Dagur - 13.02.1999, Síða 4
*jTr
t - e v c t a i . v í ;»n '(itöiif.íiut.1
4- LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999
dði
Hart í bak á Reydarfirði
Leikfélag Reyðarfjarðar hefur hafið æfingar á leikritinu Hart í Bak
eftir Jökul Jakobsson en leikstjóri er Jón Júlíusson. Leikfélagið stóð
nýlega fyrir leiklistarnámskeiði og tóku þátt í því sjö manns sem vænt-
anlega munu svo tengjast uppfærslunni á Hart f bak.
mánuði
Heildaraflaverð-
mæti 5 skipa
Hraðfrystihúss
Eskifjarðar nam
liðlega 950 millj-
ónum króna á ár-
inu 1998 á móti
984 milljónum
króna árið 1997
sem var það besta
Aflaverðmæti Hólmaborgarinnar var 368 milljónir
króna í fyrra.
ar var 368 millj-
ónir króna og hásetahlutur 6,2 milljónir króna, eða að jafnaði um 517
þúsund krónur á mánuði. Aflaverðmæti Jóns Kjartanssonar var 137
milljónir króna og hásetahlutur 2,4 milljónir króna en Jón Kjartans-
son var frá veiðum í 5 mánuði vegna breytinga í Póllandi. Aflaverð-
mæti Guðrúnar Þorkelsdóttur var 204 milljónir króna og hásetahlut-
ur 4 milljónir króna. Aflaverðmæti Hólmatinds var 163 milljónir
króna og hásetahlutur 4 milljónir króna og aflaverðmæti Hólmaness
var 78 milljónir króna og hásetahlutur 3 milljónir króna.
Þúsund fundir
Þúsundasti stjórnarfundur Sparisjóðs NorðQarðar var haldinn 8. jan-
úar sl. og af því tilefni var starfsmönnum og mökum ásamt starfs-
mönnum Lífeyrissjóðs Austfjarða boðið í samsæti. Starfsmenn sjóðs-
ins eru þrettán talsins, ellefu í Neskaupstað og tveir í hinni nýju af-
greiðslu á Reyðarfirði. Formaður stjórnar er Jóhann K. Sigurðsson en
sparisjóðsstjóri Sveinn Arnason. Sparisjóðurinn verður 80 ára árið
2000.
í sögu fyrirtækis-
ins. Aflaverðmæti
Hólmaborgarinn-
Meiri hagnaður hjá Skýrr
Hagnaður Skýrr hf. nam tæpum 56 milljónum króna á síðasta ár en
var liðlega 33 milljónir árið áður. Rekstrartekjur jukust um nærri 20%
í rúman 1,1 milljarð króna
Eigið fé fyrirtækis nam tæpum 250 milljónum króna í árslok, eig-
infjárhlutfaílið var 33% og arðsemi eiginfjár var um 29%.
Umsvif fyrirtækisins jukust á flestum sviðum að því er segir í frétta-
tilkynningu frá Skýrr. Meðal verkefna í fyrra var að búa helstu tölvu-
kerfi hins opinbera undir ártalið 2000.
Aðalfundur Skýrr verður 25. febrúar og þar Ieggur stjórnin til að
hluthöfum verði greiddur 7% arður af hlutafé.
HaUdór formaður
Eflingar
Halldór Björnsson hefur verið kjör-
inn formaður nýja stéttarfélagsins
Eflingar, sem varð til við sameingu
Dagsbrúnar, Framsóknar, Sóknar
og Félags starfsfólks í veitingahús-
um.
Frestur til að tilkynna framboð
til stjórnar rann út á fimmtudag og
kom aðeins fram 1 listi frá uppstill-
ingarnefnd og trúnaðarráði félags-
ins. Með Halldóri í stjórn eru Þór-
unn Sveinbjörnsdóttir 1. varafor-
maður, Hjördís Baldursdóttir 2.
varaformaður, Jónína Sigurðardótt-
ir ritari, Ingunn Þorsteinsdóttir
gjaldkeri og 16 meðstjórnendur.
Haiidór Björnsson, formaður Efl-
ingar.
Leiðrétting
í grein Stefáns Jóns Hafstein í Degi í gær um brotthvarf Önnu
Kristine Magnúsdóttur frá Ríkisútvarpinu féllu niður 2 síðustu orðin
og því er síðasta málsgreinin hér endurbirt. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
„Útvarpsráð hefur mikilvægu hlutverki að gegna, gæta hagsmuna
almennings og vernda sjálfstæða dagskrárgerð í fjölmiðlaheimi sem er
alltof fátækur af siíku. Þetta fáránlega mál er hins vegar af nákvæm-
lega sama sauðahúsi og mörg önnur undanfarin misseri hjá ráðinu.
Nú klúðrar RUV fyrir hlustendum sínum enn einu sinni. Þetta er
kjarni málsins. Það er óMðunandi fyrir unnendur Ríkisútvarpsins að
það setji niður æ ófan í æ vegna þeirrar þráhyggju að starfsmenn séu
vandamál en ekki auðlind."
FRÉTTIR
Ekki hafa nærri allir brugðist við vandamálinu sem biasir við í mörgum tölvukerfum þegar árið 2000 gengur í garð.
Eyða engu í
2000 vandaim
Helmingiir forstöðu-
mairna ríkisstofnana
segist engum fjár-
inimiiiii ætla að leysa
2000 vanda tölvu-
kerfa, samkvæmt
könnun GaHup.
Helmingur svarenda í nýrri
Gallupkönnun meðal forstöðu-
manna ríkisfyrirtækja sagðist
ekki gera ráð fyrir að verja nein-
um fjármunum í verkefni tengd
2000 vandanum og aðeins 20%
þeirra ætlaði kostnaðinn í sínu
fyrirtæki yfir eina milljón. Tveir
forstöðumenn horfðu fram á
meira en 3.000 milljóna útgjöld
hvor. Sá annmarki er að vfsu hér
á, að aðeins helmingur þátttak-
enda svaraði framangreindri
spurningu, þannig að þeir sem
engu ætluðu að eyða voru í raun-
inni íjórðungur allra þátttak-
enda.
Mörg tölvukerfi er með þeim
alvarlega annmarka að gera að-
eins ráð fyrir 2 stöfum fyrir ártal
og líta á árið 2000 sem upphaf
ársins 1900. Ljóst er að þetta
mun valda verulegum vandræð-
um ef ekki verður brugðist við.
Spurningunni hvort gert hafi
verið ráð fyrir útgjöldum vegna
2000 vandans í rekstraráætlun
ársins svöruðu næstum allir for-
stöðumennirnir og aðeins þriðj-
ungur þeirra játandi. Það gæti
bent til að mjög stór hluti hóps-
ins alls telji sig komast frá 2000
vandanum kostnaðarlaust að
mestu eða öllu.
Fundust ekki
Rannsókn þessa gerði Gallup
fyrir fjármálaráðuneytið í síðasta
mánuði með það að markmiði að
kanna stöðu ríkisstofnana í
tengslum við 2000 vandann. Úr-
takið var forstöðumenn ríkis-
stofnana með 10 starfsmenn
eða fleiri, alls 180 manns.
Gallup tókst ekki að ná í 27 þeir-
ra (15%) og 4 neituðu þátttöku.
Úm 20% þeirra sem þátt tóku
sögðust raunar lítið sem ekkert
farnir að fjalla um vandann í
stofnunum sínum, en 20%
höfðu á hinn bóginn lokið athug-
un. Tæplega helmingur þátttak-
enda hafði lokið við að gera Iista
yfir þann búnað sem gæti orðið
fyrir truflunum vegna 2000
vandans, fjórðungur var byrjaður
en fjórðungur átti slíkt alveg eft-
ir. Tæplega þriðjungur hefur
beðið alla viðskiptamenn/birgja
sína um yfirlýsingar um að þeir-
ra búnaður ráði við 2000 vand-
ann, en 40% höfðu ekkert haft
fyrir því.
Öllu lokið fyrir aldamóta-
skálina
Allir þeir sem afstöðu tóku
(85%) ætla sér samt að hafa Iok-
ið öllum endurbótum og aðgerð-
um fyrir 1. janúar árið 2000 þan-
nig að starfsemi stofnana þeirra
verði ekki fyrir neinum truflun-
um um þessi miklu áramót. Um
3/4 ætluðu m.a.s. að hafa allt á
hreinu fyrir fyrsta október f
haust. — HEI
ViU hefj a túnfisk-
veiðar sem fyrst
Kristján Pálsson alþingismaður
spurði sjávarútvegsráðherra á Al-
þingi f vikunni hvort ekki stæði
til að hætta tilraunaveiðum á
túnfiski, en hefjast heldur handa
um alvöru veiðar á þessum verð-
mikla fiski. Tilraunaveiðarnar
hafa staðið hafa yfir sl. 3 ár á
japönskum bátum í íslenskri
fiskveiðilögsögu með góðum ár-
angri. Svörin voru ekki ákveðin
og ljóst er að ekki hefur verið
tekin ákvörðun um að hefjast
handa fyrir alvöru. Kristján sagði
að það Iægi á í þessu efni til að
afla Islendingum veiðireynslu
áður en kvóti verður settur á
túnfiskveiðar.
Kristján benti á að útgerð Byrs
VE, sem er sérhannað túnfisk-
veiðiskip, hefði ákveðið að senda
skipið til túnfiskveiða við Kanarí-
Kristján Pálsson: íslendingar þurfa
að afla sér reynslu í túnfiskveiðum
áður en kvóti verður settur á þær.
eyjar á þessu ári og fylgja síðan
göngunni upp með strönd Evr-
ópu og alla leið inn í íslensku
fiskveiðilandhelgina.
Lánafyrirgreiðsla
Kristján sagði í samtali við Dag
að það væri út í hött að Nýsköp-
unarsjóður hefði krafist 15%
vaxta á láni sem útgerð Byrs VE
sótti um þegar um nýsköpun
væri að ræða eins og veiðar á
túnfiski. Hann sagði að þar sem
menn væru að byrja þessar veið-
ar væri nauðsynlegt að ríkið
kæmi þar nærri og að sín hug-
mynd væri að skipuð yrði nefnd
til að móta stefnuna til frambúð-
ar í þessum málum.
Kristján segist telja að óþarfi
sé að vera með frekari tilrauna-
veiðar. Þær hafi tekist mjög vel
sl. 3 ár og nú sé kominn tími til
að hefjast handa. — s.dór