Dagur - 13.02.1999, Blaðsíða 6
6 - LAV GARDAGVR 13. FEBRÚAR 1999
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Simar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Simbréf auglýsingadeildar:
Simar auglýs/ngade/ldar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.800 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
460 6161
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is
Símbréf ritstjórnar: 460 6i7i(AKUREYRi) 55i 6270 (REYKJAVÍK)
Ríldsstj ómarfomsta
í fyrsta lagi
Flest bendir til að Samfylkingin fái það mikið kjörfylgi að hún
nái því markmiði sínu að verða ákveðið mótvægi við Sjálfstæð-
isflokkinn. I því ljósi vekur sérstaka athygli að Halldór As-
grímsson lýsir því mjög ákveðið yfir að Framsókn sé ein á miðj-
unni í íslenskum stjórnmálunum. Og það vekur jafnvel enn
meiri athygli að Halldór skilgreinir miðjustefnu Framsóknar
sem „þriðju leiðina", sem sé samstofna þeirri stefnu, sem Tony
Blair og breski Verkamannaflokkurinn er að feta.
í öðru lagi
Ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefur
verið kalkúnalappalaust. Engu að síður er ekki sjálfgefið að
það haldi áfram. Halldór Asgrímsson hefur sagt í greinum sín-
um hér í Degi að flokkurinn muni ganga óbundinn til kosn-
inga og sækist almennt eftir ríkisstjórnarforustu. Þetta ítrekaði
hann á opnum fundi í fyrrakvöld. Þessi yfirlýsing vex að vægi
vegna þess daðurs sem komið hefur úr herbúðum Samfylking-
arinnar um að Framsókn gæti hugsanlega leitt nýja vinstri-
stjórn. Það er óneitanlega komin kosningaspenna í stjórnar-
samstarfið.
í þriðja lagi
En jafnframt hefur Halldór Ásgrímsson bent á varðandi ríkis-
stjórnarforustu flokksins að mikilvægt sé að Framsókn komi
vel út úr kosningum. Skilaboðin eru skýr: vilji menn nýja
vinstristjórn, eiga þeir að kjósa Framsókn. En um leið og for-
maður Framsóknarflokksins hefur með þessu aðgreint sig frá
samstarfsflokknum, liggur fyrir að vilji menn ekki beinlínis
meirihlutastjórn Sjálfstæðisflokks, sé líka vænlegast að kjósa
Framsókn. Þannig mætti framlengja núverandi samstarf.
Vissulega snjöll herstjórnarlist í upphafi kosningabaráttu. „En
gömul útslitin gáta þó, úr gleðinni dró,“ segir í kvæðinu. Þýð-
ir þetta að Framsókn muni gefa frá sér ríkisstjórnarforustu eða
ríkisstjórnarsetu ef hún kemur ekki vel út úr kosningum?
Birgir Guðmundsson.
„Þiuigamiðjan - það er ég!“
Garri er massífur miðjumaður,
hefur verið það frá vöggu og
verður ugglaust alla Ieið fram
á grafarbakkann, fram af hon-
um og áfram sem leið liggur
niður og í norðurátt. Þannig er
Garri miðbarn foreldra sinna
og spilaði sem miðjumaður í
handbolta og miðvallarleik-
maður í fótbolta í æsku. Að
sjálfsögðu býr
Garri í miðbæn-
um, styður mið-
Iægan gagna-
grunn og raunar
miðsækna starf-
semi hvurskonar.
Og auðvitað er
Garri miðjumað-
ur í pólitík og þarf
varla fram að
taka. Miðjumoðið
er sem sé Garra ær
og kýr á öllum svið-
um.
Miðja er allt sem þarf
Það gladdi því hið miðlæga
hjarta Garra þegar miðjuleið-
toginn mesti, Halldór Ás-
grímsson, stóð upp á fundi í
vikunni og flutti landslýð þann
heilaga boðskap að miðjan
væri nafli alheimsins í fs-
Ienskri póltitfk. „Miðjan er í
Framsóknarflokknum og
þungamiðjan, það er ég,“ sagði
Halldór, eða eitthvað í þá veru.
Og hann hafnaði öllum öðr-
um leiðum, (minntist reyndar
ekki á „hina leiðina“ sem var
leðinlegt), og hóf að tala eins
og forstjóri viðhaldsdeildar
vegagerðarinnar: „Vinstri leið-
in er ófær og ónýt (minnir sem
sé á veginn um Tjörnes - at-
hugasemd Garra) og hægri
Ieiðin er ófær líka. Eina Ieiðin
sem er fær og án hindrana er
leiðin fram miðjuna," sagði
Halldór og mæli hann miðju-
manna heilastur og Garri get-
ur tekið undir hvert orð leið-
toga síns.
Miðju-ísland, óskaland-
ið...
Boðskapurinn er sem sé sá að
þeir sem kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn og Samfylkinguna
eru á leið út í ófærð og ógöng-
ur og þurfa helst að eiga jeppa
(sem flestir kjós-
endur Sjálfstæðis-
flokksins munu
reyndar eiga að
sögn). Þeir sem
hinsvegar vilja
bruna áfram veg-
inn á rennisléttu
pólitísku malbiki
eiga að kjósa
Framsóknarflokk-
inn.
Það sem vakti svo
kannski mesta at-
hygli í ræðu Halldórs var það
að hann lýsti því yfir að und-
anfarið kjörtímabil hefði verið
fylgt miðjustefnu í stjórn
landsins. Sem þýðir annað
tveggja, að Sjálfstæðisflokkur-
inn sé orðinn miðjuflokkur (og
því þá ekki að kjósa hann til
jafns við framsókn?) eða hitt
að Framsókknarflokkurinn
hafi ráðið stjórnastefnunni og
Davíð og aðrir hægri menn i
ríkisstjórn hafi Iátið Halldór
teyma sig bljúga og meðfæri-
lega fram miðjuna.
Með öðrum orðum, Halldór
er búinn að breyta Sjálfstæðis-
flokknum í miðjuflokk. Og því
hlýtur krafan að vera sú að
Halldór myndi ríkisstjóm með
Samfylkingunni eftir kosning-
ar í því skyni að gera hana líka
að miðjuflokki. Takist það þá
eru aliir flokkar á Islandi orðn-
ir miðjuflokkar og sæluríki
miðjumoðsins heldur innreið
sína í nafla alheimsins. GARRI
ELÍAS
SNÆLAND
JÓNSSON
SKRIFAR
Stóð af sér stormtnn
seminnar. Sem er auðvitað enn
ein sönnun þess að hatur er
Aðför repúblíkana í bandaríska
þinginu að Bill Clinton, forseta,
er lokið með fyrirsjáanlegum ósi-
gri þeirra manna sem beitt hafa
öllum brögðum til að klekkja á
forsetanum í nokkur ár - allt að
sjálfsögðu á kostnað bandarískra
skattborgara.
Niðurstaðan er ömurleg fyrir
repúblíkana. Þótt þeim hafi tek-
ist að halda flokksaga í fulltrúa-
deild bandaríska þingsins brást
flótti á liðið í öldungadeildinni.
Nokkrir stjórnarandstæðingar
gátu ekki þegar til kastanna kom
fengið sig til að greiða atkvæði
með því að reka forseta mesta
stórveldis heimsins úr embætti
fyrir það eitt að ljúga til um
framhjáhald.
Pólitískt hatur
Það var auðvitað aldrei í spilun-
um að nægilegur meirihluti yrði í
öldungadeildinni til að reka
Clinton frá völdum. Að því leyti
til var allur málatilbúnaður
repúblíkana sýndarmennska og
flokkspólitískt gjörningaveður
sem aldrei gat endað nema á
einn veg.
En pólitískt hat-
ur forystumanna
repúblíkana á for-
setanum var svo
mikið að hinir hóf-
samari í þeirra röð-
um fengu engu
ráðið. Ofgamenn-
irnir tóku völdin og
ágerðust í ofsa sín-
um við hvern ósig-
ur. Helsti foringi
þeirra undanfarin
ár, Newt Gingrich,
varð fyrstur til að
falla á það sverð
sem hann hafði átt
svo mikinn þátt í
að reisa gegn for-
setanum. Eftirmaður hans sem
leiðtogi repúblíkana í bandaríska
þinginu fór sömu leið. Álit
repúblíkana meðal þjóðarinnar
hrapaði. Ekkert af þessu fékk
öfgamennina til að sjá Ijós skyn-
alltaf slæmur leiðsögumaður í
stjórnmálum eins og í lífinu yfir-
leitt.
Óttast hefndir
Forystumenn repúblíkana, sem
hafa sótt að forsetanum, fjöl-
skyldu hans, nánustu vinum og
ráðgjöfum af algjöru miskunnar-
leysi í nokkur ár, óttast nú einna
mest að demókratar fari að svara
fyrir sig. Þeir óttast sem sagt
hefnd í næstu þingkosningum,
en þá munu ýmsir öfgafyllstu
leiðtogar repúblíkana Ieita end-
urkjörs.
Auðvitað er Ijóst að demókrat-
ar, og Clinton forseti sérstaklega,
munu leggja kapp á að nýta sér
þann mikla b)T sem þeir hafa í
almenningsálitinu til að endur-
heimta meirihlutann á banda-
ríska þinginu í næstu kosning-
um. Hins vegar er hjákátlegt að
heyra þá Ieiðtoga repúblíkana,
sem gengið hafa fram gegn
Clinton af mestu hatri árum
saman, væla undan væntanlegri
sókn demókrata í harðri kosn-
ingabaráttu. Það er ekki mikill
mannsbragur af slíku háttarlagi,
enda kannski ekki við því að bú-
ast.
-Vagur
SDuS
svarad
Hverjir verða um helgitia
bikarmeistararkarla og
hvenna í handknattleih?
(í karlaflohki keppa FH og Aftur-
elding en í kvennaflokki Fram og
Haukar)
Ragnheiður Elíti Clausen
sjónvarpsþula.
„I kvennaflokki
eru það náttúr-
lega Framarar.
Þeir eru bestir,
fyrir náttúrlega
utan Valsara,
sem er mitt lið af
því ég var í skóla
í Hlíðunum þegar ég var stelpa. I
karlaflokki eru það FH-ingar og
það segi ég vegna þess að ég
neyðist til að halda með FH úr
því Garðabæjarliðið Stjarnan er
ekki á Ieikvellinum, en með
Stjörnunni held ég þar sem ég er
úr Garðabæ. Síðan hef ég náttúr-
Iega líka tröllatrú á FH.“
Atli Hilmarsson
„I kvennaflokki
held ég að Fram
vinni þetta, þó
það sé nú hálft í
hvoru óskhyggja
hjá mér til
handa míns
gamla félags.
Það sama má eiginlega segja Iíka
um FH. Til þess félags hef ég
miklar taugar eftir að hafa spilað
með því um tveggja ára skeið og
þar eru margir leikmenn sem ég
spilaði með og þekki vel. En samt
sem áður held ég að raunhæft
mat þar sé að Afturelding vinni."
Margrét Frímannsdóttir
formaðurAlþýðubandalagsins.
„I kvennafloltki
ætla ég að veðja
á Hauka, ég hef
dálæti á því liði.
Eg fór að fylgjast
með karlaliði
Hauka þegar
Þorvarður Tjörvi
Ólafsson spilaði með þeim, en
hann var um tíma formaður Verð-
andi - samtaka ungs alþýðu-
bandalagsfólks. Er auk þess frá-
bær handboltamaður. Eg yfirfæri
þennan áhuga minn á Haukum
bæði á karla- og kvennaflokka. I
karlaflokki veðja ég á Aftureld-
ingu, strákar frá Selfossi hafa ver-
ið að spila með því liði. Svo smit-
ar út frá sér áhugi sonar míns,
Ara Klængs, sem heldur með
Mosfellsbæjarliðinu. En reyndar
hefði ég viljað sjá sunnlenskt lið í
þessum úrslitum, það kemur
seinna."
Sigurjón Bjamason
þjálfari.
„Á Aftureldingu
ætla ég að veðja í
karlaflokki. Eg
þekki til þess fé-
íags eftir að hafa
Ieikið með því f
einn vetur, og
veit að þar ríkir
mikið titlahungur og að menn
gefast ekki upp fyrr en í fulla
hnefana. í kvennaflokki tippa ég
á Ifauka. Það er sterkt lið sem
þekkir líka þessa stöðu; að vera í
úrslitaleikjum og kunna þar með
á þetta spennustig sem svona
leikjum fylgir. Haukastúlkur hafa
líka verið á uppleið í allan vetur.“
þjálfari KA.