Dagur - 22.12.1998, Blaðsíða 13
ík^v ís.'j.aAWU'íii.H.'i. -_
ÞRIÐJUDAGU R 22. DESEMBER 1998 - 13
-*****>
isMjwr_
ÍÞRÓTTIR
L
Arsenal skaut Leeds á kaf
Manchester United
saknar Brian Kidd.
Tíu Tottenhamleik-
menn máttu sín lítils
gegn Chelsea. Arsenal
og Liverpool sýndu
vígtennumar eftir
langa hið. Derhy fat-
ast flngið. Notting-
ham Forest komið á
hotninn.
Leikur 18. umferðarinnar í
Englandi var á Old Trafford. Fyr-
irliði United í 12 ár, Brian Rob-
son, kom með lærisveina sína frá
Middlesbrough og leiddi þá til
sigurs, 2-3 eftir að hafa náð
þriggja marka forskoti. Annar
fyrrum United-maður, Gary Pall-
ister, átti ekki lítinn þátt í sigrin-
um. Hann var klettur í vörn gest-
anna og sýndi sínum fyrri stuðn-
ingsmönnum að hann er enn
knattspyrnumaður í úrvalsflokki.
„Það er alltaf sérstakt að vinna
Manchester United. I mínum
huga er United enn besta lið
Englands og þess vegna er það
mjög gaman að koma hingað aft-
ur og hafa sigur,“ sagði Brian
Robson, knattspyrnustjóri Boro.
Brian Kidd er sárt saknað frá Old
Trafford. Alex Ferguson og leik-
menn hans gerðu sér strax grein
fyrir hve mildll missir var af
Kidd, nokkuð sem eigendur og
stjórnarmenn sáu ekki þegar þeir
tímdu ekki að hækka launin
hans um „smáræði". Með nísk-
unni nánast flæmdu þeir hann í
burtu.
Það var einnig stórleikur á
Stamford Bridge þegar Totten-
ham heimsótti Chelsea. Heima-
menn voru heldur sterkari án
þess þó að vera í einhverjum
vígaham. Það var ekki fyrr en
Chris Armstrong, framherji
Tottenham, var rekinn af velli
sem hjólið fór að snúast. Poyet
og Tore Andre FIo kláruðu dæm-
ið fyrir heimamenn.
Arsenal á sama stað og fyrir
ári
Arsenal opnaði vopnabúrið upp
á gátt á sunnudaginn þegar
Leeds kom í heimsókn. Leik-
menn Arsenal sýndu sínar bestu
hliðar og sendu gestina frá sér
stigalausa. Sigurinn, 3-1, var
fyrsti sigur meistaranna í sex
leikjum. Það sem gladdi augað
mest voru mörkin sem öll voru
gullfalleg. „Við höfum ekki náð
að sýna jafn góða leiki og í fyrra
en þessi leikur lofar þó góðu fyr-
ir framhaldið,“ sagði Dennis
Bergkamp, sem lék sinn besta
leik fyrir Arsenal í haust. Meist-
ararnir eru nú í sjötta sæti deild-
arinnar, nákvæmlega á sama stað
og þeir voru á þegar jólatörnin
hófst á síðustu leiktíð. Annar
risi, nú á brauðfótum, Liverpool,
vaknaði til lífsins eftir langa bið.
Sheffield Wednesday átti aldrei
möguleika á Anfield og langþráð-
ur sigur varð staðreynd. Fyrir
utan 2-0 sigurinn var það Paul
Ince sem gladdi heimamenn
hvað mest. Aldrei þessu vant
eyddi hann kröftum sínum í fót-
boltann en ekki tuð og þvarg við
dómara og andstæðinga. Fyrir-
liðinn átti stórleik og fékk 9 í
einkunn hjá nokkrum fjölmiðl-
um. Newcastle fagnaði einnig
langþráðum sigri. Leicester, sem
mætt var í heimsókn, getur nag-
að sig í handarbökin fyrir að hafa
tapað þrem stigum. Þeir áttu
bestu færin og hefðu getað gert
út um leikinn strax í fyrri hálf-
leik.
Gamla stórveldið komið á
botninn
Nottingham Forest er komið í
neðsta sæti deildarinnar. Það
dugði liðinu ekki að ná tveggja
marka forskoti í fyrri hálfleik,
gegn Blackburn. Brian Kidd ger-
breytti Ieik sinna manna í seinni
hálfleik og þeir náðu að jafna í
blálokin. Fallbaráttan verður því
enn eina ferðina hlutskipti For-
est sem fyrir fáum árum var stór-
veldi í enskri knattspyrnu. Noel
Wealan sá um að heimamenn í
Coventry fengu stigin þrjú úr
viðureign sinni við Derby með
eina marki leiksins. Ekkert geng-
ur eða rekur hjá Derby þessa
dagana og liðið sígur niður stiga-
töfluna hægt og bítandi. West
Ham hrökk aftur í gang eftir
stutt hikstakast. Nú var það Ev-
erton sem beið lægri hlut á
Upton Park og Hamrarnir halda
sér við toppbaráttuna.
Southampton vann góðan sig-
ur á Wimbledon á The Dell á
laugardaginn. Norðmaðurinn,
Egil Ostenstad, skoraði tvö af
þremur mörkum heimamanna
sem þokuðu sér þar með úr
botnsætinu. — GÞÖ
Fiorentina með
þrjú stig á Parma
Sampdoria gerði
jafntefli í fyrsta leik
liðsins uinlir stjóm
Platts.
Lið Fiorentina er efst í ítölsku
1. deildinní þegar leikmenn
halda í jólaleyfi með 29 stig eft-
ir 14 umferðir og markatöluna
26:14 en liðið gerði jafntefli á
útívelli gegn Perugía, 2-2, og
jöfnuðu heimamenn úr víta-
spvrnu á lokamínútu venjulegs
leiktíma. Parma fylgir þeim
eins og skugginn og er með 26
stig, síðan kemur AC-Milan
með 25 stig, Internazionale
með 24 stig og AC-Roma og
Lazio með 23 stig. Stjörnum
prýtt lið Juventus er „aðeins“
með 21 stig en það vann sann-
færandi sigur á botnliðinu Sal-
ernitana, 3-0.
Önnur úrslit voru þau að
Bologna vann Cagliari á útivelli
1-0, Parma vann Empoli á úti-
velli 5-3, Lazio vann Udinese á
heimavelli 3-1, Piacenza vann
Bari 3-2 í miklum baráttuleik,
Sampdoria sem nú er undir
stjórn David's Platt gerði jafn-
tefli á heimavelli gegn AC-Mil-
an 2-2 en markatala liðsins,
14:27, bendir til að vörnin sé
oft úti í skógi. Inter Milan vann
AS-Roma á heimavelli 4-1.
Loks gerðu Vicenza og og botn-
liðið Venezia steindautt jafn-
tefli, 0-0. Venezia er aðeins
með 11 stig og hefur aðeins
unnið tvo leiki í vetur. Aðrir
leikir á getraunaseðli voru
Lecce gegn Napoli 3-1, Cesena
gegn Torino 0-1, Reggiana
gegn Atalanta 0-0 og Cremo-
nese tapaði gegn Prescara á
heimavelli, 0-3. — GG
ÍÞR Ó TTAVIÐTALIÐ
LeiMö gegn Rússum og Króötum
í undankeppni HM
TheodórGuð-
finnsson
þj'álfari íslenska kvenna-
landsliðsins í handknattleik
íslensku kvennálandslið-
in í handknattleik, þ.e.A-
landsliðið, U-19 ára liðið og
„2004-liðið“ leika lands-
leiki við Grænlendinga um
jólin, og erleikurinnviðA-
landsliðiðfyrsti opinberi
landsleikur Grænlendinga
síðan þeirfengu viðurkenn-
ingu IHF.
— Norómenn urðu Evrópu-
tneistarar í handknattleik
kvenna utn helgina, unnu
heitns- og olympíumeistara
Dana í úrslitum 24-16 og er
þetta fyrsti sigur Norðmanna á
stórmóti. Hvernig fannst þér sá
handbolti sem liðin léku?
„Eg sá í sjónvarpi bæði úrslita-
Ieikinn og Ieikinn um þriðja sæt-
ið milli Ungveijalands og Austur-
ríkis sem Ungverjar unnu stórt.
Það var yfirleitt mikill hraði í
leikjunum og því töluvert mikið
af mistökum. I úrslitaleiknum
voru þó ekki skoruð nema 40
mörk en markvarslan var alveg
frábær, sérstaklega hjá Norð-
mönnum sem skóp þennan stóra
sigur og góðar sóknarnýtingar.
Norsku stelpurnar náðu að
bijóta niður helsta vopn Dana til
margra ára, hraðaupphlaupin,
voru ótrúlega fljótar til baka.
Norska liðið var það besta í mót-
inu og verðskuldaði sigurinn en
þær vinna alla leikina í útslita-
keppninni, m.a. Ungverja í und-
anúrslitum með 14 marka mun.
Margir leikirnir enduðu með
miklum markamun sem kemur á
óvart. Við stöndum langt að baki
þessum liðum þó við höfum ver-
ið að spila ágætlega gegn liðum
sem við höfum verið að tapa
stórt fyrir aður. Við töpuðum t.d.
fyrir Austurríki í Tyrklandi með
fimm mörkum, en Austurríki
lenti f 4. sætinu.“
— Hvernig getum við eflt
kvennahandboltann?
„Það er algjört skilyrði að auka
breiddina og að hér aukist sam-
keppni um stöður. Við erum að
æfa auk A-landsliðsins 2004-Iið
sem er með lengrí sýn í huga og
svo U-19 Iandsliðið sem spilar í
vor í undankeppni HM. í U-19
liðinu er aðeins ein stelpa sem
ekki er að spila í 1. deild. Þær
ættu í hæsta lagi að vera ein til
tvær ef það væri einhver breidd.
Það vantar tilfinnanlega breidd í
hóp eldri leikmanna en það þyk-
ir ekki fínt á meðal kvenfólks að
vera í handbolta, mun fleiri æfa
knattspyrnu. Það er gríðarlega
mikil umfjöllun um knattspyrnu
í fjölmiðlum á sama tíma og við
eigum heilt landslið spilandi í
þýska handboltanum en við sjá-
um ekki einn einasta leik frekar
en frá norska kvennahandbolt-
anum þar sem m.a. spilar Fann-
ey Rúnarsdóttir sem er í fanta-
formi. Þetta hefur áhrif.“
— Hvernig finnst þér leikirn-
ir í úrvalsdeild kvenna hafa
verið í haust?
„Þetta hefur verið frekar slak-
ur handbolti og lakari en ég átti
von á og aðeins tvö lið sem eru
að spila af einhveiju viti. Hluti
skýringarinnar er sá að margar
byrja mjög seint að æfa á sumr-
in. Stjarnan er yfirburðalið í
deildinni í dag þó leikmanna-
hópur þeirra sé ekki mjög breið-
ur og samkeppnin ekki mikil um
sæti í liðinu. Liðið hefur þrjá
landsliðsmenn sem eru alveg
stórkostlegir hver fyrir sig. Þetta
eru Herdís Sigurbergsdóttir, sem
er sú sterkasta í deildinni í dag,
Ragnheiður Stephensen sem er
líklega besti sóknarleikmaðurinn
og Inga Fríða sem er mikill bar-
áttujaxli á Iínunni. Framliðið
hefur spilað mun betur en í fyrra
og hefur fengið til liðs \dð sig tvo
Rússa og örvhenta stelpu frá
Húsavík sem reynst hefur mjög
góð í vetur þrátt fyrir að hafa
ekki svo góðan grunn. Haukarn-
ir hafa verið að spila illa þó þær
séu í 2. sæti í dag, en þær eiga að
geta spilað mun betur. Víkingur
er að spila langt undir getu þrátt
fyrir ágætan hóp leikmanna en
Iitla breidd. Valsstúlkur hafa ver-
ið að dala eftir góða byrjun en
FH hefur verið að missa móðinn
frá því í fyrra."
— Hver eru næstu verkefni
kvennalandsliðsins?
„Grænlendingar sem hafa
fengið viðurkenningu sem sér-
stök þjóð innan IHF, eru ekki
lengur undir verndarvæng Dana,
og karlalandslið þeirra hefur
þegar tekið þátt í Ameríkuleikun-
um í handbolta. Grænlenska lið-
ið leikur hér á annan í jólum
gegn U-19 landsliðinu, á þriðja í
jólum gegn 2004-liðinu og
mánudaginn 28. desember gegn
A-Iiðinu en forleikur þessa fyrsta
opinbera Iandsleiks Grænlend-
inga er leikur U-18 og 2004-Iiðs-
ins. Næsta stórverkefni er svo
undankeppni HM en þar leikur
ísland heima og úti gegn Rúss-
um í janúar og gegn Króötuni
heima og úti í febrúarmánuði
- GG