Dagur - 26.01.1999, Side 4
4- ÞRIDJUDAGUR 26. J A N Ú A R 1999
ro^r
FRÉTTIR
L.
Umferðarslys kosta
11-15 milljarða á árí
Samkvæmt útreikningum Hagfræðistofnunar Háskóla íslands nemur kostn-
aður þjóðfélagsins af umferðarlysum um 11-15 miljörðum króna á ári.
Raimsóknamefnd um-
ferðarslysa. Óháð og
sjálfstæð nefnd. Af 15
banaslysum í fyrra
hefðu 14 lifað með
notkuu bílhelta.
„Nefndinni var markaður sá far-
vegur að hún skyldi starfa full-
komlega sjálfstætt og óháð öðr-
um stjórnvöldum og rannsóknað-
aðilum,“ segir Símon SigvaldSfr
son, skrifstofustjóri Hæstaréttar
og fulltrúi í Rannsóknarnefnd
umferðarslysa.
Dauðaslys
Akveðið hefur verið að nefndin
muni rannsaka öll dauðaslys sem
verða í umferðinni í ár. Nefndin
mun einnig fara yfir öll gögn um
dauðaslys á síðasta ári. Þá létust
27 manns í umferðarslysum.
Þórhallur Ólafsson, aðstoðar-
maður dómsmálaráðherra og for-
maður Umferðarráðs, segir að af
15 banaslysum hefðu 14 lifað ef
þeir hefðu verið í bílbeltum.
Hann sagði að samkvæmt út-
reikningum Hagfræðistofnunnar
Háskóla Islands næmi kostnaður
þjóðfélagsins af umferðarlysum
um 11-15 milljörðum króna á
ári. Það væri því mikið í húfi að
geta fækkað slysum.
Trúnaðarmál
A blaðamannafundi Rannsókn-
arnefndar umferðarslysa fyrir
helgi var bent á að markmiðið
væri að auka þekkingu og skiln-
ing á orsökum umferðarslysa.
Nefndin mun jafnframt verða til
ráðgjafar, veita aðhald og koma
með tillögur um það sem betur
má fara í umferðinni. Allar upp-
lýsingar um slys sem nefndin
rannasakar verða meðhöndlaðar
sem trúnaðarmál og nafnleyndar
verður gætt. Þá mun nefndin
ekki skipta sér af lagalegri hlið
slysa s.s. skaðabótaskyldu og
þessháttar. Þá hefur tölvunefnd
gefið nefndinni heimild til að-
gangs að skráðum persónuupp-
lýsingum við rannsókn mála.
Stefnt er að því að fyrsta
skýrsla nefndarinnar liggi fyrir í
byrjun næsta árs. 1 nefndinni
eiga sæti Símon Sigvaldason,
skrifstofustjóri Hæstaréttar, Jón
Baldursson, yfirlæknir á slysa- og
bráðamóttöku Sjúkrahúss
Reykjavíkur og Rögnvaldur Jóns-
son, framkvæmdastjóri tækni-
sviðs Vegagerðarinnar. -GRH
Traustur, alvöru, upphækkanlegur, 4x4 jeppi á ÓTRÚLEGU verði • Hátt og lágt drif
Byggður á grind • Kraftmikil og hljóðlát vél • Einstaklega góður í endursölu
ALLIR SUZUKI BlLAR ERU MEÐ:
• vökvastýri • 2 loftpúða •
• aflmiklar vélar • samlæsingar
• rafmagn i rúðum og speglum •
• styrktarbita í hurðum •
• samlitaða stuðara •
Sjálfskipting kostar 150.000 KR.
$ SUZUKI
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
1*830.000 kr. — JL/0
Fœröu emhœrstoðor mmrmjyrwþettm mrö?
#&&***%■
„Fnunsýitiiig66
áDalvík
Leiklistin hefur verið með mikl-
um blóma á Dalvík undanfarin
ár. Síðasta vetur sýndi Leikfélag
Dalvíkur, sem er 55 ára um
þessar mundir, „Að eilífu" og nú
er hafin samlestur að gaman-
Ieikritinu „Frumsýningu" sem er
eftir heimamanninn Hjörleif
Hjartarson í Svarfaðardal, fjórð-
ung Tjarnarkvartettsins.
Frumsýning verður í Ung-
mennafélagshúsinu á Dalvík 6.
mars nk. en hlutverk í leikritinu
eru 21 talsins. Leikstjóri er Sig-
rún Valbergsdóttir, en hún leik-
stýrði fyrir nokkrum árum
„Sturlungasögu“ sem Leikfélag
Dalvíkur fór þá með á fjalirnar.
Byggðarmerki
Menningar-
málaráð Dal-
víkurbyggðar
hefur óskað
eftir tillögum
að byggðar-
merki fyrir
sveitarfélag-
ið. Byggðar-
merkið skal
vera í sam-
ræmi við
meginreglur
skjaldar-
merkjafræðinnar, eftir því sem
unnt er, bæði hvað varðar lögun
og litareglur. Æskilegt er talið að
notaðir séu hreinir og óblandað-
ir litir í merkið. Umsóknarfrest-
ur rann út 15. janúar sl.
Hið gamla byggða-
merki Dalvíkur geng-
ur ekki lengur eftir
sameiningu sveitarfé-
laga í Dalvíkurbyggð
Aðild að Minja
safninu á Akur-
eyri
Dalvíkurbyggð hefur samþykkt
aðild að Minjasafni Akureyrar
en með því skilyrði að Dalvíkur-
byggð verði aðili að safninu á
Akureyri en rekstur og ábyrgð á
byggðasafninu á Dalvík verði
settur undir stjórn þess. A
byggðasafninu á Dalvík er m.a.
stórmerkilegt safn Jóhanns
Svarfdælings, betur þekktur sem
Jóhann risi. Greiðslur Minja-
safnsins vegna safnsins verða
1,4 milljónir króna á ári en Dal-
víkurbyggð greiðir sama íbúa-
gjald til Minjasafnsins og önnur
sveitarfélög ár hvert.
Samtök hags-
mimaaðila í
ferðaþjónustu og
kaupmanna
Síðla árs 1998 voru stofriuð sam-
tök hagsmunaaðila í ferðaþjón-
ustu og kaupmanna en starfs-
svæðið er Dalvíkurbyggð og Hns-
ey. Formaður samtakanna er
Símon Ellertsson en Guðrún
Pálína Jóhannsdóttir, bæjarritari
á Dalvík, verður tengiliður við
bæjarstjórn. Hlutverk samtak-
anna er m.a. að sjá um mótun
framtíðarstefnu í ferðamálum á
svæðinu og vinna að markaðs-
setningu svæðisins og stuðla að
nýjungum í ferðaþjónustu. Sam-
tökin eigi að vera tengiliður við
yfirvöld sveitarfélags og héraðs,
stuðla samstarfi og samskiptum
við sambærileg samtök annars
staðar á landinu. GG