Dagur - 26.01.1999, Blaðsíða 13
l^HT
ÞRIDJUDAGV R 26. JANÚAR 1999 - 13
ÍÞRÓTTIR
Þrjú íslandsmet á Stórmóti ÍR
Jón Arnar Magnússon kemur þriðji í mark í 50 metra grindahlaupinu á nýju íslandsmeti, 6,79 sekúndum. Eins og
sést var hlaupið mjög jafnt og spennandi. - mynd: þúk
Um eitt þúsund áhorf-
endur voru mættir í
Laugardalshöllma á
sunnudagskvöldið til
að fylgjast með Stór-
móti ÍR, sem nú var
haldið þar þriðja árið í
röð.
Þetta er án efa nýtt aðsóknarmet
á frjálsíþróttamót hérlendis og
sýnir að áhuginn er að aukast,
með góðum árangri afreksfólksins
okkar að undanförnu. Keppendur
Iétu heldur ekki sitt eftir liggja á
mótinu og voru þeir auðsjánlega
mættir til að gera sitt besta og
með frábærri hvatningu áhorf-
enda, Iét árangurinn ekki á sér
standa. Sett voru þrjú ný Islands-
met og flestir að ná sínum besta
árangri á keppnistímabilinu.
Þríþraut
Jón Arnar Magnússon mætti til
mótsins í sínu besta formi til
þessa og sigraði í þríþrautinni á
nýju íslandsmeti, samtals 2989
stig. Hann setti einnig nýtt Is-
landsmet f 50 m grindahlaupi,
sem var fyrsta grein þrautarinnar
og hljóp á 6,79 sek. og bætti þar
með eigið met um 4/100 úr sek.
Þeir Jón Amar, Sebrle og Dagárd
komu svo að segja jafnir í markið,
en Dagárd náði besta tímanum,
6,78 sek. og Sebrle var dæmdur
sjónarmun á undan Jóni Arnari á
sama tíma.
Jón Arnar sigraði nokkuð ör-
ugglega í kúluvarpinu, kastaði
15,83 m og einnig í Iangstökkinu,
þar sem hann stökk 7,68 m, sem
er aðeins þremur sentimetrum frá
innanhússmetinu sem hann á
sjálfur.
Stangarstökk
í stangarstökki kvenna var vonast
eftir spennandi keppni milli
þeirra Völu Flosadóttur, Anzhelu
Balakhonovu og Þóreyjar Eddu
Elísdóttur. Balakhonova sigraði
þar nokkuð örugglega og stökk
4,20 metra í þriðju tilraun, en
Vala lenti í öðru sætinu með 4,10
m og Þórey Edda í því þriðja með
4,00 metra, jafnt og Elmarie
Gerryts sem lenti í fjórða sætinu.
Allar sýndu þær góða takta í
keppninni, en virtust þó ekki
komnar í sitt besta form. Vala
Flosadóttir náði sínum besta ár-
angri á árinu, en hún og Þórey
Edda æfa nú saman í Svíþjóð og
undirbúa sig fyrir að ná settum
lágmörkum á heimsmeitaramótið
innanhúss, sem fram fer í Japan í
byrjun mars.
50 metra hlaupín
Guðrún Amardóttir virðist í mjög
góðu formi þessa dagana og sigr-
aði hún með yfirburðum í báðum
50 m hlaupunum. Hún gerði sér
lítið fyrir og setti nýtt Islandsmet
í grindahlaupinu og hljóp á 7,01
sek. Hún náðu góðu starti og var
strax komin með gott forskot á
annari grind, sem hún hélt út
hlaupið. I 50 m hlaupinu sýndi
hún sömu yfirburðina og hljóp á
tímanum 6,50 sek.
Jóhannes Marteinsson sigraði
örugglega í 50 m hlaupi karla,
hljóp á 5,93 sek. Annar varð
Reynir Logi Olafsson á 6,11 sek.,
sama tíma og Bjarni Traustason
sem varð í þriðja sæti.
Hástökk
Steinar Hoen frá Noregi var ör-
uggur sigurvegari í hástökkinu og
stökk 2,24 m. Hann á best 2,36
og hefur að undanförnu verið
einn besti hástökkvari heims og
náði m.a. 5. sætinu á síðustu
Olympíuleikum. Hinn stórefni-
legi Einar Karl Hjartarson varð í
öðru sætinu og stökk 2,15 metra,
aðeins einum sentimetra frá Is-
landsmetinu sem hann á sjálfur.
Einar átti góða tilraun við 2,20
metra og augljóst að hann mun
fljótlega bæta Islandsmetið og
komast í hóp þeirra bestu í heim-
inum.
Úrslit
Þríþraut karla
1. Jón Arnar Magnússon, 2989
2. Roman Sebrle, 2886
3. Ólafur Guðmundsson, 2802
4. Henrik Dagárd, 2784
5. Sigurður Karlsson, 2354
Stangarstökk kvenna
1. Anzhela Balakhonova, 4,20
2. Vala Flosadóttir, 4,10
3. Þórey Edda Elísdóttir, 4,00
4. Elmarie Gerryts, 4,00
5. Marie Rassmussen 3,80
Hástökk karla
1. Steinar Hoen, 2,24
2. Einar Karl Hjartarson, 2,15
3. Vegard Hansen, 2,05
4. Martin Lloyd, 2,00
5. Ólafur Símon Ólafsson, 1,90
50 m grind kvenna
1. Guðrún Arnardóttir, 7,01
2. Susan Smith, 7,19
3. Susanna Kallur, 7,26
4. Sigurlaug Níelsdóttir, 7,73
5. Ylfa Jónsdóttir, 8,31
50 m hlaup karla
1. Jóhannes Marteinsson, 5,93
2. Reynir Logi Ólafsson, 6,11
3. Bjami Traustason, 6,11
4. Ólafur Ttraustason, 6,19
5. Arnar Már Vilhjálmsson, 6,22
50 m hlaup kvenna
1. Guðrún Arnardóttir, 6,50
2. Susan Smith, 6,63
3. Susanna Kallur, 6,65
4. Anna F. Árnadóttir, 6,69
5. Guðný Eyþórsdóttir, 6,76
Stærsti dagur á knattspyrmiferlimim
Kevin Keegan, framkvæmdastjóri Fulham, fagnar seinna markinu í sigur- Leikmenn Manchester United fagna sigurmarki Ole Gunnars Solskjær,
leiknum gegn Aston Villa á Villa Park í Birmingham. sem hann skoraði á síðustu mínútu leiksins gegn Liverpool.
Kevm Keegan í sjö-
imda hinmi. Sagan
endurtekin á Old Traf-
ford. Coventry hélt
upp á daginn. Totten-
ham oheppið gegn
Wimbledon. Lauflétt
hjá Leeds. Gillespie
hetja á Eawood Park.
Kevin Keegan brosti breitt þegar
hann yfirgaf Villa Park á Iaugar-
daginn. Lið hans Fullham, topp-
lið annarar deildar, hafði lagt
topplið fyrstu deildar að velli.
„Þetta er sætasti sigur sem ég hef
unnið sem knattspyrnustjóri og
sýnir að við erum á réttri braut.
Það þarf alltaf heppni með í bik-
arleild en við unnum sannarlega
fyrir sigrinum," sagði stoltur þjálf-
arinn. Keegan og hans menn í
Fullham hafa nú rutt tveimur úr-
valsdeildarliðum úr vegi á leið
sinni til Wembley. Southampton
þurfti að bfta í það súra epli að
falla úr bikarnum fyrir Keegan í
síðustu umferð og nú fékk Aston
Villa sömu útreiðina. Það er fróð-
legt að skoða þessi úrslit í Ijósi
þess að þeir ellefu Ieikmenn sem
hófu leikinn fyrir FuIIham kost-
uðu samtals 5,12 milljónir punda
meðan Stan Collymore, einn
„Ieikmanna" Villa, kostaði 7 millj-
ónir.
„Þetta er stærsti dagur á knatt-
spyrnuferli mínum,“ sagði
Birminghamstrákurinn, Simon
Morgan, sem kom Fullham á
sporið með fyrra marki liðsins.
Steve Hayward, sem skorði
seinna mark Fullham, er einnig
frá Birmingham og var á mála hjá
Villa á sínum tíma.
Enskir sparkfræðingar velta því
nú fyrir sér hvort blaðran sé
sprungin á Villa Park. Ósigurinn
var niðurlæging íyrir topplið úr-
valsdeildarinnar. Ofan á annað
hvarf Stan „The Marí' Collymore
af vettvangi þegar hann komst að
því að hann var ekki í byrjunarliði
Villa fyrir leikinn. Talið er víst að
dagar hans séu nú taldir hjá Aston
Villa. Hann á yfir höfði sér að vera
rekinn frá félgainu.
Úrslitaleiknrmn á Old Traf-
ford
Liverpool dugði ekki að leiða leik-
inn gegn Manchester United í 85
mínútur. Alex Ferguson sýndi úr
hvetju hann er gerður og snilldar
skiptingar hans færðu honum og
United farmiðann í fimmtu um-
ferð bikarkeppninnar. Fyrsta sókn
Liverpool, ekta gamaldags Liver-
pool sókn, færði Owen og gestun-
um fyrsta markið. United sótti
nær látlaust eftir það og uppskáru
sanngjarnan sigur. Andy Cole var
maðurinn á bak við bæði mörk
Unietd og sýnir það í hverjum leik
að hann stendur fullkomlega
undir því sem ætlast er til af hon-
um. Heppnin gekk loks í lið með
heimamönnum þegar dómari
leiksins gaf þeim aukaspyrnu sem
Beckham, Cole og Yorke nýttu til
fullnustu. Það kom ekki á óvart
að Ole Gunnar Solskjær tryggði
síðan sigurinn. Sá er búinn að
eiga frábært tímabil á varamanna-
bekknum. Kemur, sér og skorar í
hveijum leik. Hættulegasti sókn-
armaður heimamanna var þó
markvörðurinn frábæri Peter
Schmeichel! Hann var eins og
miðheiji í körfubolta. A sömu
sekúndu og hann greip boltann
var hann búinn að koma honum
aftur frá sér og hættulegustu
sóknir heimamanna buldu á
Liverpoolvörninni.
Leikurinn á Old Trafford var
eins og úrslitaleikir gerast bestir.
Ekki sérlega vel Ieikinn en fullur
af spennu og dramatíkin var á
staðnum. Manchester United
steig risaskref til Wembley með
sigrinum
Stðr dagur hjá Coventry
Coventry hefur átt á brattan að
sækja í vetur og berst fyrir lífi sínu
í deildinni. Þeir fengu grænt ljós á
nýjan 40 þúsund sæta leikvang
áður en liðið hélt í bikarleikinn til
Leicester. Gordon Strachan og
hans menn héldu upp á daginn
með stórsigri, 0-3. „Þetta er stór
dagur fyrir bæði knattspymuliðið
Coventry og ekki síður borgina
Coventry. Við getum nú tvöfaldað
áhorfendaQölda á leikjum liðsins
auk þess sem nýr og glæsilegur
völlur kemur sér vel fyrir England
í kapphlaupinu um heimsmeist-
arakeppnina árið 2006,“ sagði
Bryan Richardson, stjórnarfor-
maður Coventry.
Blackbum, Everton, Sheffield
Wednesday, Newcastle ogArsenal
sigruðu öll fyrstudeildarlið í
fjórðu umferðinni. Keith Gil-
lespie sá um markið fyrir Black-
hurn sem með tíu leikmenn marði
sigur á Sunderland. A sama tíma
vann Leeds Iaufléttan 1-5 sigur á
Portsmouth. Lukkudísirnar léku
við meistarana í Arsenal gegn Ulf-
unum. Sigurmark þeirra var nán-
ast sjálfsmark eftir skot frá Berg-
kamp, sem hafnaði í vamarmanni
Úlfanna áður en hann lak í netið.
Tottenham var óheppið að sigra
ekki Wimbledon. Eftir að Robbie
Earl hafði skorað glæsimark með
hjólhestaspyrnu jafnaði David
Ginola fyrir Tottenham. Asamt
Ginola átti Steffen Iversen stór-
leik fyrir Tottenham. Hann skor-
aði mark sem dæmt var af vegna
rangstöðu sem leikmenn Totten-
ham voru afar ósáttir við. - GÞÖ
** J4 ~l ♦