streðum þetta ekki i
SIGURDÓR
SIGURDÓRS
SON
SKRIFAR
Formeim Allokkaima
segja samningaviðræð-
um við Kveimalistaim
lokið - komimar segja
þreifingar í gangi bak
við tjöldin.
Enda þótt formenn A-flokkanna
og fulltrúar sömu flokka í níu
manna nefndinni til undirbún-
ings framboði fyrir samfylking-
una, hafi lýst því yfir að frekari
fundahöld og samningaumleitan-
ir við Kvennalistann séu ekki á
dagskrá tala kvennalistakonur
enn eins og málið sé á dagskrá.
Síðastliðinn laugardag óskaði
Kvennalistinn eftir fundi í nefnd-
inni. Þar komu fram sömu kröfur
frá þeim og A-flokkarnir höfðu
áður hafnað og lauk svo fundi að
ekkert breyttist. Þar ræddu
kvennalistakonurnar enn um að
fá 3. og 7. sætið á listanum í
Reykjavík. Kratar tóku fyrir löngu
af skarið með það að ekki komi til
greina að Kvennalistinn fái eitt af
þremur efstu sætunum. En 4.
sætið stendur þeim til boða.
„Það eru haínar þreifingar bak
við tjöldin til að reyna að finna
lausn,“ sagði Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir kvennalistakona í samtali
við Dag í gær en sagðist að öðru
leyti ekkert vilja um stöðuna
segja. Guðný Guðbjörnsdóttir
þingkona sagði í útvarpsviðtali
um helgina að enn væru helm-
ings líkur á að Kvennalistinn
verði með í samfylkingunni. I
Ijósi þess að báðir formenn A-
flokkanna hafa lýst því yfir að við-
ræðunum sé lokið, A-flokkarnir
séu lagðir af stað í kosningaund-
irbúning og Kvennalistanum sé
velkomið að vera með en sam-
kvæmt því samkomulagi sem A-
flokkamir hafa gert með sér.
„Kvennalistinn verður bara að gera það upp við sig og taka afskarið hvort hann ætlar að vera með og ganga inn í samkomuiag það sem A-flokkarnir hafa gert i
lengi," segir Haukur Már Haraldsson einn af samningamönnum Alþýðubandalagsins. mynd: teitur
Strekkjum þetta ekki meira
Sighvatur Björgvinsson, formað-
ur Alþýðuflokksins, sagði í sam-
tali við Dag fyrir síðustu helgi að
tilraunum til samninga við
Kvennalista væri hætt. A-flokk-
arnir færu nú að vinna í samfylk-
ingarmálunum fyrir alvöru.
Kvennalistakonum væri velkomið
að vera með ef þær vilja en þá
miðað við það samkomulag sem
náðst hefur milli A-flokkanna.
Hefur eitthvað breyst í þessum
málum yfir helgina?
„Nei, nú eru menn bara að
Ijúka þessum verkum og ef
Kvennalistinn vill koma með er
honum það velkomið en menn
eru ekkert að strekkja þessi mál
meira. Undirbúningur að próf-
kjörum, þar sem þau fara fram,
eða uppstillingu á lista þar sem
það á við, hefst síðan fljótlega
upp úr áramótunum. Eg á von á
því að gengið verði frá reglum um
framkvæmdir og annað í flokks-
stofnunum A-flokkanna milli jóla
og nýárs eða í byrjun næsta árs,“
sagði Sighvatur Björgvinsson í
samtali við Dag í gær.
Viðræðum er lokið
Haukur Már Haraldsson, einn
þriggja fulltrúa Alþýðubandalags-
ins í níu manna nefndinni, tekur
í sama streng.
„Það er fullkomið samkomulag
milli A-flokkanna í samfylkingar-
málunum. Eg met stöðuna í dag á
þann veg að ef Kvennalistinn vil
vera með þá verður hann að
ganga inn í það samkomulag. Eg
lít einfaldlega svo á að viðræðum
sé lokið. Eg sé ekki til hvers
menn ættu að vera að teygja
Iopann lengur. Kvennalistinn
verður bara að gera það upp við
sig og taka af skarið hvort hann
ætlar að vera með og ganga inn í
samkomulag það sem A-flokkarn-
ir hafa gert og staðið hefur
Kvennalistanum til boða lengi.
Nú þurfa stofnanir A-flokkanna
bara að afgreiða málið formlega.
Síðan vil ég að sem allra fyrst
verði hafist handa við kosninga-
undirbúning á öllum sviðum,"
sagði Haukur Már í samtali við
Dag í gær.
Margrét Frímannsdóttir, for-
maður Alþýðubandalagsins, sagði
í samtali við Dag sl. laugardag að
hún liti svo á að viðræðum væri
lokið, lestin væri lögð af stað og
Kvennalistinn réði því hvort hann
yrði með eða ekki.
Enda þótt formenn A-flokk-
anna og fulltrúar þeirra í níu
manna nefndinni segi opinber-
lega að viðræðum sé lokið halda
kvennalistakonur því alltaf fram
að málinu sé ekki lokið. Þreifing-
ar fari fram bak við tjöldin eða að
helmings líkur séu á því að þær
verði með í samfylkingunni. Þess-
ar yfirlýsingar þeirra hafa ruglað
marga í ríminu og fólk segist al-
mennt ekki skilja stöðuna. Sam-
kvæmt því sem formenn A-flokk-
anna segja er viðræðum við
Kvennalistann um samfylkingar-
mál lokið.
Að sögn þeirra sem næst þess-
um samningamálum hafa komið
eru ástæðurnar fyrir þessari fram-
komu kvennalistakvenna einkum
tvær. Annars vegar eru nokkrar
konur sem eiga sér þann pólitíska
draum heitastan að samfylkingA-
flokka og Kvennalista verði að
veruleika. Þar í hópi er Steinunn
Valdís Óskarsdóttir, sem var einn
af stofnendum Grósku. Hún og
raunar fleiri kvennalistakonur
hafa lagt sig mjög fram um að
þessi tilraun megi heppnast. Síð-
an eru það þær sem sjá bara þing-
sætin fyrir Kvennalistann í þessu
máli. Þær neita að horfast í augu
við þá staðreynd að Kvennalistinn
hefur varla mælst í skoðanakönn-
unum í mörg misseri. Hann
skipti því orðið afar litlu máli fyr-
ir samfylkinguna hvað atkvæði
snertir. Asýndin væri betri eftir
því sem fleiri taka þátt í samfylk-
ingunni.
Einnig er á það bent að það
skiptir ekki máli fyrir Kvennalist-
ann, sem talar um að tryggja kon-
um 3 þingsæti, hvort þær fá 3.
eða 4. sætið í Reykjavík. Krafa
þeirra um 3. sætið og það að
hleypa öllu upp vegna þess sé
bara persónulegur metnaður ein-
staklings. Kvennalistanum stend-
ur til boða 8. sætið í Reykjavík og
4. sætið á Reykjanesi. Þar með
ættu konunum að vera tryggð
þijú þingsæti.
Þá hefur líka verið á það bent
að skipulagið hjá Kvennalistan-
um sé ef til vill þeirra örlagavald-
ur í þessum samningamálum.
Samningakonur Kvennalistans
geti ekki komið með tillögur sem
þær síðan geta borið undir fund í
Kvennalistanum. Þær eru hins
vegar sendar til funda með
ákveðna uppskrift, sem þær megi
alls ekki fara út fyrir. Hver minns-
ta ákvörðun er síðan borin upp á
símasamráðsfundi Kvennalistans.
Þess vegna verður allt svo stirt í
vöfum og tekur svo langan tíma
að semja við Kvennalistann, segja
þeir sem staðið hafa í því í allt
haust.
SamfylMngin út um land
í öllum kjördæmum nema á Aust-
urlandi, hefur verið beðið eftir
úrslitum samningamála í Reykja-
vík. Víða er farið að gæta óþreyju
því menn vilja hefja kosningabar-
áttuna sem lyrst. I Reykjaneskjör-
dæmi hefur Kvennalistanum ver-
ið boðið 4. sætið á Iistanum og
enginn ágreiningur þar um. Al-
þýðubandalagsmenn á Reykja-
nesi vilja að fram fari prófkjör
vegna þess að þar keppa einir þrír
eða fjórir að efsta sæti flokksins á
Iista samfylkingarinnar. Þetta eru
þau Sigríður Jóhannesdóttir al-
þingismaður, Ari Skúlason, fram-
kvæmdastjóri ASI, Magnús Jón
Arnason kennari og síðan hefur
nafn Skúla Thoroddsen lögfræð-
ings, bæst í hópinn.
Kratar á Reykjanesi hafa lýst
því yfir að þeim sé sama hvort
fram fari prófkjör með girðingum
eða hvort stillt verður upp á lista.
A-flokkarnir munu vera sammála