Dagur - 22.12.1998, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 199 8 - 9
Tfc^ur
neir
ig staðið hefur Kvennalistanum til boða
um að tryggja Kvennalistanum 4.
sætið hvort heldur að stillt verði
upp eða að prófkjör fari fram.
A Suðurlandi mun listinn svo að
segja tilbúinn. A Austurlandi er list-
inn þegar tilbúinn og hefur verið
birtur. I Norðurlandskjördæmunum
báðum er samkomulag um að fram
fari prófkjör. A Vestfjörðum er list-
inri' svo gott sem ákveðinn en þar
verður Sighvatur Björgvinsson í
efsitá sæti en séra Karl Matthíasson
í öðru sæti. A Vesturlandi er vand-
inn sá að leiðtogar beggja A-listanna
eiga heima á Akranesi og enda þótt
Akranes sé lang stærsti kaupstaður-
inn £ kjördæminu þykir það slæmt
að vera með Akurnesinga í tveimur
efstu sætunum. Fróðir menn segja
að það sé alveg sama þótt fram fari
prófkjör, þeir Gísli S. Einarsson al-
þingismaður og Jóhann Arsælsson
fyrrverandi alþingismaður, verði
samt í tveimur efstu sætunum.
Þyf má segja að staðan hjá sam-
fylkingunni sé mjög góð hvað fram-
boðslista varðar nema þetta ströggl
sem verið hefur í Reykjavík síðustu
vikurnar en virðist nú vera á enda.
FJÁRMÁLARÁÐU N EYTI
Fjármálaráðuneytið starfar skv. lögum um Stjómarráð íslands, nr. 73/1969.
1 ráðuneytinu starfa um 65 starfsmenn. Það skiptist í fjórar skrifstofur,
tekju- og lagaskrifstofu, starfsmannaskrifstofu, fjárreiðu- og eignaskrifstofu
og fjárlagaskrifstofu, auk rekstrar- og upplýsingadeildar ráðuneytisins.
Starfið er laust frá áramótum. Laun eru samkvæmt ákvörðun kjaranefndar.
Umsóknum skal skilað til fjármálaráðuneytisins fyrir föstudaginn 8. janúar
1999. Nánari upplýsingar veitir ráðuneytisstjóri, í síma 560 9200.
Sjukir borga meira fyrir lyfln
LyfjíLkostnaður ríkis-
ins hækkar vegna
nýrra og dýrari lyfja
og sjúklingar eiga að
borga hærra hlutfall
verðsins.
Greiðsluhlutfall sjúklinga í lyfja-
verði hækkar núna um áramótin
með svipuðum hætti og tvenn
undanfarin áramót, segir í til-
kynningu frá heilbrigðisráðu-
neyti. Að mati lyfjahóps Samtaka
verslunarinnar þýðir þetta um
200 milljóna auknar álögur á
sjúklinga á næsta ári. Greiðslur
almannatrygginga í Iyljakostnaði
lækka samt ekki, heldur hækka
líka um 200 milljónir á næsta ári,
upp í 4.100 milljónir.
Fyrsta þúsiutdkallmn
Fyrir E-merkt lyf, sem er algeng-
asti Iyfjaflokkurinn, verður sjúk-
lingur á nýja árinu að greiða
fyrstu 1.000 kr. í stað 900 króna
nú, og síðan 80% þess sem um-
fram er í stað 60%. Hámarksupp-
hæð sem sjúklingur greiðir
hækkar úr 3.300 kr. upp í 3.500
krónur. Þetta þýðir t.d. að hlutur
sjúklings í 2.000 kr. lyfi hækkar
úr 1.560 krónum í 1.800 krónur
(15%) og í 4.000 kr. lyfi úr 2.760
krónur í 3.400 krónur (23%).
Fyrir elli- og örorkulífeyrisþega
hækkar grunnupphæðin úr 300
kr. í 350 krónur, umframhlutfall-
ið úr 30% upp í 40% og hámarks-
upphæðin úr 900 upp í 1.000
krónur.
Þess má geta að samkvæmt
verðmælingum Hagstofunnar
hækkaði lyfjaverð til sjúklinga
um tæplega 8% að meðaltali um
síðustu áramót. Samkvæmt
framansögðu mega sjúklingar nú
vænta álíka hækkunar. — HEI
Lögreglan fær ekki bréf
Lögreglustjóraembættið í
Reykjavík hefur enn ekki fengið
fyrirspurn sem borgarráð sam-
þykkti í síðustu vikunni í nóvem-
ber að beina til embættisins, en
þar var spurt um afstöðuna til
þess að afturkalla vínveitingaleyfi
hjá veitingahúsum sem verða
uppvís að skattsvikum.
Samþykkt borgarráðs var
svohljóðandi: „Itrekaðar fréttir
hafa borist af meintum skattsvik-
um einstakra vínveitingahúsa í
Reykjavík. Þrátt fyrir að veruleg-
ur árangur hafi náðst á undan-
förnum árum hvað varðar skil
opinberra gjalda, er þó ljóst að
enn er víða pottur brotinn í þeim
efnum og kröfur Reykjavíkur-
borgar ekki verið uppfylltar. Því
óskar borgarráð eftir afstöðu lög-
reglunnar í Reykjavík til þess
hvort rannsóknir á skattskilum
þessara aðila og mögulegri svartri
atvinnustarfsemi gefi tilefni til
afturköllunar vínveitingaleyfis.“
Að sögn Karls Steinars Valssonar
í forvarnardeild lögreglustjórans
verður erindið skoðað þegar það
berst. - FÞG
Fjármálaráðuneytið
Skrifstofustj óri
Laust er starf skrifstofustjóra í fjármálaráðuneytinu. Honum er falið að stýra
tekju- og lagaskrifstofu ráðuneytisins. Á skrifstofunni starfa nú 8 sérfræðingar
auk ritara. Meginhlutverk skrifstofunnar er að vinna að skattafræðilegum
málefnum, annast undirbúning lagafrumvarpa og túlkun laga.
Skrifstofan fer m.a. með:
• Skatta-, tolla- og lífeyrismál.
• Stjórnsýslu rfkisstofnana á þessu sviði.
• Alþjóðleg samskipti.
Menntun og hæfni:
• Háskólapróf í lögfræði, viðskiptafræði, hagfræði eða sambærileg menntun.
• Stjómunar- og skipulagshæfileikar.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Þekking á sviði skattamála og/eða stjómsýslu er kostur.
• Góð tungumálakunnátta.
Að mati lyfjahóps Samtaka verslunarinnar verða 200 milljóna króna auknar álögur á sjúklinga á næsta ári.