Dagur - 13.02.1999, Blaðsíða 1
Sjukrahúsið fer í
viðræður við álfa
Samstarfsörðuglelkar
starfsfólks og fyrir-
hugaðar nýfram-
kvæmdir urðu til þess
að framkvæmdastjóri
Sjúkrahúss Suður-
lands kallaði eftir
þjónustu álfasérfræð-
ings.
Framkvæmdastjóri Sjúkrahúss
Suðurlands á Selfossi kallaði á
dögunum eftir þjónustu sérfræð-
ings í málefnum álfabyggða til
þess að komast að því hvort
framkvæmdir við nýbyggingu við
sjúkrahúsið væru í sátt við álfana
og náttúruna. Jafnframt átti að
spyrja álfana hvort þeir kynnu
einhverjar skýringar á miklum
samstarfsörðugleikum sem ríkt
hafa um árabil meðal starfsfólks
á sjúkrahúsinu.
Niðurstöður eru engar enn
sem komið er og segir Erla Stef-
ánsdóttir, píanókennari og
álfasérfræðingur, að hún muni
reyna betur síðar, þegar náttúran
vaknar.
Vill sátt við umhverfið
Lengi hefur ríkt úlfúð og ólga
meðal starfsfólks sjúkrahússins,
þ.e. milli stjórnenda og annarra
starfsmanna. Um leið standa fyr-
ir dyrum framkvæmdir vegna
viðbyggingar við sjúkrahúsið og
var þeirri hug-
mynd hreyft að
vandræðin í
samskiptunum
kynnu að stafa af
því að álfar væru
að gera mönnum
grikk - en álfa-
steinn er
skammt frá
sjúkrahúsinu eða
í klettaborg sem
kölluð er Þóris-
hólar. Mörgum
sögum fer af
slýsum og
óhöppum í tengslum við vega-
lagningar og aðrar framkvæmdir
og ákvað Bjarni Arthúrsson,
framkvæmdastjóri sjúkrahúss-
ins, að fá Erlu í heimsókn. Mun
hún hafa haldið ásamt Sveini
Sveinssyni lækni að álfasteinin-
um til að ræða við íbúana þar og
með samningaumleitanir í huga
ef álfarnir tengdust sam-
starfsörðugleikunum á einhvern
hátt eða hefðu eitthvað við fyrir-
hugaðar framkvæmdir að at-
huga.
Bjarni Arthúrsson vildi ekki
tengja komu Erlu við meinta
samstarfserfiðleika. „Ég held ég
vilji orða þetta
þannig að ég hef
átt spjall við
Erlu og mun
eiga það áfram.
Það eru engar
niðurstöður
komnar í sjálfu
sér. Við erum
bara að spjalla
og annað get ég
ekki sagt á þessu
stigi,“ segir
Bjarni, en tekur
fram að spjallið
tengist fyrirhug-
uðum framkvæmdum við ný-
bygginguna frekar en samskipta-
erfiðleikum. „Þetta snýst annars
ekki um einn stein, heldur erum
við að tala um allt umhverfið.
Það eru vissir staðir betri en aðr-
ir og við viljum vera í sátt við
umhverfið. Við vildum vita hvort
við hefðum frið með nýbygging-
una,“ segir Bjarni.
Viðræður þegar náttúran
váknar
Erla Stefánsdóttir segist hafa
farið austur á þorranum að
beiðni framkvæmdastjóra sjúkra-
hússins. „Ég ætla að fara aftur
seinna í vor þegar náttúran vakn-
ar, því það þýðir ekkert að fara á
þessum tíma,“ segir hún.
„Ég myndi annars segja að það
sem sé erfiðast þarna er að hús-
ið er byggt á sprungunni og ef
skjálftinn kemur þá er ég hrædd
um að það gerist eitthvað. Það
eru hreyfingar þarna. Orkulín-
urnar eru ekki góðar þarna en
það má þó laga. Ég kann ráð til
að ýta þeim burtu, en það er
erfitt að lýsa þeim. Það er hægt
að komast fyrir erfiðleika í sam-
skiptum fólks og komast að sam-
komulagi,“ segir Erla.
Hún tekur fram að það sé
ósköp einfalt að kenna einhverj-
um hulduverum um það sem
milli mannfólks fer. „Það er nær
að mannfólkið vandi sig. Við
skulum annars sjá til þegar nátt-
úran vaknar. Ég held aftur á móti
að það eigi að vígja húsið og fá
prest til að hjálpa. Það á að gera
gagnvart öllum húsum og mann-
eskjum,“ segir Erla. - FÞG
Álfasérfræðingur var fenginn til
Selfoss fyrir skömmu til að kanna
hvort álfar gætu átt sök á vand-
ræðum sjúkrahússins á staðnum.
Clinton
sýknaður
Oldungadeild Bandaríkjanna
sýknaði í gær Bill Clinton af
ákærum til embættismissis.
Fyrir dómnum Iágu tvö ákæru-
atriði á hendur Clinton, og náði
hvorugt þeirra þeim aukna meiri-
hluta sem þurfti til sakfellingar.
Ákæran um meinsæri var felld
með 55 atkvæðum gegn 45, en
ákæran um að hafa hindrað
framgang réttvísinnar féll á
jöfnu, 50 atkvæði gegn 50.
Lengi hefur verið talið nær ör-
uggt að þau 67 atkvæði af 100,
sem þurfti til sakfellingar, myndu
ekki nást í öidungadeildinni þar
sem Repúblikanar eru aðeins 55
en Demókratar 45. Stuðnings-
menn Clintons líta margir hverj-
ir á það sem mikinn sigur fyrir
forsetann að ekki hafi einu sinni
náðst einfaldur meirihluti, en
andstæðingar hans segja hann
hafa Iitla ástæðu til að hrósa sigri
þar eð hneisa hans sé mikil og
muni seint gleymast. — GB
Bolludagurinn er á mánudaginn og örugglega munu margir taka forskot á bollusæluna nú um helgina eins og hún
Andrea Jóhannsdóttir sem gæddi sér á bollu í Björnsbakaríi í gær. Sjá bolluuppskriftir á bls. 28-29. mynd: hilmar
i
j
i
1
i
Framsóknarmenn hóta að stöðva
frumvarp um Háskólann nema
menntamálaráðherra geri á því
ákveðnar breytingar.
Framsókn
stoppar
Háskóla-
fnunvarp
„Það liggur ljóst fyrir að þing-
flokkur okkar mun ekki sam-
þykkja frumvarpið nema þessu
ákvæði verði breytt," segir
Hjálmar Árnason þingmaður
Framsóknar um háskólafrum-
varp menntamálaráðherra. Þar
er gert ráð fyrir að boðin verði út
þjónusta sem Stúdentaráð Há-
skólans veitir nú og fær greiðslur
fyrir af innritunargjöldum stúd-
enta.
Þingflokkur Framsóknar-
flokksins hefur haldið frumvarp-
inu um Háskóla Islands hjá sér
nokkuð lengi en hefur nú hafnað
því óbreyttu. „Við lítum svo á að
ef þetta atriði yrði samþykkt
gætu einstaklingar eða félög úti í
bæ fengið þessa þjónustustarf-
semi til sín. Þar með væri búið
að grafa undan tilvist þess mikil-
væga þáttar í stúdentasamfélag-
inu, sem er hin lýðræðislega
starfsemi stúdentaráðs," segir
Hjálmar.
EkM samþykkt óbreytt
Þingflokkur Framsóknarflokks-
ins hefur í tvígang samþykkt það
og sent menntamálaráðherra
bréf um að þingflokkurinn sam-
þykki að frumvarpið verði lagt
fram en með þeim fyrirvara að
þessu ákvæði um stúdentaráð
verði breytt til samræmis við
samþykkt Háskólaráðs frá 19.
nóvember síðastliðinn. Þar náð-
ist samkomulag milli fulltrúa
bæði Vöku og Röskvu, sem og
fulltrúa kennara, um að í frum-
varpið verði sett ákvæði um að
Háskólaráð hafi heimild til að
fela stúdentaráði ákveðna þjón-
ustu án útboðs. - S.DÓR
-p
1
•smmÆM
WOfíLDWtDE EXPfíESS ~
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100