Dagur - 13.02.1999, Síða 10
10- LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999
rD^tr
FRÉTTIR
Um 250 milljójia
hagnaður hjaUA
Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri UA, segir að það
megi rekja til þeirrar hagræðingar
sem hófst á árinu 1997 og fólu
meðal annars í sér fækkun skipa,
kaup á aflaheimildum og endur-
skoðun á öllum kostnaðarliðum
rekstrarins. Þá var um leið unnið
að því að auka tekjur félagsins
með kaupum á hráefni frá öðrum
aðilum. Ytri aðstæður bolfisk-
veiða og -vinnslu bötnuðu einnig
til muna á milli ára. Afurðaverð
hélt áfram að hækka á árinu og f
árslok hafði það hækkað um 11 -
12%. Guðbrandur segist ánægður
með þann viðsnúning sem orðið
hefur á rekstri félagsins. Hann
sýni að verið sé á réttri leið og
rekstrarhorfur yfirstandandi árs
góðar og góðir vonir um að rekst-
urinn batni enn. Aðalfundur UA
verður 23. febrúar nk. — GG
Afkoma af reglulegri
starfsemi Útgerðarfé-
lags Akureyringa batn-
aði um riíniar 100
milljónir króna á milli
ára.
Utgerðarfélag Akureyringa var
gert upp með 251 milljóna króna
hagnaði á árinu 1998, saman-
borðið við 131 milljóna króna tap
árið áður. Það sem skiptir þó hvað
mestu máli er að veltufé frá
rekstri varð 552 milljónir króna á
móti 274 milljónum króna árið
áður, hjá móðurfélaginu. Þess má
geta að einungis einu sinni á síð-
astliðnum tíu árum hefur rekstur
félagsins skilað meira veltufé frá
rekstri en nú.
Heildarvelta móðurfélagsins á
liðnu ári nam tæpum 4 milljörð-
um króna. Rekstrartekjur, voru
samtals 3,2 milljarðar króna en
voru 2,7 milljarðar króna, sem er
512 milljóna
króna aukning
milli ára, eða
18,8% af tekjum.
Þessi aukning
skýrist annars veg-
ar af auknum afla-
heimildum 1998
og þess að gerðir
voru samningar
við aðrar útgerðir
um kaup á hráefni
til vinnslunnar.
Hagnaður af
reglulegri starfsemi móðurfélags-
ins varð tæpar 5 milljónir króna,
samanborið við 97 milljóna króna
tap árið 1997. Þegar tekið hefur
verið tillit til annarrra tekna,
gjalda og afkomu dótturfélaga er
félagið gert upp með 251 milljóna
króna hagnaði.
Rekstrartekjur samstæðunnar
námu 3,5
milljörðum
króna, saman-
borið við 4,5
milljörðum
króna árið
1997. Megin-
skýringin á
þessum tekju-
samdrætti er
sú að árið 1997
var þýska félag-
ið Mecklen-
burger Hoch-
seefischerei hluti af samstæð-
unni. I árslok var eiginfjárhlutfall
samstæðunnar rúm 36%, saman-
borið við tæp 27% í lok árs 1997.
T
Afkoma ÚA var mun betri í fyrra
en árið áður.
r
Leikskólakennarar
Leikskólar Reykjavíkur auglýsa lausar stöður leikskólakennara
við neðangreinda leikskóla:
Laugaborg v/ Leirulæk
Leikskólinn er fjögurra deilda þar sem dvelja
82 börn samtímis.
Leitað er eftir leikskólakennara í fullt starf.
Leikskólinn leggur áherslu á leik og ritmál.
Nánari upplýsingar veitir Helga Alexanders-
dóttir leikskólastjóri, í síma 553-1325.
Hof v/ Gullteig
Leikskólinn er fjögurra deilda þar sem 84 börn
dvelja samtímis.
Leitað er eftir leikskólakennara í 50% starf
e.h. Leikskólinn leggur áherslu á skapandi
starf. Góður starfsandi ríkir á staðnum.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Sigurðardóttir
leikskólastjóri, í síma 553-9995.
Rofaborg v/ Skólabæ
Leikskólinn er fjögurra deilda þar sem dvelja
77 börn samtímis.
Leitað er eftir leikskólakennara í 50% stöðu
e.h. Leikskólinn leggur áherslu á gæði í sam-
skiptum.
Nánari upplýsingar veitir Þórunn Gyða Björns-
dóttir leikskólastjóri, í síma 567-2290.
Fífuborg v/Fífurima
Leikskólinn er fjögurra deilda þar sem dvelur
81 barn samtímis.
Leitað er eftir leikskólakennara í fullt starf.
Einnig vantar aðstoð í eldhús. Um er að ræða
fullt starf.
Nánari upplýsingar veitir Elín Ásgrímsdóttir
leikskólastjóri, í síma 587-4514.
Sólhlíð v/ Engihlíð
Leikskólinn er fjögurra deilda þar sem dvelja
67 börn samtímis.
Leitað er eftir leikskólakennara í fullt starf.
Nánari upplýsingar veitir Elísabet Auðuns-
dóttir leikskólastjóri, í síma 551-4870.
Vesturborg v/ Hagamel
Leikskólinn er þriggja deilda þar sem dvelja
70 börn samtímis.
Leitað er eftir leikskólakennara í fullt starf.
Leikskólinn leggur áherslur á val og hópastarf.
Nánari upplýsingar veitir Steinunn Sigþórs-
dóttir leikskólastjóri, í síma 551-7665.
Hraunborg v/ Hraunberg
Leikskólinn er þriggja deilda þar sem dvelja
66 börn samtímis.
Leitað er eftir leikskólakennara í fullt starf.
Leikskólinn leggur áherslu á val og hópastarf.
Nánari upplýsingar veitir Sigurborg Svein-
björnsdóttir leikskólastjóri, í síma 557-9770.
Brekkuborg, Hlíðarhúsum 1
Leikskólinn er fjögurra deilda þar sem dvelur
81 barn samtímis.
Leitað er eftir leikskólakennara í fullt starf.
Leikskólinn leggur áherslu á val og hópastarf.
Nánari uppýsingar veitir Guðrún Samúelsdótt-
ir, leikskólastjóri í síma 567-9380.
Leikgarður, Eggertsgötu 12-14
Leikskólinn er þriggja deilda þar sem dvelja
62 börn samtímis.
Leitað er eftir leikskólakennara í 50% stöðu
eftir e.h.
Nánari upplýsingar veitir Sólveig Sigur-
jónsdóttir leikskólastjóri í síma 551-9619.
Suðurborg, Suðurhólum 19
Leikskólinn er fimm deilda þar sem dvelja 102
börn samtímis.
Leitað er eftir leikskólakennara í fullt starf sem
fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Elínborg Þorláks-
dóttir, leikskólastjóri í síma 557-3023.
Seljaborg, Tunguseli 2
Leikskólinn er tveggja deilda þar sem dvelja
42 börn samtímis.
Leitað er eftir leikskólakennara í ca 50%
stöðu e.h. frá og með 1. apríl nk.
Einnig vantar starfsmann í 100% stöðu mat-
ráðs.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir
leikskólastjóri, í síma 557-6680.
Hólaborg v/ Suðurhóla
Leikskólinn er fjögurra deilda þar sem dvelja
63 börn samtímis.
Leitað er eftir leikskólakennara í fullt starf.
Nánari upplýsingar veita Ásta Jónsdóttir og
Inga K. Guðmundsdóttir leikskólastjórar, í
síma 557-6140.
Laufskálar, Laufrima 9
Leikskólinn er fjögurra deilda þar sem dvelja
84 börn samtímis.
Leitað er eftir leikskólakennara í 50% starf
e.h.
Nánari upplýsingar veitir Lilja Björk Ólafsdóttir
leikskólakennari, í síma 587-1140.
Nóaborg v/ Stangarholt
Leikskólinn er þriggja deilda þar sem dvelja
60 börn samtímis.
Leitað er eftir leikskólakennara í fullt starf.
Einnig vantar leikskólasérkennara í stuðnings-
starf. Um er að ræða hlutastarf.
Nánari upplýsingar veitir Soffía Zophonías-
dóttir leikskólastjóri, í síma 562-9595.
Njálsborg, Njálsgötu 9
Leikskólinn er þriggja deilda þar sem dvelja
49 börn samtímís. Leitað er eftir leikskóla-
kennara í fullt starf deildarstjóra.
Nánari upplýsingar veitir Hallfríður Hrólfsdóttir
leikskólastjóri, í síma 551-4860.
Vakin er athygli á að fáist ekki leikskólakennarar í ofangreindar stöður verða ráðnir starfsmenn með
aðra uppeldismenntun og/eða reynslu.
Undanfarin ár hefur staðið yfir markviss vinna við stefnumótun hjá Dagvist barna. Meginmarkmið er að bæta og styrkja alla þjónustu við börn
og foreldra þeirra. Þjónusta byggir á þekkingu á þörfum barnanna og á góðu faglegu starfi í náinni samvinnu við foreldra. Hjá Dagvist barna í
Reykjavík starfa um 1650 starfsmenn og allt kapp er lagt á að fá dugmikið og áhugasamt fólk til starf hjá metnaðarfullri stotnun.
Umsóknir berist viðkomandi leikskólastjóra á eyðublöðum sem liggja frammi í leikskólum og á skrifstofu Dagvistar barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17.
Sjálfstætt
útlendingaeftMit
Komið er fram lagafrumvarp þess
efnis að útlendingaeftirlitið verði
sjálfstæð stofnun og verði henni
ráðinn sérstakur forstjóri. Fram
til þessa hefur útlendingaeftirlit-
ið heyrt undir lögreglustjóraemb-
ættið.
Hert viðurlög við
spjöHum
Guðmundur
Bjarnason um-
hverfisráðherra
hefur lagt fram
á alþingi frum-
varp um hert
viðurlög við
umhverfisspjöll-
um. í frumvarp-
inu er lagt til að
það varði allt að
4ra ára fangelsi
ef menn gerast sekir um meiri
háttar brot gegn lögum um
vemdun umhverfisins. Þar eru
tilnefnd mengun lofts, jarðar,
hafs eða vatnasvæða þannig að af
hljótist varanlegt tjón. Sömuleið-
is ef tjón hlýst af geymslu eða Ios-
un skaðlegra efna og ef menn
valda jarðraski þannig að landið
breyti varanlega um svip eða
spilla merkum náttúruperlum.
Fomleifauppgröftiur í
Skálholti
Kristín Ástgeirs-
dóttir hefur lagt
fram þingsálykt-
unartillögu um
að Alþingi feli
menntamála-
ráðherra að
helja nú þegar
undirbúning að
uppgreftri
hinna fornu
bæjarhúsa á
biskupssetrinu í Skálholti í tilefni
1000 ára afmælis kristnitöku.
Uppgröfturinn hefjist svo fljótt
sem auðið er.
Styrktarsjóður
iianisinanna
Hjálmar Árnason er oddviti sex
framsóknarþingmanna sem lagt
hafa fram frumvarp til laga um
að komið verði á styrktarsjóði
námsmanna. Er gert ráð fyrir að
efnilegir námsmenn geti fengið
óafturkræfa styrki úr sjóðnum til
framhaldsnám innanlands eða
erlendis.
Endurskoðim klunninda
Þrfr þingmenn Jafnaðarmanna
hafa Iagt fram á alþingi tillögu
um að fram fari heildarendur-
skoðun á greiðslum hlunninda og
bifreiðastyrkja í ríkiskerfinu.
Markmiðið á að vera að jafnræð-
is sé gætt í slíkum greiðslum milli
kynja og að virt séu ákvæði jafn-
réttislaga í því efni.
Tilfærsla
Ríkisstjórn hefur Iagt fram frum-
varp um að yfirstjórn embættis
ríkislögmanns verði flutt frá ljár-
málaráðuneyti til forsætisráð-
herra.
Stuðningur við kokka
Isólfur Gylfi Pálmason og Hjálm-
ar Árnason hafa lagt fram þings-
ályktunartillögu um að stjórnvöld
styðji við bakið á matreiðslu-
mönnum í viðleitni þeirra við að
flytja út þekkingu þeirra og mat-
argerðarlist og auka um leið út-
flutning á íslenskum landbúnað-
arafurðum. — s.dór
Kristín Ástgeirs-
dóttir.