Dagur - 26.01.1999, Page 3
PRÍÐJVDA G V R 26. J A N Ú A R 19 9 9 - 3
Thgur.
FRÉTTIR
i. j
Memi úr „Hiildiiliermmi“
mættu hjá frjálslyndum
Sverrir Hermannsson heilsar nýjum flokksmanni á stofnfundi Frjálslynda flokksins um helgina.
Sverrir Hermaunsson
verdur efstur á lista
Frjálslynda flokksins
annað hvort í Reykja-
vík eða á Vestfjörðum.
Það kom mörgum á óvart hve
fjölmennt var á landsþingi Lýð-
ræðisflokksins um síðustu helgi
en vel á fjórða hundrað manns
mættu til þings. Sverrir Her-
mannsson, formaður flokksins,
sagðist hafa vonað en ekki búist
við slíkum Qölda.
Það sem ef til vill vakti mesta
athygi var að margir af stuðn-
ingsmönnum Alberts heitins
Guðmundssonar mættu á þing-
ið. Harðast kjarni þess hóps var
gjarnan kallaður „Huldúherinn"
og menn úr þeim kjarna mættu á
þingið og fluttu tölu, menn eins
og Asgeir Hannes Eiríksson,
fyrrum alþingismaður, og Jón
Oddsson Iögmaður, svo dæmi
séu tekin.
Sverrir Hermannson var kjör-
inn formaður flokksins með öll-
um atkvæðum eða fullkominni
„rússneskri kosningu.11 Hann
sagði í samtali við Dag, að strax
yrði gengið í að stofna formlega
kjördæmisráð um allt land. Byrj-
að yrði í Reykjavík og Reykjanes-
kjördæmi en undirbúningur væri
hafinn um Iand allt.
EkM prófkjör
„Ég býst við að Ieggja land undir
fót innan skamms til að reka
smiðshöggið á þetta. Um leið og
menn sjá alvöruna í þessu og að
hér er orðinn til alvöru stjórn-
málaflokkur, þá skjóta menn upp
kollinum og eru tilbúnir að vera
með. Við þykjumst hafa búið
okkur til haldgóða stefnu og
trausta og því snýst allt um það
núna að fá menn til að færa orð-
ið,“ sagði Sverrir í gær.
Hann sagði að ákveðið væri að
viðhafa ekki prófkjör heldur
stilla upp á lista flokksins um allt
land. Sverrir sagðist líka hafa
takmarkað álit á prófkjöri og bið-
ur menn að líta til þeirra pró-
kjöra sem fram hafa farið að
undanförnu og þeirra særinda
sem þau valda innan flokka.
Ilvar fer Sverrir fram?
Sverrir Hermannsson var ófáan-
Iegur til að segja til um hvar
hann ætlar að bjóða sig fram.
Dagur hefur heimildir íyrir því
að hann hafi lýst þeirri almennu
skoðun sinni að formaður flokks
eigi öllu jöfnu að leiða listann í
stærsta kjördæminu. Hins vegar
herma sömu heimildir að Sverrir
sé að reyna að fá ákveðinn mann
til að leiða listann í Reykjavík.
Takist það muni hann sjálfur
bjóða sig fram á Vestfjörðum.
Fjölmargir þekktir menn, sem
hafa dregið sig í hlé úr pólitík
síðustu árin, hafa verið orðaðir
við flokkinn. Það vekur til að
mynda mikla athygli að eðalkrat-
inn og kvótaandstæðingurinn
Grétar Mar Jónsson, skipstjóri í
Sandgerði, er í miðstjórn flokks-
ins. S.DÓR
Hjálmar Vilhjálmsson, leiðangursstjóri
á rannsóknarskipinu Árna Friðrikssyni.
Loðnan dreifð
um allan sjó
Um tugur loðnuskipa er á mið-
unum við Hvalbak en þar er
norðaustankaldi og loðnan
dreifð um allan sjó. Sjómenn
telja að loðnan hafi nú dreift sér
eins og oft áður á þessum árs-
tíma og komi aftur upp á grunn-
slóð að tveimur vikum liðnum
og verði þá hæf til veiða í nót.
Sæmileg bjartsýni ríkir um að
mikið magn af Ioðnu muni
ganga vestur með suðurströnd-
inni áður en hún hrygnir vestur
af Snæfellsnesi.
Hjálmar Vilhjálmsson, leið-
angursstjóri á rannsóknarskip-
inu Árna Friðrikssyni, sem í gær
var statt norðaustur af Hvalbak,
segir að vart hafi verið við loðnu
þar suðaustur af en hún sé mjög
dreifð. Skipið verður áfram á
loðnuslóð suðaustur af landinu
en loðnukvótinn verður ekki
aukinn fyrr en niðurstöður fást
úr rannsóknarleiðangrinum.
Það gæti þýtt að nokkurt hlé
yrði á loðnuveiðum sem dregur
úr líkunum á því að það takist
að veiða úthlutaðan kvóta áður
en loðnan hrygnir og drepst. -GG
Tveggja ára fangelsi
vegna leti póstmanna?
Ekkert afþessum jólapósti komst tii skila á Akureyri fyrr
en í gær. Líkur eru á að margir sem eiga í jólakortasam-
bandi hafi aftur náð sáttum.
Fjöldi Akiireyriiiga
fékk loks jólapóstinn
í gær eftir að lögregla
og íslandspóstur upp-
lýstu sérstætt mál.
Tveir í fangelsi vegua
leti? íslandspóstur á
von á skaðabótakröf-
um.
Einstætt mál kom upp hjá Is-
landspósti á Akureyri þegar tveir
starfsmenn íyrirtækisins létu hjá
líða að bera út mikið magn af
pósti f desember. Hámarksrefs-
ing fyrir brot mannanna er
tveggja ára fangelsisvist, enda
hafa þeir með Ieti sinni framið
tvöfalt Iögbrot. Fyrst í gær fengu
hundruð Akureyringa jólakort og
annan póst sem átti að skila sér
fýrir mánuði. Islandspóstur biður
móttakendur velvirðingar.
Upphaf málsins má rekja til
þess að tveir ungir menn, báðir
fæddir 1981, fengu afleysinga-
störf hjá Islandspósti í desember
við útburð. Þetta er langmesti
annríkistími ársins í póstþjónust-
unni og fjöldi fólks ráðinn tíma-
bundið á þessum árstíma. Ein-
hverjar kvartanir fóru upp úr
þessu að berast til Islandspósts
og síðar sá vitni nokkra póstpoka
í bíl annars mannsins. I fram-
haldi af þessu lét Islandspóstur
lögregluna á Akureyri vita og
Ieiddi rannsókn til þess, að gífur-
legt magn af pósti fannst sem
aldrei hafði verið borinn út. Um
ræðir 6-7 fullar pósttöskur auk
eins poka. Mikið var um jólakort
í safninu auk almenns pósts.
Reyndist verkid ofviða
Eigandi bílsins var yfirheyrður og
skömmu síðar eða sl. föstudags-
morgun, voru tvímenningarnir yf-
irheyrðir og játuðu þeir brot sitt.
Þeir gáfu ekki aðrar skýringar á
athæfi sínu, en að útburðurinn
hefði reynst þeim ofviða. Ekkert
bendir til að um auðgunarásetn-
ing hafi verið að ræða, en menn-
irnir eru að líkindum sekir bæði
um brot á póstlögum sem og brot
á 137. gr. hegningarlaga. Þar seg-
ir m.a. að ef opinber starfsmaður
í póst- eða símþjónustu skjóti
undan bréfum eða
sendingum, varði
það varðhaldi eða
fangelsi, allt að
tveimur árum.
Askell Jónsson,
framk\'æmdastjóri
framkvæmdasviðs
Islandspósts, sagði
í gær að fyrirtækið
harmaði hvernig
farið hefði. Aldrei
hefði áður komið
upp mál, svipað að
umfangi í sögu
póstþjónustunnar á
Islandi og allt yrði
gert til að sagan myndi ekki end-
urtaka sig. „Þetta veldur væntan-
lega viðtakendum tjóni og kastar
rýrð á fyrirtækið og starfsmenn
þess,“ segir Askell.
Skaðabótakröfur?
I gær fóru tveir starfsmenn fyrir-
tækisins hús úr húsi með póstinn
og báðust velvirðingar. Um ræðir
300 heimili auk Qölda fyrirtækja.
En getur Islandspóstur átt von á
skaðabótakröfum í kjölfar máls-
ins? „Það er erfitt að segja um
núna, en auðvitað má búast við
einhverju slíku," segir Askell. Og
lærdómurinn: „Innra eftirlit
sýndi að eitthvað var að, en
vandamálið er að það tók of lang-
an tíma að bregðast við því. Við
höfum þá staðreynd sérstaklega
til skoðunar," segir Askell Jóns-
son. — Bt>
Vinstra/grænt á Vestfjördum
Vinstrihreyfingin - grænt framboð stofnaði kjördæmisfélag fyrir Vest-
firði á Isafirði um síðustu helgi. Um 30 manns mættu á stofnfund-
inn. Formaður félagsins var kjörinn Gunnar Sigurðsson í Bolungar-
vík en aðrir í stjórn voru kjörnir Gústaf Gústafsson Patreksfirði, Már
Olafsson Hólmavík, Agústa Guðmundsdóttir Flateyri, Eiríkur Nordal
Isafirði, Þóra Þórðardóttir Suðureyri og Torfi Bergsson, Felli í Dýra-
firði.
Kjörin var þriggja manna uppstillingarnefnd en hana skipa Gfsli
Skarphéðinsson Isafirði, Gígja Tómasdóttir ísafirði og Birkir Frið-
bertsson, Birkihlíð í Súgandafirði. A sunnudagskvöld var svo haldinn
almennur stjórnmálafundur á ísafirði þar sem Steingrímur J. Sigfús-
son og Lilja Rafney Magnúsdóttir ræddu Iandsmálin og sátu fyrir
svörum. Almennt er talið að Lilja Rafney muni leiða lista samtakanna
á Vestljörðum við þingkosningarnar í vor. S.DÓR
Tíu styrktaraðilar Laudsmótsms
Aðstandendur Landsmóts hesta-
manna árið 2000, sem haldið verð-
ur í Reykjavfk, reikna með tugum
þúsunda gesta þá sex daga í júlí
sem mótið stendur, þar af 8-10
þúsund útlendingum. Forseti Is-
lands verður verndari mótsins.
Tíu fyrirtæki undirrituðu í gær
samninga sem styrktarfyrirtæki
Landsmótsins: Flugleiðir, Olíufé-
lagið ESSÓ, Vífílfell, Dagsprent
sem gefur út Dag, Frjáls fjölmiðl-
un sem gefur út DV, Samvinnu-
ferðir Landsýn, Sól Víking, Slátur-
félag Suðurlands, Islandsbanki og Flugfélag íslands.
Þá eru upplýsingar um landsmótið komnar á Netið. Veffangið er:
landsmot.is.
Meðan landsmótið stendur yfir mun Dagur gefa út sérstakt blað -
Landsmóts-Dag - með svipuðum hætti og á síðasta landsmóti hesta-
manna.
Frá undirritun styrktarsamninganna í
gær.