Dagur - 13.02.1999, Page 5
LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 - S
FRÉTTIR
Pólitísk skilabod
ganga á víxl
Foringjar stjómmála-
ílokkaniia blikka
hver aiiiian enda farið
að styttast í kosning-
ar. Allir f lokkar ganga
óhundnir til kosninga.
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, flutti ræðu
á fundi sem framsóknarfélögin í
Reykjavík efndu til í fyrrakvöld. I
ræðu sinni ræddi Halldór um
stjórnarmyndun eftir þingkosn-
ingarnar í vor og hafa sumir túlk-
að það sem hann sagði á þann
veg að hann vilji skoða mögu-
leikann á að mynda stjórn með
öðrum en Sjálfstæðisflokknum.
„Eg er fyrst og fremst að óska
eftir því við kjósendur landsins
að Framsóknarflokkurinn fái það
traust í næstu kosningum að
hann hafi afl til að leiða ríkis-
stjórn. Enda liggur það ljóst fyrir
að slíkt gerir enginn flokkur
nema hafa til þess afl,“ sagði
Halldór.
Hann var spurður út í ummæli
Sighvatur Björgvinsson: Formaður
Framsóknarflokksins getur greini-
lega hugsað sér samstarf við fíeiri
en Sjálfstæðisflokkinn.
Margrétar Frímannsdóttur, for-
manns Alþýðubandalagsins, um
að henni litist vel á að Halldór
leiddi ríkisstjórn í samvinnu við
samfylkinguna eftir kosningar?
„Eg tók eftir þessum ummæl-
um og fagna þeim. Eg vona að
þar sé um einhverja stefnubreyt-
ingu að ræða hjá flokkunum inn-
an samfylkingarinnar, í garð
Framsóknarflokksins. Þeir hafa
verið með mjög óvægna gagnrýni
Halldór Ásgrímsson: Vonandi
stefnubreyting hjá stjórnarandstöð-
unni sem hefur verið mjög óvægin
í gagnrýni á Framsóknarflokkinn.
á störf okkar allt þetta kjörtíma-
bil og þeir hafa gagnrýnt störf
ráðherra Framsóknarflokksins
en ekki samstarfsflokksins.
Skilaboð þeirra, fram að þessu,
hafa ekki verið á þann veg að
störf okkar njóti fylgis hjá stjórn-
arandstöðunni. En mín skilaboð
eru að til þess að Framsóknar-
flokkurinn leiði næstu ríkisstjórn
þarf hann að fá til þess góðan
stuðning," sagði Halldór.
Skilaboð frá HaUdóri
„Eg met ummæli Halldórs Ás-
grímssonar í fyrsta lagi á þann
veg að stjórnarflokkarnir gangi
óbundnir til kosninga og í öðru
lagi að hann geti mæta vel hugs-
að sér samstarf við aðra en Sjálf-
stæðisflokkinn. Eg lít svo á að í
ræðu sinni hafi hann verið að
undirstrika þetta,“ sagði Sighvat-
ur Björgvinsson.
Margrét Frímannsdóttir segir
að það hljóti auðvitað alltaf að
vera kappsmál stjórnmálafor-
ingja og flokka að leiða ríkis-
stjórnarstarf og að hafa eitthvað
um það að segja hvernig það þró-
ast.
„Halldór hefur sagt áður að
Framsóknarflokkurinn gangi
óbundinn til þingkosninganna
og ég lít svo á að hann hafi þarna
verið að staðfesta þau ummæli.
Eg hef hins vegar sagt að mér
hugnist það ágætlega að starfa
með Framsóknarflokknum í rfk-
isstjórn undir forsæti Halldórs
Ásgrímssonar. Þessi ræða Hall-
dórs slær ekkert á móti því,“
sagði Margrét Frímannsdóttir.
- S.DÓR
Guðrún Ágústdóttir.
Guðrún
hættir
Guðrún Ágústsdóttir borgarfull-
trúi mun fylgja eiginmanni sín-
um, Svavari Gestssyni, til Kanada
í sumar en hann tekur fljótlega
við sendiherrastarfi þar. Utanrík-
isráðherra hefur skipað Svavar
sendiherra í utanríkisþjónustunni
frá 1. mars. Honum verður falin
dagleg yfirumsjón með umfangs-
miklum verkefnum Iandafunda-
nefndar í Kanada um aldamótin.
Guðrún ætlar að fá Ieyfi frá
störfum í borgarstjórn og tekur
Anna Geirsdóttir læknir sæti
hennar.
Guðrún Ágústsdóttir og Helgi
Hjörvar, efsti maður á R-listan-
um, gerðu með sér samning í vor
er leið um að Guðrún yrði forseti
borgarstjórnar en ekki Helgi eins
og hefðin sagði til um. Samning-
urinn gildir í eitt ár. Helgi verður
því forseti borgarstjórnar f júní
næstkomandi þegar Guðrún
hverfur úr borgarstjórn.
Allir ii ýj u ríMsstarfs
mennimir syðra
Reykjavík og Reykja-
nes fengu alla nýja
ríkisstarfsmenn og
90% allra viðbdtar-
fjárveitinga frá 1994-
1997. Þangað fara
90% allra rannsókn-
arstyrkja og 75%
allra húsnæðisstyrkja
og þar tapa bankamir
mestu af útánunum.
Ríkisstarfsmönnum (A-hluta
stofnana) fjölgaði um 455 stöðu-
gildi í Reykjavík og Reykjanesi
frá 1994 til 1997 á sama tíma og
þeim fækkaði um rúmlega 30 í
landsbyggðarkjördæmunum. Af
rúmlega 10 milljarða raunhækk-
un ríkisútgjalda þessi þrjú ár
komu 9 milljarðar í hlut R-kjör-
dæmanna en 1 milljarður skiptist
á öll hin kjördæmin. Athygli vek-
ur að einungis útgjaldahækkunin
til Reykjavíkur á þessum þrem
árum er hærri upphæð (6,4 millj-
arðar) en heildarútgjöld ríkis-
sjóðs í hverju þessara kjördæma:
Vesturlandi, Vestljörðum, Norð-
urlandi vestra og Austurlandi.
Árið 1997 fékk Reykjavík ein og
sér ríflega helming heildarút-
gjalda ríkissjóðs (A-hluta). Störf-
um og kostnaði við grunnskóla er
sleppt öll árin.
Þveröfugt
„Þarna er nákvæm greining á því
hvernig okkar sameiginlegu út-
gjöldum er skipt eftir kjördæm-
um,“ sagði Egill Jónsson, stjórn-
arformaður Byggðastofnunar,
um úttekt sem
stofnunin lét gera
á því hvernig til
hafi tekist að
framfylgja stefnu-
mótandi byggðaá-
ætlun 1994-97,
sem Alþingi sam-
þykkti, þar sem
segir: „Opinber
þjónusta og starf-
semi opinberra
stofnana verði
aukin á lands-
byggðinni en
dregin saman á
höfuðborgarsvæð- i~iaraicjur /_ Haraldsson hagfræðingur: Vilji menn í al-
''lu u a° sama vöm vmna aQ efungU landsbyggðarinnar er mun væn-
skaP1- legra til árangurs að fíytja störf út á land en að auka
Stæbkim kök- ----------pfettw*-------------
itiinar syðra
Niðurstaðan virðist þveröfug.
Stækkun „ríkiskökunnar" Ienti
nánast öll á Reykjavíkursvæðinu,
eins og áður er lýst. Þar fyrir
utan fara 3/4 hlutar alls opinbers
stuðnings við húsnæðiskerfið
(vaxtabætur, vaxtaniðurgreiðslur,
og húsaleigubætur) til íbúa R-
kjördæmanna. Um og yfir 90%
allra styrkja úr Tækni-, Vísinda-,
Bygginga- og tækjasjóði og Rann-
sóknarnámssjóði sömuleiðis og
m.a.s. drjúgur þriðjungur af
styrkjum Framleiðnisjóðs land-
búnaðarins. Reykvíkingar hafa
þar á ofan aukið hluta sinn í út-
lánatöpum bankanna jafnt og
þétt á þessum árum, úr 40% upp
í 63% árið 1997.
Vænlegra að flytja störf
Vilji menn í alvöru vinna að efl-
ingu landsbyggðarinnar telur
höfundur skýrslunnar, Haraldur
L. Haraldsson hagfræðingur, það
mun vænlegra til árangurs að
flytja störf út á land heldur en að
auka íjárfestingar (t.d. í menn-
ingarhöllum). Að hans mati
þyrfti raunar Ifka að stuðla að
meiri dreifingu opinberra fyrir-
tækja til nágrannabyggðarlaga
höfuðborgarinnar, sem m.a.
mundi stórbæta nýtingu gatna-
kerfisins.
Skýrslan sýnir m.a. að stöðu-
gildi ríkisins eru 104 á hverja
1.000 íbúa í Reykjavík (næstum
íjórðungur allra starfandi borgar-
búa) en aðeins 40 að meðaltali
utan Reykjavíkur. Af 430 nýjum
ríkisstarfsmönnum á árunum
1994-97 er rúmlega þriðjungur-
inn (150) hjá menntamálaráðu-
neytinu, hátt í 100 hjá félagsmál-
ráðuneytinu og álíka hópur hjá
umhverfisráðuneytinu. Og allur
er þessi hópur á SV-horninu,
sem áður segir. — HEI
INNLENT
Akureyrarbær tekur 700 mílljóiia
króna lán
Kaupþing Norðurlands og Kaup-
þing hafa undirritað samning þess
efnis að verðbréfafyrirtækin annist
700 milljóna króna skuldabréfaút-
boð fyrir Akureyrarbæ. Akureyrar-
bær óskaði eftir tilboðum frá Ijár-
málastofnunum og reyndist tilboð
Kaupþings Norðurlands og Kaup-
þings hagstæðast þeirra fimm til-
boða sem bárust. Samkvæmt sam-
ingnum sjá verðbréfafyrirtækin um
að sölutryggja 10 ára eingreiðslu-
bréf með árlegum gjalddögum.
Að sögn Þorvaldar Lúðvíks Sig-
urjónssonar, framkvæmdastjóra
Kaupþings Norðurlands, eru kjörin þau bestu sem íslensku sveitarfé-
lagi hafa boðist til þessa og endurspegli góða fjárhagsstöðu bæjarins
og það traust sem hann nýtur. Dan Brynjarsson, fjármálastjóri bæj-
arins, segir að Ijármunirnir verði notaðir til þess að fjármagna fram-
kvæmdir þessa árs og greiða upp eldri lán. Einnig verður fénu varið
til að mæta fjárþörf síðasta árs. Dan segir kjörin mjög góð og lánið
tekið á góðum tíma. — GG
íslandsflug til Grænlands
Grænlandsflug hefur leigt ATR-flugvél íslandsflugs vegna flugs til
Scoresbysunds í sjö mánuði frá og með 31. mars nk. Flogið verður
þangað frá Reykjavíkurflugvelli alla miðvikudaga kl. 10:30. Sigfús
Sigfússon, markaðsstjóri Islandsflugs, segir að vélin henti mjög vel til
farþega- og fragtflugs. Fargjaldið í þessum ferðum kostar um 15 þús-
und krónur, báðar Ieiðir. — GRH
Frá undirskrift samnings milli
Akureyrarbæjar, Kaupþings
Norðurlands og Kaupþings.
mynd: brink
Nýtt
Tómas Ingi
Olrich.
ferðamálaráð
Tómas Ingi Olrich alþingismaður hefur verið skipað-
ur formaður Ferðamálaráðs í stað Birgis Þorgilssonar
sem verið hefur formaður frá 1994. Jón Kristjánsson
alþingismaður er varaformaður nýs Ferðamálaráðs. I
því eru 23 fulltrúar skipaðir til 4 ára og eru 5 skipað-
ir án tilnefningar en 18 af ýmsum hagsmunaaðilum í
ferðaþjónustu.
Auk Tómasar og Jóns eru í framkvæmdastjórn ráðs-
ins Steinn Logi Björnsson, Helgi Jóhannsson, Stefán
Sigurðsson, Helgi Pétursson og Pétur Geirsson.