Dagur - 26.01.1999, Qupperneq 6
6 - ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999
ÞJÓÐMÁL
Utgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Simar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk. :
Lausasöiuverð:
Grænt númer:
Sfmbréf auglýsingadeildar:
Símar auglýsingadeildar:
Netfang auglýsingadeildar:
Símbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVfK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.800 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
460 6161
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYR 1)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
omar@dagur.is
460 6171CAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Spilltur dæmir spilltan
í fyrsta lagi
Þær aðgerðir sem Alþjóða ólympíunefndin hefur gripið til
vegna víðtækrar spillingar í eigin röðum er aðeins kattarþvott-
ur sem mun á engan hátt nægja til að rétta við álit nefndarinn-
ar. Eins og spáð var á þessum stað fyrir skömmu fór nefndin
þá leið að fórna örfáum einstaldingum til þess að gæðingalið-
ið í kringum Juan Antonio Samaranch, forseta nefndarinnar,
geti haldið áfram að velta sér upp úr gylltu peningavilpunni.
Vafalaust má líta á brottvikningu nokkurra nefndarmanna sem
nothæft upphaf að frekari hreinsunum, en alls ekki sem enda-
lok málsins eins og Samaranch ætlast augljóslega til.
í öðru lagi
Það hefur verið opinbert leyndarmál árum saman að spilling
og flottræfilsháttur hefur einkennt öll störf Alþjóða ólympíu-
nefndarinnar, og það alveg sérstaklega eftir að leikarnir urðu
að eftirsóttri gróðalind fyrir þær borgir sem fá að halda þá
hverju sinni. Ekkert var hins vegar gert í spillingarmálunum
fyrr en blaðamenn sýndu fram á það svart á hvítu að víðtæk
mútustarfsemi hafði átt sér stað vegna leikanna í Salt Lake
borg. Alþjóða ólympíunefndin ákvað sjálf að rannsaka þessar
ásakanir, hún komst sjálf að niðurstöðum um sekt eða sýknu
sinna manna og ákvað sjálf refsingar. Nefndin gerir þannig allt
í senn: rannsakar eigin spillingu, dæmir í málinu og og sér um
refsiframkvæmdina. Hér á við að spilltur dæmir spilltan.
í þriðja lagi
Það þarf að sjálfsögðu mun róttækari aðgerðir og óháðari
rannsókn á störfum Alþjóða ólympíunefndarinnar mörg und-
anfarin ár til að þvo spillingaróþefinn af nefndinni. Að sjálf-
sögðu á höfuðpaurinn til margra ára, Samaranch, að taka af-
leiðingum aðgerða sinna - og aðgerðarleysis - og láta af emb-
ætti. Einungis með rækilegri uppstokkun nefndarinnar og
gjörbreyttum vinnuháttum er von til þess að almenningur
hætti að líta á Alþjóða ólympíunefndina sem samheiti yfir
spillingu. Elt'as Snæland Jónsson.
Bréfíð tíl stuðniiigs
Leifi í profkjormu
Mörður Árnason frambjóð-
andi í prófkjöri upplýsir í við-
tali við DV í gaer að Leifur
heppni sé þátttakandi í próf-
kjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík. Þetta kom í ljós
þegar Mörður er spurður álits
á því að Jón Baldvin Hanni-
balsson hefur sent alþýðu-
flokksmönnum bréf, þar sem
hann hvetur menn
til að kjósa Jakob
Frímann Magnús-
son í prófkjörinu.
Svar Marðar er svo
hljóðandi: „Ja,
hérna. Eg sem hélt
að Jón Baldvin væri
að styðja Leif Ei-
ríksson heppna í
Vesturheimi."
Vegna þess að um-
mæli Marðar má
auðveldlega skilja
þannig, að Jón Baldvin styðji
ekki Leif heppna, sér Garri sér
ekki annað fært en að birta
bréf sem hann og aðrir „eðal“
alþýðuflokksmenn hafa fengið
á tölvupósti og fjallar einmitt
um Leif. Undir bréfinu stend-
ur einfaldlega „Nonni“. Bréfið
er svohljóðandi:
Mikilvægi landJköimuða
„PCæri vinur. Ég skrifa þér með
blýant, blek er ekki til. En það
kemur kannsi ekki að sök því
erindi mitt við þig er þess eðl-
is að ég treysti því að þú strok-
ir það ekki út með strokleðrinu
sem ég gaf þér forðum daga,
úr strokleðurshrúgunni sem
varð eftir þegar búið var að
naga upp alla blýantana í
Seðlabankanum. Ég hef verið
hér vestra um skeið og kynnst
því hversu mikilvægt það er
okkur íslendingum að eiga
fulltrúa í hópi landkönnuða.
V
Ekki er ég þó að vísa til Vil-
hjálms Stefánssonar, sem auð-
vitað var ágætur til síns brúks,
heldur er ég að vísa til sjálfs
Leifs Eiríkssonar, þess sem
fyrstur hvítra manna fann Am-
eríku. Ég hef farið í mörg kok-
teilpartý síðan ég kom og hvar-
vetna kemst ég að því að Leif-
ur hefur borið hróður landsins
um vfðan völl og
komið okkur Islend-
ingum á Iandakort
siðmenningarinnar
ef svo má segja.
Staðfesta Leifs
Vegna gamals kunn-
ingsskapar veit ég
að þú ert líklegur til
að hlusta á það sem
ég hef að segja. Leif-
ur er og hefur alltaf
verið sannur Is-
lendingur, þótt norskir stiga-
menn hafi gert ruddalega til-
raun til að stela honum frá
okkur. Það hefur hins vegar
aldrei tekist, ekki síst vegna
staðfestu Leifs sjálfs, sem
stendur föstum fótum í ís-
lenskum jarðvegi á Skóla-
vörðuholtinu. Nú hefur mér
verið bent á að Leifur sé í
framboði í prófkjöri Samfylk-
ingar jafnaðarmanna í Reykja-
vík og sé ég mig hreinlega knú-
inn til að hvetja menn til að
veita honum brautargengi.
Leifur brást okkur ekki þegar á
reyndi og sýndi hversu góður
drengur hann er. Við megum
ekki láta okkar eftir liggja, nú
þegar við getum endurgoldið
honum Iiðveisluna. Með fyrir-
fram þökk, Nonni.“
GARRI.
Jón Baldvin Hanni-
balsson, sendiherra.
Mannúðlegur
skepnuskapur
JÓHANNES
SIGURJÓNS-
SON
skrifar
Skepnur hafa mjög verið millum
tanna manna í íjölmiðlum síðustu
daga, einkum svokölluð gæludýr
af ýmsum stærðum og gerðum.
Keikó var auðvitað Iítillega í um-
ræðunni sem endranær. Fimm-
hundruðþúsundkróna tíkin Tína
einnig sem týndist í Mosfellsbæ
og mikið hefur verið Ieitað. Við
fengum og fréttir af hamstri sem
þjáist af meintri tannrótarbólgu
og var búinn að vera í hálfsmán-
aðar sýklalyfjakúr á þar til gerðri
skepnusjúkrastofnun. Og enn-
fremur hefur verið á kreiki um-
ræða um það hvort Hrísey sé
nógu heppilegur staður fyri ein-
angrunarstöð gæludýra, ekki síst
með tilliti til þess að dæmi eru
um að þaðan hafi dýr komið nið-
urbrotin andlega eftir 6 vikna ein-
angrunavist Ijarri heimsins glau-
mi á þessu „Alcatraz" dýraríkisins.
Leyniþráður
Nú eru flestir sammála um að
elska manna að dýrum er jákvæð-
ur eiginileiki og göfugur, eins og
margoft mátti lesa um í barna-
blaðinu Æskunni
hér áður fyrr á
árunum. Og
skepnuníðingar
eiga sér formæl-
endur fáa sem
betur fer. Al-
kunna er og um
ort að milli
manns og hests
og hunds Iiggur
leyniþráður sem
ekki slitnar fyrr
en maðurinn
hefur selt hund-
inn og hestinn
ellegar látið lóga þeim báðum. Og
mannskepnan getur tengst öðr-
um skepnum tilfinningaböndum
einnig, sauðfé og kúm til dæmis.
En oftast eru tengslin sterkust við
gæludýrin sem eru gjarnan hluti
af heimilis- og fj'ölskyldulífi við-
komandi, kettir, hamstrar, janvel
páfagaukar og gullfiskar að
manni er tjáð. Og reyndar dæmi
um að tengsl
manna við
skepnur séu mun
nánari en við
annað fólk, sam-
anber Friðrik
mikla, sem þótt
þvf vænna um
hundinn sinn
sem hann kynnt-
ist mannfólkinu
betur. Og þarf
raunar að leita til
fortíðar eftir
dæmum, þekkt
eru tilfelli, eink-
um í Bandaríkjunum, þar sem
hundar og kettir verða milljóna-
erfingjar án þess að hafa hug-
mynd um. Og íslenskur dýra-
Iæknir greindi frá því í sjónvarp-
inu á dögunum að í USA væri
m.a. skipt um nýru og önnur líf-
færi í gæludýrum með ærnum til-
kostnaði.
Forgangsröðun
Allt er þetta nú gott og blessað
upp að vissu marki. Allir eiga
auðvitað að vera góðir við dýrin
sín og annarra. En menn eiga líka
helst að vera góðir hverjir við
aðra. Og á meðan börn deyja úr
sulti í útlöndum og hrekjast á ver-
gang uppi á Islandi vegna þess að
ekki er til fjármagn til að rétta
hjálpandi hönd, þá hljóta menn
að varpa fram spurningum um
milljarðana sem fara í Keikó-
flutninga eða líffæraflutninga
milli hunda og katta eða
sýklayfjameðferð tanntakandi
hamstra eða leit að týndum millj-
ónahundum.
Fyrir alla muni verum góð við
dýrin okkar, en ekki á kostnað
meðbræðra okkar og systra af
mannkyni. Við þurfum að for-
gangsraða þama sem annarsstaðar.
svaraö
Ereðlilegtað sendiherrar
blandi sér í prófhjörs-
baráttu?
Steingrímur J. Sigfússon
þ ingmaðw Vitistrihreyfingarinnar -
Græns framboðs.
„í fyrsta Iagi;
þegar menn
hætta í
pólítík þá
hætta þeir. í
annan stað;
ég tel ekki
heppilegt að
sendiherrar
séu að
blanda sér
með flokkspólítískum hætti inn í
málin einsog hér gerist. I þriðja
Iagi: Jón Baldvin Hannibalsson
verður að eiga það við sjálfan sig
hvort hann vill gera það að sér-
stöku forgangsmáli að troða Jak-
obi Frímanni Magnússyni inn í
íslensk stjórnmál."
Bryndís Hlöðversdóttir
þingmaðw.
„Ég held að
það verði að
vera mat
hvers og
eins sendi-
herra sem
og annarra
hvort þeir
blandi sér í
slíka baráttu
og þá með
hvaða hætti. Mér þætti að
minnsta kosti óeðlilegt að banna
sendiherrum að blanda sér í
pólítíska baráttu. Þeir verða að
eiga þetta við sína samvisku."
Gunnlaugur Sigmundsson
þingmaðwFramsóknatfloklts.
„Ég sé ekk-
ert að því.
Þó Jón
Baldivin sé
sendiherra
og þar með
opinber
sendiherra
heldur hann
samt sem
áður þeim
lýðræðislegu réttindum sínum
að mega vera í stjórnmálaflokki
og hafa þar áhrif á prófkjörsmál.
Mér þætti hinsvegar óeðlilegt að
Jón Baldvin færi að blanda sér í
baráttu fyrir þingkosningar, því
sem sendiherra er hann umboðs-
maður ríkisstjórnar og aðild að
henni geta átt hvaða flokkar sem
er. Að því leyti mundi hann
veikja stöðu sína.“
Össur Skarphéðinsson
þátttakandi íprójkjöri Samjylkingar-
innar í Reykjavík.
„Jóni Bald-
vin er heim-
ilt að hafa
hverja þá
skoðun sem
hann vill og
skrifa ölll
þau sendi-
bréf sem
hann vill.“